Morgunblaðið - 12.07.1931, Side 4
4
Útsala. Sumarkápur seldar fyrir
hálfvirði þennan mánuð. Einnig
sumarkjólar og kápuefni, taubút-
ar afar ódýrir og skinn. Sigurður
Guðmundsson dömuklæðskeri, —
Þingholtsstræti 1 .
Nesti í ferðalög, svo sem sæl-
gæti allskonar og tóbaksvörur, er
best að kaupa í Tóbakshúsinu,
Austurstræti 17. NB. Vindlarnir
þaðan eru alment viðurkendir þeir
bestu fáanlegu.
Vegna
lltillar þátttðkn
verðnr skemtnn trjesmiða*
ijelagsins frestað.
Bónið bílana
sjálfir
með hinum þægilegu bónspraut-
um. Sparar allan þvott.
Þvottaverðið lækkað.
Strekkjarar fyrir 1% tonn bíla
komnir, framan og aftan. Mikið
ódýrara en áður.
Kaupið alt til bíla hjá.
flgli Vilhiálmssyni,
Grettisgötu 16 og 18. Sími 1717.
Vandað steinhús
óskast til kaups. Útborgun alt að
25.000 krónur. Skriflegt tilboð
með lýsingu og skilmálum sendist
í pósthólf 701, merkt Steiiihús.
Hýkomnar vörur:
Sloppar og svuntur,
bvítir og mislitir.
Kvensilkisokkar mjög sterk teg.
á 2 krónur parið.
Versl. Vik.
Laugaveg: 52.
Mnrstelnn.
Hðfmn til sðln 6-7
þósflni mflrstelna.
Olgerðln
Egill Skallagrfmsson.
Slml 391.
Spiskaal, Gnlrætnr,
Petersflle, fsl. Tomatar.
KLEIN.
Baldursgötu 14. Sími 78
V O R Q TT N B L A Ð I Ð
„Empress og Britain' ‘ heitir nýjasta farþegaskip Canadian Paci-
fie fjelagsins. Yerður það í förum yfir Atlantshaf. Á það að vera
hraðskreiðasta farþegaskipið og er því ætlað að ná „bláa bandinu“
af þýska skipinu „Bremen“.
Farsóttir og manndauði í Rvík.
Vikan 21.—'27. júní. (í svigum
tölur næstu viku á undan). Háls-
bólga 34 (81), Kvefsótt 30 (82).
Kvefiungnabólga 8 (11). Barna-
veiki 1 (0). Barnsfararsótt 0 (1).
Gigtsótt 1 (0). Iðrakvef 6 (17).
Taksótt 3 (3). Rauðir hundar 1
(1). Skarlatsótt 0 (3). Stom. apth.
0 (2j. Mannslát 3 (8). Landlækn-
isskrifstofan.
Útvarpið í dag: KL 11 Messa í
Dómkirkjunni (Síra Bjarni Jóns-
son). Kl. 19,30 Veðurfregnir. Kl.
20,15 Grammófónhljómleikar (kór
söngur). Kl. 20,35 Erindi: Um
snnd (Steinn Sigurðsson skáld).
Kl. 20,55 Óákveðið. Kl. 21 Veður-
spá og frjettir. Kl. 21,25 Dans-
músík.
Á morgun: Kl. 19,30 Veður-
fregnir. Kl. 20,30 Hljómleikar
(Alþýðulög). Kl. 20.45 Erindi:
(Vilbj. Þ. Gíslason, magister). Kl.
21 Veðurspá og frjettir. Kl. 21,25
Grammófónhljómleikar.
Pjetur Sigurðsson flytur fyrir-
lestur í Varðarbúsinu ( kvöld kl.
8% nm skaðlegasta sælgætið. Allir
velkomnir.
Hjálpræðisheriim. Samkomur í
dag: Helgunarsamkðma kl. 10%
árd. Ensain Holland talar. Sunnu-
dagaskóli kl. 2 síðd. Hjálpræðis-
samkoma kl. 8% síðd. Kapt. Boyd
frá Hafnarfirði talar. Lúðraflokk-
urinn og strengjasveitin aðstoða.
Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn
heldur útihljómleika á Lækjar-
torgi kl. 4 á morgun.
Kristileg samkoma á Njálsgötu
1 kl. 8 í kvöld. Allir velkomnir.
Útvaxp um ísland. 1 brjefi frá
Ameríku, dagsettu 14. júní, segir
að þá eigi bráðlega að útvarpa
íslenskri efnisskrá, frá einhverri
stærstu stöðinni þar í landi, W.
