Morgunblaðið - 09.08.1930, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrirliggandi:
Þurkaðir ávextir:
Epli.
Aprikosur.
Bl. ávextir.
Kaupmenn! Talið við okkur áður en þið festið kaup
annarsstaðar.
HOSPITSET
Tyskebryggen, Bergen, 1. Kl. Hotel.
TJtmerket kjökken. Centralbord. Elevator. Centralopvarmning.
Enkelt-Værelser frá kr. 2.50 Uke-Ophold.
Dobbelt-Værelser fra kr. 5.50 Rabat for.
Itölskn fnlltrnarnir
ð Hlþingíshátfðinni.
Eins og mörgum mun kunnugt
sendi ítalía tvo fulltrúa á Alþingis
hátíðina, komu þeir til Reykjavík-
ur 22. júní; vegna veikinda urðu
þeir að hætta við að mæta á há-
tíðinni og hjeldu svo heimleiðis
með Botníu þ. 25. júní, eða kvöld-
inu áður en hátíðin átti að byrja;
Þótti mönnum þetta kynlegt og
fóru að ganga ýmsar kviksögur
um ástæðuna til brottfarar þeirra,
meðal annars var því haldið fram
að þeir liefðu verið óánægðir með
móttökurnar í Reykjavík og það
hefði verið ein af aðalástæðunum
til þess að þeir fóru í burtu.
Þar sem Alþingishátíðarnefndin
hafði falið mjer að vera leiðsögu-
maður þessara manna meðan þeir
dveldu hjer og þaf sem jeg var
í raun og veru sá eini íslendingur
sem hafði nokkuð frekara saman
við þá að sælda, finn jeg mig
knúðan til að birta eftirfarandi
símskeyti, sem lá fyrir mjer er jeg
kom hingað heim fyrir stuttu síð-
an, eftir að hafa verið fjarverandi
um lengri tíma. Skeytið er sent frá
Botníu 28. júní yfir Wick Radio
•og hljóðar þannig á ítölsku:
Ringraziandola vivamente vua
gentilezza porgiamole destindi
saluti.
Deputato Fausto Bianchi.
Oiovanni Bach.
A íslensku:
Um leið og vjer þökkum ýður
hjartanlegá fyrir alúð yðar, flytj-
um vjer yður okkar innilegustu
kveðjur.
Fausto Bianchi þingmaður.
Giovanni Bach.
Þar sem jeg kem þarna fram
sem fulltrúi landsins og þeir þakka
mjer fyrir þá alúð sem jeg hafi
sýnt þeim, þakka þeir um leið land
inu og fellur þar með um sjálft sig
söguburðurinn um að þeir hafi far-
ið í burtu vegna óánægju yfir mót
tökunum hjer.
Vestmannaeyjum, 2. ág. 1930.
Leifur Sigfússon.
tannlæknir.
Flugið. Súlan flaug í gærmorg-
un til ísafjarðar, á heimleiðinni
kom hún við á Patreksfirði. —
Ráðgert er að Súlan fljúgi til
Patreksfjarðar í dag. Viðgerð á
Veiðibjöllunni er nú lokið. Hún
flýgur sennilega norður um land
í dag.
Alþingismannatal.
í formálinu segir: „Hefir verið
gert alt, sem unt var, til þess að
sem fæstar villur yrðu í bókinni.
Hefir próförk af æfiatriðum þeirra
þm., sem á lífi eru og til varð náð,
verið send þeim til athugunar“.
Aldrei var hún mjer send; er jeg
þó svo nærri, að hægt var til að
ná. Af fám orðum þar um mig eru
4 röng (bls. 9): „með styrk af
landssjóði“ (eins og í kveri Jóh.
Kr.). — Jeg sótti um styrk til
Bf. Suðura., það sendi mjer 200 kr.
og vann jeg svo hjá því nokkur
sumur fyrir lágt kaup. Ur lands-
(ríkis)sjóði hefi jeg aldrei fengið
fje nema óveru-kaup fyrir unnin
störf. T. d. nú við fasteignamat,
eitt hið mesta vandaverk í þarfir
þjóðfjelagsins, er kaupið % af dag
launum óvalinna manna við al-
genga vinnu.
