Morgunblaðið - 01.09.1931, Side 3
MORGUN BLAÐIÐ
3
ElllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllQÉ
■= =
«.*. Ajrvftkur, =
8?t*tjörar. Jóu Kj*rtAC««ou.
Valtýr fitnfknasoa
Cru oit aíffrcltttl*
▲ uaturatretl t. — Biaa.1 600. £5
*.nxl$»)Q*»»tj6rl: R. Hafb»rc. ^
Au»tur»tr®tí 17 — Atcul 700 =
fón KJartan»aon nr. 74>
VaJtýr StefAn»»on nr. 12 80. =
W. Hafberg- nr. 770.
=E rtftHKjalð:
Junanlanda kr. t.00 * milU’iM. =
•anland* kr. t.50 A. m&r<uM. =
S ■ 10 aur» eiut.tvkfb
S 20 aurn m** Lcebölr =
liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiimniiiiiiiiiiiiiiiiiHr
nimiisvarði
teifs heppna.
Með „Islandi" kom hingað
:maður að nafni Ligner frá Banda-
ríkjunuim, sendur af stjórninni til
þess að koma npp fótstallinum að
minnismerki Leifs lieppna, sem er
:gjöf Bandaríkjanna til íslands á
Alþingishátíðinni. Með ,Islandi“
'kom fótstallurinn líka, en líknesk-
ið sjálft kemur ekki fyr en að
vori. í dag verður byrjað á því
að grafa fyrir undirstöðn minnis-
merkisins og flytja þangað grjót.
Líkneskinu er valinn staður fyrir
•enda Skólavörðustígsins, skamt
frá Skólavörðunni, og verður hún
nú að víkja — verður brotin niður.
Þegar grunnnrinn hefir verið
steyptur, verður fótstallinnm kom-
ið fyrir. Er hann tilhöggvinn, en
í mörgum stykkjum, sem eru alls
40 tonn. Á hann að tákna. stafn á
skipi, og er með grunni 15 fet
•ensk á lueð. Verður fótstallurinn
fullgerður í liaust — er búist við
;að þáð taki ekki mjög langan
tíma — og bíður svo eftir líknesk-
iinn.
...» _ •CT*«i ■“ - - • -
Útvarp frá Kaupmannahöfn. í
útvarpinu va.t’ skýrt frá því í
gærkviildi, að í kvöld yrði íslenskt
útvarp frá. Kaupmannahöfn, kl.
7.15 íslensk lög og „Fantasie“
yfir íslensk þjóðlög eftir Emil
Reesen Kl. 7.40 syngur Eggert
Stefánsson mörg íslensk lög eftir
ýmis tónskáld.
Hverirnir í Hveragerði í Olfusi
og eins í Reykjatorfu, sem venju-
lega eni með tæm vatni, grugguð-
ust nokkuð í j'arðskjálftunum á
dögunum. Uppspretta nálægt. hæl-
inu á Reýkjum, sem venjulega
flytur kalt vatn varð uim 60°
heit.
Síldarafldnn. Á laugardagskvöld
hafði verið saltað alls 07.497 tn.
(125.542 í fyrra) og kryddað og
sjerverkað 106.996 tn. (54.633 i
fyrra). t bræðslu 508.846 hl. (521,-
:854 hl. í fyrra).
Ægilegt
bifreiðarslys.
Flntningabifreíð með 16 manns
hrapar niður brekku og fer þrjár
veltur.
Þrír menn slasast.
Á sunnudaginn var flutninga-
bíll að koma a.ustan iir Þjórsárdal
og var í honum 16 manns — starfs
fólk lijá Efnagerðinni. Þegar bíll-
inn var kominn fram hjá Omiks-
höfða og var að beygja niðnr í
Sauðliúsgilið, er þar slæm bugða. á
veginum. Mun bíllinn ekki hafa
tékið beygjuna nógu krappa og
farið of utarlega á brúnina, því að
brúnin sprakk og valt bíllinn þar
frarn a.f. Er þar liá og brött
brekka og fór bíllinn þrjár veltur
með fólkið, en staðnæmdist svo í
dálítilli laut Hafði þá kassinn aft-
ur á og bílstjórahúsið brotnað í
■spón. og var engu líkara en að
kassinn hefði verið brotinn niður
til uppkveikju.
