Morgunblaðið - 01.09.1931, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.09.1931, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLALIÐ Akranass Kartöflnr í heilum sekkjum og lausri vikt. ísl. gulrófur. Hvítkál. TiRiMNPl r<h vg»veg 63. Slmi 2898. mmKmmmmmimmœMQímimmw ■ Smðvðrur. Alsonar smávara tekín npp i §ær. Nýkomið: Seimar, Reimalásar Reisravas. VersL Vald. Poalssa. Ki&ppftrstíg 23. kr. 1.25 á berðið. Fpirliggjaudi: Þurkaðir ávextir.- Rúsínur, steinlausar Apricots, Ex. Choice Blandaðir ávextir Ex. Choice Perur, Ex. Choice Ferskjur, Ex. Choice Sveskjur 80—90 Sveskjur 30—40 Epli Ex. Choiee. Mjóikunielag Rsykjavikur. Heildsalan. Grammofónvíðgerðir. Aage ntller, Ingólfshvoli. Sími 2300. Hgætar nýjar 35 anra kg. bankans í Basel. Úrslit þessi má telja viðunaÆileg, þegar tekið er tillit til þess, hve Brúning hefði orðið óliægt um vik heima fyrir, ef hann hefði gengið að einhverj- um afarkostum, til þess ag fá lán þá |)egar. Mundu þjóðernissinnar þá ekkert hafa til sparað að æsa lýðinn gegn honum. III. Mánudaginn 28. júlí komu tveir ensku ráðherra.nna, MacDonald og Henderson, utanríkismáiaráðherra, í heimsókn til Berlínar. Var för þessi t'arin í kurteisiskyni, til þess að svara heimsólin þýsku ráðherr- anna til Chequers í Sumar. Áður en MacDonald fór þessa ferð, ljet hann þó svo ummælt, að tilgaoagur hennar væri sá, að treysta hina gömlu stefnu verkamanna-flokksins enska. Að koma á alþjóðlegri sam- vinnu, í stað einangra^ra ríkja- sambanda. Auk þess sem ráðherr- arnir voru í heimsókn hjá Hinden- burg, forseta, áttu þeir löng sam- löl við Bruning, dr. Curtius og Otto Braun, fosætisráðherra. Prúss fands. í ræðum sínum í Berlín iagði MacDonald sjerstaka. áherslu p nauðsyn persónulegrar viðkynn- ingar og samvinnu ráðherra hinna ýmsu landa. Þá er hann var spurð- u r, hvort Stóra-Bretla-nd mundi lialda fast við hina gömlu stefnu sína: .Jafnvægi stórveldanna, hvað herbiinað snerti, ]iá svaraði hann: .,Nei, þvert á móti, slík stefna mundi eyðileggja. fyrstu skrefin, sem stigin hafa verið í áttina til afvopnunarinnar. Það er ekki vafa samt, að öryggi .þjóðarinnar er betur trygt með alþjóðlegri sam- vinnu, en með vopnum“. IV. Þessir eru þá hinir helstu at- burðir í stjórnmálalífi Evrópu síð- astliðnar vikur. Auðvitað verður ekki fyrir endann sjeð á þeim vandamálum, sem nú eru efst á baugi. Allir góðir menn hafa fagn- að vilja, þeim tH sátta og sam- vinnu, sem komið hefir fram í ráðstefnunum í París og London. Pm endanlega lansn á fjárkreppu Þýskalands verður ekki sagt að s\'o ltoxnnu. Förgöngumenn iðnað- avins þýska liafa boðist til að veita ríkinu lán a.ð upphæð 500 miljónir marka. Ennfremur hefir nýr banki verið settur á fót í Berlín. Höfuð- stóil bankans eru 200 miljónir marka. Leggur ríkið til 2/5 þess fjar og veitir bankanum ótakmark- eða óbyrgð. ITlutverk banka þessa að treystr, lánstraust landsins út á við, og koma betra, skipulagi á fjárhaginn heima fyrir. Hættu- legast er, að gripið verði til þess örþrifaráðs að margfalda útgáfu pappírspeninga, en auðvitað hlýt- ur fjárhrunið að 'sigla í kjölfar slíkra ráðstafana. Með því að lækka gullgildi marksins úr 40%, niður í 30% verður Þjóðverjum möguiegt að gefa út 800 miljónir marka í nýjum seðlum. Enn fremur hefir tilskipun