Morgunblaðið - 02.10.1930, Blaðsíða 3
w
4 0 h
juimiiii!iiiniii!iiiiiiimiiiiiiiiiiM!tiiiiiiH!iiiiitimiiiiiiiiimiiii
| ffiarsuMMb j
= Útgref.: H.f. Árvakur, Reykjavlk =
S Rltatjörar: J6n KJartanason.
Valtýr Stef&naaon.
= Ritstjórn og afgreiBsla:
Auaturatrœtl 8. — Slml 500. =
H AuKlýstngaatJðri: E. Hafbergr. =
ɧ Augtýaingaakrifstofn:
Austurstrœtl 17. — Slmi 700. =
= Heimasimar:
Jön KJartansson nr. 742.
Valtýr Stef&nsson nr. 1220. =
E. Hafberg nr. 770.
= Áskriftagjald:
= Innanlanda kr. 2.00 & mánuttl. =
= Utanlands kr. 2.60 á mánuSi. =
S í lausasölu 10 aura elntaklB, M
20 aura meS Lesbök. =
H’miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiim
20 metra
frá landsteinum.
ITið sorgléga slys, sem varð í
'Seyðisfirði fyrir skemstu, er öllum
enn í fersku minni. Þegar fregnin
um það kom, setti alla liljóða.
Menn fundu fyrst til þess hvað
þetta var sviplegt — þarna drukna
faðir og þrjú börn hans, og þrír
bræður. Hverjum einum varð hugs-
að til heimila ástvina þeirra. Hví-
líkt reiðarslag fyrir móður og syst-
kyni að frjetta um afdrif föðurs-
ins og yngstu barnanna, og fyrir
foreldrana að frjetta um lát
þriggja efnilegra sona sinna!
En þegar hugsað er betur um
þetta, þá hefir ættjörðin mist mést.
Hún hefir mist þessi börn — og
mörg önnur — fyrir handvömm
hinna ráðandi manna. Og það eiga
víst mörg mannslífin enn að fara
forgörðum fyrir liina sömu hand-
vömm.
íliugið þetta vel: Þarna drukkn-
ar sjö manns, 20 metra frá land-
steinum.
20 metra!
Ilvað er það langt? Ein hús-
lengd, fáein áratog — 20—30 sund-
tök.
ÍHugsið um þetta: Sjö drukkná
rjett við landsteina í blæjalogni
vegna þess að enginn kann að
fleyta sjer! í
jHve dýr eru þessi sjö mannslíf
;sem fóru þarna forgörðum?
Það getur engiiin reiknað, en
þau eru miklu dýrari heldur en
þótt haldið væri uppi sundkenslu
allan ársins hring í öllum sveitum
og kauptúnum þessa'lands.
Getur nú ekki þetta hræðilega
slys orðið til þess að opna. augu
þeirra, sem ineð völdin fara, þing-
manna og stjórnar, fyrir þeirri
naiiðsyn að gera sund að skyldu-
námsgrein, alveg eins og lestur og
iskrift? Að rjettu er sundkunnátta
hverjum manni nauðsynlegri lield-
ur en lestur og skrift. Mönnum er
það jafn nauðsynlegt — og eigi
síst Islendingum — að kunna að
tsynda, eins og að kunna að ganga.
.En sundkunnátta verður aldrei a.1-
menn nema því aðeins, að sund sje
«öllum gert að skyldunámsgrein.
í Eddu segir: ,nýtur mangi nás‘.
Rjett er það að vis^u leyti. En ef
slysið í Seyðisfirði gæti orðið til
þess, að sundskylda yrði hjer lög-
leidd, þá hafa börnin, unglingarnir
•og faðirinn ekki fórnað lífi sínu til
■einkis, því að þá nýtur þeirra upp-
vaxandi kynslóð, og kynslóð fram
.af kynslóð um allar aldir.
Pæreysk samkoma í kvöld kl. 8
•síðd. í samkomusal Hjálræðishers-
íns. Lautn. H. Andresen stjórnar.
