Morgunblaðið - 12.08.1930, Side 4
M0R6UN BLAÐIÐ
J 4
Afskorin blóm og plöntur í
pottum. Hellusundi 6. Sími 230.
Munið að saltfiskbúðin á Hverf-
fegötu 62 hefir síma 2098.
Sokkar, Sokkar, Sokkar, frá
prjónastofunni „Malin“ eru ís-
lenskir, endingarbestir og hlýj-
ístir.
Snmar-
nærfatnaður
fyrir dömnr, herra
og börn.
*best og ódýrast í
Vðruhúsinu
Tapast hefir gullblýantur merkt-
„G. K.“ á leiðinni sunnan úr
gróðrarstöð að barnaskólanum við
Tjörnina, finnandi er vinsamlegast
beðinn að skila honum, gegn fund-
arlaunum, til A. S. í.
Tómatar
(Ranðaldin).
ódýrir.
Kle
Baldursgötu 14. * '3.
Souo.a
•ra beatu •gypsku Cigar«ítunuur
20 st. pakki
á kr. 1.25.
Anstnr I
Fljótshlið
daglegar ferðir frá
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 581.
(Landsins bestu bifreiðar).
Fyrsta flokks
, nantakjöt
seljum vjer í Kjötbúðinni á Lauga-
veg 76. Sími 1241. Afar lágt verð.
Samband islenskra
Samvinnufjelaga.
lolffreyiir
fallegt og fjölbreytt úrval á
fullorðna og börn.
Manchester.
Til
Hkureyrar
áetlanarferðir
irá
Litlu biistöðinni.
Símar 668-2368.
Enn sjest móta fyrir skálabrot-
um G-ísla og fylgsnisrústum í út-
jaðri skógarins, þó ófinnanlegt
nema af kunnugum. — Nánar í
frjettabx-jefi.
O. -J.
Slldveiðin eystra.
Eskifirði, FB. 10. ágúst.
Mörg þúsund tunnur síldar voru
kvíaðar hjer í gær í herpinótum,
að salta um 300 tn, Vöntun síldar-
bræðslu mjög tiífmnanleg. Rúm-
lega hálfnað að fiska í leyfin. Síld
arstærð 345 í tunnu, fitumagn 19
til 22%. —
Hafnarfjarðarhlaupið.
Magnús Guðbjörnsson sigrar.
Hafnarfjarðarhlaupið fór fram í
gærdag. Keppendur vora aðeins
þrír. Magnús Gnðbjörnsson og
Haxxkur Einarsson frá Knatt-
spyrnufjelagi lieykjavíkiir og Jón
Vídalín frá íþróttafjel. „Þjálfi“ í,
Hafnarfirði.
Magnús varð fyrstur og raun
vegalengdina á 48 mín. og 19 sek.
(Met er 45 mín. og 34 sek. Setti
Magnxis það árið 1925). — Annar
varð Jón Vídalín, á 50 mín. og
15% sek., én þriðji Haukur á 54
mín. og 33 og einn tíundi sek.
Hlaup þetta hefir verið háð 6
sinnum áður og hefír Magnús altaf
verið sigurvegarinn. Hefir Magnús
því unnið tvo hikara til eignar fyr
ir hlaup þetta og í gær vann hann
þriðja bikarinn í fyrsta sinn og
má ætla að Magnús láti ekki taka
hann af sjer fyr en í fulla hnefana.
Leiðinlegt var hve þátttakendiír
voru fáir. Er vonandi að fleiri
taki þátt í hlaupinix framvegis.
Úrslitakappleikur B-liðsmótsins
fer fram í kvöld kl. 8 á íþrótta-
vellinum milli Fram og Vals,
Dagbök.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
Lægð um Færeyjar og háþrýsti-
svæði yfir Grænlandshafi, veldur
hægri N-lægri átt um alt land.
Sunnan lands og vestan er ljett-
skýjað með 14—17 st. hita en norð
austan lands er þykkt loft og 8—9
st. hiti í útsveitum. Á N-landi er
þurt og allgott veður. Vestan við
Grænland er allstór lægð á hreyf-
ingu austur eftir en varla mun
hún ná hingað fyr en á miðviku-
dag. —
Veðurútlit í Rvík í dag: N-gola.
Ljettskýjað.
Georg Kempff heldur kirkju-
hljómleika í Dómkirkjunni kl. 9 í
kvöld.
