Morgunblaðið - 25.02.1931, Page 2
MORGUNBLAÐT.Ð
/ ■ ‘ ■ i
MlMamaMsOisHNiC
Bakarar
Ff rirliggiandi:
Hveiti „Cream of Man.“
Do. „Gilt Edge“
Rúgmjöl „Blegdam“.
Svínafeiti.
Bakarasmjörlíki.
Blandað sultutau.
Hálfsigtimjöl.
Malsveinn.
Unglingspiltnr óskast á Ilntningabát. Upplýsing-
ar í síma 2370.
Meðferð á almannafje.
í \
Ráðherraábyrgð og landsdómur.
Ef einhver óbreyttur maður verð
ur uppvís að því, að hafa tekið
ránshendi eða þjófshendi annars
manns eign, þó ekki sje nema ör-
lítil upphæð eða verðmæti, er hann
vægðarlaust dreginn fyrir dómara.
Reynist hann sannur að sök, er
hann dæmdur frá æru, hann er
aviftur þeim borgaralega rjetti að
■eiga, sem aðrir menn, hlutdeild í
meðferð málefna borgaranna —
hann er sviftur kosningarrjetti —
hann er sviftur frelsi um stundar-
sakir, og jafnvel lagður í áþján —
hegningarvinnu. — Hversu smá-
vægileg sem sök hans er, sje hún
aðeins þessarar tegundar og verði
nppvís, getur ekkert frelsað hann
frá ærumissi og mannrjettinda-
missi.
Ve'iti menn fyrirtæki forstöðu
«ða ~þjónustu, einkafyrirtæki eða
almenningsfyrirtæki, og fari með
fje þeirra eða fjármuni, er yfir
þeim A'akandi auga rjettvísinn-
.*r og refsiyöndur hennar á lofti.
Æivo vandlifað er í slíkum stöðum,
nð þar til endist ekki stakasta ráð-
vendni, heldur verður að fylgja
vakandi gætni og glöggskyggni.
svo nákvæm er sú lína, sem rjett-
vísin dregur milli heiðarlegrar og
úheiðarlegrar meðferðar á annara
fje. —
Flestir munu sammála um það,
að þetta sje nauðsynlegt. Meðfædd
ráðvendni og rjettarvitund er ekki
öllum næg leiðbeining og nægur
«tyrkur til að lifa ráðvandlega.
Parf þá einnig ótti við refsingu
«ð leggja höft á þá.
En almenningur vill að þessu
<>ngan mannamun gera. Hann vill
■ækki að snauður maður, sem enga
■„samábyrgð hefir keypt sjer, sje
merktur þjófsmarki fyrir smáyfir-
sjón, en valdhafar megi óátalið
lifa á almannasjóðum, sem væri
það eigið fje, og gefa af því stór-
gjafir til vina og vandamanna, eða
leigðra þjónustumanna. Almenn-
ingur vill engin lögvernduð nje
venjuvemduð fjársvik þola, nje
a,ð „fríbilletti“ sjeu gefin til sjóð-
xána. Ilánn vill að allir sjeu jafnir
fyrir Tögum, og hann vill ekki að
bófar sjeu settir á mannvirðinga-
bekk með heiðarlegum mönnum,
hvorki fátækum nje ríkum.
Sjóðþurðir hafa oft orðið upp-
vísir hjer á landi. Upphæðirnar
hafa venjulega verið smáar, því
sjóðir eru ,flestir smáir á landi
voru. En fíestir þeir, sem sjóðina
hafa geymt og af þeim eytt án
heimildar, hafa fengið að kenna á
ákvæðum hegningarlaganna. Flest
ir hafa þeir þó haft þá afsöknn,
að þeir liafa liaft sjóðina í eigin
geymslu, blandað þeim saman við
eigið fje, og því margir ekki vitað
glögt, er þeir gengu til þurðar. Og
allir liafa þeir eflaust íftlað að
skila sjóðunum óskertum. — Þeir
hafa vonað að ástæður leyfðu þeirn
að endurgreiða sjóðnum, áður en
að sktfldadögum kæmi. Hjer er
því oft um að ræða ógætni í fyrstu,
er bar manninn á óstætt fyr en
varði, svo honum var ekki unt að
snúa til sama lands, ■ þó feginn
vildi.
