Morgunblaðið - 30.09.1930, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 30.09.1930, Qupperneq 3
M DKGl MBUÐIÐ 1 ^ftorgtmHoHð Crtgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk = Rltatjörar: Jön KjartanMon. Valtýr Stefánaaon. Ritstjörn og afgreiBala: Aueturatrœtl 8. — Slml 500. p AUKljrsingastjörl: E. Hafborgr. Auglýslngaskrlfstofa: Austurstrætl 17. — Sími 700. = Helmaalmar: Jön KJartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. = E. Hafberg- nr. 770. Áakriftagjald: Innanlanda kr. 2.00 á mánuBl. = Utanlanda kr. 2.50 á mánuði. E 1 lausasölu 10 aura eintakiB, 20 aura me» Lesbök. £ ■miniiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiniiiiiiiii Undirjónas útvarpsstjóri, sendi mjer nokkur ■orð í síðasta tbl. Tímans, þar sem hann fer þess á leit með þeirri ,kurteisi“, sem lionum er lagin, að jeg bendi sjer á einhver þau ummæli úr 10 ára blaðamensku lians, er „sanni“ það, að hann sje fjandmaður eignarrjettarins í landinu. Þó Jónas Þorbergsson sje meira ■en í meðaliagi fljótfær maður og grannvitur, hlýtur hann að sjá, að sannanir fyrir því máli fást ekki betri en hans eigin orð. Að hve miklu leyti hugur fylgir máli, «r hann ræðir um viðskiftamál og eignaforráð, verða eigi aðrir til frásagna en hann sjálfur. En um viðskiftamálin og eigna- ■öfhin með núverancli þjóðskipu- 3agi, liafa honum meðal ánnars farist þannig ’orð: „Samlcepnin (þ. e. eins og hún viðgengst á landi hjer í daglegu lífi), er yfirgangsstefna, sjergóð, hóflaus og rangsleitin....... Sam- kepnismaðurinn (en það nafn ber mikill hluti þjóðarinnar á Tíma- máli), er um hugarfar og lífs- skoðun, arftaki frumþjóða, xneð J>eim einum mun að feimulaus og skefjalaus hnefarjettur er í við- skiftum nútíðarmanna færður í umgerð löghelgaðra rána, bak- ftrli og þjófnaðar." (Tíminn 1928) Eftir þessum orðum hans hefi jeg fult lejrfi til þess að álíta að hann sje því mótfallinn, að menn eignist noklmð í almennum við- skiftum, eins og þeim, að lians sögn, er háttað i landinu. Jeg hefi satt að segja haldið, úð Jóstas Þorbergsson væri a. m. k. í orði kveðnu fjandmaður alls þess, er liann teldi eiga rót, sína ,að rekja til þjófnaðar og rána. En vilji hann heldur að almenn- ingur líti svo á, að hann.sje vernd- ari og velunnari ránsskapar og gripdeilda, þá er honum það marg velkomið fyrir mjer. Valtýr Stefánsson. -------—-— Rausnarleg gjöf. London UP 29. sept. FB. í viðurkenningarskyni fyrir -dugnað og útheldni Breta í heims- styrjöldinni, hefir Edward Hark- ness, járnbrautakóngur U. S. A., gefið tvær miljónir sterlings- |)unda til Bretlands, föðurlands •síns. Sjóðnum, sem verður kall- aður, „Pilgrim Trust“, stjórnar fimm manna nefnd. Vöxtunum af sjóðnum verður varið í þarfir uytjamála í Bretiandi. ----—-------------— Dagbðk Andrðe. Útdráttnr birtnr nr henni. arnar sýna það, að þeim hefir sama sem ekkert miðað austur á bóginn, því að ísinn rak til vesturs. Hinn 4. ágúst gáfust þeir því upp — voru þá á 82. gr. 17 mín. norðurbreiddar og 29. gr. 43. mín. austurlengdar Dagbók Andrées er 142 blað- síður þjettskrifaðar. Eru nokkr- ar fyrstu blaðsíðurnar lítt læsi- legar, en búist er við, að hægt sje að komast fram úr öllu. f dagbókinni kennir margra grasa; þar eru stjörnumælingar og krónómeterstöflur, staðmæl- ingar, lýsingar