Morgunblaðið - 20.02.1931, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 20.02.1931, Qupperneq 3
wrvROUNBLAÐIÐ wiiiiiuniiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniii 1 1 3^ or£tt» Ha&ti g Otget.: H.Í. Árvakur, Reykjavlk s Ritatjörar: Jðn Kjartansaon. g Valtyr StofAnsaon. s aitst.Jðrn og afsreiCsia: i Austuratrœti 8. — Simi 500 E tuKlýgln?astjórl: E. Hafberg. i * Ufc-lí'p'nsraskrifatofa: | Austurstræti 17. — Sira! 780. Helmasimar: — | Jðn Kjartansson nr. 742. = Valtyr Stefánsson nr. 1220. = | B. Hafberg nr. 770. — 1 tekrlftaejald: = S Innanlands kr. 2.00 á ssánuCi. = | Utanlands kr. 2.50 á mánuOi. = f lausasðlu 10 aura elntaklQ, = 20 aura meB Lesbðk = lillllillilllllllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllllllllFH Laudsfnndnr Sjálfstæðismanna. Funtlurinn i\ófst klukkan 10 árd. í gíær og stóðu þá umræður fram Jfir hádegi. Yoru ræddar tillögur landbúnaðarnefndar og síðan sam- Þyktar. Pramsögu hafði Jón Sig- urðsson alþm. Kl. 5 hófst fundur af nýju og voru þá ræddar tillögur þessara nefnda: Iðnaðarmálanefndar; framsögu kafði Helgi H. Eiríltsson verkfr. Kosningaundirbúningsnefnda — íranrsögu hafði Jón Kjartansson, rjtstjóri. Kirkjumálanefnd hafði lagt fyr- lr fundinn nýja tillögu og var Fún samþ. Þegar hjer var komið var ld. nál. 7i/2 og voru þá eftir á dag- skránni tillögur samgöngumála- oe "ndar, meníamálanefndar og alisherjarnefndar. Eigi gafst tími til að. ræða þessar tillögur og var þeim vísað til miðstjórnar flokks- ins. Var landsfundinum þá slitið. Kl. 8^/2 konru fundarmenn og aðrir flokksmenn saman að. kaffi- drykkju á Hótel Borg. Var þar fjöldi manns saman ltominn. Ríkti þar glaumur og gleði þegar blaðið íór í .prentun. Breska stjórnin bíður ósigur í þinginu. London 18. febr. United Bress. PB. titjórnin beið ósigur við at- ikvæðagreiðslu í lávarðadeildinni ■om skólafrumvarpið, en í því er :gert. ^ráð fyrir hækkun skóla- •^kyldualdurs í 15 ár. Stjórnin ;segir ekki af sjer vegna ósigurs- 1Ily, en sennilega er frumvarpið 1U’ sögunni. — Með frumvarpinu greiddu 168 atkvæði, en aðeins -22 með. Stjórmn á Spáni. Madrid 19. febr. United Press. FB. Stjórnin er nú fullmynduð. Auk þeirra- sem áður eru nefndir, ber ílÓ nefna: Gascon Marin, fræðslu- málaráðh;, Rivera aðmíráll, flotai ft'-álaráðh. (Porsætisráðherrann er f.vrst um sinn siglingamálaráðh. ■oo eltki flotamálaráðh.) Fyrsti fundur hinnar nýju •stjórnar verður haldinn í dag, fimtudag ,kl. 6 e. h. Versltmairmannaf jelag Rvíkur kelduí fund í kvöld kl. 8V2 í Kaup- þingssalnum. Ymiss fjelagsmái. á dagskrá. Alþftngl. Efri deild. A dagskrá: Br. á löguin um ■tilbúinn áburð. Prv. var vísað til annarar umr. og landbúnaðarn. - Breyting á vegalögum. Vísað til annarar umr. og samgöngumn. Prv. til laga um bókhald. Jón Þorláksson sýndi fram á, að frv. gengi of langt í því að krefjaát tvöfaldrar bókfærslu, t. d. við sináiðnrekstur einstakra manna. er ekki gætu haft svo crfitt bókhald sjálfir, og ju-ði þá að kosta til mannahalds í því skyni. Taldi að hinn smái, einfaldi rekstur ýmissa þeirra krefði ekki fyllra bóklialds en færslu sjóð- bókar og viðskiftamannabóka. Prv. vísað til annarar umr. og allshn. Neðiri deild. Þar voru m. a. á dagskrá 3 frv. frá meiri liluta milliþinganefndar (M. G. og H. Stef.) í skatta- og tollamálum, þ. e. frv. um tekju- skatt og eignarskatt, frv. um verð- toll og frv. til tollaga. Fjármálaráðherra fylgdi frumv. úr hlaði með