Morgunblaðið - 20.09.1931, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
milllIIIIIIIIHIIIIIIIIIIlllllllllllllllllllllllllllllllllllilHIIIHIIII
S frtgt*í.: H.Í. Árrkknr, K«rkj»T<k ji
1 kltatjðrnr: Jðn
Vttltír ðturknaaon
3 ítttatjörn oi afKralðala
▲natnratraatt 1. — ktaa) too ==
S ttUKt^alncaatJórl: ■. Hafbars 5
S tuKltalncaakrlfatofa
Auaturatrntl 17. — •tmj 700 ^
§ Tlalaualauur:
Jðn KJartanaaon nr. T4t
Valtýr Btefánaaon nr. 1110 s
B. HafberK nr. 770.
S takrlftaKJald:
= Innanlanda kr. 1.00 * aánaO' =
Dtanlanda kr. I.lð A anánnnt S
S * Ianaaaðlu 10 aura atntaktlt
10 aura naan Laabðt =
ÍdBimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiuiiuiiiiiis
Ný styrjöld?
Viðsjár með Kína og Japan.
Shanghai 19. sept.
United Press. FB.
Járnbrautarbrú nálægt Liou-
tiokou í Mansjúríu var sprengd
í loft upp og leiddi það til þess,
að Japanar hafa sent herlið til
Mukden. Samkomulagið milli
Japana og Kínverja á þessum
slóðum hefir verið miður gott
að undanförnu, þótt eigi hafi
orðið eldur úr annars staðar. Af
ar miklar æsingar í Kína og
Japan.
Ofviðri á Aknreyri.
Akureyri, 19. sept. FB.
Afspyrnuveður var hjer síð-
ari hluta fimtudagsins og
föstudagsnóttina og hlutust
víða skemdir af. Hjer í bænum
fauk þakið af hinu svonefnda
Sæmundsenshúsi í fjörunni og
barst langar leiðir. Bifreiða-
skúr fauk frá Kristneshæli
langa vegu og gereyðilagðist.
Hey fuku víða, þar sem þau
voru enn úti.
Kaupglaldssamningi
sagt upp.
Norðfirði, laugardag.
Fjelag atvinnurekenda hjer sam-
þykti með samhljóða atkvæðum á
fundi í gærkvöldi að segja upp frá
næstu áramótum núgilda.ndi kaup-
gjaldssamningi við „Verklýðsfje-
lag Norðfjarðar“.
Um leig var kosin ný nefnd til
þess að fjalla um nýja samninga.
Atvinnuleysi á Spáni.
Madrid 18. sept.
United Press. FB.
Lýðveldisstjórnin hefir á-
kveðið, að innanríkisráðherr-
ann og sparnaðarráðherrann
fari til Andalusiu, til þess að
kynna sjer orsakirnar fyrir erf-
iðleikum og atvinnuleysi þar.
Þar eru 300.000 menn atvinnu-
lausir.
Lindbergshjónin komin til Kína.
Nanking 19. sept.
United Press. FB.
Lindbergshjónin lentu hjer
kl. 2.35 síðd. (Nankingtími).
Dagb.k.
I. O. O. F. 3 = 1139218 = Fl.
unde.
I. O. O. F. Rb. st. 1 Bþ. 809206
y2 — Hf.
□ Edda 59319267 fjárhags- □
Listi hjá S. M. og í □ til fimtu-
dagskvölds.
Veðrið (laugardag kl. 17). Há-
þrýstisvæðið yfir Atlantshafinu
hefir færst NA-eftir; nær það yfir
Bretlandseyjar, Suður-Noreg og
norður yfir ísland og austanvert
Grænlandshafið. Loftþrýsting er
mest um 777 mm. vestan við ír-
land. Á S.-Grænlandi 'hefir loftvog
fallið ört í dag, og nú er þar kom-
in hvöss A-átt. Um vestanvert
Atlantshafið mun vera rakin S-
átt, sem færist austur á bóginn og
nær líklega. hingað á morgun með
rigningu. Vindur er nú V-lægur
um alt land. Það verður víða bjart
og 9—11 st. hiti.