á fuglum, athug- anir viðvíkjandi ísreki og verð- ur Andrée talsvert tíðrætt um það. En innan um eru gaman- samar setningar um ferðalagið og þá fjelaga. í dagbók Strindbergs var að nokkru lýst fluginu, dagana 11. —14. júlí, og sú frásaga verður nú miklu ítarlegri er því ei skeytt við, sem Andrée hefir skrifað um það sjer til minnis. Það er sannað, að ísing lagðist á flugbelginn og keyrði hann niður, svo að dagana 12. og 13. júlí rakst „karfan“ hvað eftir annað á ísinn og var það ekki þægilegt fyrir þá fjelaga. Kl. 7 að kvöldi hins-13. júlí kom eld- ur upp í „körfunni", en þeir gátu undir eins slökkt hann. Það kemur ekki skýrt fram, hvernig á því stóð, að þeir fje- lagar tæmdu loftbelginn að morgni\hins 14. júlí og settust á ísinn. Þeir voru þá staddir á 83. gr. norðurbreiddar og 30. gr. austurlengdar. Verður ekki hægt að skera úr því, hvers vegna þeir lentu þarna, fyr en allar bækur hafa verið bornar saman. En því, sem seinna hef- ir drifið á daga þeirra, er lýst í dagbók Andrées. Kofarústornar sem „ísbjörns“-leiðangurinn fann á Hvíteyju. — Kiðri í klakanum sjer á líkið, sem þeir fundu -þar, dúðað í fötum og við hliðina á því sjest seglfestn-karfan. En í dagbókinni 30. júlí kemur fyrsta upplýsingin um það og kollvarpar hún þeim ágiskun- um, sem menn höfðu áður gert um fyrirætlanir þeirra. Menn hjeldu, að þeir myndu þegar hafa lagt af stað til norður- strandar Svalbarða, því að þar áttu þeir vistaforða geymdan á þremur stöðum. Næsta vista- geymslan var á Sjöeyjum. En það er langt frá því, að þeir f je- lagar hafi fyrst hugsað um að Á þilfari „ísbjörns“. Þar sjest, ýmislegt af því, sem leiðang- ursmenn fundu á Hvíteyju, t. d. sleði. þrúgur, dúkur úr loftbelg i i „Arnarins“ og ýmislegt fleira. Dagana 14.—21. júlí bjuggu þeir sig undir sleðaferðina og völdu úr þann farangur, sem þeir vildu helst hafa með sjer. Og seinni hluta dags 22. júlí lögðu þeir svo á stað. í byrj- un ferðarinnar hefir Andrée látið sjer nægja að skrifa sjer til minnis og eru það skamm- stafanir og tölur að mestu leyti Verður fyrst ekki sjeð, hvað þeir fjelagar hafa ætlast fyrir. ná þangað, heldur ætluðu þeir sjer að kanna ókunna stigu til austurs og fara fyrir norðan Franz Jósefs land. En ferðalagið austur á bóg- inn gekk seint. ísinn var slæm- ur yfirferðar og djúpar leys- ingatjarnir voru víða og eins vakir, sem þeir urðu að fara yfir á segldúksbátnum. Dag- leiðirnar urðu mjög misjafn- lega langar og stjörnumæling- — og sneru við og ljetu ísinn bera sig til vesturs. Ætluðu þeir nú að ná Sjöeyjum. Matvæli þau, sem þeir höfðu með sjer, voru heldur af skorm um skamti. Þeir áttu því alt undir því, að þeir rækjust á „umferða-kjötbúðirnar“, eins og Andrée kallar ísbirnina. 1 hvert sinn, sem þeir geta lagt björn að velli, batna horfurnar; ann- ars verða þeir að spara mat- inn. ísinn er sæmilega góður yfirferðar að öðru leyti en því, að hann „skrúfast upp“. Og það er undir blám og vökum komið, hve Iangar eru dagleið- irnar. Þeir falla til skiftis í blár og vakir, og auk þess hefir þá Strindberg og Fraenkel kalið á íotum, en þeir eru þó í góðu skapi og bera sig karlmann- lega. Þrátt fyrir strit og stríð hef- ir Andrée gefið sjer tíma til þess að skrifa blaðsíðu eftir blaðsíðu af dagbók sinni og gera