Svo sem 8—10 mínútum eftir að
slysið varð, bar þarna að einkabíl,
sem var að koma ofan úr dal.
Voru í honum Gnnnar Kvaran
heildsali, G. Guðjónsson mágur
lia.ns og Stefán A. Pálsson heild-
sali. Var ])ar Ijót aðkoma. Fólkið
var að vísu laust við bílinn, suimt
blóðugt og sumt hljóðandi. Allir
voru þó á lífi, og má það merkilegt
lieita. En enginn vissi hve mikil
brögð voru að meiðslnnnm. Það
koni þó brátt í ljós að tveir höfðu
nieiðst mest, Fanny Guðmunds-
dóttir og Sigfiis Vormsson. Kona
Sigfúsa.r hafði líka meiðst nokkuð
og fengið „shok“. Hitt fólkið var
og meira og minna hruflað og
mei-tt. Það kom seinna í ljós, að
Fanny hafði upphandleggsbrotn-
að og gengið úr lið á Ihinum hand-
leggnum uim öxl. Sigfús Vormsson
hafði síðubrotnað (3 eða 4 rif).
Þarna. var ekki um gott að gera
því að óraleið er til læknis og í
síma. Þeir Gunnar Kvaran tóku
]>á, sem mest höfðu slasast, í sinn
bíl og lögðu á stað með þá, en
urðu að aka ákaflega hægt, því að
stúlka.n var viðþolslaus af kvölum.
Voru þeir nær fjórar stundir niður
að Húsatóftum, en þar gátu þeir
náð í síma og var nú símafi niður
á Eyrarbakka til Lúðvíks Nordals
læknis og hann beðinn að mæta
bílnum á Selfossi. Stóðst það og á
endum, að þegar bíllinn kom að
Selfossi þá var Lúðvík læknir þang
að kominn. Tók haun nú að gera
við meiðslin, en svo hafði hlaupið
mikil bólga, að liðhlaupi stúlkunn-
ai og beinbroti, að það varð að
svæfa hana tvisvar sinnnnr áður en
kipt varð í liðinn og bundið ulm
brotið.
Sjúklingarnir urðu eftir á Sel-
fossi, en hitt fólkið mun hafa kom-
ið til bæjarins í gærmorgun.
í „Lesbók Morgunblaðsins“ var
fyrir skömmu vakið máls á því
hve bráðna.uðsynlegt væri að fá
síma inn í Þjórsárdal. vegna hinn-
ar mildu umferðar þar ,og hent á
ihve illa væri ástatt ef slys bæri að
liöndum. Nú kemur þetta æg'ilega
slvs td þess að árjetta þá umsögn.
En hvernig hefði nú farið ef alt
fólkið, sem í bílnum var, 16 ma.nns,
hefði slasast stórkostlega 1 Hvern-
ig átti þá að fara að?
Erling Krogh
söngvairi.
Erling Krogh er söngvari, sem
er á t'Iugi og ferð líkt og farfugl-
arnir. Hann telur sjer að vísu
lieimili í Osló, en stundnlm kemur
hann ekki þangað árum saman.
Hann hefir t. d. verið þrjú ár í
Kauþmannahöfn og BerTin, eitt ár
í París og Nizza, eitt ár í Banda-
ríkjunum o. s. frv. Hann heíir
sungið í flestum stærstu söngleik-
um, meðal annars í ríkisóperunni í
Berlín, operunum i Barcelona,
Kaupmannahöfn. Stokkhóhni o. s.
frv. En mesta viðurkenningu hefir
liann ])ó hlotið fyrir imeðferð sína
á smærri lögum, enda eiga þau
ólíkt- meiri ítök í fólki Iheldur en
hinir stóru söngleikar. Hann er
án efa mesti og vinsælasti söi^gvari
Norðmanna og er 'þá mikið sagt.
Allir söngdómendur, sem um hann
hafa skrifað hafa sjerstaklega
bent á meðfædda sönggáfu hans
og óvenjulega hæfileika til þess að
láta áheyrendur lifa sig inn i það,
sem hann fer með. Vegna þessara
hæfileika sinna er liann svo vinsæll
,og frægur víða um lönd.
Hann syngur í Gamla Bíó í
kvöld kl. 714.
Dagbuk.
