Morgunblaðið - 20.05.1931, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.05.1931, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ .. 1 " " - - —.^ f V- Fðlsun landsreikninganna. Til þess að dylja fyrir almenning'i fjármálaöngþveitið, greip stjórnin til þess örþrifaráðs, að falsa landsreikn ingana. Alþjóð er það nú ljóst orðið, ekki úrræðaleysið og sektarmeð- að stjórnin liefir með taumlansu swmiiiiiiiiimiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii^ JHorgxmHofctð | Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk E| I Rltstjörar: Jön KJartan»»on. Valtýr Stefánason. = Rltstjörn og afgreitSsla: Austuratræti 8. — Simi 500. = ] i Auglýsingastjóri: E. Hafberg. = Auglýsingaskrif stof a: IAusturstrætl 17. — Slml 700. s Heimasimar: Jón Kjartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. = E. Hafberg nr. 770. Á»kriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuBi. = Utanlands kr. 2.50 á mánuBi. = í lausasölu 10 aura eintakiB. 20 aura meB Lesbók. = nimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimi i Flngleiðin yfir Isiand. ^cn Grcnau ráðgerir flug til Ameríku, yfir ísland. Berlín, 19. maí. llnited Press. FB. Flugmaðurinn von Gronau, sem .áður hefir flogið um Færeyjar, Is- land og Grænland til Ameríku, ráð gerii' flug yfir Grænland til þess - ■að athuga veðurskilyrði, einnig möguleikana fyrir því, að komið verði á flugferðum um Grænland milli Evrópu og Ameríku. Von Gronau notar Dornier Wahl hyro- plane. .Samband Þjóðverja og Aust- urríkismanna. ToIIabandalagið. Genf, 18. maí. United Press. FB. Fulltrúar Frakka, hafa gefið í vskvn, að ef Haagdómstóllinn fall- ist ,á löginæti ])ýsk-austurríska úoll-aijandaiagsins, muni Frakkar loggja it.il við Þjóðabandalagið, að vgerðar verði mótráðstafanir, þar :sem friðinum og öryggi Evrópu :sje hætta búin, ef þetta bandalag komist á. Af ræðu Hendersons varð ekki sjeð að haun væri ósam- jþykkur fulltrúa Frakklands. Genf, 19. maí. United Press. FB. Þjóðabandalagið hefir einróma riagt liýsk-austurríska tollabanda- 'lagið fyrirhugaða fyrir alþjóða- .dómstólinn í Haag. Berlín, 19. maí. United Press. FB. Opinberlega tilkynt, að umræður um þýsk-austurríska tollmála- handalagið haldi áfrám milli Aust- urríkismanna og Þjóðverja, þrátt fyrir ákvörðun })á, sem tekin var af Þjóðabandalaginu. - -■ ------------ á óspektir í Lissabon. Lissabon, 19. maí. United Press. FB. í gærkvöldi höfðu kommúnistar ;sig allmjög í frammi og vörpuðu noSkrum sprengjum, en mikið tjón varð eigi af. Allmargir kommún- istar 'hafa verið handteknir. Stú- ■dentafjelÖgin hafa sent innanrík-- isráðherranum mótmæli út af fram komu kommúnista. Ríkisstjórnin ’hefir ákveðið að setja hermanna- vörð á helstu staði í borginni. Sjálfstæðismeim! Þið, sem farið hurt úr bænum, munið að greiða atkvæði á skrifstofu lögmanns í Arnarhváli (opin kl. 10—12 og ■4—6) áður en þið farið! Listi 'Sjálfstæðisflokksins er D-listi. fjárbruðli undanfarin ár hleypt fjárhag ríkissjóðs í meira öng- þveiti en þekst hefir áður. — A þrem tekjuhæstu árum í sögu landsins, fer óstjórn Framsóknar- flokksins þannig með fjárhaginn að hún ekki aðeins eyðir og sóar öllum tekjum sem inn koma, þ. á. m. þeim 14.6 miljónum, er um-' fram urðu áætlun fjáriaga, held- ux hleypir hún