Færeysk sÖngbók verður notuð.
Verkfall (Geflunni?
Símtal við Jónas Þór verksmiðju-
stjóra.
í símfregn frá Akureyri lijer í
blaðinu í gær var frá því sagt, að
þeir sósíalistabroddar Akureyrar
hótuðu því að koma verkfalli á í
klæðaverksmiðjunni ,Gefjun‘ á Ak-
ureyri. Hafi verksmiðjustjóranum
verið gefinn 2 sólarhringa umhugs-
unarfrestur um kröfur verka-
manna.
í gær hringdi Mgbl. til verk-
smiðjustjórans Jónasar Þór, og
spurði hann um málavöxtu.
Frásögn lians var þessi:
Það er upphaf málsins, segir
Jónas Þór, að 8 verkamenn hjer
við verksmiðjuna skrifuðu mjer
brjef, og krefjast þess, að nii þeg-
ar verði gerðir samningar um
caupgjald við verksmiðjuna næsta,
ár, og verði lágmarkskaup karl-
manna kr. 225 á mánuði, en lág-
markskaup kvenna ltr. 150. Ástæð-
urnar fyrir því að þeir taka mál
Jetta upp nú, telja þeir vera þær
tvær, að lijör vérkafólksins við
verksmiðjuna sjeu yfirleitt mjög
I.jeleg; en að verksmiðjan hafi á
hinn bóginn nií verið seld fyrir
mjög hátt verð, og sje því sýni-
legt, að hún sje stórgróðafyrirtæki.
í brjefinu er þess ennfremur get-
ið, að ef verksmiðjan gangi ekki
að þessu nú þegar, þá verði kröf-
urnar hækkaðar.
— Og hverju svarar verksmiðj-
an? —
— Jeg er einmitt, segir J. Þ. að
ganga frá svarinu, þar sem jeg
neita algerlega að verða við þess-
um kröfum.
Á sunnudaginn var kom það til
umræðu á fundi verkamannafje-
lagsins hjer á Akureyri að fjelagið
veitti aðstoð sína til þess að kröf-
urnar vrðu knúðar fram. En mjer
er ókunnugt um hvaða ákvarðanir
voru þar gerðar.
Viðvíkjandi kjörum þeim sem
verksmiðjufólkið hefir, er þess að
geta, að fyrir allmörgum árum var
það ákveðið í lögum verksmiðju-
fjelagsins, að verkafólkið fengi
lutdeild í nettó ágóða — 10%. —
Mun Gefjun vera fyrsta atvinnu-
afar mikið úr öllum opinberum
útgjöldum, t. d. lækka laun op-
inberra starfsmanna alt að 20%,
þar á meðal Hindenburgs forseta,
kanslarans, ráðherranna. og þiug-
manna um 20%, og opinberra
starfsmanna alment 6%. Sparnað-
ur áæt!aðurvaf þessu 121 mil-j.
marka árlega. Halli fjárhagsársins
sem endar 1. apríl 1931, ætlar
stjórnin, að því er segir í til-
kynriingunni, að verði 750—900
milj. marka, en stjórnin á vísa
aðstoð ríkisbankans til þess að
ráða bót á fjárhagsvandræðunum.
Stjórnarskiftin í Austurríki.
London (UP) 1. okt.
Vín: Vaugóin, leiðtogi kristi-
legra sósíalista, myndaði stjórn í
gær. Ráðherrarnir unnu embættis-
eið sinn kl. 7 í gærkvöldi. Vau-
goin er sjálfur kanslari og her-
málaráðherra, Seipel utanríkisráð-
lierra. Þingið verður rofið í dag.
Atvinnulevsið í Bretlandi.
London: Þ. 22. sept. var tala
liiuna atvinnulausu í Bretlandi
2.109.638, sem er 6245 meira. en
vikuna á undan og 946718 meira
en á sairia tíma. árið 1929.
DafMk.