stuttri ræðu, en Haraldur Guðmundsson, sem einn- ig á sæti í skattamálanefndinni lýsti afstöðu sinni til þessara mála. Hann kvaðst munclu leggja sjer- stök frv. fram í sumum þessum mála, en bera fram breytingar- tilliigur í íiðrum. Nokkrar umræður spunnust um jiessi mál, og í sambandi við þær kom Magnús Jónsson nokkuð inn á fjármálastefnu stjórnarinnar undanfarin góðæri. Benti hann á, að nú væri kreppan á skollin og bjargráð stjórnarinnar væri þyngri álögnr og niðurskurður allra verk- legra framkvæmda ríkissjóðs. — Þetta væri fyrsta afleiðing hinn- ar óviturlegu f jármálastjórnar undanfarin góðæri, þar sem ekki hefði verið sjeð fyrir því, að eiga eitthvað afgangs til erfiðu áranna. Og ekki væri nóg með það, að öll- úm tekjum ríkissjóðs hefði verið eytt og sóað í góðærunum, heldur bættist þar á ofan gífurleg skulda- aukning. Ekki gerði stjórnin minstu tilraun til að svara þess- um alvöruorðum M. J. Fjhn. fekk öll þessi frv. til meðferðar. Síðasta málið á dagskránni var frv. um búfjárrækt. Porsrh. fylgdi frv. með stuttri ræðu. Magnús Guðmundsson beindi þeirri fyrir- spurn til forsrh., hver áhrif samþ. frv. þessa myndi hafa á Búnaðar- fjelag íslands. Samkv. frv. væri svo að sjá, sem búfjárræktin yrði tekin af Bfj. ísl., ef frv. yrði samþ. Forsrh. lýsti því hins vegar yfir, að .engin breyting yrði á starfi Bfj. Isl. þótt frv. yrði samþykt. Búnaðarfjelaginu væri ætlað að liafa allar framkvæmdir í málinu. Aukakosning í Englandi. London 19. febr. United Press. FÖ. Aukakosning fer fram í dag í East Islington. í kjöru eru: Miss Cazalet (íhalds), Mrs. Mannlng (jafn.), Crawford majór (frjálsl.) og Critchley herfylkisforingi (ríkisfl.) Kosningabaráttan hefir verið afar liörð og orðasennur liarðastar milli frambjóðanda íl'.aldsflokksins og ríkisflokltsins. Drukhnanír ðrið 1930. í skýrslu þeirri, er stjórn Slysa- varnafjel. íslands lagði fyrir aðal- fund hinn 15. þ. m., er sagt frá sjóslysum hjer við land og drukkn luium árið 1930, Alls liafa drukknað 72 menn, en i>ar af voru 16 útlendir (3 Þjóð- verjar, 3 Englendingar. 1 Daní og 9 Færeyingar). Af hinum 56 inn- lendu mönnum, sem drukknuðu (þar með talinn einn Pæreyingur, búsettur hjer), fórust 18 molð tog- ara (Apríl), 9 af vjelbátum stærri en 12 lesta, 11 af vjelbátum minni en 12 lesta. 2 menn tók stórsjór út af togara og einn fjell fyrir borð á togara. Einn fjell útbyrðis af verslunarskipi, fjórir fjellu út af bryggju, tveir drukknuðu í vötnum, sex fórust af róðrarbátum og tveir við bað. A ]>essu ári strönduðu 3 enskir togarar hjer við land og tveir þýskir, en einn íslenskur togari fórst. Eitt norskt, fiskveiðaskip sökk, eitt danskt fiskiskip strand- aði, eitt færeyskt fiskiskip strand- aði og eitt íslenskt línuveiðaskip. Þrír íslensldr vjelbátar yfir 12 smál. fórust og þrír minni. 3 vjel- bátar yfir 12 émál. og þrír minni strönduðu og ónýttust. Auk þess strönduðu, eða rak á land: eitt íslenskt verslunarskip (Ametaysem seinna sökk með þrjá Þjóðverja innanborðs), 6 vjelbátar, sem talið er að hægt sje að gera við og eitt línuveiðaskip. *-— Einn vjelbátur brann, en talinn viðgerðarfær. Það er ekki lítill skattur, sem Ægir tekur af þjóðinni á hverju ári. Sje miðað við fólksfjölda í landinu er skatturinn á þessu ári eins og t. d. Bretar. hefði mist 25.760 menn, eða Þjóðverjar 39.000 menn. Seinasta árið, er breskar slysaskýrslur ná, drukknuðu 20 menn þar við land. Digkik. □ Helgafell 