Morgunblaðið - 20.09.1931, Side 5
'Sunnudaginii 20. s«pt. 1931.
JHorgtmhlaðið
5
nu
Ármanns - Hlnfiaveltan
verður í haust eins og vant er aðalhlutavelta. ársins. — Hún verður haldin í K. R. húsinu
í dag kl. 4. (Hlje milli 7 og 8.) — Þar verða feiknin öll af ágætisdráttum; sem dæminefnum vjer:
Besti TinBingnrinn
Aðrir rinnlngar:
■ Ferðafónn 110.00 kr. Heil tunna af góðu saltkjöti, 225 pd.
Ljósakróna liæstmóðins, 100 kr. virði. Sauðkind
Málverk Upphlutsmillur nýjar, afar-vandaðar og fallegar.
Nýr legubekkur einn af þessum þjóð- frægu úr Afram. ■
Afpössuð fataefni. ■
Ágœtis reiChestur, ungur og fallegur.
Einnig bíltúrar í allar áttir, óhemju mikið af koium og saltfiski, brauðvöru, búsáhöldum og fleiru. Margir tugir númera af nýjum skófatnaði
og ýmsum tilbúnum fatnaði. Enn mœtti lengi telja, en sjón er sögu ríkari. Komið í K. R. lnisið í dag, því þar gera
menu betri kaup en á nokkurri útsölu.
50 krónnr i peningnm.
II
Margir sekkir Hveiti. 1 3 flugmiðar Hringflug. Olíutunna. MÍkið af silfur og silfurplettvörum J Divanteppi. |
Ármenningar! Reykvíkingar! Komið í K. R.
húsið í dag! Freistið gæfunnar, og styrk-
ið um leið íþróttastarfsemina í bænum.
Allir I K.-R.-húsið á morgun.
Hljómsveit P. 0. Bernburg
spilar allan tímann.
Dráttur 50 aura.
Inngangur 50 aura.
Virðingarfylst,
Glímufjelagið ÁRMANN.
Saltlisksverslunln.
Fyrirkomulagið undanfarin ár.
Eins og kunnugt er, hefir fyr-
irkomulag á saltfisksverslun Is-
lendinga nú um langt skeið,
verið með þeim hætti, að fisk-
urinn hefir nærri undantekn-
' ingarlaust verið seldur f. o. b.,
þ. e. kominn um borð í skip á
íslenskri höfn, og greiddur við
afhending í útflutningsskip. —
Til tryggingar því, að varan
væri góð, og eins og um var
samið, hafa kaupendur tekið
gild vottorð yfirmatsmanna,
bæði hvað snertir tegund, vigt
flokkun. Þetta fyrirkomulag
hefir reynst hið ákjósanlegasta
fyrir ísl. framleiðendur, og verð
ur að teljast ein aðallyftistöng
sjávarútvegsins og höfuð-orsök
þess, að framleiðslan hefir auk-
ist svo mjög, ár frá ári. Fyrir
stöðugt aukna vöruvöndun og
örugt mat á fiskinum, samfara
heppilegu verslunarfyrirkomu-
lagi, hefir þrátt fyrir gífurlega
aukna framleiðslu tekist að
ryðja ísl. saltfiski rúm í Mið-
jarðarhafslöndunum.
Sölufyrirkomulagið breytist á
s. 1. vetri:
Þetta hefir alt gengið að ósk-
um, þar til s. 1. ár, að framleiðsl
an varð meiri en nokkru sinni
áður hjer á landi, en jafnframt
varð þá framleiðsla Norðmanna
og Færeyingas með allra mesta
móti. Við þetta bættist svo
slæmt ástand í Suður-Ameríku,
sem orsakaði það, að sá markað
ur nærri lokaðist síðari hluta
ársins sem leið,ten þangað hafa
Norðmenn og Englendingar selt
mjög mikið af saltfiski á hverju
ári. —
Allar þessar ástæður urðu
þess valdandi, að óvenju-miklar
birgðir söfnuðust fyrir í fram-
leiðslulöndunum. Þannig voru
saltfisksbirgðir hjer á landi um
s. 1. áramót meiri en nokkru
sinni áður, eða rúmar 20 þús.