Veðiið (í gær kl. 5): Á SÁ-landi
og Austfjörðum, er kyrt veður og
bjart, en annarstaðar fremur hæg
V- og SV-átt og þykt loft. Úr-
komulítið, nema helst á V-fjörð-
um 8-—11 stiga hiti um alt land.
Lægðin fyrir norðan landið hefir
lítið færst, úr stað, og er grunn,
og háþrýstisvæðið sunnan við ís-
land heldur kyrru fyrir. Ný lægð
er að nálgast, S-odda Grænlands úr
suðvestri, en mun þó ekki valda
veðrabrigðum hjer á landi næsta
sólarhring. Á morgun lítur út fyr-
ir fremur hæga V og SV átt og
hlýtt veður alt land.
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
kaldi. Skýjað loft en sennilega
úrkomulaust.
Stjórnarkosning Vershmarráðs-
- , v » ins. Samkvæmt lögum Verslunar-
fyrirtæki hjer a landi er tekið her- &
raðsms for íram talnmg atkvæða
ir upp þann sið. Auk þess á verk-
smiðjan íbijðarhús er hún. leigir
verkgfólki sínu með vægum kjör-
um. Hjer er vitanlega um að ræða
stöðuga atvinnu alt árið.
— Hve margir vinna nú í verk-
smiðjunni.
— I.Tm 30 manns, og hefir það
verið svo fram til þessa, að færri
hafa fengið atvinnu en vilja.
Verður stjórnareinræði
í Þýskalandi?
Skólafðt, Blúsur og Peysur,
fyrir stúlknr og drengi
i mjög fjölbreyttn úrvali
Hnnafía giftist
Yndislega falleg
saga um ást og
tilhugalíf —; og ,
hveitibrauðsdaga
Rösknr
unglingspiltur, vanur af-
greiðslu í búð, óskast ea.
mánaðartíma.
Itaupflalag Bnrgfirðlnga.
London (UP). 30. sept.
Berlín: Hindenhurg forseti hef-
ir fallist á áform stjórnarinnar.
Enda þótt ríkisstjórnin liafi sagt
í tilkynningu, að reynt verði að
framkvæma áformin í samvinnu
við ríkisþingið, er fullyrt samkv.
áreiðanlegum heimildum, að ef rík-
isstjórnin fái ekki stuðning þings-
ins, þá verði þinginu frestað um
nokkurra mánaða skeið og kbmið
á stjómareinræði til að framkv.
áform þau, sem að framan er
vikið að, og fara í þá átt að draga
þ. 1. þ. m. til stjúrnarkosningar
í Verslúnarráðinu og hlutu þessir
kosningu: Guðm. Ásbjörnsson,
kaupm., Jes Zimsen kaupm. (end-
urkosinn). Jón Brynjólfsson kpm.
(endurk.). Rich. Thors útgm. (end-
urkosinn).
J. Símonarson og Jónsson eru
nú aftur teknir til starfa, með
brauða og kökugerð sína, sem
truflaðist, um tíma vegna brunans
á Laugevegi 5. Brauða- og köku-
gerðin er nú á Bræðraborgarstíg
16, og gamla kökugerðin á Lauga-
vegi 5, tekur aftur til starfa í
desember.
Max Pemberton kom af veiðum
í gær með 1250 kassa fiskjar, og
fór í gærkvöldi áleiðis til Eng-
lands.
JBotnia fór hjeðan í gærkvöldi.
Meðal farþega voru: Jón A. Jóns-
son alþingismaður, Isleifur Briem,
Jónas Jónsson ráðherra.
Sala erfðafestulanda. Nikulás
Steingrímsson hefir boðið bænum
forkaupsrjett á erfðafestulandinu
Laugaráshletti IV ásamt íbúðar-
húsi og öðrum mannvirkjum, fyrir
11 þúsund krónur. Ósvaldur Knud-
sen býður bænum forkaupsrjett á
erfðafestulandinu Sogamýrarbletti
XIX fyrir kr. 74.25. Ingibjörg
Jónsdóttir býður bænum forkaups-
rjett að Laugarásbletti XII, með
húsi og mannvirkjum, fyrir 13 þús.
kr. Meiri hluti fasteignanefndar
leggur til að bæjarstjórn hafni
forkaupsrjetti að öllum þessum
lóðum.
