Morgunblaðið - 23.05.1931, Síða 2

Morgunblaðið - 23.05.1931, Síða 2
 MORGUNBLAfilÐ Landsmálafundlr. \ Heimdallur, fjelag ungra Sjálfstæðismanna í Reykja- vík, boðar til landsmálafundar í Keflavík á annan í hvíta- sunnu. Hefst fundurinn kl. 3 síðdegis. Fjel. ungra Framsóknarmanna og Jafnaðarmanna er boðið að senda ræðumenn á fundinn. Stjórn Heimdallar. opnar Mjólkurbú Ölfusinga í Hveragerði veitingahús fyrir ferðafólk og fólk, sem kemur að skoða Grýlu, og fæst þar skyr, rjómi, mjólk, súkkulaði, te og kaffi með kökum. — Einnig öl og gosdrykkir. HEILSUMJÓLK FÆST í GLÖSUM. D. K. W. er útbreiddast allra MÓTORHJÓLA í Evrópu, enda af fag- mönnum talið franrárskarandi að allri gerð. Eitt þessara hjóla, mjög hæfilegt að stærð og krafti, fyrir íslenska vegi, er nú til sölu með hægum greiðsluskilmálum. Elfar, Laugaveg 19. ,Æðsta mark' Framsóknarflokksins. Jónas og Danir. Nýlega birtist í dönsku blaði ■viðtal við Jónas Jónsson, fyrrum dómsmálaráðherra. Segir Jónas jþar, að „æðsta mark“ Framsókn- arflokksins sje „sem hest samvinna við Dani á sviði fjárhags- og at- vinnumála“. Lýsir hann því næst samvinnu þessari og segir: „Hví skyldu ekki t. d. danskir og ís- lenskir bændur í samvinnu stofna til áburðarvinslu úr loftinu. ísland hefir vatnsaflið og í Danmörku er mikill márkaður fyrir áburðinn“. Eins og kunnugt er, mæla sam- bandslögin svo fyrir, að danskir þeknar skuli njóta á íslandi jafn- rjettis við íslenska þegna hjer bú- setta, og gagnkvæmt. Þetta á- kvæði sambandslaganna hafa Is- lendingar talið mjög ranglátt og stórháskalegt. Danir eru, sem kunnugt er, þrjátíu sinnum fleiri en íslendingar og margfalt auð- ugri. Við strendur íslands og í landinu sjálfu eru hins vegar ó- grynni auðæfa, sem íslendingar hafa verið að kappkosta, að þeir sjálfir fengju einir að njóta. Þeir hafa sett margs konar hömlur á rjett útlendinga til atvinnurekstr- ar í landinu sjálfu og bannað þeim með öllu að stunda fiskveiðar í landjielgi. Sams konar hömlur eiga að sjálfsögðu að komast á gagnvart Dönum, jafnskjótt og sambandslögunum verður sagt upp. Það verður að vísu ekki sagt um Ðani, að þeir hafi hingað til gert mikið að því, að notfæra sjer rjett þann, sem . sambandslögin veita þeim. Þó hafa Danir lagt all- mikið kapp á, hin síðari ár, að koma sjer upp fiskiflota hjer við land, sumpart til síldveiða í land- heígi og sumpart til flatfisksveiða með svonefndum dragnótum. Hafa þeir og lagt mikið kapp á, að fá þreytt löggjöf þeirri, sem tak- markar mjög veiði með dragnót- um innan landhelgi. Enn hefir þetta þó ekki tekist. Danir gerðu sjer miklar vonir um, að þessum lögum yrði breytt á síða^a þingi og voru, að sögn, farnir að undir- búa stóra lítgerð hingað. Dönsk blöð frá 22. apríl s.l. skýra frá því, að tii Esbjerg hafi þá nýlega komið stór, þýsk fiski- skúta, frá Cuxhaven og sje hún á leið til Islands til síldveiða þar. Danskur maður, A. C. Andersen, að nafni, búsettur í Esbjerg, eigi að taka við útgerðarstjórn skips- ins og útbúa það til íslandsfrfrðar. Ennfremur er skýrt frá því, að alls sjeu væntanleg 10 þýsk fiski- skip, er öll eigi að gerast út á íslandsveiðar. Er þess getið, að út- gerð skipanna hafi gengið illa hjá eigendunum þýsku, einkum vegna fjárhagsörðugleika þýska ríkisins. Útgerðin hafi því ekki getað fengið það ríkislán, sem lof- að var og hafi því eigendurnir og þýska ríkið orðið ásátt um, að reyna að koma skipunum undir danskan fána, og senda þau síðan til íslands á síldveiðar þar. Ef að dönsku blöðin fara hjer rjett með bá er hjer vitaskuld um óleyfilega leppmensku að ræða af Dana hálfu og beint brot á ákvæð- um sambandslaganna. Verða Is- lendingar vel að vera á verði gegn slíku athæfi. Og sennilega er það einnig þessi atvinnurekstur Dana á íslandi, sem Jónas Jónsson frá Hriflu telur „æðsta mark“ Fram- sóknarflokksins að vemda. Hvað finst íslendingum? Veðirið (föstudagskvöld kl. 5): Stilt veður um alt land og víðast ljettskýjað. Loftþrýsting er há hjer á landi og norður undan, en lágþrýstisvæðið vestan við Bret- landseyjar fer minkandi og veldur þó enn allhvassri A-átt skamt fyrir sunnan land. Lítur ekki út fyrir neinar veðrabreytingar á morgun. Við N og A-land mun víða verða þoka, að minsta kosti í nótt, en bjartviðri á S og V-landi. Veðurútlit í Rvík í dag: N-gola. Ljettskýjað. Ljósmyndir af hópsýningu Ár- manns á Iþróttavellinum 17. maí, verða til sýnis í glugga Morgun- blaðsins í dag og á morgun. Fje- lagsmenn geta fengið myndirnar keyptar á Klapparstíg 37, hjá ljós- myndasmiðnum. Hvítasunnumessur: 1 dómkirk j- unni á hvítasunnudag kl. 11, síra Friðrik HaJlgrímsson, kl. 5, síra Bjarni Jónsson. 