Morgunblaðið - 16.12.1930, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.12.1930, Qupperneq 6
6 Lýðveldi Austurríkis átti nýlega 12 ára afmæli,, og var þess minst með hátíðahöldum í Vínarborg; mynd þessi er þaðan. frd Moskva. Moskva í nóv. 1930. Það verður aldrei um Moskva *agt, að þar sje hver dagurinn öðrum líkur. Þar er alt á ferð og flugi. Prá því 1922—1926 gátu Kó.ssiandsi'arttr sagt frá hinum og öðrum hamförum, sem þar hefði -orðið. En hvernig er þá umhorfs þar, núna? Vjer skulum reyna að rsvara því. Mörgum stórbyggingum hefir miðað talsvert áfram seinustu árin. Þar er t. d. hin mikla bygging G. P. U., sem er hraðað meira en öðr- um byggingum. Undir henni er niikill kjallari. Hún stendur hjá Ljubáiika, sem nú héitir Dserzjin- skygata. Hún er 10-lyft og þar yfir gnæfir í miðju 15 hæða turnbygg- ing og er úr henni útsýn yfir alla horgina. Beint á móti er utanríkis- ráðuneyti Rússa enn í gamalli byggingu, sem alveg hverfur við hliðina á þessu stórhýsi. Þá má minnast á stjórnarráðið nýja, þótt það sje ekki eins stórt ■og Dserzjinsky-byggingin. Það er •nú bráðuin fullsmíðað og stendur gegnt Kreml, hiniim megin við ána, þar sem stórbrúin er. Það er mælt að í því húsi verði 2500 her- bergi. SJíkum opinberum bygging- um er altaf valinn besti staður. Hingað og þangað hafa líka verið rcist íbúðarhús fyrir opinbera starfsmemi. Skamt frá Susjareff- turni hafa íitlendir sjerfræðingar fengið íbúð í sæmilegu húsi, en leigan er liá. Þarna eru nú framfarirnar í bj’ggingum. En framfarir þurfa að vera á íleiri sviðum. Hvernig er t. ■d.’með samgöngur um borgina? A byltingadaginn 7. nóvember í (1929) sagði Stalin í grein, sem bann birti: „Rússland er að verða vjelanna lánd, dráttarvjela og bíla land“. En ráðstjóröin var of þung fyrir bílana. Um leið og hún steig á aurbrettin brakaði í bílunum. Þettá vóru um 100 bílar, sem hún hafði keypt, grænmálaðir og falleg ir bílar. Þeir komu í fyrrahaust. En hvað er orðið af þeim? Menn segja að þeir sje allir komnir á „viðgerðastöð“, en þar eru engir varahlutir til þess að gera við þá, og þar liggja þeir nú í lamasessi, scm órækt vitni um það hvernig göturnar í Moskva eru. Eegurðin er fallvölt! Og þú, ferðamaður, sem ekki átt bíl fremur en sovjet- borgararnir, verður að láta þjer Ivnda að ferðast í hinum gömlu hestvögnum, sem eru engu þýðari nje betri heldur en þeir voru fyrir 20 árum. En fyrir 20 árum kostaði það 30 Icopeka að aka frá Alexander-járn- brautarstöðinni til Grand Hotel. Nú kostar það 12 rúblur. Sögðum vjer það ekki í byrjun að hjer gengur alt með flughráða. Og þótt ekkert annað breytist, hækk- ar verðlag jafnt og stöðugt. Það getur nú verið að þú hafir djörfung til þess ao ryðja þjer braut inn í sporvagn, eða almenn- ingsbíl. Þá viljum vjer óska þjer þ(*ss að þú sjert eins og ormur —- eins og lítill ormur þegar þú kem- ur á stöðina. Að minsta kosti ætt- irðu að aðgæta það áður, að hnapp arnir í frakka þínum sje vel festir og þoli rykki og sviftingar. Og svo verðurðu að liafa peninga í budd- unni, helst smápeninga, því