ríkissjóði í botn- lausar skuldir með því að auka skuldabyrðina um 15% miljón króna. Þannig tókst stjórninni að bruðla á þrem árum 30 miljónum króna umfram fjárhagsáætlun. Þegar stjórnin liafði aírekað ],ettíi, vaknar hún við vondan draum. Hún verður þess skyndi- lcga vör, að enn geta komið erfið- leikaár á Islandi. Og þá veit hún ekki sitt rjúkandi ráð. Fjárhirslan er tæmd í botn. Þá er gripið til opinberra sjóða, en þeir hrökkva skamt. Loksins finnur stjórnin, að hún hafði spent bogann of hátt og þá er ráðist á verklegar fram- kvæmdir ríkissjóðs; þær eru skornar niður að fullu og öllu. Varla er stjórnin svo aum, að henni hafi ekki verið orðið það ljóst, fyrir löngu, hversu hörmu- lega komið var með fjárhag rik- issjóðs. En því hneykslanlegra er framferði hennar, þar sem hún gerir hverja tilraunina eftir aðra ti! að dylja ástandið fyrir almenn- ingi. Skuldasöfnún stjórnarinnar og tekjuhalli byrjaðr á árinu 1929. En hvað gerir stjórnin þá? 1 stað þess að láta Alþingi þegar vita hvernig komið var, grípur stjórnin til þess örþrifaráðs, að falsa lands reikninginn, með því að draga yfir miljón af gjöldum þess árs undan framtali. Þessi reikningsfölsun komst fyrst upþ á. síðastliðnu ári, þegar yfirskoðunarmenn Iandsreiknings- ins fóru að athuga reikningana. Um þetta segja þeir svo í 38. at- hugasemd sinni við LR 1929: „Yfirskoðunarmenn veita því at- liygli, að mjög stórar fjárupphæð- ir, »þar á meðal til Landsspítal- ans, Þingvallavegar, Síldarbræðslu stöðvar, Arnarhváls o. fl., sem greiddar liafa verið á árinu, eru taldar endurgreiddar pr. 31. des. 1929 og sjáanlega færðar yfir á árið 1930. Þetta verða yfirskoðun- armenn að telja mjög varhugavert og spyrjast fyrir um, liver ástæða sje til þessa.“ Þess skal getið,. að yfirskoðun- armenn landsreikningsins eru þessir: Hannes Jónsson fyrv. al- þingism., Magnús Guðmundsson fyrv. alþm. og Pjetur Þórðarson frá Hjörsey. Þessari athugasemd yfirskoðunarmanna svarar stjórn- in á þessa leið: „Það þótti rjett að geyma að færa þessar stofnanir ]iar til bygg- iilgu þeirra væri lokið. Nú er þetta alt greitt.“ Varla er svo aumur Tímamaður til á þessu landi, að hann finni vitundina í þessu svari scjórnar- innar.v„Það þótti rjett að geyma“ að telja þessi útgjöld, og auka í þess stað sjóðsreikninginn um yfir miljón króna! — Ef einhver atvinnurekandi í landinu hefði leyft sjer slíba bókfærslu, niundi liann nú sitja í fangelsi. Yfirskoðunarmenn LR gera því n^est tillögu til Alþingis viðvíkj- andi þessari fölsun stjórnarinnar. Þar segir svo: „Fjárhæðir þær, sem um ræðir í aths. eru sjerstaklega þessar: Til síklarverksm.. . kr. 450174.90 -— Þingvallavegar .. — 253380.98 — Arnarhváls .... — 115000.00 — Landsspítalans .. — 225000.00 Kr. 1043555.88 Allar þessar greiðslur og marg- ar fleiri, en smærri, hafa ýerið inntar af hendi 1929, þótt þær sjeu ekki færðar til gjalda, heldur taldár í sjóði 1. janúar 1930. Við þetta verður sjóðsupphæðin röng og sýnist öðrum meðundirrituðum endurskoðanda* rjettast, að kr. 1043555.88 v&rði færð til gjalda í LR 1929.