Morgunblaðið - 14.04.1931, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐTÍ)
tisalan
hiá Marteini Einarssyni & Go.
er í fnllum gangi.
Sparið peninga og notið tækifærið, því allar
vörur verslunarinnar eru seldar mjög ódýrtog
margt með gjafverði.
Tilkynning frá
61 s ð 1 n
Vörnhússins.
En eru nokkur GÓLFTEPPI óseld.
KARLMANNAFATN AÐUR ódýrast í
bænum.
NÆRFATNAÐUR fyrir konur, karla og
börn hvergi úr meiru að velja.
Nýjum vönim bætt við daglega.
Vðrnhúsið.
Þetta er merklð,
á óblanðaða og cýbrenda
kaffinn gðða
i ranðn poknnnm. — Biðjið nm það.
Selskinn
kanpi jeg ætíð bæsta verði,
Þóroddnr E Jónsson,
Sími 2036. Hafnarstræti 15
Nýtt! Nýtt
Kartöflur Gulrætur
Blómkál Jaffa
Púrrur Valencia
Selleri Delicious
Agurkur Epli
Graslaukur Penir
Rabarbari Plómur
Rófur Sítrónur
Hvítkál Bananar.
ÍUUrVuUIí
Hinningarorð.
Kjartan Finnbogason
söðlasmiður í Vík í Mýrdal, and-
aÖist 1. apríl síðastliðinn, á 61.
aldursári (f. 26. ágúst 1870). —
Hann bjó lengi í Presthúsum í
Mýrdal, en hætti búskap skömmu
eftir Kötlugosið 1918 og fluttist þá
til Víkur og tók að stunda söðla-
smíði og aðra handiðn, einkum
járnsmíði. Hann var ágætur smið-
ur, eins og hann átti kyn til. —
Það var gaman að koma til Kjart-
ans heitins, þegar hann var við
smíðar, enda oft margt manna í
smiðjunni hjá honum. Þar mátti
sjá fljót handtök, og aldrei skeik-
aði honum með hamarinn. Var oft
glatt á hjalla í smiðju Kjartans,
því sjálfur var hann gleðimaður
mikiil, fyndinn og skemtilegur.
Perðamaður var Kjartan með af-
brigðum góður, enda oft fylgdar-
maður sýslumanns í þingaferðum.
Ilann fór vel með hesta og tamn-
ingamaður var hann ágætur.
Kvæntur var Kjartan sál. Ingi-
björgu Jóhannsdóttur frá Litlu-
Heiði, og lifir hún mann sinn. —
Eignuðust þau 9 börn, og eru 7
þeirra á lífi: Anna, lijúkrunar-
kona hjer í Reykjavík, Matthías
vjelamaður (vinnur við „Hegr-
ann“), Haraldur, járnsmíðaneini í
Hafnarfirði, Finnhogi, stud. art. á
Akureyri, Sigríður, Ásdís og Jó-
hann. 01] eru börnin efnileg og
mannvænleg.
Kjartani sál. var mjög ant um
velferð barná sinna, enda m'unu
þau jafnan minnast hans með
virðingn og þakklæti.
Vinur.
Kúban-Kósakkarnir
liggja ekki á liði sínu. Hafa þeir
sungið fimm sinnum í Camla Bíó,
þegar þetta er ritað — livern
daginn eftir annan. Á þriðja sam-
söngnnm var ný og breytt söng-
skrá. Meðal söngva, er athygli
vöktu í það skifti, má telja einn
af hinum svonefndu „andlegu kon-
sertum“ (121. Davíðs-sálmur) eft-
ir Bortniansky, höfund eða föður
kirkjulegrar tónlistar í Rússlandi,
dáinn 1825. „Rose Dig o IIerre“
eftir Tschaikowsky var og fróð-
logt að heyra, enda er lagið óvenju
legt fyrir þá sök, að það er marg-
raddað tón fremur dn kórsöngur
í algengri merkingu. „Tónaði“
söngflokkorinn afar fimlega. —-
„Bedækket af Sne“ og „Ensformig
klinger den lille Klokke“ eru hugð
næm þjóðlög. Voru þau mjög inni-
lega og vel flutt af tenór með
undirsöng kórsins. 1 þeim ein-
söngum, sem hjer hafa heyrst, er
Vegna jarðarfarar verður öllum starfsdeildnm vorum lokað
í dag kl. 12—4.
Sláturfjelag Suðurlands.
Móðir mín og lengdamóðir, Guðríður Gunnarsdóttir, andaðist
12. þ. m. á Landakotsspítala.