smálestir. Birgðir í Noregi og
Færeyjum voru einnig meiri en
áður. — Fiskur sá, sem hjer lá
í landinu um s. I. áramót var
allur eign framleiðenda. Olli
það miklum f járhagslegum
þrengingum, að liggja með svo
mikinn óseldan fisk, sem fram-
leiddur hafði verið fyrir mörg-
um mánuðum, eða alt að því
einu ári síðan. Framleiðendur
margir tóku því það ráð, til þess
að reyna að auka útflutninginn,
að senda fiskinn í umboðssölu,
með því fyrirkomulagi, að um-
boðsmenn greiddu nokkurn
hluta fyrir fram, eða um leið og
fiskurinn var sendur úr landi,
upp í áætlað söluverð fiskjar-
ins. — All-mikið af framleiðsl-
unni 1930, sem ófarin var um
s. 1. áramót, var þannig seld í
umboðssölu, en vegna þess,
hvað birgðirnar voru miklar,
varð markaðurinn yfirfullur af
fyrra árs fiski fram í júnímánuð
síðast liðinn.
Sala framleiðslunnar 1931.
Vegna mikilla birgða af göml
um fiski, varð þegar vart við
crðugleika með sölu á nýju
framleiðslunni. Útlitið var þó að
ýmsu leyti bjartara en árið áð-
ur. — Veiði var að vísu engu
minni hjer á landi en hún hafði
verið árið á undan, en í Noregi
hafði verið saltað um helmingi
minna af fiski, en árið 1930.
Veiði Færeyinga va* taiin
með svipuðu móti. — Það sem,
samfara miklum birgðum af
fyrra árs fiski, einkum orsakaði
erfiðleika í fiskversluninni, var
hið óstöðuga gengi spönsku
myntarinnar.
Þessir örðugleikar bentu til
þess, að hjer væri yfiryofandi
hætta á ferðum í fiskverslun-
inni, ef ekki væri fyrir hendi
meira samstarf hjer innanlands
um fiskverslunina en áður. —
Fisksölusamlagið í. Reykjavík
hófst handa um það á sl. vori,
að reyna að koma á víðtækari
samtökum hjer sunnanlands
með fiskframleiðendum, en ver-
io hafði áður, um sölu fiskjar-
ins. — Jafnframt beitti samlag-
ið sjer fyrir því, að samtök væru
um það um land alt, að láta eng
an fisk af þessa árs framleiðslu
í umboðssölu. — Hafði samlag-
ið einnig samband við fisksölu-
fjelag Færeyinga í því skyni
að fyrirbyggja umboðssölu það-
an á fiski. — Það kom þó brátt
í ljós, að erfitt var að selja
nokkuð sem hjet af fi&ki í fast-
an reikning, þ. e. fyrir ákveðið
verð f. o. b., og útflutningur
var fremur lítill á nýjum fiski
fram að ágústmánuði. Þó sendu
einstök firmu nokkuð af nýjum
fiski fram að þessum tíma, en
það upplýstist ekki fyr en síð-
ar, að all-mikið af þeim fiski
fór í umboðssölu, og var þar
með fengin full skýring á því,
hversu erfitt það reyndist að
selja fisk í fastan reikning"
nefnt tímabil.
Þegar eftir að það varð upp-
lýst, að all-mikið af nýjum fiski
hafði verið sent í umboðssölu,
var mönnum það ljóst, að hjer
var hreinn voði á ferðum. Var
þá enn reynt af hálfu Fisksölu-
samlagsins í Reykjavík að gera
tilraun til þess að sameina fisk-
eigendur við Faxaflóa og í Vest-
mannaeyjum til þess að mynda
með sjer samtök um fisksöluna.
— Eftir nokkra tilraun í þessa
átt, var það bersýnilegt að ekki