“ ■' Stjórnin ljet sjer ekki nægja að falsa landsreikninginn 1929, með því að telja ranglega talsvert á aðra miljón í sjóðí, þótt búið væri áð eyða öllu því fje, heldur var hún staðráðin í, að viðhafa samskonar fölsun og þó í marg- falt stærri stýl á árinu 1930. I yfirliti sínu í þingbyrjun s.l. vetur yfir tekjur og gjöld ársins 1930, telur fjármálaráðherrann tekju-afgang rúmlega 80 þús. kr., þótt að minsta kosti hafi vantað 6—7 miljónir upp á, að fjárlaga- tekjur nægðu fyrir gjöldum. I framtali sínu þótti fjármála- ráðherra henta, að sleppa úr gjaldamegin um 550 þúsundum króna ti! vega og símamála, 4% milj. kr. til ýmissa fyrirtækja, svo sem síldarverksmiðjunnar, Lands- spítala, landssímastöðvar, útvarps- stöðvar, strandferðáskips, 1% milj. kr. er ríkið varði beinlínis til hlutabrjefakaiipa í Utvegsbankan- um 0. fl. Með því þannig, að stinga undir stól 6—7 miljóna króna útgjaldaliðum, fær stjórnin tekjuafganginn, 81 þúsund kr. I Þetta er vafalaust stórfeldasta fölsunin, sem gerð liefir verið í framtali ríkisbúskaparins. Og til þess að dylja betur eymd- arástandið í fjármálunum, fór stjórnin enn lengra í feluleik sín- um. Hún gerir alranga skiftingu L skuldum ríkissjóðs og ætlar með því a,ð villa almenning. í skulda- skýrslu sinni telur stjórnin 9—10 miljónir öðrum tilheyrandi en rík- issjóði sjálfum, þó að ríkissjóður eiim verði að standa straum af súpunni, með greiðslu vaxta og afborgana. Loks kórónar stjórnin feluleik sinn með því að taka * Hannes, vesalingurinn, var hræddur um að hann misti bitann, ef hann færi fram á, að fölsunin vrði leiðrjett og þorði því ekki að skrifa undir tillöguna. upp nýja tilliögun á fjárlögum og landsreikningum, sem er svo ó- glögg til yfirlits og ruglingsleg, að almenningur á erfitt með að gera samanburð á núverandi öngþveiti fjármálanna við það, sem áður var. Ef Alþingi fær nokkurn tímann að koma saman aftur, hlýtur það að taka hart á reikningsfölsun stjórnarinnar. Þjóðin verður einn- ig að taka liart á þessu nú við kosningar þær, sem í hönd fara. Hún verður fyrst og fremst að sjá um, að einræðisherranum af konungsnáð, Trampe Þórhallssyni, verði velt af stóli. Þetta verður þjóðin að gera 12. júní næstkom- andi! ----—« -------... — Jónas Þorbergsson og hlntleysið. Yfirlýsing Tryggva Þórhallssonar A eldhúsdegi 1930 var talsvert rætt um það hneyksli, þegar Tr. Þórhallsson gerði Jónas Þorbergs- son að útvarpsstjóra, einlivern hlutdrægasta og ósvífnasta blaða- mann, sem kornið liefir .-, , nærri stjórnmálum á lán'cTi njér. Tryggvi reyndi að verja veit- inguna, en fórst vörnin óhöndu- k-ga sem von var, en í sambandi við þessar umræður gaf liann þá yfirlýsingu, að sjálfsagt væri að Jónas ÞorbergsSOh væri hlutlaus : pólitík, eftir að haiin væri orð- inn útvarpsstjóri. Orð Tryggva um þetta eru þannig: „En hitt er jeg sammála háttvirtum þingm. um (það var Magnús Jónsson) að þegar þessi pólitíski maður (þ. e. Jónas Þorbergsson) er orðinn út- varpsstjóri, á hann að vera hlut- laus“. (Leturbreyting lijer). — (Alþ.tíð 1930. B. bls. 424). Allir vita hvernig Tryggvi, sem er yfirmaður Jónasar Þorbergs- sonar, hefir staðið við þessa yfir- lýsingu. Hann hefir svikið hana eins rækilega og hægt er. Hann leyfir Jónasi Þorbergsssyni að rita rangfærslur og ósannindi í Tím- ann, um pólitík, og hann kórónar svikin við yfirlýsinguna með því að leyfa Jónasi að vera í fram- iboði í Dölum. Næstn bappreiðar. Eins og auglýst hefir verið, verða kappreiðar háðar á annan : hvítasunnu