Morgunblaðið - 25.06.1931, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
filrðlngarafn
Girðisgai uei.
mjög vel galv.
Girðlngarstúlpar
nr járni, lækkað verð.
Gaddarir -- Bíndivír - Sljettnr vír.
Fengum með e.s. Goðafoss:
Nýjar ítalskar kartðflnr.
Epli Delecions. Lank.
Appelsínnr, 150, 176, og 216 stk.
Eggert Kristjánsson & Go.
Leikleiðangur
Leikfjelags Reykjavíkur.
Einar H. Kvaran.
Þróttmikill, fagur, dramatískur
skáldskapur, og fáguð, fullkomin
lciklist fylgist oft og einatt að.
Hjá þeiin þjóðum sem hefir
auðnast að eignast þetta tvent,
skilja gilcli þess og þýðingu leik-
iiiis þeirra skipa því jafnan tign-
arsess í þjóðfjelaginu,
Oft eru bestu leikhúsin stucld
af ríkisfje. Þau Jiaf'a því eðlilega
besta aðstöðu til að tryggja sjer
bestu listamennina — bestu höf-
undana. Bein afleiðing þess verða
bestu leiksýningarnar.
Fje }>að sem gengur til reksturs
þessara leikhúsa er tekið af alþjóð.
Þó getur aldrei nema lítill hluti
þjóðarinnar notið leiksýninganna.
Til að bæta að einhverju leyti
úr þessu, hafa leikhúsin funclið
upp á því, að ferðast út um landið,
með þær sýningar, sem bestar eru,
og sem hafa mest menningar- og
mentagildi.
Er þetta nú orðin föst venja í
mörgum löndum, og gefst vel.
Á þennan hátt gefst fjölda fólks
— í fjarlægum landshlutum —
’þess kostur að njóta góðra leik-
rita og góðrar leiklistar. Um leið
hafa þessar ferðir stórurn: aukið
skilning landsfólksins á hinu víð-
tæka og margþætta menningar-
starfi leikhúsanna. —
íslendingar unna dramatískum
■skáldskap, og $ækja að jafnaði vel
deiksýningar. Öll aðstaða til leik-
starfsemi hefir, alt fram að þessu,
verið mjög erfið hjer á landi. —
Fólki úti um land gefst því sjeldan
tækifæri til að sjá góðar leiksýn-
I ingar. — Þó er ábugi manna fyrir
þessari list, síst rriinni þar en hjer
í höfuðstaðnum.
t Leikfjelag Reykjavíkur er nú
meira en 30 ára gamalt. Það mun
vera elsta núverandi leikfjelag fs-
lands, og má teljast aðalleikfjelag-
ið í landinu, enda nýtur það ekki
svo lítils fjárstyrks af bæjar- og
.ríklsfje, eftir islenskum mæl|-
kvarða. Er það ekki nema
eðlilegt og sjálfsagt, þar sem
líkindi eru til að það haldi
uppi þierki fhinnar íslensku
leikl þ'tar í 1 framfíðþini. En
þó að Reykjavík sje orðin allfjöl-
menn, getur þó starfsemi fjelags-
ins ekki náð nema til lítils hluta
]>eifra landsmanna, sem unna leik-
list og leikritagerð.
Væri ekki sanngjarnt, að L. R.
tæki til greina þær óskir og upp-
ástungur sem fjelaginu hafa borist
utan af landi, um að það fari með
bestu leikritin og sýni þau, — þar
J sem aðstaða er til — t. cl. í aðal-
kaupstöðunum ?
i . .
Núverandi stjórn fjelagsxns, heí-
ir hugsað talsvert um þetta mál,
og mun lienni fullljós sú skylda er
leikfjelaginu ber til þess að efla á
huga og þekkingu meðal lands-
manna, á leikliúsinu og leiklist-
inni. Hefir hún því ákveðið að gera-
hina fyrstu tilraun með að Leik-
fjelbgið fari í leikferð (Turnée)
til Norðurlandsins.
Sá sjónleikur sem varð fyrir val-
inu er hið nýja leikrit Einars H.
Kvaran, ,,Hallsteinn og Dóra“.
Ekkert íslenskt leikrit, sem fram:
hefir komið í seinni tíð, hefir átt.
jafn miklum og almennum vin-
sælduxn að fagna, enda er það ekki
útleikið hjer enn.
