Morgunblaðið - 11.07.1930, Síða 1
Gamla Bió
Villiblóm.
Kvikmyndasjónleikur í 11 þáttum. — Leikinn af
Metro Goldwyn Mayer-fjelaginu, eftir handriti
JOHN COLTON.
Aðalhlutverkin leika:
Niels Asther — Greta Garbo — Lewis Stone.
Leikur þeirra i „Villiblóm“ er óviðjafnanlegur og
efni myndarinnar hugnæmt og áhrifamikið. Villiblóm
er tekin á gullfallegum stöðum á Java.
1 „Villiblóm“ nær Greta Garbo hámarki í list
sinni. Villiblóm hefir vakið aðdáun kvikmyndavina um
allan heim. — ^ýningin byrjar á venjulegum tíma
kl. 9. Venjulegt verð!
Hjartkær konan mín og móðir okkar Þóra Þorsteinsdóttir,
andaðist í morgun, 10.'þ. m. kl. 10 f. h. á Landakotsspítala.
Árni Árnason og börn.
Það tilkynnist ættingjum og vinum að ekkjan Guðríður
Magnúsdóttir andaðist 28. f. m. á heimili sínu í Flatey.
Aðstandendur.
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarð-
arför ekkjunnar Guðríðar Ólafsdóttur frá Hrúðurnesi.
Börn og tengdabörn.
Sumarskúfatnaður.
Karlmannaskór, fjölbreytt úrval (nýkomið). Þar á
meðal hinir góðkunnu mjúku og þægilegu tá-
hettulausu skór, brúnir og svartir.
Einnig sterkir götuskór með svörtum
,,USKIDE“ gúmmisólum.
Ferðastígvjel, karlmanna, reimuð og með rennilás, hnje-
há; einnig margar teg. af sport- og vinnu-
stígvjelum, hollenskir maskínuskór o. fl.
Strigaskór, fjölda margár tegundir. Verð frá kr. 1.20.
Baðskór---Tennisskór.
Sandalar og reimaðir skór með gúmmísólum og leður
milli sóla. Fjölbreytt úrval á börn og fullorðna.
Gúmmístígvjel, „Columbus“ á börn og kvenfólk, falleg
og sterk ferðastígvjel.
Kvenskór —. sjerlega stórt úrval.
Reynið nýju skóna í
Sköbðð Reykiovfkur.
Aðalstræti 8. Sími 775.
Driianda kaffið er drýgsf
Töpnð ferðataska.
Af vangá var ferðataska (vaðsekkur) skilin eftir í bifreið ‘
frá Steindórsstöð, sem kom frá Keflavík síðastliðinn sunnu-
dagsnótt. Þrátt fyrir eftirgrenslan hefir ekki enn tekist að finna
hana. Hún var fomleg, burðarhankinn bilaður öðrum megin og
festur með snæri. í henni var prestshempa. Sá, sem kann að
hafa fundið tösku þessa eða tekið í misgripum er vinsamlega
beðinn að skila henni á Bókhlðustíg 9, gegn fundarlaunum.
Málningarntboð!
Hjermeð óskast tilboð í að mála fríkirkjuna hjer að innan
nú þegar. — Fyrirmynd liggur frammi hjá framkvæmdarstjóra
Hjalta Jónssyni í h.f. „Kol og Salt“ — til sýnis kl. 10—11 ár-
degis, og eru á þeim tíma líka gefnar nauðsynlegar upplýsingar.
Tilboðum sje skilað fyrir mánudagskvöld 14. þ. m. til Árna
Jónssonar, Laugavegi 37.
Reykjavík, 10. júlí 1930.
Safnaðarstjómin.
Hýja Bió
Pori.
Tekin af Ufa
Fræðimynd í 7 þáttum.
er vakið hefir mikla eftir-
tekt alstaðar þar sem hún
hefir verið sýnd. Myndin
er tekin í leiðangri þýsku
veiðimannanna Wilhelm de
Bees og Hans Waldner á
sljettum og í frumskógum
Austur-Afríku og sýnir
hrikalega náttúrufegurð og
hið fjölbreytta dýralíf á
þeim stöðum.
I. S.
I. f. S. I.
130 Ármennlngar
sýna fimleika og glímur á íþróttavellinum í kvöld (11. júlí) kl. 9 síðd.
Stjórnandi: Jón Þorsteinsson, íþróttakennai'i.
1. Fimleikasýning kvenna, 50—60 stúlkur (hópsýning).
2. Fimleikasýning karla, 60 piltar (hópsýning).
3. Úrvals glímumenn sýna islenska glímu. .
4. Úrvals fimlei.kaflokkur Ármanns (Þingvallaflokkurinn) sýnir.
5. Reiptog milli Hafnfirðinga og Ármenninga.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á Austurvelli frá kl. 8)4- Þaðan gengur alt fimleika-
fólkið í skrúðgöngu suður á íþróttavöll með lúðrasveit í broddi fylkingar. Aðgöngumiðar
kosta 50 aura fyrir börn, 1,00 alm. stæði og 1.50 pallstæði og sæti 2.00 kr.
Allir út á völl!
Allir út á völl!
Listsýningin
Kirkjustræti 12,
opin daglega kl. 10-8.
Talnlng itkvæða,
er greidd voru við landskjörið 15. júní þessa árs, fer fram í
Alþingishúsinu fimtudaginn 17. þ. m. kl. 9 f. h.
Reykjavík, 9. júlí 1930.
LANDSKJÖRSTJÓRNIN
Magnús Sigurðsson. ólafur Lárusson. Hermann Jónasson.
Sportjakkar
og Reiðjakkar.
Sportsokkar
stórt úrval frá
2.65 til 12.00.
Sportbnznr
frá 9.50 til 22.00.
Vörubáðin.
Laugaveg 53.
KLEINS,
kjötfars
reynlst best.
Baldursgötu 14. — Sími 73.