I. O. O. F. Rb. st. 1 Bþ. 80918y2.
Veðrið í gær: Hægviðri og góð-
viðri um alt land. 10—12 stiga hiti
vestan lands og norðan, en 6—8
stig austa.n lands. Mætast í
raun og veru tveir misheitir loft-
straumar yfir landinu —annar
vestan að, en hinn norðaustan að.
Er þess vegna liætt við dálitlum
skúraleiðingum sums staðar sunn-
an la.nds á morgun. En að öðru
leyti mun góðviðrið haldast ó-
breytt.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Breytileg átt og hægviðri. Slcýjað
með köflum og ef til vill smá-
skúrir.
Kveldúlfstogararair eru nú allir
komnir af síldveiðum og er afli
þeirra þessi: Þórólfur 20820 mál
(hæsti síldarafli, sem skip hef-
ir fengið), SkaHagrímur 19344
mál, Snorri goði um 18400 mál,
Egill iSkállagrímsson um 15800 mál
og Arinbj. hersir 15503 mál. Hefði
þeir getað veitt miklu meira, en
stöðin gat ekki t.ekið á móti meiru
að sinni. Segja skipstjórarnir að
þeir liafi aldrei sjeð aðrar eins
síldartorfur eins og seinustu dag-
ana í Djúpinu og út að Horni.
Lengra þnrftu þeir elcki að fara.
Lík Gísla J. Ólafson landssíma-
stjóra kom hingag með ,íslandi‘
á sunnudaginn. Ekki er enn ráðið
hvenæv jarðarförin fer fram.
Prófessor Alfred Jolivet frá Sor-
bonneháskólanum i París kemur
hingað 9. september og dvelur hjer
til 25. október. f samráði við AHi-
ance Franeaise mun prófessorinn
veita tilsögn í frakknesku, þeim
sem lengra eru komnir, bæði fje-
lagsmönnum og öðruim. Þátttaka
óskast filkvnt sem fyrst til Sig-
ríðar Bjarnadóttur á Hótel ísland.
Kviksaga gekk unn það um bæ-
inn í gær, ag Hekla væri farin að
gjósa. Fylgdi það með, að Ihún
væri búin að bræða af sjer jökul-
inn. Sem betur fer er sa.ga þessi
gripin úr lausu lofti, en tilefni
hennar mun vera það, að um
miðja fyrri viku snjóaði á Heklu.
en sá. snjór bráðnaði í hitunum
á föstudaginn og laugardaginn.
Þá daga hefir verið mikil sólbráð
jnn til jökla, því að vöxtur kom
í árnar hjer sunnanla.nds. Jarð-
skjálftakippirnir undanfarna viku
liafa orðið til þess að menn hafa
óttast eldgos. Jarðskjálftanna hef-
ir mest orðið vart í Ölfusinn. —
Mistur var óvenjulega .mikið í lofti
hjer snnnanlands allan sunnudag-
inn, og mun það hafa aukið til-
gátur manna nm eldgos.
Skipafregnir. Gullfoss fer frá
Kaupmannahöfn í dag. Goðafoss
fór frá Siglufirði í gær áleiðis
liingað. Brúarfoss fór frá Leith
í gærmorgun. Dettifoss fer frá
Hamborg í dag. Lagarfoss er i
Færeyjum. Selfoss, Island, Botnia
og Nova komu hingað á sunnudag.
Börn þau, er verið hafa á harna-
hæli Oddfellowfjelagsins við Sil-
ungapoll í sumar, verða. flntt til
bæjarins á morgun og eru aðstand-
endnr þeirra beðnir um að vitja
|)eirra að Bifreiðastöð Steindórs
kl. 5—6 síðd. þann dag.
Níræðisafmæli á í dag frú Sig-
ríðnr Felixdóttir, Baldursgötu 26.
K. R. vinnur Reykjavíknrkepn-
ina. Á sunnndaginn fór fram úr-
slitakappleikurinn í Reykjavíkur-
keppninni. Yar hann háður milli
hinna sltæðu keppinauta K. R. og
Vals. Fjöldi fólks horfði á þennan
leik, sem var mjög spennandi frá
upphafi til enda. Úrslit urðu þau
að jafntefli varð 2:2, en úrslit
keppninnar urðu þau að K. R.
vann mótið með 11 stigum. Valur
liíaut 9 stig, Víkingur 3 stig og
Fram 1 stig. Formaður kna.tt-
spyrnuráðsins afhenti K R. bikar-
inn í leikslok. Er það Skotabikar-
inn svonefndi og er kept nlm hann
annað hvert ár. K. R. hefir því
lilotið liann í bæði skiftin sem
kept liefir verið um hann. K. R.
hefir nú eftir sumarið nafnhætnrn-
ar „Besta knattspyrnufjelag Is-
lands“ og ..Besta knattspymufje-
lag Reykjavíkur.“
Drottning Alexandrina kom til
Kaupmanna'hafnar á anánudags-
morgun kl. 7.