Ráðgert er að sýna leikinn á Ak
ureyri í byrjun júlí. Undirbúning-
ur er þegar hafinn þar fyrir nokk-
uru. Leikhús ísafjarðar hefir enn
ekki risið úr brunarústunum, svo
að þar verður — því miður —
ekki hægt að sýna þennan leik.
Svo vel vill til, að nokkrir aðal-
starfsmenn fjelagsins fara hvort
sem er til Akureyrar um þessar
mundir, svo að nú er gott tækifæri
til að gera þessa tiíraun.
Vonandi er, að þetta — ásamt
annari nýbreytni í leikstarfseminni
— geti orðið byrjun til þess, að
gera landsmönnum æ betur og bet-
ur skiljanlegt liið margþætta menn
ingargildi og starfsvið leiklistar-
innar og leikhússins komandi, —
sem hlýtur að verða merkilegt,
og mikilsvert menningaratriði fyr-
ir landið.
H. Björnsson.
Vinnudeilurnar í Horegi.
Yfirgangur kommúnista.
Vinnustöðvunin mikla í Noregi
hefir nú staðið yfir í rúmlega 2
mánuði. Eins og kunnugt er, er
launa-deila orsök vinnustöðvunar-
innar. Launakjör eru betri en í
nokkru öðru landi í Evrópu. At-
vinnurekendur ákváðu í vetur að
lækka launin til þess að Norðmenn
verði áfram samkeppnisfærir og
til þess að koma á samræmi milli
launanna og vöruverðsins. Upp-
haflega lieimtuðu atvinnurekendur
12—15% launalækkun, en ætluðu
sjer þó að fallast á 7—8% lækkun,
ef samkomulag næðist án vinnu-
stöðvunar.
Hægri hluti verkamanna viður-
kenndi, að ekki yrði komist hjá
því að launin verði lækkuð eins og
nú er ástatt. En Tranmæl og fylgis
menn hans kornu því til leiðar, að
verkamenn neituðu að fallast á
launalækkun. Verkbanninu varð
]xví ekki afstýrt. Vinnustöðvun-
in nær til næst um 100.000 verka-
manna.
1' Menstad nálægt Porsgrund við
Ski-enfjörðinn hafa 60 verkamenn
unnið við „Norsk Hydro“ þrátt
fyrir vinnukreppuna. Verkaimönn-
um hefir mislíkað það mjög ,eink-
um hafa kommúnistar reynt að
stofna til óeirða í Menstad og bæj-
unurn þar í grend. Alvarlegar ó-
eirðir urðu þó ekki fyr en þ. 8.
þ. m. Þá tökst kommúnistum að
safna 1000 verkamönnum saman
til lcröfugöngu, þrátt fyrir lög-
reglubann við kröfugöngum. —
Kröfugöngumenn voru vopnaðir
með steinum og jámstöngum.
Lögreglan reyndi að stöðva
kröfugönguna með góðu, en það
tókst elcki. Lögreglustjórinn ljet
þá beina slökkvislöngum að kröfu-
göngumönnum, en þeir svöruðu
með ]>ví að ráðast á lögregluna.
Uppþotsmennirnir skáru slökkvi-
slöngurnar í sundur, köstuðu stein-
um á lögreglumennina og börðu
þá með járnstöngum. 4 lögreglu-
rnenn hnigu meðvitundarlausir til
jarðar. Margir aðrir lögreglumenn
særðust og voru fluttir á sjúkra-
hús. Einn þeirra missti annað aug-
að. — Kröfugöngumenn höfðu með
sjer konur og böm. Konumar söfn
uðu steinum í svunturnar sínar og
báru þá til karlmanna, sem ljetu
steina blátt áfram rigna niður yfir
lögregluna. Lögreglan varð að
hopa undan, en að lokum tvístruð-
ust ])ó uppþotsmennirnir.