Hægt var að komast hjá því að
telja Hvammkot „í Mosfellssveit“
(27) og Hvallátra ,á Rauðasandi*
(84). Hallgrímur bjó í Guðrúnar-
koti, er liann nefndi Miðteig (öf-
ugt á bls. 32), o. s. frv. — Enginn
tími nú til nákv. gagnrýni.
B. B.
Athngasemd.
1 „Andvara" þeim, sem nii er
út kominn, og fyrir skömmu, er
æfiágrip Pjeturs heitins Jónssonar
ráðherra. Jeg las þetta æfiágrip
mjög fljótlega, en rak mig þó í
því á tvær rangar frásagnir, og er
önnur þeirra svo meinleg, að ekki
verður hjá því komist að hnekkja
henni. — Hún er sú að Benedikt
heitinn Sveinsson sýslumaður hafi
boðið sig fram mót Pjetri við þing-
kosningu í Suður-Þingeyjarsýslu
árið 1894, þegar Pjetur var í fyrsta
sinn á þing kosinn. Þetta er al-
gerlega rangt. Pjetur var einn í
kjöri þá, og bauð sig hvorki Bene-
dikt nje. nokltur maður annar fram
á móti honum.
Benedikt sýslumaður Sveinsson
bauð sig þá fram í Norður-Þing-
eyjarsýslu og var kosinn þar.
Hin frásögnin er sú, að Jón heit.
frá Múla hafi verið í kjöri og
boðinn fram af þjóðliði Þingeyinga
árið 1887. Þetta er ósatt. Jón frá
Múla, sem átti þá heima á Arn-
arvatni bauð sig sjálfur fram til
þings í Norður-Þingeyjarsýslu árið
1886, og var kosinn þar. Árið
1887, fóru hjer ekki þingkosningar
Söngnr og pianoleiknr.
Haraldur og Dóra.
Það þykir altaf stórviðburður
innan hins takmarkaða tónlistar-
hrings vors þegar þau hjónin Dóra
og Haraldur Sigurðsson koma
hingað og láta til sín heyra. Mjer
virðist jafnan að Reykvíkingar
fagni þeim á líkan hátt og sveit-
arbörnin fagna fyrstu farfuglun-
um, sem koma heim á vorin.
Þau hjónin hafa að undanförnu
verið austur í Kaldaðarnesi, en
koma til bæjarins og ætla
að láta til sín heyra í Nýja Bíó
á mánudagskvöldið. Það þarf ekki
að fjölyrða hjer um list þeirra;
það nægir að benda á þau ummæli
danskra gagnrýnenda, sem birt
voru í Morgunblaðinu í vor um
söng og pianóleik þeirra í Kaup-
fram nema ein, í Snæfellsnessýslu
aukakosning, vogna þess a'ð Sig-
urður heitinn Jónsson sýslmr.aður
varð að segja af sjer þingmensku
at þeim ástæðum að danska stjórn
in bannaði sýsivtmönnum þingí'ör,
nema þeir fengi lögfræðing til þc^s
að reka sýslustörfin í fjarvist
sinni. Fekk Sigurður engan, og
var Páll heitinn Briem kosinn
þingmaður í stað hans. Lögfræð-
ingar voru þá ekki á hverju strái,
nje gengu í örtröð, svo sem nú
gera þeir.
Þetta bann mun aðallega hafa
verið stílað og stofnað gegn Bene-
dikt heitnum Sveinssyni, sem þá
var mikill þyrnir og kross í aug-
um „dönsku mömmu“ og mun
lengi verða.
Þessi orð hefi jeg ritað bæði til
þess að hnekkja sögulegum rang-
hermum, og þó einkanlega til þess
að þiggja Suður-Þingeyinga undan
þeirri smán, er þeim hefði verið
að fella Benedikt heit. Sveinsson
frá kosningu til Alþingis. — Þeir
hafa þó nóg á sinni könnu.
Ritað 3. ágúst 1930.
Árni Árnason
(frá Höfðahólum).
nmjúðapatent-bandalag
Stutt athugasemd.
Flestar þjóðir eru í bandalagi
þessu, ísland er ekki í því og má
það þó undarlegt þykja þar sem
Danmörk og Færeyjar eru í því.
