Morgunblaðið - 14.09.1930, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Þessi mynd sýnir almenningi glögt þá yfirburði, sem P. H. lampinn hefir yfir aðra lampa, og er mikið betra
sönnunargagn en alt þref manna á milli, — þar eð þessi samanburðarmynd er gerð af einni hinni alþektustu
ljósrannsóknarstofu heimsins, „Lichttechnisches Institut Karlsrube“, en auk þess er altaf hægt að fá ná-
kvæmar upplýsingar hjá Beleuchtungstechnisches Laboratorium der technischen Hochschule, Berlin;
Geheimer Regierungsrat prófessor Dr. Wedding, Berlín; Vorstand der deutschen lichttechnischen Gesell-
schaft, sem einnig hefir gert mjög nákvæma rannsókn á lampanum, og sem er að sjálfsögðu alveg hlut-
laus í þessu máli. — Við viljum aðallega vekja athygli á þeisum tveimur lömpum nr. 2 og nr. 3 í röðinni.
P. H.-lampa höfum við altaf í fjölbreyttu úrvali. — Þjer, sem látið yður ant um augu yðar og ættingja
ættuð að veita þessu athygli. — Auk þess höfum við úrval af öðrum lömpum, alt keypt frá fyrstu hendi,
frá löndum svo sem: Hollandi, Tjekkóslóvakíu og Þýskalan’i. Það er þessi tilhögun á innkaupum, sem
veldur því að við getum selt ódýrara en aðrir. — Þá er enn ný leið að fá ljósakrónur ódýrari heldur en
á útsölustöðum hjer í bænum, en hún er sú, að athuga hið fjölbreytta verðlista úrval okkar,
þar er eitthvað fyrir alla og veröið ótrúlega lágt. ,
Óðinsgötu 25. t f 1 Y* C C Atl Hafnarstræti 11
Símar: 867 og 1867. U1 W Ui I 1111 11110 O vl 11« Símar: 867 og 1867.
wmaæamm i'm—Bii1 n11' ii' —mwnn ———bmwm—■—a———h————
Notið
tækilærið!
Varðveitið
auguDt
Saöunah.
seta fyrir Fan Farigoul fjelaginu.
Jeg hefi enga ástæðu til að rengja
orð herra Jaffray, en mig langaði
þó að spyrja yður, hvort þetta sje
rjett hermt.
— Þessi maður, sem þjer minnist
á borgaði mjer upphæð, og sá sami
maður hefir kvittað frá fjelaginu
fyrir henni — hreytti Skotinn út
úr sjer.
Laroche stóð á fætur eins og
samtalinu væri lokið. — Kærar
þakkir fyrir. Þar sem jeg hefi
fjárreiður dánarbúsins á hendi,
verð jeg að vera svo varfærinn
sem mjer er unt. Herra Jaffray
sagði mjer, að þjer hefðuð ætlað
að hefja mál gegn hinum látna
húsbónda mínum.
— Mál, sögðuð þjer það, herra
Laroche. Hann barði hnefanum í
borðið og sagði bálvondur: — Jeg
ætla bara að segja yður það herra
Laroche, ef peningarnir hefðu ekki
fengist, þá mundi þessi smjaðurs-
fulli bófi, Jaffray, (þjer megið
segja honum óbreytt orð mín, ef
yður líst), vera kominn á hausinn.
Þá mundi hafa illa farið fyrir
honum. — Þakka yður fyrir. Verið
þjer sælir, sagði Laroche jafn ró-
lega og áður.
Hann titraði af æsingu en tókst
furðanlega að fela það.
Þessa sömu nótt vakti Laroche
óvenjulega lengi og braut heilann
um vandamálið. Allir höfðu gengið
út frá því sem vissu, að þjónninn
hefði myrt miljónamæringinn
gamla, í drykkjuæði. Og samt
þafði hann áður verið maður til
þess að bjarga lífi húsbónda síns
með því að hætta sínu eigin lífi.
Laroche tók ennþá einu sinni upp
úr vasa sínum borða einn, sem
hann hafði fundið í húsinu þar
sem morðið var framið.
Hann rannsakaði borðann vand-
lega, og brosti síðan, og sagði
í hálfum hljóðum: Mjer tekst jafn
vel að leysa gátuna að lokum.
27. kafli.
Rannsóknirnar,
Laroche ljek njósnarhlutverk
sitt, en þó má segja honum það
til hróss, að hann var ekki ein-
ungis knúinn til þess af peninga-
legum ástæðum, eins og Jaffray
mundi hafa verið, undir svipuðum
kringiimstæðum.