Menn bjuggust við nýjum óeirð-
nm. Norska stjórnin sendi því her-
lið, ríkislögreglu og 4 herskip til
Menstad og nálægra bæja. Og það
hreif. Síðan hafa engar óeirðii-
orðið við Skienfjörðinn, „því eng-
inn vill láta skjóta sig“, sagði
einn af foringjum verkamanna. |
En kommúnistar reyna á allan
hátt að valda liernum og lögregl-j
unni sem mestunx óþæginclum. —j
Kommúnistar ógna íbúunum á ó-.
eírðasvæðiriU tíl þess að hafa engin
viðskifti við lierinn eða lögregl-1
i
una. Gestgjafarnir þora ekki að
veita hermönnum eða lögreglu-
mönnunx húsaskjól, bakararnir
þora ekki að selja þeim brauð, og
tóbakssalarnir þora ekki að selja
])eim tóbak. í Skien þorði skó-
smiður ekki að selja. lögreglu-
maöni skóreimar. Skósmiðurinn
óttaðist hefndir af hálfu kommún-
ista.
Verkainenn eru mjög gramir ixt
af því að norska stjórnin hefir
sent herlið til bæjanna við Skien-
fjörðinn og lofað að vernda verka-
mennina', sem vinna lijá „Norsk
Hydro“ í Menstad. Kommúnistar
hafa óspart i-eynt að færa sjer
gremjuna í nyt. M. a. berjast
komimúnistar fyrir allsherjarverk-
falli í öllu lanclinu til þess að mót-
mæla aðgerðum stjórnai'innar.
Þeir hafa þó ekki fengið því fram-
gengt, en stjórn verkalýðsfjelag-
anna hefir fallist á, að lýsa yfir
allsherjar verltfalli við Skienfjörð
inn. Verkfallið á að stancla yfir
þangað til að herliðið verður flutt
burtu.
Æsingastarfsemi Moskva-mann-
anna innan verkamannaflokksins
veldur hógværari verkamannafor-
ingjum vaxandi erfiðleikum. -—
Norskir verkamenn eru yfirleitt
róttækari en stjettarbræður þeirx-a
annars staðar á Norðurlöndum.
En hið mikla atkvæðatap verka-
mannaflokksins við þingkosning-
arnar í fyrra, hefir sannfært
rnarga verkamannaforingja um
það, að þeir vei'ða — að tminsta
kosti á yfirborðinu — að vera hóg
værari en hingað til , ef þeir eiga
ekki að verða fyrir enn þá meira
og tilfinnanlegra tapi.
Khöfn í júní 1931.
P.
Málið, sem feldi Mowinkel.
NRP. 23.-24. júní. FB.
Lokaumræður um Lilleborgmál-
ið fóru fram í Stói'þingitíu í gær j
(22. júní) og var samþykt tillaga
frá; Hundseid með 96 : 50 atlcvæð-
um að leggja málið í hendur rík-
ÍHStjómarinnar. Þingmenn verlca-
lýðsflokksins greiddu atkvæði á
móti og vinstrimennirnir Pehrson,
Mjöen og Belland. Kolstad for-
sætisráðherra kvað stjóraina ekki
ætla að leggja út í stríð við „hring
inn“ (trusten) urn málið. Blöðin
eru yfirleitt þeirrar skoðunar nú,
að sjerleyfið verði veitt,
„Nautilus“.
Cork, 23. júní.
llnited Press. FB.
Tilkynt hefir verið að Nautilus
kafbátur Wilkins, leggi af stað
hjeðan til Nexvcastle on Tyne á
miðvikudag.
SuDiarkiólflri
Iseljast nn með
aislatti.
Verslunin Egill lacobsen.
Grammoióiiplötur
teknar upp í gær. Mjög miklu ú*r
að velja'.
Hljóðfæraverslun
Helga Hallgrímssonar.
Sími 311. Bankastræti.
(Áður versl. L. G. Lúðvígssonar.)
Þennan ágæta blómaáburð ættu
allir blómavinir að nota. Fæst hjá
flestum nýlenduvöruverslunum.
Fjn'irliggjandi lijá
H. ]. Bertelsen h Go„ h.f.
Sími 834. * Hafnarstræti 11.
Þiðrsðrmfitli
er næstkomandi langardag.
Bestar ferðir þangað
frá Steináðrl.
9f- " ' ’ - ;
Frá Steimlóri
Nýir áveztir:
Epli. x
Appelsínur.
Bananar.
Perur.
Cítrónur
Vorsl. Foss.
Laugaveg 12. Sími 2031.