ríkisstjómarinnar heimiiað að tvöfalda upphæð smá- peninga þeirra, sem nú eru í um- ferð. Mjög örlagarík verða, úrslit þjóðaratkvæðis þess, sem fram á að fara í Prússlandi þ. 9. ágúst. Er það um það, hvort rjúfa skuli þing Prússa nii þegar og stofna til nýrra kosninga. Að rjettu Ia.gi eiga nýjar kosningar ekki fram aðl fara í Pmsslandi fýr en 20. maí, l 1932. Það eru þjóðernissinnar, er gangast fyrir þessu þjóðaratkvæði. Komist þeir til valda. í Prússlandi hafa þeir og ráð alríkisins í hendi sjer. Er '])á stór hætta á, að loku muni verða skotið fyrir sáttatil- raunir þær og samvinnu, sem átt hafa sjer stað í Evrópu alt frá i Locarnofundinum. Bourg la Reine 5. ágúst 1931. Jón Gíslason. Rannsðknlr Watkins-leiðangursins á Grænlandi. Nokkrir þátttakendur í Watkins leiðangrinum komu nýlega frá Grænlandi til Kaupmanna.hafnar. Eins og kunnugt er, er Watkins- leiðangurinn gerður út undir nm- sjón konunglega landfræðisfjelags- ins enska og með styrk frá ensku stjórninni, til þess að rannsaka möguleika fyrir flugferðum um Grænland. Englendingar hafálengi haft augnastað 4á leiðinni um Is- land og Grænland sem heppileg- ustii flugleið milli Englands og Kanada. Einn leiðangursmanna, flugmað- urinu d’Ea.th skýrði blaðamönnum í Kaupmannahöfn frá árangri rann sóknanna á Grænlandi. Enskir vísindamenn hafa flogið yfir Austurströnd Græniands, frá Kangerluksatfirði til Umivik, tekið 10000 feta. langa kvikmynd og 500 aðrar myndir og gert upp- drátt af þessu svæði. Rannsóknir Englendinga A austurströndinni hafa leitt ýmislegt nýtt í ljós. —• Kangerlugsatfjörðurinn er 45 mílu fjórðungar á lengd. Áður hjeldu menn að fjörðurinn væri mjög stuttur. Mount Pettermann er ekki hæsta fjall á Grænlandi eins og hingað til hefir verið álitið. Mount Forel, norðan við Angmagsalik, or 2000 m. hærra eða 11.500 m. á hæð. Norðan við Umivik uppgötv- uðu Englendingar 60 km. langa eyju sem menn hjeldu áður að værj nes. Scott, Stephenson og Lindsay fóru þvert yfir Grænlandsjökla, frá Angmagsalik á austurströnd- inui. Voru ])eir 50 da.ga á leiðinm. Ferðin var aðallega gérð tii þess ið rannsaka, hvort flugvjelar geti lent á jöklunnm. Segja þeir að víða á jöklum, sje liægt að lenda, ef ílugvjela.'nar hafi wkíði. d’Eath hefir flogið mörgum sinn um inn yfir jöklana Segir hann að flugferðir A Grænlandi sjeu mögulegar á öllum tímum arsins. Veðráttan valdi varla erfiðleikum, ef monn liafi flugvjelar með nægi- lega mörgnm, öflugum og örugg- um mótorum. Það sje mikill mis- skilningur að ])oka. sje á jöklunum. Hins vegar sje oft þoka við strend nr Grænlands, en hún sje þó ekki flugf?rðum til fyrirstöðu. Hægt sje að fljúga yfir þolcuna í 100 m. hæð. Fjallavindarnir (Föhnvind- arnir) sjeu heldur ekki flugferð- um til fyrirstöðu. Þeir nái yfir- aðeins lítið svæði og menn geti flogið yfir þá í 5000—7000 m. hæð. Þó álítur d’Eatli, að ekki sje liægt að koma. arðbærum flugferð- um um Grænl andsstrendur En hvað er þá því til fyrirstöðu? 