Morgunblaðið - 02.10.1930, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Kerti
Beacon
Hollandia
Blne Cross
Best og ódýrnst.
nvkomnar vörur.
Karlmannaföt,
fjölbreyttara úrval, en nokkru sinni fyr.
Fermingarföt,
tvær teg., úr góðu efni en ócTýr.
t
Unglingaföt,
Drengjaföt,
FATNAÐUR okkar er viðurkendur fyrir fal-
leg efni, gott snið, og reynslan hefir sýnt, að hvergi er
betra að kaupa föt en í
Manchester.
Laugaveg 40. Sími 894.
Tll sBln.
Fiskverkunarstöð H.f. Draupnis, að Álfheimum við Reykjavík,
fæst nú keypt, með öllu tilheyrandi, svo sem, presenningum, vögnum,
brautarteinum, börum og öðru lauslegu sem stöðinni fylgir.
Tilboðum sje skilað til undirritaðs fyrir 10. þ. mán.
Allar frekari upplýsingar gefur
0., Kristjánsson,
skipamiðlari — Hafnarstræti 5.
Sveinaorði i bakeraiðn
fer fram um miðjan október.
Meistarar sendi tilkynningu um þátttöku nemenda
ásamt nauðsynlegum vottorðum, fyrir 10 þ. m. til for-
manns prófnefndar hr. bakarameistara Sveins M. Hjart-
arsonar. ,
Prófnefndin.
Heimiliskensla i vetnr.
Eins og undanfarin haust getur Upplýsingaskrifstofa stúdenta-
ráðsins bent á stúdenta, sem taka vilja að sjer heimiliskenslu hjer
í bænum í vetur gegn venjulegu ltenslugjaldi eða greiðslu í fæði
eða húsnæði, eftir samkomulagi. Liggur listi frammi á skrifstofunni
yfir þá stúdenta, sem óskað hafa eftir slíkum kenslustörfum, og
geta þeir, sem sinna vilja tilboðum stúdentanna, fengið nánari upp
lýsingar hjá skrifstofunni, Lækjargötu 2, sími 1292 kl. 5—7 e. h.
Upplýsingasbrifstofan.
Htvinna fvrir nnnlinna.
Nokkrir drengir eða telpur, 11—14 ára, eða eldri,
geta fengið atvinnu í allan vetur við að bera Morgun-
blaðið til kaupenda.
t
Frú Aslaua Stephensen
frá Viðey.
F. 20. ág. 1833. D. 15. sept. 1930.
Hinn 15. f. m. andaðist á heimili
sínu hjer í bænum ekkjufrú Ás-
laug Stephensen frá Viðey, þá fyr-
ir skömmu komin á 98. árið, því
að fædd var lnin að Hamri í Mýra-
sýslu 20. ágúst 1833. Var hún
yngst 7 barna þeirra hjóna Eiríks
sýslumanns Sverrissonar og síðari
konu hans Kristínar Ingvarsdóttur
(bónda Magnússonar frá Skarði í
Ijandsveit). Tæpra fjögra ára göm-
ul fluttist frú Áslaug með foreldr-
um sínum austur í llangárvalla-
sýslu, því áð Eiríkur sýslúmaður
liafði þá fengið veitingu fyrir sýsl-
unni og settist að í Stóra-Kollabæ.
En hans naut skemur við í em-
bætti en búast hefði mátt við, því
að hann ljest sumarið 1843 og varð
mörgum harmdauði þar eystra, því
að bæði var hann talinn skarpgáf-
aður maður og vel að sjer í lög-
i’.m, og hinn atkvæðamesti í em-
bættisverkum. Frú Áslaug var þá
taapra 10 ára gömul. Dvaldist liún
nú með móður sinni, er bjó áfram
í Kollabæ ásamt börnum sínum,
uns hún 1854 brá búi. Fluttust þær
mæðgur þá að Reynivöllum í Kjós,
sem þá höfðu verið veittir sjera
Gísla Jóhannessyni, er átti Guð-
laugu, elstu dóttur þeirra Eiríks
sýslumanns og frú Kristínar. Árið
1860 (1. júní) var frú Áslaug gefin
Magnúsi Ó. Stephensen í Viðey, og
þar dvaldist lnui uns þau hjón
brugðu búi 1902 og fluttust til
Reykjavíkur. TJndir árslok 1913
misti hún mann sinn og höfðu þau
þá lifað í farsælasta hjónabandi í
53 ár. Var frú Áslaug fullra 80 ára
er hún misti mann sinn. En hún
átti enn ólifað nærfelt 17 ár sem
ekkja og þau ár dvaldist hún með
dætrum sínum tveimur, ungfrún-
um Mörtu og Elínu.
Alls eignuðust þau lijónin
sjö böm. Tvö þeirra, Eiríkur og
Ingibjörg, önduðust í æsku, og eitt
uppkomið, frú Sigríður (t 1918),
síðari kona Jóns Þórarinssonar
fræðslumálastjóra, en fjögur eru á
lífi, sem sje frú Kristín, kona Guð-
mundar heilds. Böðvarssonar, síra
Ólafur prófastur í Bjarnanesi, og
þær tvær nýnefndu dætur, ung-
frúrnar Marta, lengi kenslukona
við barnaskólann, og Elín. Fóstur-
dóttir þeirra er ungfrú Hólmfríð-
ur Gísladóttir, forstöðukona mat-
söluhúss hjer í bænum.
Frá Áslaug sál. Stephensen var
mannkosta- og merkiskona. Hi}*»
liafði í æsku hlotið ágætt uppeldi
og svo góða mentun sem þá var
kostur á hjerlendis, enda var hún
prýðilega gefin. Sem eiginkona og
hiísmóðir var hún fyrirmynd ann-
ara og hin umhyggjusamasta móðir
barna sinna. Hún var fríðleiks-
kona og aðsópsmikil, hvar sem hún
kom fram, en hafði sig annars lítt
í frammi, því að hún mun hafa
verið fremur ómannblendin að eðl-
isfari og jafn framt svo
heimilisrækin, að í -því tiUiti
munu fáar konur hafa tekið henni
fram.
Hún átti ýmsu mótlæti að mæta
á lífsleiðinni, en alt slíkt bar hún
með stakri hugprýði og stillingu,
Crackers
í hverri verslun —
á hverjn borði
i hvers manns mnnni.
Heildsölubirgðir
H. Olafsson & Bernhoft
Ensk hraðritflii.
Pitmans-kerfi verður kent í vetur ef næg þátttaka
fæst. — Upplýsingar á skrifstofu Edinborgar, Hafnar-
stræti 10—12 kl. 7—9 e. h. diagana 2.—5. þ. m.
Nýkomið
.miklar birgðir af barna og unglinga og fullorðins
vetrar . KVENKÁPUM.
því að hún var skapgerðarkona og
guðstraust hennar óbifanlegt. Elli-
árin bar hún með lietjuskap, hafði
ferlivist að heita mátti fram til
hins síðasta og hjelt óskertum sál-
arkröftum, svo að hún fylgdist
með í öllu, sem var að gerast í
kringum hana. Æfikvöld hennar
varð hið friðsælasta, enda naut
liún hins mesta ástríkis ^f börnum
sinum og barnabörnum, sem kept-
ust um að gera hinni háöldruðu
sæmdarkonu lífið sem ánægjuleg-
ast. Minning hennar lifir í blessun
meðal þeirra og allra hinna mörgu
ættingja hennar og vehslamanna.
J.