M. A. Ö., sem er eign stórþlaðsins
,,Daily News'L Þar átti að flytja
ræðu um íslensku Alþingishátíð-
*na, Guðmundur Kristjánsson
söngvari ætlaði að syngja nokk-
ur íslensk lög og á eftir átti að
láta heyra söng landkórsins og
Karlakórs K.P.U.M. á grammófón-
úötuni, J
Leikflokkurinn er væntanlegur
að norðan í kvöld. Alls ljek hann
„Hallstein og Dóru“ sex sinnum
á Akureyri (seinast á miðviku-
dagskvöld) og jafnan fyrir fullu
húsi og við góðan dóm áhorfenda.
fþróttaskemtunin að Álafossi
hefst kl. 3% í dag, og rennur
allur ágóði af henni til íþrótta-
skólans, sem Sigurjón Pjetursson
hefir haldið þar uppi í nokkur
ár, án þess að fá neinn styrk til
þess neins staðar að. Drengirnir,
sem voru í skólanum í vor, sýna
þar listir sínar, og stúlkur og karl-
menn sýna sund og stökk af há-
um pöllum niður í laugina góðu.
Enn fremur verður sýndur sjón-
leikur, Richter syngur gamanvís-
‘ur, og dansað verður í stóra
tjaldinu.
Slægjunum á Elliðavatnsengjun-
um á að úthluta í dag kl. 1—6.
Er það rafmagnsveitan, sem sjer
um úthlutunina.
F ornmýnjafundur. Að bænum
Krossi í Haukadal var nýlega ver-
ið að grafa fyrir safnþró. Komu
menn þá niður á ker allmikið,
gert af deiglumó og möl. Eftir lýs-
ingu á kerinu að dæma, hyggur
Matthías Þórðarson þjóðminja-
vörður, að þetta hafi verið sýru-
ker, grafið í jörð. Og vegna þess
að ekki var mjög djúpt á því,
liyggur hann að það geti ekki
verið eklra en frá 17.—18. öld.
Þess sáust merki, að hús það, sem
ker þetta hefir verið í, hefir
hrunið ofan á það, ])ví að glögg-
!ega vottaði fyrir leifum af þaki.
Monte Rosa, þýska skemtiskipið,
kom hingað í gær og verður hjer
í allan dag. Margir af farþegum
fóru til Þingvalla í gær. I gær-
kvöldi var glímusýning fyrir þá
úti á íþróttavelli, og í dag koma
þeir eflaust út í Örfirisey til þess
að horfa á sundið.
Skólavarðan hefir nú mist gildi
sitt, vegna þess hvað þar er
orðið aðkrept af húsum, enda eru
dagar hennar senn taldir. En áður
fyrri var hún mesta „þarfaþing11,
því að hvergi var betra útsýni
yfir bæinn og grendina en það-
an. Útlendir ferðamenn, sem hing-
að komu, fóru því jafnan þangað
til þess að „skoða“ borgina. En
nú á bærinn engan slíkan útsýn-
isstað, og er það illa farið. Þó er
hjer einn staður, þar sem er fall-
egt útsýni, — á þaki nýja barna-
skólans. Vill nú ekki bæjarstjórn
eða' skólanefnd leyfa það, að
þangað sje farið með útlendinga?
Bænum er þetta útlátalaust, én
það gæti orðið til þess að gera
suma ferðamenn ánægðari með
komuna hingað.
Demantsbrúðkaup eiga þau á
þriðjudaginn kemur, Dalhoff Hall.
dórsson gullsmiður og kona hans
Margrjet Sveinsdóttir. Hafa þau
þá verið 60 ár í hjónabandi. Hann
er nú 90 ára að aldri og hún
83 ára.
MetatSflur
brúkast í stað suðuSpritts,
en eru miklu ódýrari í
notkun.
Myndin sýnir hvernig
kveikja á með þeim á
primus.
Heildsölubirgðir í
H.i. Efnagerð Reyfejavíknr
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
annað kvöld (mánudag) kl. 8y2
á Austurvelli, ef veður leyfir. —
Páll ísólfsson stjórnar.
Tannlækningastofa Jóns Bene-
diktssonar verður lokuð til 29. júlí.
Knattspyirnukappleikuir verður
háður í dag kl. 3 á íþróttavellin-
um. Keppir K. R. við knattspyrnu
flokk af skemtiferðaskipinu
Monte Rosa. Verðnr 'þetta án efa
fjörugur og skemtilegur leikur og
eflaust fjölment á völlinn í dag.