að það er ekki venjulegt að menn fái neitt til baka af seðlum. Seðlarnir eru heldur ekki vin- sælir. Og það er í rauninni ekki talað um annað meira í borginni. Þetta er eitt af því, sem daglega kemfUr fyrir. íbúum Moskva gefast altaf ný og ný áhyggjuefni, sem mikið þarf að hugsa um. Og nú er algengasta spurningin þessi: Hvað er orðið af peningunum? Ríkissjóður og ríkisbankar hafa engum peningum yfir að ráða, og hafa ekki líkt því nægilegt til þess að greiða laun og verkakaup. Embættismenn og aðrir opinberir starfsmenn hafa venjulega fengið kaup sitt goldið hálfsmánaðarlega, en nú hafa þeir aðeins fengið 40% af fyrri helmingnum af kaupinu fyrir október. Og samt er komið MORGUNBLAÐIÐ Lík fnndið. Frá: Þórshöfn á Langanesi er FB. skrifað 5. des.: Maðurinb;. frá' Eldjárnsstöðum, sem varð úti í föstudagsveðrinu knikla, fýrir ea. |)romur vikum hefir nú fimdiát. Ilann fanst örskamt frá næsta bæ: Sáu leitarmenn á harðsporum, að hann hafði hafst við undir steini rjett upp af bænum, en hralcið frá steininum. Hann var búinn ;\ð týna höfuðfatinu, vetlingunum og iiðrum sliónum. fram í nóvembermánuð. Kermarar liafa ekki fengið greidd laun síð- an í september. Þótt menn eigi fj'e á vöxtum f bönkunum. fá þeir ekki að taka það út. Engir pen- ingar! Engir peningar ! Hvað er á seyði? Menn höfðw búist við ýmsu ótrúlegu, en að það yrði skortur á þappírspeningum, það hafði menn ekki órað fyrir, , Það þarf svo sem engum blöðum um það að fletta, að hjer er um eitthvert ólag að ræða. Það sjá allir. En frá „æðstu stöðum“ kom skýringin — til vonar og vara: — Brjuchanoff fjármálaráðgjafi „hvarf“, Pjatakoff yfirbankastjóri þjóðbankans „hvarf“ ; alt fjár- málaráðuneytið „hvarf“. Og það er satt, að öllum almenningi þótti gaman að þessu. Það er ekki svo margt að gleðjast yfir. Þess vegna þótti það á við að fá gott staup þegar það vitnaðist áð þeir á „hærri stöðunum“ væri kornnir í hár saman. En hitt er satt, að ekki græddu cmbættismenn og opinberir starfs- menn neitt á þessari tilkynningu. Þeir voru jafnfjelausir eftir sem áður — og þeir eru þó meiri hlut- inn af þeiin, sem vinna hjer í borg. En hvernig gengur þá með ríkis- búskapinn ? Margt kemur þar til greina. — Fyrst og fremst viðskiftakreppa vegna þess, að sumir höfðu verið : allósparir á það að gefa út ávís- janir. Og þegar þar við bættist svo að hin opinbera verslun lenti í vöruhraki, þá jókst dýrtíðin um allan helming á frjálsa markaðn- um. Frjálsa markaðnum? Er hann ti! enn? Jú, að vissu leyti. Hinir svöngu magar borgarbiianna hafa síðan í vor verið háðir því að, fá lífsnauðsynjar hjá bændum á strætum og gatnamótum. A þenn- an hátt hafa miljónir rúbla borist út á landið, því að borgarbúar, höfðú ekkert að selja bændum í staðinn fyrir vörur þeirra. Auk þessa má telja fjártöku stjórnar- innar til ýmissa iðnaðarfyrirtækja o. s. frv. Að vísu hafði stjórnin eitt ráð til þess að sjúga peningana út úr bændum aftur Með því að láta þá fá vörur. Alla vantar vörur. Fatn- aður manna er nauðslitinn; skó- sólar eru afardýrir, því að maður