1 fyrsta iagi sá hleypidómur, að fólk þorir ekki að trúa flugvjelum, sem eiga að fara um Græpland, fyrir neinu verðmæti, livovki farþegum nje verðmætum eða þýðingarmikl- um pósti. En þega.r þetta breytist, þá verða hinir erfiðleikarnir að eins barnaleikur, segir d’Eath. 1 öðru lagi þurfa flugvjelar til Græn landsferða að hafa marga og öfl- uga. mótora og þær verða ])ví of dýrar ,til þess að flugferðirnar geti borgað sig. I 'þriðja lagi verða menn að byrja niðri á jörðinni. Menn verða að kynna sjer aila staðllætti á Grænlandi og gera. ná- kvæma uppdrættj af landinu. Ann- ars verða flugferðimar alt of á- hættumiklar. En einhvern tíma kcmur að ]>ví, að hægt verðuv að byggja flugvjela.r, hentugar til Grænlandsferða, en þó ekki of dýrar. Þá þarf rannsóknunum á Grænlandi að vera iokið, og þá fyrst geta reglubundnav flugferðir yfir Atlantshafið um ísland og Grænland byrjað, segir d’Ea.th að lokum. Khöfn í ágúst 1981. P. Búskapnr Saua. Snemma í ágúst var haldin al- menn búnaðarráðstefna r Árósum, ]>ar sem rætt var um liina. gífur- ieg'ii erfiðleika se:m danskir bænd- ur nú eiga við að stríða, sakir hins mikla verðfalls á afurðum þeirra. Hinn víðkunni danski búnaðar- hagfræðingur O. H. La.rsen prófess- or hjelt því fram á fundj þessum, að. danskur landbúnaður hefði ekki verið í annari eins kreppn og nú, síðan um 1820. í ræðu, sem hann hjelt á fundi þessum, skýrði hann frá m. a. að samkvæmt hagfræðilegum útreikn- ingum yfir uppskeruna. árið sem leið, mætti gera ráð fyrir, að dansk ir bændur iiefðu að jafnaði tapað 105 krónum á jarðrækt sinni fyrir hvern hektara sáðlands. Búf járræktin hefði verið lítið betri, svínaræktin hefði alls ekki borið sig. Hænsnaræktin væri sú einasta. grein • búfjárræktar, er al- ment liefði gefið arð. Til þess að gera grein fyrir örð- ugleiknm danskra bænda. nefndi O. H. Larsen samanburðartölur á verðlagi á landlbunaðare.furðum og nokkrum naaðsynjum bænd- anna árin 1910 og 1930. Arið 1910 ])urftu bændui' 52 tiinnur af byggi til ]>ess að greiða vinnumanni árslraup, en nú 101 tnnnu, ])á 10 slátursvín, en nú 22, þá 314 kg. af smjöri, en nú 611 kg. Fjós, sem þá var hægt að byggja fyrir verð 10 kúa, eða 1100 kg. smjörs, er nú ekki hægt að reisa fyrir minna en 20 kýrverð og 2096 kg. smjörs. — Yikuka.up handiðnaðarmanna svo sem smiða jafngilti þá verði tveggja byggtunna, 25 kg. flesks eða 12 kg. smjörs, en er nú 7% byggtunna 105 kg. flesks eða 45 kg. smjörs. Fróðlegt væri fyrir íslenska hændur ag gera verðsamanburð með svipuðum liætti, gera sjer grein fyrir breytingunum á afurð- um sínum og bera saman við verð- breytingar á ýmsnm nauðsynjuin sínum. •---*<» Herravasaúr á 6.00 Yekjaraklukkur á 5.50 Vasahnífar frá 0.50 Vasaspeglar á 0.25 Vasagreiður á 0.50 Myndarammar frá 0.50 Dömutöskur frá 3.50 Manicure frá 1.00 Saumasett frá 2.45 Sápu og ilmvatnskassa frá 1.00 Ilnífapör frá 0.50 Barnaboltar stórir á 0.75 Matskeiðar 2ja. turna á 1.50 Matgafflar 2ja turna á 1.50 Teskeiðar 2ja turna á 0.45 Bárnaleikföng, mikið úrval, frá 0.25 til 10.00. Búsáhöld. Tækifæris- gjafir. Postulín o. fl. Uam'iWm Bankastræti 11. Hýtt grænmeti: Hvítkál Gulrætur Rauðbeður Tómatar Laukur. Versl. Foss. LauR'aveg 12. Sími 2031. E0DAK & ABFA FILSDB. Alt sem þarf til framköll- unar og kopiexingar, svo sem: dagsljósapappír, fram- kallari, fixerbað, kopi- rammar, skálar o. fl. fæst í Laugaveps Hpiteki. ILKA RAKSAPA IKrona j Tullnœcjir strónffustn krö'fumm ] I. Brynjólfsson & Kvaran. Dlnnið eftir ntsölenni W í Manchester. Langaveg 40. Sími 894.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.