Sendisveinar, 64 að tölu, fóru
hjeðan í gærkvöldi kl. 8 í fjórum
bílum og var ferðinni heitið að
Gullfossi og Geysi. Heimleiðis
verður farið um Laugardal og
Þingvöll og komið hingað annað
kvöld. Fararstjóri er Gísli Sigur-
björnsson. Samningar hafa staðið
yfir milli verslunarmannafjelags-
ins Merkúrs og Fjelags matvöru-
kaupmanna a-ð undanförnu um
sumarfrí sendisveina, og hafa
kaupmenn þeir, sem í fjelaginu
eru, nú lofað því að láta sendi-
sveina sína fá sumarfrí og verður
það þá eflaust algild regla hjá
öllum verslunum.
Suðurland fer aukaferð ti) Borg-
arness í dag og kemur aftnr í
nótt. Með því fara þeir, sem ætla
á íþrótta.mótið hjá Ferjukpti.
„Egilsstaðir" nefnist hamaheim-
ili við Iíveragerði í Ölfusi, sem
„Afmælisfjelagið“ hefir komið
upp. Barnaheimili þetta er fyrir
skömmu tekið til starfa og va.r
blaðamönnum boðið austur í gær
til að skoða það. Verður nánar
sagt frá þessu barnaheimili í
næsta blaði.
„Hið íslenska kvenfjelag“. Fje-
lagskonur, munið skemtiferðina að
Korpiilfsstöðum þriðjudaginn 14.
júlí frá Aðalstöðinni við Lækjar-
torg kl. 1 st.undvíslega. Þátttöku
má enn tilkynna í síma 1293 til
kl. 2 síðd. á mánudag.
2. ágú&t ætla fjelögin „Merkúr“
og „Verslunarmanna.fjelag Reykja
víkur“ að halda hátíðlegan uppi
í Vatnaskógi. Verður farið hjeðan
í skipi um morguninn inn í Hval-
fjörð, og komið aftur um kvöldið.
Bresk risaflagvjel.
Þegar Þjóðverjar höfðu lokið
við smíði risaflugvjelarinnar Do
X. heyrðust þegar raddir um það,
að eigi mjmdi líða á löngu, uns
Bretar gerði tilraun til þess að
smíða risaflugvjel, sem væri jafn-
ingi eða færi fram úr Do. X. Þess-
ar vonir eru nú að rætast. f
„Mssrs Vicker’s Supermarine
Works“ skamt frá Southamton
er nú risaflugvjel í smíðum, sem
á að hafa 16.000 punda burðar-
magn (Do X. 9000). í risaflug-
vjel þessari verða sex Rolls-Royce
vjelar, hver 900 hestöfl. Flug-
hraði er áætlaður 145 mílur á klst.
319113 SilMt
Matskeiðar á 12.75. '
Matgafflar á 12,75.
Teskeiðar á 3,75.
’ a
Kökugafflar á 6.75.
Áleggsgafflar á 7.75.
Kökuspaðar á 12.50.
Ávaxtaskeiðar á 16.50.
Sultuskeiðar á 5.50.
Rjómaskeiðar á 12.50,
mjög falleg gerð.
I Ein 1 irm
Bankastræti 11.
(Do X. 135). í bresku flugvjel-
inni verður rúm fyrir 40 farþega,
Verða farþegarýmin skrautlegri
og meiri þægindum titbúin en
dæmi eru til áður í nokkurri flug-
vjel. Flugvjelin er smíðuð fyrir
flugmálaráðuneytið. Ráðgert er, að
flugvjelin fari reynsluflug yfir
Atlantshaf, áður en hún verður
tekin til notkunar í reglubundnar
ferðir. Málmurinn, sem aðallega
er notaður við smíði þessarar flug-
vjelar er „duialuminium“, sem er
ljettara en aluminium, en mörg-
um sinnum sterkara. . Talið er að
duraluminium standist öll áhrif
sjávarlofts og sjávarseltu. Flug-
vjelin verður 107 fet á lengd, en
174 á milli vængjabrodda, hæð
32 fet (ensk). Grind flugvjelarr
innar er úr stáli. Flugvjelin á
að geta flogið 1.300 mílur, án þess
að bæta á sig bensíni.
(Úr blaðatilk. Bretastj.)
Fyrsta konan, sem er fangelsis-
stjóri á Spáni, er Sennorita Vi&-
toria Kent. Henni var veitt þessi
staða upp úr stjómarbyltinguimi,
Hjer er mynd af henni þar sem
hiín er að halda fyrirlestur í há-
skólanum í Madrid um hegningar-
lögin á Spáni.