Hallveigarsitaðir. Ef v^ður leyfir
n.k. fimtudag verða seld hjer á
götunni lifandi blóm til ágóða
fyrir byggingu Hallveigarstaða. Er
óvenjumikið blómskrúð í görðum
víðsvegar í bænum, en vissa er um,
að ýmsir þeir, er útiblóm eiga,
vilja gefa af þeim til stuðnings
])essu byggingarmáli kvenna. Það
eru því vinsattnleg tilmæli þeirra,
er undirbúa þenna blómadag, að
þeir, sem gefa vilja blóm á útsöl-
una, láti einhverja úr stjórn
Kvennaheimilisins fyrirhugaða vita
um ]>að hið allra fyrsta. Stjórnina
skipa þessar konur: Steinunn H.
Bjarnason (sími 2289), Guðrún
Pjetursdóttir (sími 345), Lanfey
Vilhjálmsdóttir (sími 676), Ingibj.
('l. Þorláksson (sími 1283), Tnga
L. Lárusdóttir (erlendis) en í stað
liennar Ragnhildnr .Pjetursdóttir
(sími 433).
Guðmundur Ág. Jóhannsson var
meðal farþega hingað á ,,lslandi“
á sunnudaginn var. Hann hefir
verið í Atmeríku, mest í New
York rúmlega 13 ár. og fengist
þar' við prentstörf, verið verk-
stjóri og þess háttar.
Sauðnautin fimm. sem lands-
stjórnin keypti frá Noregi i fyrra
Uppboð.
Opinbea-it uppboð verður haldið
við Hverfisgötu 50, miðvikudaginn
2. september kl. li/2 síðd. og verða
þar seldar 40 tunnur af dilkakjö'ti
og af geldum ám (spaðkjöt).
Lögmaðurinn í Reykjavík,
31. ágúst 19(31.
BJÖRN ÞÓRÐARSON.
Á morgnn
miðvikudag 2. þ. m. kl. 5—6 flytja
börn þau til bæjarins, sem Odd-
fellowfjelagið hefir haft á barna-
hæli sínu við Silungapoll í sumar.
Aðstandendur barnanna em
beðnir að vitja þeirra á þessnm
tíma við
Bifreiðastöð Steindórs.
Hfitel valhöll
verður opið fjnrst um sinn.
Lækkað verð frá 1. sept-
ember. Sjerstök kjör fyTtir
listmálara.
Virðingarfylsf,
JÓN GUÐMUNDSSON.
Komin heim.
Helga Heiðar.
nuddlæknir. Sínli 438.
Planokensla.
Byrja aftur að kenna 1. sept-
ember.
Ina Eirfkss.
Aðalstræti 11. Sími 233.
Lítið hns
óskast til kaups, imeð tveim íbúð-
um. 8000 króna útborgun. Tilboð
í box 712, fyrir Tiádegi á mið-
vikudag.
þrífast ve! austur í Gunnarsholti.
Svo var tilætlast, að kvendýrin
væru þrjú og tveiv tarfarnir. Ljet
landsdýralæknirinn, Hannes Jóns-
son svo heita við móttöku. En er
kom fram á veturinn varð þáð
sauðnautahirðinum ljóst, að tarf-
arnir em þrír, en kvigur ekki
nema tvær.
Morgunblaðið er 6 síður í dag.
Auglýsingar kvikmyndahúsanna
eru á 4. siðu.
Barnaheimilið Egilsstaðir hættir
störfum að þessu sinni um næstu
helgi. Þeir sem eiga börn á heim-
ilinu, þurfa ]iví að vitja þeirra
fyrir þann tíana, í síðasta lagi á
sunnudag. Ef aðstandendur bam-
anna óska. ]>ess að forstöðukona
heimilisins annist um far hamla
börnunum. geta þeir gert henni
aðvart í síma í Hveragerði.