Morgunblaðið - 04.06.1930, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
O
.... ' ~ -Iti'
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk I
Rltstjörar: Jön Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Ritstjörn og afgrjlösla:
Austurstrœtl 8. — Slml 500. |
Auglýsingastjöri: E. Hafberg. j
Auglýsingaskrlf stof a:
Austurstræti 17. — Slmi 700. \
HeiAasImar:
Jön KJartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBi.
Utanlands kr. 2.50 á mánuBi.
t lausasölu 10, aura eintaklB,
20 aura meB Lesbök.
e.^-n — ......... ..... ■
SrSendar símfrsanir.
London (UP) 2. júní FB.
Vimmstöðvun í kopamámnin í
Þýskalandi.
Vinna hefir stöðvast í námum
■og verksmiðjum Mansfeld-fjelags-
ins, sem framleiðir næstum allan
kopar, se'm framleiddur er í Þýska-
landi.
1 Halle hafa 14 þús. verkamenn
mist atvinnu sína í hili vegna
stöðvunarinnar.
„Grraf Zeppelin" heldur heimleiðis.
London (UP) 3. júní FB.
Lakehurst: — Loftskipið Graf
Zeppelin lagði af stað i morgun
til Friedrichshafen via Sevilla og
er þetta seinasti áfangi hins sögu-
lega flugs, sem farið er til þess
að koma á loftskipasambandi milli
þriggja heimsálfa.
Dr. Eckener býst við, að ferðin
muni standa yfir í 70 klukku-
stundir. Veðuriiorfur,. voru taldar
mjög góðar, er loftskipið lagði af
stað.
Hermál Norðmanna.
Stjórnin hefir borið fram frum-
vörp um breytingar á herlögunum,
til að samræma þau lækkun her-
málaútgjaldanna úr 46 í 32 milj.
króna.
Að austan.
Norðfirði, FB 3. júní.
Ágætur afli undanfarna daga á
‘Stærri og smærri báta. Síldveiði
nokkur hjer á Norðfirði, annárs
staðar ekki síldar vart.
Tíðarfar ágætt.
Nýlega var byrjað á barnaskóla-
byggingu hjer, sem ætlað er að
kosti 150.000 krónur og sltal lokið
í ágúst næsta ár.
Opið brjef
til ritstjóra Tímans.
Ási, 3. júní 1930.
Hr. ritstjóri.
Mjer er það bæði ljúft og skylt
að þakka yður fyrir langt og ,fróð-
legt‘ brjef í Tímanum á laugardag-
inn var.
Jeg dáist að því, hve ant þjeT
látið yður um að vekja athygli
kjósenda landsins á mjer; jeg
kalla það beinlínis vel gert af yður
að fylla tvisvar sinnum 7 dálka
í blaði yðar til þess eins. Reyndar
kygg jeg, að færri 0rð hefðu dug-
að betur, jeg er sem sje hrædcf
úm að sveitakonurnar með um-
svifamiklu störfin, hafi tæplega
^íma til að lesa jafn langt mál og
krjef yðar er, sem þar að auki
°kkar á milli sagt, getur ekki bein-
línis kallast „skemtilestur.“
Jeg virði það mikils, að allflest
í brje'fi yðar kemur mjer ekkert
við, og þarf jeg því ekki að eyða
tíma til þess að svara því.
Jeg nenni helst ekki að eltast við
spurningar yðar um „stefnuskrá“
mína, sem þjer látist þakka yður
að vissu leyti, eli jeg vil einungis
benda yður á það, að jeg hefi þeg-
ar tekið þátt í ýmsum verklegum
framkvæmdum til hjálpar börnum
og gamalmennum. í því sambandi
leyfi jeg mjer að minnast á Barna-
vinafjelagið Sumargjöf, eT um
nokkur ár hefir undirbúið dag-
heimilisstofnun og vinnustofu fyr-
ir börn; jeg hefi eftir megni, tekið
þátt í þeirri starfsemi, og þykist
með því, meðal annars, hafa sýnt
„stefnuskrá“ mína í ve'rki, og það
hygg jeg að gera framvegis, hvort
sem jeg verð kosin á Alþing eða
ekki, og hvernig sem yður, hr.
ritstjóri þóknast að meta það.
Jeg býst við að þjer farið nærri
um það, hiærs virði mjér er álit
yðar á „þingmenskuhæfileikum“
mínum, auðvitað skiftir það engu
máli; en brosleg þótti mjer .setn-
ing í laugardagsbrjefi yðar, er svo
hljóðar:
„í þriðju ástæðunni fe'lst raunar
dálítíð hrós um mig, en hvergi
nærri nóg til þess að sanna þing-
menskuhæfileika yðar.“ (!!)
Ef yður langar til að skrifa
mjer eitt brjef enn, þá væri það
líklega heppilegast að geTa það
ekki fyr en rjett fyrir kosningar,
til þess að kjósendum gleymist það
síður, að Tíminn hefir biiist við
mjer inn á Alþing.
Guðrún Lárusdóttir.