2. hvítasunnudag kl. 11, síra Bjarni Jónsson, kl. 5, síra Friðrik Hallgrímsson. f fríkirkjunni í Reykjavík kl. 2 á hvítasunnudag og kl. 5 á annan í hvítasunnu, síra Árni Sigurðsson. í fríkirkjunni í Hafnarfirði á hvítasunnudag kl. 1, síra Jón Auð- uns. (Ferming). Þingmálafundir. Frambjóðendur í Gullbringu- og Kjósarsýslu aug- lýsa í blaðinu í dag þingmála- fundi, sem haldnir verða í næstu viku. Harebell, breska herskipið, sem áður hefir verið hjer við land, kom hingað í gærmorgun. Samkomur á Njálsgötu 1. Hvíta- sunnudag kl. 8 síðd. Annan í hvíta sunnu kl. 8 síðd. Allir velkomnir. Jón Þorláksson alþm. kom til bæjarins í gærmorgun. Hefir hann '•í.rið að halda þingmálafundi í Barðastrandarsýslu og var auk þess á tveim fundum í Snæfells- nessýslu. Kom hann nú seinast frá Sandi með „Snorra goða“. Hafnarbáturinn Magni var feng- inn til þess að fara vestur á Sand að sækja þá samherjana Árna Á- gustsson og Jónas Jónsson, sem yoru þar í kosningaleiðangri. Kom Magni aftur hingað í gærmorgun. Náttúrufræðingririnn, 4. heftið er nýkomið út. Er það fjölbreytt og skemtilegt, eins og hin heftin hafa verið. Það ætti sem flestir að gerast áskrifendur að riti þessu. Menn mun ekki iðra þess. Knattspyrnumót 3. flokks. Mót- inu lauk' í fyrrakvöld með úrslita- kappleik milii K. R. og Víkings. Kappleikir mótsins hafa farið þann ig: K. R. vann Fram með 5:0. Vík- ingur vann Val með 3:0. Valur og K. R. jafntefli 1:1. Víkingur vann Fram með 6:0. Valur vann Fram með 5:1. Víkingur og K. R. jafntefli 1:1. Úrslit urðu þau að nr. 1 varð Víkingur (5 stig), nr. 2 R. R. (4 stig), nr. 3 Valur (3 stig), nr. 4 Fram (0 stig). Víkingur vann því mótið og hlaut hinn nýja bikar sem Knattspyrnuráðið hefir gefið til að keppa um í þessum flokki. K. R. vann 3. fl. bikarinn til eign- ar í fyrra. Mikið fjör og líf var á þessum kappleikum drengjanna. 2. flokks mótið hefst á annan í hvíta- sunnu kl. 4 síðd. Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trulofun sína ungfrú Guðrún Þor- steinsdóttir og Ólafur Þorkelsson bifreiðastjóri á Hverfisgötu 104. Jarðarför Guðna Símonarsonar .gullsmiðs fór fram í gær. Síra Friðrik Hallgrímsson flutti bæn í lieimahúsum, en síra Bjarni Jóns- son helt ræðu í kirk.j^nni og jarð- aði. — Framh. á 4. síðu. IManchettskyrtur á 6.95, 8.50, 9.75, 10.50. Bindi, mikið og fallegt úrval. Hattar á 8.90, 9.75, 12.00. Tennispeysur. Sportsokkar. Pullovers. Blússur. Oxfordbuxur. Pokabuxur. Sokkar, feiðna úrval. Enskar húfur o. m. fl. Flutnmgsntsala Hljóðiærahússins Músík. Leður. 3000 góðar grammófónplötur seldar á kr. 1.00, 1.50, 2.00, án tillits til venjulegs verðs. Athugið! — Kaupið! 1 dag, laugardag. Nokkrir fónar óseldir. Lesið útsölublað okkar. Barnaplötur 50 aura. Við gefum 20% afslátt af öllum vörum, sem á útsölunni eru og ekki eru sjerstaklega lækkað- ar í verði. ljóðfærahúslð Hefi oanað hársreíðslustofu í Miðstræti 8B, niðri. Sími 1409. G. Norðfjfirð, frá Akureyri. þá gerið svo vel að líta á hinar nýju vörur, sem við nú höfum fengið. Sjerstaklega viljum við benda á hið fjölbreytta úrval af stóltun £ karlmannaherbergi, dagstofux og skrifstofur, að ógleymdum borðstofu- stólunum. Barnavagnarnir eru altaf til og altaf jafn góðir og jafn fallegir. HðsBisnav. Vatnsstíg 3. Sími 1940. Á annan í hiítasnnnn verður sundskálinn á Álafossi opnaður til afnota fyrir almenning. Sundkort fást hjá sundskálaverði. Sundskýlur og handklæði fást leigð. í veitingastofu fæst kaffi, mjólk, öl, gosdrykkir og matur ef pantað er með fyrirvara. Signrjðn Pjetnrsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.