Veðurútlit í Rvík sunnud.: Vax-
andi SA-átt og rigning þegar líð-
ur á daginn.
Tíminn þreytist ekki á, að minna
lesendur sína á það, að honum
hafi ekki tekist enn, að finna.
eina einustu átyllu í reikningum
bæjarsjóðs Reykjavíkur fyrir
staðhæfingu sinni, að bærinn hafi
fengið tekjur nokkrar undanfarin
ár, umfram áætlun, og eigi því í
rjettu lagi að hafa sa.fnað í sjóði.
Annars er það að nefna sjóðs-
eignir í heimkynnum Tímans, af
eðlilegum ástæðum líkt og að
nefna snöru í hengds manns 'húsi,
síðan alþjóð er það kunnugt orðið,
að allar tekjur ríkissjóðs undan-
farin góðæri hafa eyðst í sukk og
drabb afturhaldsins.
Friðun Þingvalla. Nú hefir ver-
ið gerð girðing um alt hið frið-
lýsta svæði á Þingvöllum. Bm
þrjár jarðir innan þeirrar girð-
ingaj', Hrauntún, Skógai'kot og
Þingvellir, með hjáleigunni Vatns-
koti. Á Þingvöllum er nú ekkert
bii, en hiiiir ábúendurnir hafa
fengið tilkynningu frá ríkisstjórn-
inni um það, að þeir megi hafa
fje sitt innan girðingarinnar átölu-
laust sumarið út, en 1. vetrardag
verði það alt að vera. komið burtu
úr girðingunni fyrir fult og alt.
f skaðabætur fyrir þetta hefir
stjórnin heitið Jóhanni hreppstjóra
í Skógarkoti 9000 kr. og Halldóri
í Hrauntúni 6500 kr., en Símoni
í Vatnskoti munu engar skaðabæt-
ur hafa. verið boðnar, þar sem hann
býr á lijáleigu.
Stafakver handa börnum heitir
lítil bók, sem kemur út á morgun.
Er hún ætluð börnum, sem ern að
byrja að læra að stafa., en með
nokkuð öðnim hætti en stafrófs-
kver, þau sem notuð hafa verið.
Er stöfum þar raðað á síður, eftir
því sem ætla má að börn glöggvi
sig best á þeim og rugli þeim síst
saman. Á eftir fara sta.fróf með
ýmissum leturgerðum.
Skepnu misþyrtmit. Það bar við
á Reykjum í Ölfusi, fimtudaginn
10. september síðastliðinn, að tík
ein þar frá bænum, kom heim um
kvöldið, stungin undir kjálkum
og skorin á hausnum, með glóðar-
auga og löðrandi í blóði. Likur
eru til að þetta sje af ma.nnavöld-
um, og sje nokkur, sá, er geti gef-
ið upplýsingar um hver valdur
muni að þessu ódáðaverki, ætti
hann sem fyrst að tilkynna það
Dýraverndunarfjelagi íslands í
Reykjavík. Sjónarvottur.
Leikfimismyndir, 36 að tölu, sýn-
ir Jón Þorsteinsson frá Hofstöð-
um í búðarglugga E. Jacobsens í
dag. Eru þær teknar af stúlkum
þeim, sem voru á námskeiði hjá
honum í fyrra vetur. Myndirnar
voru fyrst settar út í gluggann í
gærkvöldi, og fyltist þegar þar
fyrir framan af fólki, og stóð
hópurinn þar í alt gærkvöldi, til
að horfa á. Sumar myndimar eru
með eðlilegum litum. Allar mynd-
irnar tók Vignir í vor í skóla
Jóns, um það er skólanum var
lckið.
Heybnuii. I fyrradag kviknaði í
500 hestum af heyi í heyhlöðu að
Surtsstöðum í Borgarfirði. Brann
helmingurinn af lieyinu, og í fjósi,
sem var viðbygt, köfnuðu 2 kýr.
Nánari fregnir ókomnar.