Sigríður Sveinsdóttir. Valgeir Guðjónsson.
Hjartkær dóttir, systir og sonardóttir okkar Gíslína Helga Mar-
grímsdóttir, verður jarðsungin miðvikudaginn 15. þessa mánaðar
kl. 1 y2 e. h. frá heimili okkar Bjarnarstíg 11, í Reykjavík.
Foreldrar, systir og afi.
undirsöngur kórsins því nær æf-
inlega „con bocca chiusa“ (með
lokuðum munni) eða þá klukkna-
eftirlíking. Eru þó slíkar söng-
brellur áreiðanlega bestar í hófi.
I miðþætti fimta samsöngs (s.l.
sunnudag) ljeku allir söngmenn-
irnir á „balalaika“, en það er rúss-
neskt alþýðuhljóðfæri með tveim-
ur eða þremur strengjum, ekki
ósvipað gítar. Hefir það einkum
verið notað við söng og dans, en'
á síðari tímum eru halalaika-hljóm
sveitir teknar að spila út af fyrir
sig á hljómleikum. Að vísu eru
slíkar hljómsveitir einhæfar —
hljómurinn grannur og fremur
þróttlítill og hreimblærinn því nær
alveg tilbreytingarlaus, en liann
hefir þó sín sjerkenni og sína
töfra. Og misjafnlega má fara
með þau hljóðfæri eins og önnur.
Það var auðheyrt að Kósakkarnir
kunnu tökin á þeim. M. a. ljeku
þeir „Fantasi“ út af Heiðingja-
lögum. Var sjerstaklega aðdáunar-
verður fimleiki sveitarinnar og frá
hær mýkt í öllum hinum mörgu
hljóðfærahreytingum Heiðingja-
söngvanna. „Volgu-söngurinn“ er
óneitanlega farinn að slitna, en
ágætlega naut hann sín í þetta
skifti, eins og hann var leikinn og
sung'inn af flokknum.
Svo virtist, sem söngmennirnir
væru tæplega jafnvel fyrirkallaðir
í byrjun og þeir eiga vanda til, en
náðu sjer þó fljótt.
Af Kúban-Kósökkunum má ráða
hversu söngnir menn komast, jafn
vel þótt raddir þeirra sjeu ekki að
öllu leyti frábærar, ef ekki vantar
áhuga, þrautseigju og hlýðni (dis-
ciplin) og ef foringinn er söng-
næmnr, hugsjónaríkur og vel
mentaður.
Sigf. E.
Minningarglafasiúður
Landsspítala ' fslands.
Sjóðurinn er styrktarsjóður
handa efnalitlum sjúklingum,
sem sjúkravist Tiafa á Lands-
spítalanum. Sjóðurinn tók til
starfa um áramótin síðustu, og
er styrkveiting úr honum aug-
lýst í byrjun hvers ársfjórð-
ungs í Lögbirtingablaðinu.
öllum árlegum gjöfum, sem
ekki fylgja önnur skilyrði, er
varið sem styrktarfje, og ank
þess nokkurum hluta vaxta þess
höfuðstóls, sem sjóðurinn átti,
er hann tók til starfa. — Hve
miklu sjóðurinn getur útbýtt, er
G.s. islsnd
fer í kvöld klukkan 6.
B.s. Botnia
fer annað kvöld klukkan 8
til Leith (um Vestmannaeyj-
ar og Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla á
morgun.
Tilkynningar um vörur
komi sem fyrst.
C. Zimsen.
ifjelbátur til sðlu.
Opinn vjelbátur — fjögra manna
far — nýlegur, með 3 hestafla
sóló-vjel, er til sölu við tækifæris-
verði. Lysthafendur snúi sjer til
Guðmundar Finnbogasonar jám-
smiðs, Laugaveg 71.
íbúð.
5 herbsrgi og elðhtis
til leign 14. maí. .
Upplýsingar í síma 858.
þess vegna undir því komið,
hve mikið honum gefst. Þetta
ætti almenningur að athuga, og
styðja sjóðinn með minningar-
gjöfum.
Afgreiðslu minningarspjalda
hjer í Reykjavík annast frk.
Helga Sigurjónsdóttir, Vonar-
stræti 8, og frú Lilja Krist-
jánsdóttir, Laugaveg 37. Sam-
úðarskeyti afgreiðir lan-dssíma-
stöðin, og má senda þau bæði
innanbæjar og til fjölda síma-r
stöðva víðs vegar um landið.