á skeiðvellinum við Elliðaár, það er því nauðsynlegt fj'rir þá, sem ætla sjer að reyna hesta sína að æfa þá, enda er völlurinn orðinn í besta lagi, og æfingar til góðs fyrir hestana og gamans fyrir mennina. I þetta sinn verða verðlaun fleiri en áður hefir verið, ættu því sem flestir hestaeigendur að reyna lakkuna í þetta sinn. A undanfarandi kappreiðum, hafa stundum heyrst raddir um, að kappreiðar, væru of einhliða og þangað gætu knapplega aðrir farið en þeir, sem væru helstelskir, úr þessu er fjelagið nú að bæta, með því að nú er þegar búið að reisa þar veglegan danspall, sem ætlast. er til að fólk skemti sjer á, á milli hlaupanna, og svo nátt- úrlega eins lengi og vera vill að loknum kappreiðum. „Fákur“ vill kappkosta að gera þennan blett, sem hann hefir til nmráða, svo vistlegan, að hann í framtíðinni yrði eftirsóttur skemtistaður Reykvíkinga. D. D. Kgir bjargar togara. Akureyri, FB. 19. maí. -Ugir náði út botnvörpungnum Frobisher, frá Hull, sem strandaði á Leirhöfn á Sljettu þ. 9. febrúar í vetur. Kom hann hingað með hann í nótt. Botnvörpungurinn er ekki talinn mikið skemdur. Þó eru nokk ur smágöt á botninum og plötur dalaðar. Bráðabirgðaviðgerð fer fram hjer. Á sunnudaginn liafði Ægir sótt kafara hingað til að- stoðar við björgun skipsins. Síldarafli ágætur. Uppgripa fisk afli á útmiðum fjarðarins. Frá- munaleg kuldatíð undanfarna daga, fimm ti! sjÖ stiga frost um nætur. 1 dag hlýindi. Batnandi horfur á Spáni. Madrid, 19. maí. ''' ' ' Uöiled Pi-ess. FH. Lýðveldisstjórnin hefir gefiÓ út boðskap um, að hernaðarlög skuli eigi lengur gilda í Madrid. Er nú alt með kyrrum kjörum í borginni. Madrid, 19. maí. United Press. FB. B Vegna þess að kosningaundir- búningi verður fyrirsjáanlega nógu lengt komið, verður þjóðþingskosn ingunum frestað til 28. júní. ...»-----------*••• Dagbik. Ferðafjelag íslands bauð skóla- börnum í skemtiför s.l. Sunnudag upp að Kolviðarhóli og þaðan upp á Hengil. Voru börnin 71 að tölu úr efstu bekkjum bamaskólanna beggja. Með þeim voru skólastjóæi Sigurður Jónsson og þrír kennar- ar auk 4 manna úr stjóm fjelags- ins. Lagt var af stað úr bænum kl. 9 árdegis. Flest börnin komust alla leið upp á hátind Hengilsins. Til Kqlviðarhóls var komið aftur um kl. 4 og ljet þá fjelagið bera fram veitingar fyrir boðsfólkið. Lagt var af stað frá Kolviðarhóli t.il Reykjavíkur um kl. 6. Bifreiða- stöð Steindórs lánaði alíár bifreið- arnar ókeypis. Þetta er í þriðja sinn sem Ferðafjelagið býður skóla börnum í skemtiferð. Carmen, hin vinsæla skáldsaga franska skáldsins Prosper Mérimée, er nýkomin út í íslenskri þýðingu og fæst lijá öllum bóksölum. D-listi er listi Sjálfstæðismanna við kosningarnar 12. júní. Vísindafjelag fslendinga hef'iu nú nýlega gefið út VIII. hefti af vísindaritgerðum sínum. Er það eftir Ingimar Óskarsson og fjallar um gróður í Hrísey í Eyjafirði. Það er samið á ensku og heitir* „The vegatation of the islet Hrís- ey in Eyjafjorduin North-Iee- land“. — Telur höf. 170 plöntur sem hann hefir fundið þar. — I kverinu er uppdráttur af Hrísey, með bæjanöfnum og staðanöfnum þar. Sjálfstæðismenn þeir, sem kosn- ingarrjett eiga utan Reykjavíkur, en hjer dveljast fram yfir kjördag ættu að muna að greiða í tíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.