verður sjálfur að útvega þá og koma með þá til skóarans. Enginn skóari liefir neitt leður að smíða úr. Og einir skór kosta í Moskva 30—40 rúblur eða meira! Samt er, hörgull á Öllu. Látið okkur fá vörur! Þetta neyðarkall helst stöðugt og breyt- ist ekki, nema hvað það verður hærra og hærra. Látið okkur fá vörur! Vörurl Það er sama kallið í dag og í gær og verður hið satna á morgun. Dagbik. V«@nð. (mánudagskyöld ldi. 5) r Alídjúp lægðarmiðja (um 730 im. m-..) yfir Grænlandshafinu h;. u: b, 600 km. véstur af Reykjanesi. Véld' ur liún ÍS-átt og liláku um" ált land með regni sunnan lands og vestan; Á Norðurlandi hefir verið. úrkomu- lausd frarn að þessu í dágv Lægðin- lLceyfist nú hægt norður eft-ir og er áttin að v.erða SV-læg á SV- landí. Ef til vill kemur þó ný lægð svo fljótt. suðvestan úr liafi, að áttin verði af.tur SA-læg á nw>rg- un, — Veðurútlit í. Rvík í dag.: SSV eða SA-stinningskaldi. Frostlaust og rigning með köflunji. Vörður, fjelag Sjálfstæðismanna,. heldur fund } Varðarh.úsin;u kl. 8y2. Ætlar Guðm. Eiríksson bæj- arfulltrúi að hefja máls um fjár- hagsáætlun, bæjarins og önnur bæj- armál. Sbr. augl í blaðinu í dag. ,Apríl‘-samskotin. Hrekkir Scax>- ins; vcrða leiknir á inorgun til á- góða fyrir samskotasjóð þeirra, sem fórust á „April“. Alt sem inn kemur á sýningunni, rennur í sam- skotasjóðinn, án neins frádráttar. — Talsvert af samskotum barst Morgunblaðinu í gær, en betur má ef duga skal. Tekið verður þakk- samlega á móti gjöfum á af- greiðslu blaðsins á hverjum degi. Fyrsti samskotalistinn birtist í blaðinu á morgun. Kristileg samkoma á Njálsgötu 1 í kvöld kl. 8. Allir velkomnir. Karlakór Reykjavíkur. Samæf- ing í K. R.-húsinu í kyöld kl. 9 e. m. (Síðasta æfing fyrir jól). Silfurbrúðkaup eiga í dag, 16. des., Þuríður Bjarnadóttir og Helgi Árnason safnahúsvörður á Njálsgötu 4. Skipaferðir. Gullfoss fór frá Leith á laugardag á leið hingað, og Selfoss sama dag frá Hull á leið til Austfjarða og Reykjavíkur. Góðafoss fer lijeðan á morgun, hráðferð til Kaupmannahafnar og verður þar um jólin (fer þar í þurkví). — Súðin er nú loksins lögð á stað frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur. — Esja var á ísa- firði í gær.—- Botnía kom til Leith í gærmorgún. — Dronning Alex- andrine kom hingað í gær frá Akureyri og fer hjeðan í kvöld á leið til Kaupmannahafnar. — Lyra kom hingað í gærkvöldi frá Nor- egi. —- Þrjár þulur lieitir lítið kver eft- ir Kristján Sig. Kristjánsson, og er góð jólabók handa börnum. Þær hafa á sjer hinn þýða blæ þulanna, sein er einhver einkennilegasta grein íslensks skáldskapar. Fyrsta þulan heitir „Jólaþula“ ; er lík- legt að mörg móðir hafi yndi af að lesa hana fyrir börnin sín. Hin- ar þulurnar heita „Mamma er í ráðum“ og „Gekk jeg upp á ham- arinn“, Togararnir Andri og Skúli fó- geti komu af veiðum í gær með 1200—1400 körfur af ísfiski. Niels Dungal lækni hefir stjórn Rockefeller Foundation í París boðið að ferðast víðsvegar um Evrópu og heimsækja þar ýmsar vísindastofnanir. Er Dungal gest- ur Rockefellerstofnunarinnar