Málverka og Graphik-sýning'
Eggerts Guðmundssonar, verður
opin í síðasta sinn í dag, í G.T.-
liúsinu. Sýningin hefir vakið ó-
skifta athygli þeirra er sjeð hafa
og ættu menn ekki að láta þetta
síðasta tækifæri ónotað til að
kynnast verkum þessa efnilega.
listamanns, sem nú er á förum til
útlanda.
Knattspymumót IH. fl. Á sunnu-
daginn kepti Fram og Vikingur.
Sigraði Víkingur með 2:1. Á föstu-
daginn keptj Valur og Víkingur
og sigraði Vikingur með 2:0. í dag
kl. 2y2 keppa K. R. og Valur. Er
þag úrslitaleikur.
Knattspymumót II. fl. í dag kl.
iy2 keppa Fram og Víkingur. Kl.
2V2 keppa K. R. og Valur, og er
það úrslitaleikurinn. Að fyrri
kappleiknum verður seldur að-
gangur.
Kappleikur við Vestmannaeyinga
Fyrir nokkrum lrom hingað 2. fl.
Vestma.nnaeyinga og eru gestir K.
R. meðan þeir dvelja hjer. Á
þriðjudaginn keptu þeir við Vík-
ing og sigraði Víkingur með 2:1.
Á föstudaginn keptu þeir við Val
og gerðu þá jafntefli 0:0. í dag
kl. 5 keppa þeir við K. R. og verð-
ur það áreiðanlega skemtilegur og
spennandi leikur og munu Vestm,-
eyingar hafa mikinn hug á að
sigra. og K. R. þá ekki síður. 2.
fl. leikimir eru oft með ánægjuleg-
ustu kappleikunum hjer og mun
áreiðanlega verða margt á vellin-
um í dag að horfa á viðureign K.
R og Vestmannaeyinganna. Á
þriðjudaginn keppa Vestmannaey-
ingar við Fraan.
Frá ÚJtvarpinu hefir ekkert frjest
beinlínis enn um það, hver drakk
undir kirkjuvegg á Þingvöllum
um daginn. Ekkert hefir heldur
verið sagt þar frá manni, er bar
gestum sínum (eða ríkissjóðsins)
vín inn í Valhöll í sumar. Gest-
irnir gengu frá dreggjum í glös-
unum. En vínveitandinn gekk í
dreggjarnar og saup þær allar, áð-
ur hann færi af staðnum. Væri
þetta ekki matur fyrir frjettaþef-
ara útvarpsins, ef hann fengi ná-
kvæmar fregnir af? Getur hann
ekki fengið þær?
Hlutavelta Ármanns verður
haldin í dag kl. 4 síðd. í K. R.
hiisinu. Þar verður fjöldinn allur
ágætra og verðmætra drátta. —
Hljómsveit P. O. Bemburg spil-
ar þar svo ekki mun skorta fjör-
uga músík. Fólk ætti að fjölsækja
hlutaveltuna. og reyna á heppnina,
því að þarna em margir ágætir og
verðmætir drættir, eins og sjá má
á auglýsingu hjer í blaðinu. Hafa
fjelagar Ármanns tekið sig saman
tveir, þrír eða fleiri, keypt bestu
hlutina og gefið fjelaginu þá. —
Sýnir það framúrskarandi áhuga
þeirra fyrir því að vinna að heill
fjelags síns, og ætti íþróttavinir
að virða þann áhuga með því að
koma á hlutaveltuna og draga
hvem einasta. miða í skyndi.
Hjónaband. í gær voru gefin
sarnan í hjónaband ungfrú Sjöfn
Sigurðardóttir frá Hafnarfirði og
Baldvin Einarsson skrifstofumaður
hjá Eimskipafjelagi Islands. —
Ungu hjónin fóm brúðkaupsferð
með Gullfosst til útlanda í gær-
kvöldi.