ýmsar vísindalegar rann- sóknir. Hann safnar 20 sýnis- hornum af leir, möl, mosa, blöð- um og rekavið, sem hann rekst á í ísnum. Eitt sýnishomið þurk- ar hann á beru brjóstinu, og hvað eftir annað kemur fram í dagbókinni umhyggja hans fyr- ir þessum sýnishornum. Þau eru nú komin í hendur sjer- fræðinga eftir aldarþriðjung, og má vel vera, að þau reynist mikilsverð fyrir rannsóknir á ísrekinu frá norðurströndum Sí- beríu yfir pólhafið. Með hverjum deginum sem liður nálgast þeir fjelagar norð urströnd Svalbarða. Tvisvar sinnum gátu þeir hlaðið öllum farangrinum á bátinn og róið alllangan veg eftir vökum ísnum og það voru þeim sann kallaðar gleðistundir, j En er þeir komu inn í grunna hafið skamt frá norðurströttc Norðausturlandsin-s, bréytir ís: rekið stefnu, og var þess því enginn kostur að ná til Sjöeyja. Dagana 12.—17. september hrakti þá 100 kílómetra til suðausturs. Tók þá veður og að kólna og afrjeðu þeir að hafa vetursetu á stórum ísjaka. Tóku þeir nú til óspiltra málanna að byggja sjer snjóhús. Hinn 1 í. september sáu þeir Hvítey og kölluðu hana „Nýja ísland“. Höfðu þeir þá ekki sjeð land síðan 11. júlí. Hinn 18. septem- ber skutu þeir fyrsta selinn, daginn eftir tvo seli og stóran kóp. Og 20. september skutu þeir ísbjörn. Andrée gerði þá ráð fyrir því, að þeir hefðu nægi-, leg matvæli fram í aprílmánuð. Hinn 28. september fluttu þeir’ inn í snjóhúsið .og höfðu búíð þar vel um sig. Snjóhúsið kölluðu þeir ,,Hem“. En að morgni hins 2. október vöknuðu þeir við brak og bresti. Jakinn hafði þá brotnað sundur í marga hluta og snjóhúsið var að hrynja. Farangur þeirra og veiðiskapur, sem þeir ætluðu sjer til lífsviðurværis, var á reki á ýmsum litlum ísjökum. Hjer varð að hafa hraðan á að bjarga, og lýsingunni á því, hvernig það gekk, lýkur And- rée með þessum orðum: „Með slíkum fjelögum ætti maður að geta bjargað sjer, hvað sem á gengur“. Þar með lýkur þeirri dagbók. Vilhlðlmur Stefðnsson heldur, að „prímusinn“ hafi orðið valdur að dauða þeirra Andrée. Vilhjálmur Stefánsson hefir ritað grein í „Times“ um fund- inn á Hvíteyju. Hyggur hann, að hin sorglegu afdrif þeirra fjelaga megi rekja til þess, að þeir bygðu kofa sinn upp að kletti. Hann segir frá því, að svip- að slys hafi komið fyrir á Her- ald-eyju 1914, þar sem 4 menn gerðu sjer kofa undir þver- hnýptum kletti. Hann minnist líka á dæmi frá einni af rann- sóknaferðum sínum, þar sem 4 af mönnum hans voru nærri , því dauðir af kol-ilte-eitrun — vegna þess, að þeir höfðu látið loga á prímus inni hjá sjer, en gættu þess ekki, að nóg loft- ræsting væri. Hann ségir, að ef Andrée og fjelagar hans hafi ekki dáið þjáningarlaust í svefni, eða meðan þeir sátu um- hverfis „prímusinn“, geti mað- ur hugsað sjer að æfilok þeirra íafi orðið þessi: Eftir því sem meiri snjó hlóð niður á kofann og umhverfis hann, hefir loftræstingin versn- að. Þeir hafa þá máske tekið eftir þvi, að þeir voru að missa allan þrótt og hafa þá brotist út úr kofanum til þess að anda að sjer fersku lofti. Þeir hafa farið út illa klæddir, og vegna þess hvað þeir voru máttvana, hefir kuldinn yfirbugað þá. Og það er altaf nokkur huggun, segir Vilhjálmur, að vitá það, að þessir hraustu menn hafa dáið þjáningalaust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.