í París og ferðast á hennar kostnað og er búist við að hann verði 2—3 mánuði í ferðinni. Mun Dungal leggja á stað í næsta mánuði. Sjómannastofan. Þeir, sem vildu gleðja sjómennina, sem verða hjer um jólin, fjarri öllum ástvinum Opinbert uppboð verður haldið, að Móakoti í Kálfatjarnarhverfi á Vatns- leysuströnd laugardaginn 20. b. m. kL 11 f. h. og þar selt: 2 kýr ungar, 1 hestur, nokkr- ar sauðkindur og taða og- fleira.. sínum,. skyldi senda þangað smá- g.jafir, Engin gjöf er svo lítilfjör- leg,. að sjómaður verði henni ekki feginn, því að hún er honum tákn þess kærleika, sem hann verður að fara svo oft á mis við í hinu hættulega s.tarfi á sjónum. Harð- vítugir sjómenn verða klökkir þeg ar þeir fá þessar vinagjafir frá óþektu fólki, og þær verða til þess að rifja upp fyrir þeim sælu og nægju bernskunnar, sem Matthí- as Jochumson lýsir svo: „Man það fyrst, er sviftur allri sút, sat jeg barn með rauðan vasaklút“. Bjó- mennirnir verða börn að nýju, þegar þeim berast jólagjafir á Sjómannastofnnni. Stofnfundur verslunarkvenna- deildar Merkúrs verður í kvöld kl. 8y2 í Hótel Borg (uppi). Eru stofnendur yfir 50 og eru allar verslunarstúlkur boðnar á fund- inn. Má vænta hins besta af þess- ari deildarstofnun, þar eð verslun- arstúlkur bæjarins hafa hingað til haft lítil samtök sín á milli. Vanskil á blöðum. Úr Húna- þingi er FB. skrifað í þessum mán uði: „Vanskil á blöðum fara vax- andi svo að úr hófi keyrir. Eru dæmi til að þau voru 15 mánaða gömul þegar þau komust tíl skila“. Þetta gerist á sama tíma og þeg- ar „ferðamannastraumurinn hefir verið svo mikill, að enginu man annan eins“. Er hart til þeSs að vita hvað póstsamgöngur eru 'slæm ar — og sjerstakléga erfitt að koma blöðum til ltaupenda — þeg- ar öðrnm siftngöngurri fleygir fram, bæði á sjó og landi. Apríl-slysið. Nánari upplýsingar hefir Morgunblaðið fengið um suma af mönnunum á Apríl heldur én stóðu í blaðinu á laugardaginn. — Koná Pjeturs Ásbjörnssonar í Olafsvík, hefir legið í allan vetur og átti að koma hingað suður til lækninga nú um hátíðar, en óvíst að úr því verði, fyrst svona fór. — Jón Ó. Jónsson, II. vjelstjóri, lætur eftir sig 5 börn í ómegð, (í hlaðinu var sagt fjögur). — Krist- ján Jónsson kyndari var giftúr, en bjó ekki með konu sinni. Hún heitir -Jóhanna Guðbrandsdóttir og á heima á Hvei;fisgötu 34, ásamt tveimur börnum Jieirra. Hjónaband. Á laugardag voru gefin saman af síra Eiríki Brynj- ólfssyni að Útskálum ungfrú Ás- dís Káradóttir og Sigurbergur Þorleifsson, Hofi í Garði. (Náfn brúðinnar misprentaðist í blað- inu á sunnudaginn). Nýtt sönglag. Textann við söng- lagið „Ay, ay, ay“ hefir Frey- steinn Gunnarsson skólastjóri þýtt. Lagið og textann hefir Hljóð- færaverslun Helga Hallgrímssonar nú gefið út. Freysteinn hefir valið laginu nafnið „La, lí, la“, sem fer vel í söng. Mun lagið verða vin- sælt hjer eins og alls anúars staðar. Frágangur er góður og kápan skreytt mynd af frægri söngkonu í einu af hlutverkum sínum. ------------------

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.