Á þessu er mikill munur og því,
er menn taka fje, sem aðrir eiga,
nota það til eigin þarfa, eða augða
með því vini og þjónustu menn í
eigingjörnum tilgangi, vitandi vel
að það er óheimilt, og ráðnir í því
að slcila j>ví aldrei aftur. Slíkir
menn eru liættulegir þjóðfjelag-
inu, og ber að merkja þá óhæfa
til að vera í trúnaðarstöðum. Og
eigi síður til ]>ess að fara með
atkvæði um málefni almennings
eða umboð annara.
Einn stærsti, og fortakslaust frið
helgasti sjóður,. sem fenginn er til
varðveislu hjer á landi öðrum en
eiga, er ríkissjóður. Við meðferð
hans er það sjerstakt, að honum
cr ekki unt að blanda saman við
eigið fje og að öll greiðsla úr hon-
um er fyrir fram ákveðin með lög-
um, er Alþingi setur til eins árs
í senn. Og sjálf stjórnarlögin mæla
stranglega svo fyrir, að úr honum
megi enga upphæð greiða, nema
samkvæmt lögum. — En ráð-
kerrarnir, sem einir hafa lykla-
völd að sjóðnum (og forsetar Al-
Skjmdisalan.
— Á morgun verða margs konar vörur seldar.
Tækifærisverð og þar á meðal allir bútar fyrir örlítið verð. — Enn er nokkuð eftir
af vetrarfrökkum kvénna og karla, sem seljast fyrir lítið. Kostakjör í öllum deildum:
]>ingis að litlu leyti) eru látnir
vinna eið að ]>ví, að víkja í engu
hjer frá. 011 misnotkun þe.ssa sjóðs
ætti því að vera fyrir bygð; en
ef liún samt ætti sjer stað, ætti
]>að brot að sæta þyngri og alvar-
legri refsingu en þjófnaður eða
venjulegur fjárdráttur.
Fyrir skemstil mundi það hafa
verið talinn hinn mesti óþarfi að
tala um þurð ríkissjóðs í þessu
sambandi. Fyrir slíku er þó ráð
gert í stjórnarlögum íslands, ráð-
herralögum og lögum um lands-
dóm, að fyrir þessa hlutj þurfi að
refsa. Og nú er svo kömið, að það
er ekki eipasta eðlilegt, að um
þetta sjé 'rætt, heldur knýr þar til
hin brýnasta nauðsyn. Sæmir ekki
að látið sje lenda við laust umtal
um það, að ráðherrarnir fari óráð-
vandlega. með ríkisfje, því þá má
búast við að ]>að rótfestist í með- J
vitund manna að ekki beri að
krefjast þess, að ráðherrar sjeu
heiðarlegir menn, og að lög gangi
yfir þá eins og aðra. En úr ríkis-
sjóði hefir eyðst fje með þeim
liætti, er rjett er að gefa öllum at-!
kvæðisbærum mönnum á íslandi
kost á að vita um, svo þeir geti
prófað huga sinn um það, liverrar
tegundar ]>eir hefði talið verknað-
inn, ef hann liefði Iient mcnn í
smærri verkahring, svo sem við
eitthvert atvinnufyrirtæki eða for
stöðu f jelagsmála. pví ef Aiþingi
skyldi af einhverri ástæðu ekki!
þykja sjcr hagfelt, eins og það nú
er skipað, að fá mat dómstóla á
verknaði, sem kjósendur telja að
minsta kosti rannsóknarverðan,
eiga ]>eir kost á að gera þar um
ráðstafanir, ineðan kosningarjett-
ur er ekki af þeim tekinn.
Landsreikningurinn 1929, sá síð-
asti, sem birtur er, sýnir það, að
ríkisstjórnin hefir eytt af ríkisfje
um 4.5 railj. kr. meira en fjárlög
heimila. Reikningurinn mun nú
hjer á ofan rangur, og umfram-
eyðslan að minsta kosti heilli milj-
ón kr. meiri en talið er, eða um
5.5 milj. kr. Þetta fje er geysimik-
ið, jafnast á við hálfar tekjur rík-
issjóðs á meðalári. Hvað hefir rík-
isstjórnin gert við þetta fje, og
livers eðlis er slík meðferð á fje
almennings ?
Eyðslunni má skifta í þrjá
flokka. I fyrsta lagi ófyrirsjáan-
leg útgjöld, sem ríkissjóði er að
lögum skylt að inna af höndum. í
öðru lagi útgjöld samkv. öðrum
þingsamþyktum og lögum en fjár-
lögum. í þriðja lagi útgjöld, sem
ongin heimild er fyrir og enga
stoð eiga í lögum eða samþyktum.