Hlutaveltu heldur Sundfjelag
Reykjavíkur í da.g klukkan 4y2
í Góðtemplarahúsinu. Margir góð-
ig og eigulegir munir eru á
hlutaveltu þessari, og ekki skemm-
ir það, að þar verða ýmsar fræg-
ustu sundmeyjar Reykjavíkur til
þess að afhenda mundina.
„Afrek“ stjómarinnar. Eitt
af ,,afrekum“ stjórnar Aftur-
haldsins, sem Tíminn er allt af
að guma af, er Þórsfiskurinn
svonefndi, þ. e. fiskur, sem varð
skipið Þór veiðir og seldur er
hjer í bænum og víðar. Segir
Tíminn, að þessi Þórsútgerð
hafi orðið til að lækka fiskverð-
ið. En á hitt minnist blaðið
aldrei, að ríkisútgerð þessi er
árlega rekin með hundruð þús-
unda króna tapi, sem skatt-
þegnar landsins verða að greiða.
Ef sá er tilgangur stjórnar-
blaðsins með bessum heimsku-
gu skrifum, að gylla stjórn-
ina í augum bænda, sem ekki
þekkja málavöxtu, væri einkar
auðvelt að leika sama skrípa-
leik gagnvart afurðum bænda.
Ekki þyrfti annað en að ríkið
færi að reka sauðfjárbú og
seldi síðan kjötið langt undir
framleiðslukostnaði, segjum t.
d. á 20 aura pundið. Gæti
stjórnin þá á sama hátt hælt sjer
af því að hafa lækka kjötverðið
stórkostlega (!) Hvað mundu
bændur segja við slíku „af-
reki?“
Kjötverðið. Stjórn Sláturfje-
lags Suðurlands er komin hing-
að til bæjarins til að ákveða
verð á kjöti í haust. Eigi er
blaðinu kunnugt hvaða verð
verður hjer á kjöti, en sjálf-
sagt verður það allmiklu lægra
en í fyrra. Áðalslátrunin mun
hefjast um miðja þessa viku og
verður þá kjötverðið auglýst.
Sjálfum sjer líkur. Niels
Dungal dósent er nýkominn
heim úr utanför sinni, svo sem
skýrt hefir verið frá hjer í
blaðinu. Er ekki ósennilegt að
þessi för Dungals verði land-
búnaði vorum til mikils gagns.
Hann vann í 3 mánuð á
hinni heimsfrægu vísindastofn-
un, Pasteursstofnuninni í
París, og rannsakaði þar bráða-
pestina og bar sú rannsókn stór
merkan árangur. Notaði hann
mýs við rannsóknirnar. Fyrir
þetta er Tíminn með háðglósur
til Dungals og kallar hann
,,músabana“. Vitanlega snertir
þetta ekki Dungal á neinn hátt.
En undarlegt er það, ef bændur
láta sjer það vel líka, að verið
sje sí og æ að bera róg og níð
á menn, sem vinna landbúnaði
vorum mest gagn.
Nýtt embaetti? Tíminn skýr-
ir frá því, að Hallgrímur Jónas-
son kennari, frambjóðandi Aft-
urhaldsins í Vestmannaeyjum
við síðustu kosningar, sje flutt-
ur hingað til bæjarins og settur
kennari við Kennaraskólann..
Ekki hefir heyrst, að nein kenn-
arastaða hafi verið laus við
benna skóla, nema ef vera
skyldi, að Þorkell Jóhannesson
hafi nú fengið lausn frá em-
bætti. Hann var, sem kunnugt
er, settur kennari við Kennara-
skólann frá þeim degi, er skól-
inn hætti störfum í vor. Er ekk-
ert líklegra en að hann fái
n frá þeim degi, sem hann
byrjar aftur starfsemi nú í
haust.
Enginn bóndi. Tíminn skýrir
frá því, að ,,fróður“ maður hafi
bent blaðinu á, að það sje í
fyrsta sinn nú, sem allir for-
setar Alþingis sje bændur. Síð-
an bætir blaðið því við, að þetta
sje líka í fyrsta sinn, sem Fram-
sóknarflokkurinn sje í hreinum
meirihluta á Alþingi. — Hinn
,,fróði“ maður hefði gjarnan
’mátt minna blaðið á annað í
Hlátur!