Kirkjusandur. 1 fyrradag var út-
runninn leigutími Geirs Thorsteins-
sonar á Kirkjusandi. Hefir hann
sótt til bæjarstjórnar um að fá
leigutímann framlengdan. Fast-
eignanefnd hefir falið borgarstjóra
að athugá leigusamninginn og
leggja fyrir nefndina tillögur til
breytinga á honum. Og jafnframt
var borgarstjóra falið að athuga
samning h.f. tslancf? um leigu á
innra sandinum.
Kappróðrabátaskýli. Glímufje-
lagið Ármann hefir sótt til bæj-
arstjórnar um leyfi til þess að
bvggja skýli fyrir kappróðrabáta
sína við norðurenda Brunnstígs.
Hefir fasteignanefnd lagt til að
þetta leyfi verði veitt, gegn því
að fjelagið flytji skýlið burtu,
bænum að kostnaðarlausn, hvenær
sem þess verður krafist. Hafnar-
nefnd hefir einnig samþykt þetta
fyrir sitt leyti.
Laugavatnið og Landspítalinn.
Tónas ráðherra hefir farið fram
á það við bæjarstjórn, að Land-
spítalinn fái endurgjaldslaust af-
not af heitu vatni úr Laugunum.
Veganefnd hefir liaft málið til
meðferðar og hefir hún tekið eftir-
farandi ákvörðun:
Enda þótt ríkisstjórnin hafi ekki
viljað verða við tilmælum bæjar-
stjórnar um þátttöku í kostnaði
við jarðboranir eftir heitu vatni,
leggur nefndin til, að bæjarstjórn
gefi Landsspítalannm kost á að
fá vatn úr liitaleiðslunni gegn end-
urgjaldi, er samsvari kolaverði á
hverjum tíma.
Húsameistari ríkisins hefir sent
veganefnd tilboð um glugga og
gler í Sundhöllina, en tilboðin
voru þannig' úr garði ger, að
nefndin gát ekki áttað sig á þeim
án frekari rannsóknar. Hefir hún
falið bæjarverkfræðing að annast
þá rannsókn.
Húsnæðiseklan. Borgarstjóri hef-
ir látið gera franska spítalann j
íbúðarliæfan fyrir fjölskyldur, er
húsnæðislausar voru nú um mán-
aðamótin. í fyrrinótt og gær voru
fátækrafulltrúarnir önnum kafnir;
við að hjálpa fólki, sem var í
húsnæðisvandræðum. í gær höfðu
9 fjölskyldur — flestar stórar —
fengið inni í franska spítalanum.
Nýkomið.
Kápuskinn og Vetrarkápuefni,
sömuleiðis efni í samkvæmiskjóla,
margar tegundir.
Verslnnin Vík.
Laugaveg 52.
Sími 1550.
fslensku plfiturnnr
marg eftirspurðu eru nú komriar
aftur:
Ein sit jeg úti á steini.
Það er svo margt ef að er gáð.
Ó, mín flaskan fríða.
Fífilbrekka, gróin grund.
Hættu að gráta hringagná.
Hvar eru fuglar.
Bí-bí og blaka.
Sofðu unga ástin mín.
Sprettur.
Fagurt galaði fuglinn sá.
Sungið hefir: Gagga Lund. —
Undirspil: Hermína Sigurgeirs-
dóttir.
Ben. Elfar,
Laugaveg 19.
Drengnr
óskast til sendiferða.
Nic. Bjarnason,
Hafnarstræti 5.
Hustfirðingur
vikublað
fí-efið út á Seyðisfirði.
Ritst.ióri:
Árni Jónsson frá Múla;
Áskrifendur í Reykjavík
snúi Sjer til afgreiðslu
Heimdalls í Varðarhús-
inu.
„Fjögur æfintýri“ er ágæt
barnabók. — Kosta aðeins 50
aura.