Það eru þessi síðast töldu út-'
gjöld,, sem samkvæmt rjettarmeð*
vitund manna eru refsiverð, því
allir vita, að hliðstæður verknaður
mundi skapa valdalausum manni
æruleysissök og þunga refsingu. |
Krafa almennings hlýtur því að
verða sú, að þetta mál ríkisstjórn-
arinnar verði rannsakað, og hún
látin afpiána þá sekt ,er hún verð- j
ur sönn að. Framh.
Bretar og Frakkar ræða
flotamálin.
Freðýsa
nýkomin í
Verslunina Haabirg
London, 24. febr.
United press. FB.
Dalton, undirutanríkismálaráð-
herrann, hefir tilkynt, að Hender-
son utanríkismálaráðherra og flota
málaráðherrann, Alexander, ásamt |
breska fulltrúanum Craige, hafi
lagt af stað til París til ]>ess að
ræða um flotamálin við frakk-
nesku stjórnina.
Samkvæmt fregn frá París búast
menn við, að málum hafi skipast
svo, að Frakkar muni skrifa undir
Lundúnaflotamálasamninginn.
N ýlenduvörudeildina-
Bæ j arst j órnarkosningar
á Spáni.
Madrid, 24. febr.
s United press. FB.
Ráðherrafundur í gær ákvað
bæjarstjórnarkosningar þ. 12. apríl !
Ferrosan
er bragðgott og styrkjandi
járnmeðal
og ágætt meðal við blóðleysi
og taugaveiklun.
Pæst í öllum lyf jabúðtun
í glösum á 500 gr.
Verð 2.50 glasið.
Kcmmúnistahótanir í Höfn.
Nokkrir fyrirliðar hand-
teknir.
Khöfn, 24. febr.
United press. FB.
í sambandi við fyrirhugaðar
kröfugöngur í skandinavisku lönd
unum á morgun, en þær eigá fram
að fara samkvæmt umleitunum frá
Moskva í mótmælaskyni gegn at-
vinnuleysinu, hefir lögreglan í
Kaupmannahöfn handtekið all-
marga menn, sem eru sakaðir um
að hafa áformað að sprengja ráð-
húsið í loft upp.
„Eksfrabladet“ liefir fengið IiQt-
unarbrjef um, að skrifstofur blaðs-
ins verði sprengdar í loft upp.
Hýtt.
Plómur, rauðar.
Rabarbari.
Tomatar.
Perur.
Blómkál.
Epli.
Glóaldin, Jaffa.
Bananar.
Þjóðarbúskapurinn í Danmörku.
Samkvæmt skýrslum dönsku
liagstofunnar um útflutninga í jan
úar var útflutningur á öllum teg-
undum landbúnaðarafurða, nema
kjöti, meiri en í janúar í fyrra.
Hins vegar er verð á öllum útflutt
um landbúnaðarafurðum lægra en
í janúar í fyrra.
Atvinnuleysishlutfallstala í jan-
úarlok 24.4, en 20.3 á sama tíma
í fyrra.
WizUZldj
Útvarpið.
Inflúensan í skólanum.
Siggi hafði verið fjarverandi um
tíma og kendi inflúensu um.
Sögukenqarinn • Hvað hefir þú
verið lengi í burtu?
Siggi: Við vorum í ]>rjátíu ára
stríðinu þegar jeg fór.
Miðvikudagur.
Kl. 18 Föstuguðsþjónusta í dóm-
kirkjunni (Sr. Bjarni Jónsson
i dómkirkjuprestur). Kl. 19,25
Hljómleikar (Grammófónn). Kl.
119,30 Veðurfregnir. Kl. 19.40
Barnasögur (Th. Árnason, fiðlu-
leikari). Kl. 19.50 Hljómleikar
(Axel Wold, cello, Emil Thorodd-
sen. slagharpa). Kl. 20 Ensku-
kénsla í 1. flokki (Anna Bjarna-
dóttir, kennari). Kl. 20.20 Hljóm-
lelkar: (Þór. Guðmpndsson, A.
Wold, Emil Thoroddsen). Kl. 20.30
Yfirlit um lieimsviðburði (síra Sig.
Einarsson). Kl. 20.50 Öákveðið. Kl.
21 Frjettir. Kl. 21.30—35 Grammó-
fón-liljómleikar: (Kðrsöngur).