Böðlar
Bæjarbúar eru ekki vanir því,
að sjá Ólaf Friðriksson hafa mildð
fyrir lífinu daglega. En undan-
farna daga virðist Ólafur hafa haft
óvenju annríkt. Hjeðinn olíukóng-
ur hafði skipað Ólafi, að fara á
milli atvinnureliendanna í bænum
og fá upplýst hvaða kaup þeir
greiddu föstum starfsmönnum. Þó
legði Hjeðinn ríkt á við Ólaf, að
ganga fram hjá Olíuversl. fslands,
því verið gæti að þar fyndi hann
mann, með svo bágbornum laun-
um, að liann neyðist til að þiggja
styrk af bænum.
En þar sem Ólafur kom, lagði
hann ríkt á við atvinnurekendur,
að þeir greiddu kaup samkvæmt
taxta verkamannafjelagsins Dags-
brúnar. Og ef starfsmenn voru
einhverstaðar ráðnir fyrir lægra
kaup, en Dagsbrúnartaxta, bannaði
Ólafur vinnu hjá slíkuin „lögbrjót-
um“, og hann fyrirskipaði verk-
fall. Auglýsti hann eitt slíkt verk-
fall í Alþýðublaðinu í gær.
Ekkert væri við þessu rápi Ólafs
að segja, ef það væri umhyggjan
fyrir velferð verkafólksins, sem
ræki hann af stað; því það er
ár iðanlega einlæg ósk allra að
v erkamenn, sem aðrir borgarar
þjóðfjelagsins, beri sem mest úr
býtum fyrir vinnu síná.
En hvenær hefir Ólafur Frið-
riksson sýnt í verki að hann — og
hann einn — sje hinn sanni vel-
gerðarmaður verkafólksins ? Hefir
hann nokkurntíma unnið ærlegt
handartak með verkafólki þessa
bæjar? Hefir hann nokkurntíma
verið fyrstur til að hlaupa undir
Hestamannafjel. Fáknr.
Adaj-
kappr eid ar
fjelagsins vería háðar á Skeiðvelinum við Elliðaárnar annan Hvítasunnudag og hef-
jast klukkkan 3 síðdegis.
Fjöldi gæðinga, sem keppa eiga á Þingvallakappreiðunum, koma nú fram á
völlinn.
Lokaæfing fer fram á Skeiðvellinum klukkan 8 síðdegis á fimtudag.
Stjórnin.
bagga til hjálpar bágstöddum, þeg-
ar mikið hefir þurft við ? Hefir
hann yfirleitt nokkurntíma gert
annað en að heimta af öðrum? —
Heimta það, sem hann sjálfur
aldrei gerir. Hefir hans „vinna“
ekki eingöngu snúist um það, að
spilla vinnufrið heiðvirðs verka-
fólks? — Slíkir menn eru böðlar
þjóðfjelagsins.
Hátíðaskap
Mjer er næst að halda, að fæstir
Reykvíkingar sjeu í verule'gu há-
tíðaskapi um þessar mundir. Sumir
geta ekki'um annað hugsað en inn-
anlandsstyrjöldina um völdin og
fjeð og þeir halda að heimsendir
komi, ef sú stjórn situr ekki við
völdin, sem eT þeim mest að skapi.
Hinir ná ekki upp í nefið á sjer
yfir öllum þessum flokkaáflogum
og öllum þeim hneykslum sem þau
valda — rjett þegar þessi fræga
hátíð stendur fyrir dyrum.
Og þó er það eins og þéssi bless-
uð hátíð hafi vakið allskonar hug-
myndir hjá fjölda manna, sem
fjær búa, og komið þeim í hátíða-
skap. Þannig hefir mjer nýlega
verið sýnt langt kvæði eftir fjör-
gamlan mann í Ameríku fult af
ýmsum hugsunum um þessi tíma-
mót, þó ekki væri það fallið til
þess að birtast í blöðum. Annar
gamall landi, vestur á Kyrrahafs-
strönd, Sigtýr Jónsson, Se'attle,
skrifar mjer drauma sína, og þýðir
þá svo, að við eigum að eyða deil-
um vorum með því að menn sverj-
ist að fornum sið í fóstbræðralag
og taki aftur upp fornan átrúnað.
Vill hann láta okkur reisa veglegt
hof með líkneskjum eftir EinarJóns
son af okltar fornu goðum, Þór og
óðni, því kristna trúin sje á fall-
andi fæti og hæfi ékki vorri öld.
Areiðanlega myndu mönnum þykja
það tíðindi ef dr. Helgi og Jónas
ráðherra sværust að fornum sið í
fóstbræðralag eða þeir nafnarnir
Jónas Kristjánsson og Jónas Jðns-
son en ekki hefi jeg trú á að
þetta komist í kring á Alþingis^
hátíðinni. Hitt hefir fleirum dottið
í hug að skárri sje ásatrúin en
krist.indómurinn, því margir Þjóð-
verjar halda þessu fram og þýða
Eddu líkt og klerkar biblíuna, fá
út úr henni allskonar visku, sem
KiöL
íslenskt kindakjöt og kæfa.
Danskt Medister og Bay-
erskar pylsur. Buff,
Gulasch. Kjötbollur.
Soðið nautakjöt
Skilpadde, Svína-
sulta, Skinke, Lifr-
arkæfa.
Enskt Corned Beef.
Roast Beef.
Roast Mutton
Sauch Toungues.
g Handhægur og ágætur matur og ekki dýrt.
| Verslun G. Zoega.
Prentmyidaieriln
vantar húsnæði sem fyrst, helst í miðbænum.,
Slmi 1003.
.• ‘ *