Morgunblaðið - 04.06.1930, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Höfnm fyrirliggjandi:
HRÍSMJÖL
KARTÖFLUMJÖL
Munið að tala við okkur er yður vantar ofangreind-
ar tegundir.
llhjngishðtiðin.
Nokkrir menn verða ráðnir sem verðir við Þingvalla-
veginn. Upplýsingar þrjá næstu daga, kl. 8 til 9 síðdegis
hjá Jóni Ólafssyni, Njarðargötu 47.
Atsala
á GRAMMÓFÓNPLÖTUM og nótum — MÖRG HUNDR-
UÐ PLÖTUR, verða seldar fyrir hálfvirði frá deginum
í dag til Hvítasunnu, til að rýma fyrir nýjum vörum. —
Ennfremur 10% afsláttur af grammófónum og öllum
öðrum vörum.
KatrlnViðQi?
Hljóðfæraverslun — Lækjargötu 2 — Sími 1815.
Beitnsíld.
Nýveidd refcaetasíld til sOIn.
frystihúsið Snæfell.
Klapparstig 8
Bilferðir.
Eins og að undanförnu höfum við daglegar ferðir í
Grímsnes og Biskupstungur. Einnig í Laugardal, þegar
ástæður leyfa. Frá Reykjavík kl. 10 f. h. frá Vatnsleysu
klukkan 9 f. hád.
Viðkomustaðir eftir óskum farþega.
Afgreiðsla í Reykjavík, Laugaveg 33. Sími 221.
Kanpfjelag Grímsnesinga.
Tófuskinn,
hvít og blá, nokkur mjög góð stk. óseld. K. Stefánsson. Sími 1221.
Læbningastofa
mín í Pósthiísstræti 7 (4. hæð) er opin daglega kl. 10—11 og 5y2—7.
Karl Jðnsson, læknir.
Sjergrein gigtlækningar (ljós, nudd, sjúkraleikfimi, Díatherme og
annað rafmagn). Sími 1066 og heima 2020.
Skólahálíðin nyrðra.
(Binakskeyti til Mbl.)
Akure'yri, 2. júní 1930.
Hin norðlenska skólahátíð sem
stóð yfir í tvo daga, laugardaginn
31. maí og sunnudaginn 1. júní
varð öllum þátttakendum hin á-
nægjulegasta.
A laugardaginn var hátíðin hald-
in á hinu forna skólasetri og höf-
uðbóli, Möðruvöllum í Hörgárdal.
Þangað komu allir nemendur skól-
ans, er hátíðina sóttu og auk þess
fjöldi manna úr nærsveitum. Við-
búnaður þar á staðnum var sá, að
reist var gríðarstórt veitingatjald
og staðurinn fánum skrýddur, en á
rúst hins brunna skóla var ræðu-
pallur. Þar et nú hóll vallgróinn.
Bifreiðastöðvar Akureyrar sáu
mannfjöldanum, sem þaðan kom
fyrir skjótum flutningi, árla dags;
nokkrir tugir bíla voru í förum
með fólk. Um átta hundruð manns
munu hafa sótt hátíðina þann þag.
Er liðið var nær hádegi, setti
Jónas dómsmálaráðherra samkom-
una, en Einar Árnason, fjármála-
ráðherra bauð gestina velkomna.
Báðir eru þeir, sem kunnugt er
utskrifaðir úr skólanum. En liinn
ágæti söngflokkur Akure'yrar,
Geysir, söng þar hátíðarljóð Dav-
íðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Ljóð þessi eru ágæt, og munu
framvegis verða tilvalin skólaljóð
hins norðlenska skóla. Páll ísólfs-
son hefir samið lög við Ijóð þessi,
en söngflokknnm stjórnar Ingi-
mundur Árnason frá Grenivík.
Er ráðherrarnir höfðu lokið máli
sínu og söngflokkurinn sungið
Ijóðin, fór fram skólauppsögn. —
Sigurður Guðmundsson sagði upp
skólanum um leið og hann afhenti
52 gagnfræðingum og 15 stúdent-
um skírteini sín. Þessi stúdenta-
hópur frá hinum norðlenska menta
skóla er hinn efnilegasti, enda
fengu 13 þeirra 3. einkunn. Meðal
prófdómenda var G^uðmundur
Finnbogason landsbókavörður. Að
aflokinni skólauppsögn ge'kk mann-
fjöldinn allur í kirkjugarð staðar-
ins, þar sem Sigurður Guðmunds-
son skólameistari lagði blómsveiga
á leiði þeirra amtmanna, Stefáns
Thorarensen og Bjarna Thoraren-
sen, er báðir voru hlyntir endur-
reisn Hólaskóla, og gerðu Möðru-
vallastað frægan um ske'ið, hver á
sína vísu.
Allan morguninn hafði veður
verið bjart, lygnt og hlýtt og
Hörgárdalurinn því eins fallegur
og frekast er unt, en nú dimdi í
lofti og leit út fyrir veðrabrigði.
Gengið var nú í kirkju, en því
miður rúmaði Möðruvallakirkja
ekki nándarnærri mannfjölda þann
er þarna var samankominn og
urðu því margir af því að hlýða á
hina ágætu og skörulegu ræðu ek
síra Sveinn Yíkingur þar flutti,
en síra Friðrik Rafnar var fyrir.
altarinu.
Að guðsþjónustu lokinni var
gengið til veitingatjaldsins og sest
þar að kaffidrykkju. En um það
leyti, sem menn höfðu fengið sjer
hressingu birti í lofti og var veður
hið ákjósanlegasta alt til kvölds.