59312217. IV & V. Emb.m.k. Fyrirl. Borðh. I. O. 0. F. — 1122208V2 — Fl. Veðrið (í gær kl.. 5) : Lægðin, sem var á milli Vestfjarða og Grænlands í gærkvöldi hefir þok- ast suður eftir, en nokkru liægar en búist var við. Liggur nú þvert yfir landið frá SV-NA og veldur þegar livassri NA átt og hríð um NV-hluta landsins. í öðrum lands- hlutum er víðast kyrt veður, bjart- viðri austanlands og frostið 4—6 stig um alt land. Lægðin verður sennilega komin suður eða suðaustur fyrir landið á morgun og veldur þá alllívassri og þvassri NA-átt um alt land með hríð á N- og A- landi. Veðurútlit í Reykjavík í dag: Allhvass N eða NA. Ljettir senni- lega til. Hjónaefni. Trúlofun sína hafa nýlega birt ungfrú Steinunn Jó- hannesdóttir bjúkrunarkona ög Valtýr H. Valtýsson stud. med. ísfisksala, Snorri goði liefir selt afla sinn í Englandi fyrir 1967 stpd. Egill Skallagrímsson liefir selt afla sinn fyrir 2808 stpd. og Þórólfur fyrir 1525 sterlingspund. Hefir markaður nú batnað stór- kostlega, hvað lengi sem það stendur. Leikhúsið. Á sunnudaginn kem- ur sýnir Leikfjelág bæjarins nýjan éjónleik eftir ])ýska leikritaskáld- ið Georg Kaiser. Heitir sjónleik- urinn .Októberdagur1 og fer fram í Prakklandi á vorum dögum. — N’erður nánar sagt frá efni leiks- ius og höfundi hans á morgun. A undan verður. sýndur leikur í cinum þætti „Stíginn“ eftir Lár- us Sigurbjörnsson. 65 ára afmæli átti húsfrú Járn- gerður Jóhannsdóttir, Vesturbrú 19 í Hafnarfirði, hinn 17. þ. m. Ungbarnavernd Líknar. Báru- götu 2 -— opin hvern föstudag frá 3—4. Slys vestanhafs. Heimsltringla segir frá ægilegu bifreiðarslysi sem varð í Chicago á nýársdag. Fórst þar 9 manns, íslenskur bóndi frá Ökrum í Norður-Dakota, Metú- salem að nafni, kona hans og þrjú börn, nágrannahjón Metúsalems og tvö börn þeirra. íslensk heimilisiðnaðarsýning var lialdin í Winnipeg dagana 9. —16. febrúar. Gunnlaug-ur Illugason skipstjóri liefir nú um all-langt skeið átt heima í Boston og verið á togara þaðan, sem stundar ísfiskveiðar hjá Nýfundnalandi. 1 fyrra gekk útgerðin þar vel; var góður mark- aður á fiski og liöfðu sjómenn allgott kaup (þeir eru ráðnir upp á lilut). En nú er annað uppi á teningnum. í brjefi sem Gunn- laugur skrifar 20. janúar, segir hann að verð á fiski liafi hríð- fallið og samt geti fólk ekki keypt hann, svo sje hörmulegt ástandið í landinu og peningaþurð mikil. Segir hann að sjómenn fái þetta um 20 dollara fyrir hverja veiði- för — tíu daga ef veður er sæmi- legt — og þeir, sem hæstan lilut liafi fái um 40 dollara. Kvenfjelag þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði heldur samkomu í kirkjunni annað kvöld. Ágóðanum á að verja til að skreyta kirkj- una. Sjá nánar í auglýsingu í blaðinu í dag. Útvarpdð í dag: Kl. 19,25 Hljóm- leikar (Grammófón). Kl. 19,30 Veðurfregnir. Kl.. 19.40 Erindi (Þórbergur Þórðarson rith.) Kl. 20 Kensla í ensku í 2. fl. (ÍMiss K. Mathiesen). Kl. 20.20 Hljóm- sveit Rvíkur: Sclmbert kvöld. Kl. 21 Frjettir. Kl. 21,20—25 Erindi: Jarðskjálftamir 1896. I, (Sra Ól. Ólafsson), Kl. 21.40 Dagskrá 10. útvarpsviku lesin upp. Brengur eða telpa óskast til að bera út Morgunblaðið til kaup- enda í Vesturbæinn. Guðspekifjelagið. Pundur í Sep- tímu í kvöld á venjulegum stað, kl. 8%. Fundarefni: Katrín Thor- oddsen læknir flytur erindi um takmörkun barnsfæðinga. Allir velkomnir. Ferðir fuglanna. Hinn 15. jan. var skotinn rauðhöfði á Skerja- firði og var hann merktur. Merkið