Um víöa veröld er
hlegiö aö sögum
eftir Mark Twain.
Lesiö
,7 skopsögur'
og hlægiö líka.
þessu sambandi og það er
hvernig þessi svonefndi „bænda
flokkur“ va.ldi menn í ráðherra-
stöður. Á meðan flokkurinn
hafði ekki hreinan meirihluta
á Alþingi hafði hann einn
bónda í stjórninni, en hann
kastaði bóndanum óðara fyrir
borð, þegar hann hafði náð
meirihluta á þingi og valdi
mann úr Reýkjavíkur-„skríln-
um“ í stað bóndans. Var það af
umhyggju fyrir bændum og
landbúnaði, að þessi ráðstöfun
var gerð?
72 ára afmæli á í dag ekkju-
frú Guðríður Guðmundsdóttir,
Bráðræðisholti 37.
Sjómannastofan. Samkoma í
kvöld kl. 6. Allir velkomnir.
Morgunblaðið er 12 síður í dag
og Lesbók. — Auglýsingar kvik-
myndahúsanna eru á 4. síðu.
Lögjafnaðamefndin dansk-ís-
lenska hjelt fyrsta fund sinn í
Kaupma.nnahöfn á fimtudaginn,
eftir því sem segir í skeyti til
sendiherra Dana hjer. Reglulegir
fundir nefndarinnar hófust þó ekki
fyr en á föstudag.
GagnfræSaskólastjórar. Dóms og
kirkjumálaráðuneytið hefir skipað
Þorstein Þ. Víglundarson, skóla-
stjóra gagnfræðaskólans í Vest-
mannaeyjum, og sett Lúðvíg Guð-
mundsson skólastjóra við gagn-
fræðaskólann í ísafirði.
Konsúll. Hinn 1. september var
Gérard Landry forstjóri í vátrygg-
ingarfjelaginu „Baltica.“ í Kaup-
mannahöfn, viðurkendur svissnesk-
ur aðalkonsúll fyrir Island og Dan-
mörk, með aðsetur í Kaupmanna-
liöfn.
íþróttiimar. í kvöld kl. 8V2 flyt-
ur Ben. G. Waage ,forseti l.S.Í.
erindi í útvarpinu um nokkura.
íþróttaviðburði ársins. Viljum vjer
ráða mönnum til þess að hlusta á
það erindi, því að þótt ekkert
frægðarorð fari enn af íþrótta-
mönnum vorum iit um lönd, þá er
þeim altaf að fara fram. jafnvel
stórkostlega með ári hverju, og sú
kemur tíðin að þeir gera garðinn
frægan á heimsmótum íþróttanna.
Frá Venus barst í gær skeyti um
það, að hannhefði komið til Bja.m-
,areyjar á fimtudagskvöld, og að
öllum um borð liði vel.
Sjómannakveðja. Erum á leið til
Englands. Kveðjur. Skipverjar á
Braga. 19. sept. (FB).
Frá „gleraugnavatni' *. Viðbót
birtist í síðasta tbl. Tímans við
fregnina frá „gleraugnavatni“.
Áður var það tekið fram í því
blaði, að af því ritstj. þessa blaðs
V. St. kunni ekki að synda, þá
muni það hafa verið hann, sem
synti í hinni frægu sundlaug þar
eystra. Nú hefir Tíminn fengið þá
viðbót við söguna, að sundmaður-
inn hafi verið Framsóknarmaður,
og þykist- blaðið þá gamga út frá
því sem gefnu, að vir því svo hafi
verið, geti ekki verig um annan
mann að ræða en V. Stef. Nú er
sagan tvítekin í Tímanum. . Hún
héfir ekki orðið sannsögulegri í
meðferðinni. En sje eitthvað end-
urtekið þar sex sinnum, trúa
,,sveitakarla.rnir“ því öllu, segir
Hriflu-Jónas. Hann hefir gert
„tilraunir“ með það, ekki síður en
með vínið í Borg.