Settir læknar. Frá 1. ágúst að
telja hefir Gísli Petersen verið sett
ur læknir í Nauteyrax-hjeraði, Ás-
björn Stefánsson í Reykjarfjarðar
hjeraði og Ólafur Einarsson í Flat
eyjarhjeraði.
Trúlofun sína hafa opinberað
Sören Jensen fiðluleikari og ung-
frix Louise Biering.
Minnedosa kom kl. 9 á laugar-
dagskvöldið til Quebeck. Ferðin
vestur gekk fljótt og vel.
Höfnin. Esja kom úr hi’ingferð í
fyrrakvöld. ísland kom norðan urn
land í gærmorgun, en Lyra frá
Noregi.
Flugið. Súlan flaug upp í Hval-
fjörð í gær að sækja þangað veik-
an mann. Ennfremur nokkixr hring
flug yfir bæinn. í gærmorgun
flaug hún til Vestmannaeyja. Á
heimleiðinni flaug hún yfir Selvog
og settist þar á Hlíðarvatn og tók
þar þrjá farþega: 92 ára gamla
konu, sem varð svo hrifin af að
fljúga að hún gat ekki um annað
talað á eftir; og auk hennar konu
með ungbarn. — í dag flýgur Sxíl-
an norður og austur um land, alla
leið til Norðfjarðar.
Maður drukknar. Á föstudaginn
\'ar vildi það slys til að maður
drukknaði í Brxxará hjá Hverakoti
í Grímsnesi. Hann hjet. Gísli Júns-
son og var frá Hólmum í Horna-
irði. Er ókunnugt hvernig slysið
hefir viljað til, því að maðui’inn
var einn niður við ána. Lík hans
fanst í ánni á sunnudaginn.
Gamalmennaskemtunin í Elli-
heimilinn í fyrradag var mjög vel
sótt og höfðu menn mikið yndi af
lienni. Síra Þórður Ólafsson frá
Söndum í Dýrafirði, síra Bjai’ni
Jónsson og frú Guðrún Lárusdóttir
fluttu ræður. Eiuar Markan og
Ouðmxxndur Kristjánsson sungu
einsöngva og einnig söng flokkur
undir stjórn Sigf. Einarssonar. —
•Jósef Húnfjörð kvað rímur og
Guðrxxn Lárvxsdóttir las upp kvæði
eftir Kristínu Jónsdóttut í Ein-
holti. Veður var hið besta og veit-
xgar nægar. Stóð skemtunin í 5
klukkustundir og er giskað á að
um 400 manna liafi verið þarna
saman komin.
, Fákur“ fór hina árlegu skemti-
för sína upp. að Selfjallsskála á
sunnudaginn. Mxxn hafa verið urn
200 manns í förinni. Reið flokkxir
þessi fylktu liði í gegnum bæinn
og þótti bæði fagur og aðsópsmilt-
ill. Hjá Sélfjallsskála var dansað
og sungið fram á kvöld. Ekkert
óhapp konx fyrir í ferðinni og hefir
„Fákur“ jafnan verið heppinn í
skemtiferðum sínurn að því leyti
hvað fá og óveruleg óhöpp liafa
komið fyrir.
Listsýningunni í Kirkjustræti
verður lokað í kvöld kl. 8 fyrir
fult og alt. Eru því seinustu for-
vöð í dag að skoða hana. •
Síldveiðín. Samkvæmt skýrslu
Fiskifjelags fslands var hinn 9.
ágúst búið að salta 93.711 tn. af
síld og sjerverka 39.917 tn., en
373.211 hektolítrar síldar voru
ltomnir í bræðslu. Er þetta stóí-
ixm meira en 2 undanfarin ár
(1929: saltað 66.583 tn. sjerverkað
7.644) tn., í bræðsln 365.932 hl.
1928: saltað 45.224 tn., sjerverkað
10.003 tn., í bræðslu 284.508 hl.).
Spellvirki. í fyrrinótt hafði ein-
hver ráðist inn í matjurta- og
blómagarð við Suðurgötu 4, stolið
þar talsverðu af blómum og skemt
íxxikið. Það væri gott ef menn yrði
varir við slíka spellvirkja, að þeir
segði lögreglunni þegar til þeirra.