átti Mr. H. P. Witherby, ritstjóri „British Birds“, sem er mánaðar- rit og kemur út í London, Morg- unblaðið fekk merkið hjá :skot- manni og sendi það til Mr. Wither- by, ásamt frásögn um það, livar og hvenær fuglinn liefði verið skotinn. Nú hefir blaðið fengið brjef frá Mr. Witlierby og segir þar svo: „Jeg er yður mjög þakk- látur fyrir brjef yðar viðvíkjandi fuglinum, sem var merktur mjer. Þessi önd (Anas penelope) var merkt hjá Loch Leven, Kinross í Skotlandi í júní 1930, og var þá ungi. Er það ákaflega merkilegt að þessi fugl skyldi hafa flutst norður á bóginn um vetur.“ — Hann getur þess enn fremur, að hann láti roerkja íjölda íugla af öllum tegundum á ári hverju til iess að komast eftir livernig þeir hagi ferðuro sínum. Biður hann að láta sig vita. ef fhsiri fuglar finnist hjer merktir, hvar þeir liafi fundist og livenær. Ef ein- liver af lesendum Morgunblaðsins skyldi verða var við merkta fugla, ætti hann að gefa blaðinu upp- lýsingar um það, og senda því merkið (sem er liringur á fæti). Slysatrygging ríkisins. Heyrst hefir að Ólafi Friðrikssyni hafi verið holað inn í stjórn hennar í staðinn fyrir Hjeðinn Valdimars- son. Er þá Ólafur kominn að hinni opinberu beinajötu. Stjóm Slysa- ' tryggingarinnar kvað halda svo sem klúkkustundar fund á mánuði, en fyrir það fær liver stjórnar- maður 1800 lir. á ári, eða 150 krónur fyrir klukkutímann. Það á nú við Ólaf! Aldraða skipið, „Súðina“ er nú verið að dubba upp enn á ný. Á nú að útbúa liana með öðru farrými að sögn, en líklegt er að það verði látið hylma yfir ýmsar aðrar viðgerðir á skipinu samtímis, því að Alþýðublaðið seg- ir, að þessi „ráðstöfun muni mæl- ast vel fyrir meðal almennings“, og ber það að skilja svo, að hjex* fari einhver feluleikur fram, sem almenningur má. ekki fá að vita um. :— . Inflúensan er nú komin til bæj- arins og liafa allmargir þegar tekið hana. Fylgir henni hár hiti og beinverkir. Menn ætti að gæta þess, að fara varlega með sig ef þeir veikjast, svo að veikin snú- ist ekki upp í lungnabólgu. Sje vai’lega farið, er veikin ekki hættuleg, eða svo hefir hún hagað sjer erlendis. Bæjarsitjóm. Kosning embættis- nxanna bæjarstjórnar fór fram í gæi’kvöldi og voru þeir endurkosii- ir: Guðmnndur Ásbjörnsson for- seti, Pjetur Hallclórsson varafor- seti og skrifarar Jakob Möller og Sigurður Jónasson. Fiskur á Spáni. Vikuna sem ieið komu 20 smál. af íslenskum fiski á Barcelona markaðinn. Verðið er nú tálið 93—100 peseta 100 kgt og er það 7 pæsetum lægra en xdð seinústu skráningu. Belgaums-málið verður varið og sótt í Hæstarjetti í dag. Er það eitt hið merkilegasta mál, sem komið hefir fyrir í sögu íslenskra landhelgisvarna. Að gefnn tilefni. Ut af grein í Alþýðublaðinu i gær, þar sem minnzt var á félagið Heimdall, vill eg taka fram eftir- farandi: 1. Kjörorð það, er minnzt var á í greininni, hefi eg aldrei heyrt. 2. Sá maður, er var í kjöri gegn nxxverandi foi’manni, er nú vara- formaður félagsins. 3. Eftir stjórnai’kosningu hefir samstarf verið gott í félaginu. Hefir verið samin stefnuskrá Heimdallar, og áttu ýmair frum- kvæði að, bæði í og utan stjómarl Var hún samþykkt með samhljóða atkvæðum félagsmanna, enda veit eg, að hugur fylgir því máli Heimdallar,. I>að ætla eg, að Heimdallur beri fuHt traust til núverandi for- manns síns, Thors Tliors lögfræð- ings. Reykjavík, 17. febr. 1931. M. Thorlacius.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.