Ef ísland gengi í bandalagið nú,
gæti það eftir 40—50 ár staðið
jafnfætis öðrum þjóðum að þessu
leyti, þar sem eintök af hverju
einkaleyfi sem veitt er eru send
mannahöfn. Danir eru vandir að,
og hjá þeim fá ekki slíka dóma
aðrir en þeir, sem eru sannir
listamenn.
Það þýðir ekki að rekja hjer
dagskrána að söng-hljómleik
þeirra nú. En geta má þess, að
þetta er eini pianóhljómleikurinn,
sem heyrst hefir hjer á þessu há-
tíðarári.
Sennilega verður þetta líka eina
tækifærið sem Reykvíkingum
gefst til þess að hlusta á snild
þeirra lijónanna, að minsta kosti
fyrst um sinn, því að þau eru á
förum til útlanda og óvíst hve-
nær þau ber að garði hjer aftur.
Á.
einkaleyfaskrifstofu livers lands.
Því verður ekki neitað, að það
er mikilsvert að hafa slík söfn. —
Hjer á íslandi er ekki því að heilsa
að neitt slíkt sje til, og ísland get-
ur sennilega ekki eignast það á
annan hátt en ganga í bandalagið.
Þegar umsókn kemur fram um
einkaleyfi á uppgötvun lijer á ís-
landi, verður nú að leita álits Dan
merkur um það.
Bandalagið miðar til útbreiðslu
uppgötvana aðallega. Eftir eitt ár
frá fyrstu umsókn í einhverju
landi þess, fellur burtu rjettur til
einkaleyfis í flestum öðrum lönd-
um þess, á samskonar uppgötvun,
og ef einhver hefir byrjað á notk-
un eða framleiðslu uppgötvunar-
innar, í því tilfelli, áður en eig-
andi sækir um, sviftir það eiganda
rjetti o. s. frv. Mönnum sem fengið
hafa einkaleyfi í útlöndum, er
bent á að eiga við f jelagið: The
Institute of Patentees 39 Victoría
st. London S. W. 1. með sölu eða
ráðstöfun. Fjelagið er stofnað og
ábyrgst til að leiðbeina og sjá um
einkaleyfi og tekst á hendur alt
mögulegt í því efni hval í heimi
sem er, en til þess verða menn að
gerast fjelagar í því. Það er mjög
erfitt fyrir einstaklinga að koma
neinu áleiðis í þessu efni vegna
misskilnings og tortryggni alment.
Fjelagið samanstendur af upp-
finningamönnum, einkaleyfaeig-
endum og framleiðendum um heim
allan. Forseti þess er the Right
Hon. Lord Askwith.
P. Jóhannsson vjelstj.
í opnu brjefi Guðm. Jóhannsson-
ar (sjá Morgunblaðið í gær), hafði
slæðst inn prentvilla í 2. málsgrein
„ósennilegt“ fyrir ósæmilegt.
Nýkomið:
ísl. Galróinr.
— Rabarbari.
Hvítkál.
Kartðflnr.
UBiMNÐI
Laugaveg 63.
í sunnudagsmatinn:
Vænt og vel verkað dilkakjöt.
Verðið lægst.
Reykt kindalæri, svið, að ó-
gleymdum blessaða soðna og súra
hvalnum, sem allir lofa.
Sent um allar götur.
Björnimi
Bergstaðastræti 35.
Sendur heim. Simi 1091.
Sumar-
nærfatnaður
fyrir dömnr, herra
og bðrn.
best og ðdýrast f
Udruhusína
Hfir ávextlr:
Grape Frnit,
Appelsfnnr,
Epli,
Bananar,
Tomatar.
ilersl. foss.
Laugaveg 12. Sími 2031.
Fyrir
ferðaf ólk:
Tjðld, svefnpokar, bakpokar,
ferðafatnaðnr svo sem:
Sportjakkar, sportbnsnr
og sokkar.
Ferðaðhöld ýmiskonar:
Hitnnartæki, hitabrnsar,
META-eldiviðnrinn (smi-
tðflnr), ferðapelar o.m.fl.
Samkoma verður haldin á Hrafn-
eyri á Hvalfjarðarströnd á morgun