Tilgangur hans var fyrst og
fremst sá, að varna þess að þau
Editha og Sandown næðu saman.
Hann var sannfærður um það, að
Clifton Judd hefði ekki verið
d)-opinn af þjóninum, heldur af
ættingjum hans.
Hann gat ennþá ekki skorið úr
því, hvort það hefði verið May
eða Sadunah, sem hefði hleypt af
byssunni.
Yfirleitt hallaðist hann frekar
að því, að skella þeirri skuld á
Sadunah, að minsta kosti hvað
upptök glæpsins snerti. Þjónninn
hafði ekki drýgt morðið, enda
þótt skammbyssan hefði fundist í
hendi hans. Hún hefði verið látin
þar.
Hefði Sadunah ekki gert það j
sjálf, þá bar hún ábyrgðina á að(
það hafði verið gert.
Til mála gat það að vísu komið,
að May hefði ákveðið að fram-
kvæma morðið án vitundar konu
sinnar, en við nánari rannsókn
mælti þó margt á móti því.
Það var ómögulegt, að hann
hefði farið út úr herbergi Sad-
unah fyrir 1 eða 2 klukkutímum
án þess að hún yrði vör við það.
Og þó, undir yfirskini lasleika, gat
hann hafa sagt henni, að hann
ætlaði að eyða kvöldin í búnings-
herbergi sínu, en hefði svo laum-
ast þaðan burt í hinum glæpsam-
legu erindum, án þess að hún
tæki eftir því.
En hvað hafði hún sjer til máls-
bóta, þegar borði af kjólum henn-
ar fanst inni í herberginu þar sem
morðið var framið?
Þetta var alt að vísu erfitt við-
fangs, en þó mátti þreyfa sig
áfram í málinu, stig af ,stigi.
Laroche hafði mikið ímyndun-
arafl, og hann rakti viðburðina
með sjálfum sjer, frá þeim degi að
May hefði fengið að vita um mál-
sóknina, er yfir honum vofði og
alt til þess kvölds, er morðið var
framið, er hann hafði trygt sjer
miljónirnar hans föðurbróður síns,
og sent Jaffray í skyndi til þess
að múta Fergusson.
Fáeinum dögum seinna hafði
hann farið til borgarinnar. Banka-
stjórar Sadunah sendu honum á-
vísun á 20 þúsund pund, en það
var upphæðin, sem Mostyn May
hafði lofað honum.
Hún var morðinginn, p.8 minsta
kosti meðsek, annað hvort undan
eða eftir að , verknaðurinn hafði
verið framinn; um það var hann
alveg sannfærður. En þrátt fyrir
alt var hún heiðarleg í peninga-
viðskiftum. Það varð hann að játa.
Laroche var hefnigjam að eðl-
isfari, og hann gat aldrei fyrir-
gefið henni, að hún hafði spilt
fyrir honum við Edithu.
Hvað morðið sjálft snerti, á
þessum veikbygða, gamla manni,
þá tók hann sjer það ekki nærri
Það var ragmenskulegt bragð, er
hann fann, að hann hefði aldrei
getað látið eftir sig liggja, jafn
vel ekki þó að Editha hefði verið
í boði! Dálítilli rjettlætiskend
skaut upp í huga hans og batt
enda á þessar fyrri hugsanir hans
í bili.
Mundi hann hafa hikað við að
stytta Sandown aldur, ef hann
hefði fengið tækifæri til þess, án
þess upp kæmist. Nei, hann varð
að játa það, að hann mundi ekki
hafa hikað við það.
En hann hafði enga löngun til
þess að ofsækja þessa óhamingju-
sömu konu. Hann hafði nægilega
glöggskygni til þess að sjá, að í
raun og véru var það ástin til
barns hennar, sem hafði komið
henni til að drýgja þetta ódæði.
Hún hafði sjeð að lífslán dóttur
hennar var hætta búin, og hún
hafði tekið til skjótra ráða að
víkja hættunni á bug.
Komið
og fáið yður drátt á „Fram“-
hlutaveltunni í G. T.-húsinu
í dag.
EfiGrEBT CLAESSEN
hæstarj ettarmálaflutnlngsmaður.
Skrifstofa: Hafnarstræti 5.
3ími 871. YiCtalBtimi 10—12 f. k.
Skafffelfingur
hleður til Víkur næstkom-
andi þriðjudag.
Vörur afhendist á mánudag.
Skipantgerð
Riktsins.
m