Kommúnistar hjer á landi hafa
sent þrjá fulltrúa á 5. þing „Rauða
Alþjóðasambandsins“, sem háð
verður í Moskva núna í vikunni,
og á fund „byltingasinnaðra bygg-
ingaverkamanna“, sem kaldinn er
á sama stað. Þessir voru sendir í
þessa „þörfu“ för; Jón Rafnsson
úr Yestmannaeyjum, Tómas Jóns-
son verkamaður í Reykjavík og
Aðalbjörn Pjeturson frá Akureyri.
Leggur Verkalýðssamband Nox’ður
lands fram fararkosnaðinn og hef-
ir þar með Ijóslega sýnt á hvaða
sveif það hallast. Pai’a nxx að skýr-
ast línurnar í pólitík hinna svo-
köllxiðxx „jafnaðarmanna“ hjer á
landi.
Enskur ferðamaður, sem liefir
verið hjer á landi í sumar, skrifar
Morgunblaðinu: — „Það var eina
nóttina, sem jeg gisti í Hótel Borg,
að jeg gat ekki sofnað fyr en kl.
2 vegna þess að 'ölvaður ungur
maður stóð fyrir utan aðaldyr
hússins, síhrópandi af öllum mætti.
Hafði framburður hans amerískan
keim. f lxverri annari borg mundi
maðnr þessi hafa verið tekinn fast-
ur fyrir hneykslanlega framkomxx.
Sennilega hefir lögreglan í Reykja
vík ekkert vald í þessum efnum.
Þó sá jeg það árið 1924 inni á
Hótel ísland að lögreglan kom
þangað inn og tók þar ungan
mann ,sem sat við borð og dró
hann út þaðan. Ilvernig stendur
á þessu 1 Og hvernig stendur á því,
að bílum er leyft að grenja alla lið
langa nóttina, eins og þeir væi’i
óargadýr. Eina nóttina sem jeg
var í Reykjavík heyrði jeg bíl
láta svona frá því kl. 2 til ld. 2.20
eða 2.30, og bílstjórinn var kven-
maður. — Fleira hefir hneykslað
mig í Reykjavík, t. d. í leikhúsinu
þegar „Fjalla-Eyvindur“ var sýnd
ur, hvernig menn rækstu sig, alveg
eiiís og þeir ætluðu sjer að hrækja
á leikendurna. Samskonar ræsk-
ingar heyrði jeg líka í dómkii’kj-
unni einn sunnudagsmorgun árið
1924“. — Sami maður stingui’ upp
á því, að sæluhús verði reist á
miðjum Sprengisandi, því að um-
ferð um hann hljóti að aukast
stórkostlega á næstu árum. Enn-
fremur stingur hann upp á því að
ferja sje sett á Þjórsá, rjett neðan
við Búrfell. Eru báðar þær tillögur
athugunarverðar.
Sjávarhiti var í gærkvöldi, við
sundskálann í Orfirisey, 14 stig.
Mjög margir fara nú í sjó við
sundskálann daglega. í gærkvöldi
svam Sigríður Sigurjónsdóttir,
Pjeturssonar, Álafossi, 200 stiku
bringusund á 3 mín. 59 sek., og
er það met fyrir meyjar. Einnig
svam Magnús B. Pálsson sömtx
vegalengd á þrem mínútum þrjátíu
og fimm sek. og er það met fyrir
drengi. Islendingasundið verðui’
þreytt sunnudaginn 24. þ. m. og
keppa þá allir bestu sundmenn
vorir. — Notið sjóinn og sólskinið.
daglega.
—-----—.«-----------
ÚTSALA.
Nautakjöt verður selt í dag og-
næstu daga í kjötbúðinni á Lauga-
vegi 76. — Hringið í síma 1241.
Samband ísl. samvinnuf j elaga.
Akra
orðið
ð smiðrlíkinu sem
hier borðli.
: Hndlllspúður, •
| Hndlitscrsam, |
j Hndlitssðpur :
: 09 Iimvötn :
1 as° áwali ódýrast Z
2 og feeei í •
^ #
Langavsgs Apóteki.
Nýir ðuextlr:
Grape Frnit,
Appelsinnr,
EpU,
Bananar,
Tomatar.
Versl. foss.
Laugaveg 12. Sími 2031.
Hvkomlð:
Agúrkur.
Tomatar.
Rauðbeður.
Gulrætur.
Hvítkál.
Vaðnes,
Sími 228.
Saitkiðt
sjerstaklega gott og fyrsta flokks-
Saltfisk
fáið þjer í versl.
Taðnes,
Sími 228.