Hlje þetta notuðu hátíðagestir ó-
spart til að leita uppi gamla skóla-
bræður og vini og rifja upp fom-
ar endurmiunin.gar. Var það á-
nægjulegt mjög fyrir gamla skóla-
bræður að hittast þarna í góðviðr-
inu á Möðruvöllum; margir menn
sem komnip eru á efri ár hittu þar
forna fje'laga og vini er þeir höfðu
aldrei sjeð síðan skólavistin var
úti. —*
Kl. 4 sýndi leikfimisflokkur
skólans íþróttir undir stjórn hins
vasldega íþróttakennara, Her-
manns Stefánssonar; en að því
búnu hófust ræðuhöld að nýju. —
Talaði þá Sigurður skólameistari
fyrir minni íslands; Valtýr Stef-
ánsson talaði mn .nokkur grund-
vallaratriði í stefnu þeirra skóla-
manna Jóns Hjaltalíns og Stefáns
Stefánssonar; Guðm. Finnbogason
mælti fyrir minni hinna nýju stú-
denta, en Davíð Stefánsson flutti
erindi um Möðruvelli. Þvínæst hóf
ust frjáls ræðuhöld, þá talaði Þórð
ur Gunnarsson í Höfða um Möðru-
vallaskólann og áhrif hans. Jónas
Jónsson ráðherra um Jón A.
Hjaltalín og einkum um hin ensku
áhiif er hann ruddi braut í þjóð-
lífi voru, en Júlíus Havsteen sýslu
maður mælti fyrir minni Eyja-
fjarðar.
Að loknum ræðum þessum fóru
menn að búast til brottferðar, eink
um hið eldra fólk. Bílflutningarnir
til Akure'yrar gengu sæmilega
greiðlega; þeir sem bíða þurftu
eftir fari þangað fengu nii fram^
lengt tækifæri til þess að heilsa
fleirum og fleirum fornkunningj-
um og yngstu gestirnir skemtu
sjer við le'iki í vorblíðunni um
kvöldið. Allir hurfu ánægðir frá
hinu forna skólasetri og bjuggust
með .eftirvænting til veisiufagnað-
ar næsta dag.
Kl. 9 y2 á sunnudagsmorgun
söfnuðust hátíðargestirnir saman
fyrir framan Akureyrarskólaun. —
Var mannfjöldanum skipað í skrúð
göngu; meíkisstöng með áleturs-
spjaldi var fyrir árgang hvern
skólanemenda, árgangar fylktu
sjer saman og geligu þeir fyrstir
sem elstir voru. Skrúðgangan hjelt
frá skólanum niður á Torfunef og
síðan suður allan bæinn með lúðra
flokk í broddi fylltingar. — Var
gengið upp í kirkjugarð; þar lagði
Sig. Guðmundsson skólameistari
blómsveig á leiði Jóns Hjalt.alín
og Stefáns Stefánssonar, um leið
og liann mintist æfistarfs þeirra.
Síðan sne'ri mannfjöldinn til baka
að skólanum.
Tjaldað var yfir húsagarðinn
vestan við skólann og úr honum
gerður veisluskáli og Settust menn
nú að snæðingi. Sig. Guðmundsson
bauð gesti velkomna, Jónas Jóns
son ráðherra talaði um framþróun
hins norðlenska skóla; Steingr.
Jónsson bæjarfógeti mælti fyrir
minni Sig. Guðmundssonar, en
hann talaði nokkur orð til stúdent
anna. Söngflokkurinn Geýsir
skemti veislugestum. Árdegisveisl-
unni var lokið kl. 2; gengu þá
margir til kirkju og hlýddu á
messu hjá síra Friðrik Rafnar. En
kl. 71/2 var sest að miðdegisveisl-
unni í húsgarði skólans; sátu menn
yfir borðum til miðnættis; 22 ræð-
ur voru haldnar, auk þess sungið
og hátt kveðið, minst látinna skóla
meistara og annara starfsmanna og
að lokum lesin upp aragrúi af
heiilaóskaskeytum ek skólanum
bárust úr öllum áttum. Þvi næst,
Ferrosan
er bragðgott og styrkjandi
járnmeðal
og ágætt meðal við blóðleysi
og taugaveiklun.
Fæst í öllum lyfjabúðum.
Verð 2 50 glasið.
Rllskonar búsáhöld.
Katlar, pottar, margar stærðir.
Einnig mjólkurbrúsar,
allar stærðir
Vald. Ponlsen
Klapparstig 29. Sími 24.
I kynflara
vantar á e. s. Selfoss. Upplýsing-
ar um borð hjá fyrsta vjelstjóra
H.f. Eimskipafjelog íslands.
Anstnr i Vík.
Bifreiðaferð austur í Vík í
Mýrdal kl. 9^2 árdegis á
mánudögum og fimtudög-
um með bifreiðum Brands
Stefánssonar, Litla Hvammi,
Panta má far á
Bifreiðastðð Steindðrs.
Sími 581 (þi’jár línur.)
Á kTöldborðið:
Salt dilkakjöt, afbragðs gott. —
Reykt kindakjöt, soðinn og súr
livalur, riklingur, reyktur rauð-
magi, íslenskar kartöflur.
Vörur sendar heim.
Versl. Bjðrninn.
amammmmmmEmmmrammmmmmmmmmmammmmmmm^mmmm
Harlmanna-
regnfrakkarnlr
ern komnir.
Fallegir litir
og snið.
jr/a 'iaíí/u'ijhnaóoti
var stiginn dans í sölum skólans
til morguns.
Þingmaður Akureyrar, Erlingur
Friðjónsson, neitaði að taka þátt í
hátíðinni vegna þess að skólameist-
ari bannaði nemenda einum, Egg-
ert Þorbjarnarsyni, form. í fjel.
ungra kommúnista, að vera með
pólitískar æsingar í skólanum.