Morgunblaðið - 23.09.1931, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
J* spaðkjötið gengur fyrst út, af þ.
að það E R best
Spyrjið þá, er reynt hafa
og pantið í tíma.
Selskinn. Kaupum fyrsta flokks selskinn.
Fjárhags-
ráðstafanir
samvinnustjórnarinnar ensku.
Hillafiarðarrjettir
eru í dag. Ferðir allan daginn frá STEINDÓRI.
2 krónur sætið.
í Landrjettir á morgun.
Námskeið
í mótorfræði verður haldið einhvers staðar við Faxaflóa á þessu hausti,
ef nægileg þátttaka' fæst.
Þeir, sem óska að komast á námskeið þetta, eru beðnir að tdkynna
skrifstofu vorri það hið fyrsta.
Reykjavík, 22. sept. 1931.
Fiskifjelag íslands.
Pappfrspokar.
Allar stærðir fyrirliggjandi.
Verðið mjög lágt.
Eggeri Kristjánssoe & Co.
Símar: 1317, 1400 og 1413.
Frá 1. oktöber
n.k. eru 3 skrifstofuherbergi til leigu í Austurstræti 3
(inngangur frá Veltusundi) til sýnis kl. 2—3.
Enska þingið var sett þ. 8. þ. m
Sjaldan hafa menn fylgt gerðum
,enska þingsins með jafnmikilli at-
hygli og nú. Yfirstandandi þing,
„Kreppuþingið“, var kvatt saman
vegna. fjárhagsvandræðanna. Og
enska stjórnin liefir gert víðtækar
ráðstafanir, til þess að jafna tekju-
halla ríkisins og afstýra 'fjárhags-
legu hruni í Englandi.
Verkamenn veittust að stjórn-
inni strax eftir þingsetningu. —
Henderson lýsti yfir því, að verka-
menn geti eltki fallist á, að at-
vinnuleysisstyrkirnir verði lækk-
aðir eða kjör verkamanna yfirleitt
verði rýrð. Stjórnin bað strax í
þingbyrjun um traustsyfirlýsingu,
og var hún samþykt með 309 at-
kvæðum gegn 250. íhaldsmenn,
frjálslyndir og 12 þingmenn úr
verkama.nnaflokknum studdu
stjórnina.
Dilkaslátur
fást nú daglega, og verða send heim til kaupenda, ef tekin
eru 3 eða fleiri í senn.
Enn fremur
svið, sviðin og ósviðin, mör, ristlar, lifur og hjörtu.
Dragið ekki að senda oss pantanir yðar, því oft er
ómögulegt að fullnægja eftirspurninni, þegar líður á slát-
urtíðina.
Verðið mikið lækkað frá því sem var síðast liðið ár.
Slðturlielag Suðurlands.
Sími 249 (3 línur).
I landrlettlr og Skeliariettlr
verður farið á fimtudaginn frá
Bifreiðastðð Kristins & Gannars-
Símar 847 og 1214.
Hinn 10. þ. m. lagði Snowden
ýjármálaráðherra fjárhagstillögur
stjórnarinnar fyrir þingið. Var
dauðaþögn í hinum troðfulla þing-
sal, þegar „járnkanslarinn*‘ Snow-
den, fölur og alva.rlegur tók til
máls.
Tekjur ríkisinsi á yfirstandandi
fjárhagsári verða 46 milj. pundum
lægri og útgjöldin 25 miljónum
liærri en áætlað var. Tekjuhalli á
þessu ári verður því rúmlega 70
miljónir punda, og Snowden býst
við ag tekjuhallinii á næstkomandi
fjárhagsári muni verða 170 milj.
punda eða. 50 miljónum meira en
sparnaðarnefndin (May-nefndin)
gerði ráð fyrir.
Stjórnin ætlast til að hjer um bil
helmingur tekjuhallans verði jafn-
aður með skattahækkun, hinn helm
ingurinn með sparnaði. Ymsir ó-
beinir skattar verða. Iiækkaðir,
einkum bensín, sykur- og tóbaks-
tollur. Er áætlað að hækkun ó-
beinna skatta gefi af sjer 24 milj.
punda á ári. Ennfremur verða
tekjuskattar hækkaðir um 6 pence
af hverju pundi. Framvegis eiga
Englendingar að greiða 5 shillings
af hverju pundj í skatt eða 25%
af tekjum sínum. Þar að auki verð-
ui svokallaður „super tox“ auka-
skattur á háum tekjum, hækkaður
um 10%. Hækkun tekjuskattanna
á að gefa af sjer 57.5 miljónir
punda. Aukning óbeinna skatta og
tekjuskatta nemur þannig 81.5
miljónum punda.
Utgjöld ríkisins verða lækkuð.
Atvinnuleysisstyrkir verða lækk-
aðir um 10% og laun embættis-
manna um 10—20%. Af öðrum
sparnaðarráðstöfunum má nefna.:
kenslumálagjöld verða lækkuð um
10 miljónir, flotamálaútgjöld um
5 miljónir. Útgjaldalækkunin nem-
ur alls 70 miljónum punda. Loks
verða afborganir á ríkisskuldum
lækkaðar um 20 miljónir. Þannig
ætti að verða iy2 miljónar tekju-
afgangur á næsta fjárhagsári.
Fjárhagstillögur Snowdens tala
sínu eigin máli um fjárhagsvand-
ræðin í Englandi. Og þær eru ljós
vottur um einbeittan vilja til þess
að bjarga gjaldeyri Englendinga
úr voða. Enginn getur neitað því,
að þungar byrðar verða lagðar á
eiga að bera byrðarnar. Það er því
fjarstæða, þega.r verkamenn segja
að stjórnin „fjefletti fátæklingana,
til þess að hlífa hinum ríku.“
Mae Donald hefir krafist þess,
að stjórnin fái í bili einræðisvald
í fjármálunum. Hann hefir lagt
fyrir þingið lagafrumvarp þess
efnis, að stjórninni verði heimilað
að framkvæma fjárhagsáform sín
með stjórnartilskipunum (orders in
eouncil). Allar líkur eru til að
stjórnin fái þessa heimild. Mac
Donald segir, að fjárhagsvandræð-
in hafi knúið stjórnina til þess að
grípa til þessara úrræða. Sparnað-
artillögur stjórnarinnar verði að
ganga í gildi í þessum mánuði. En
það myndi taka marga mánuði, ef
þingið ætti að samþykkja tillögur
stjórnarinnar í venjulegu laga-
formi, einkum þar sem búast- megi
við málþófi af hálfu verka.manna.
Enska stjórnin hefir áður fengið
heimildir til þess að gefa út stjórn-
artilskipanir án íhlutunar þingsins,
þegar landið liefir verið í alvar-
legri hættu, t. d. á stríðsárunum.
Verkamenn tala nú um „fasc-
isma“ af hálfu samvinnustjóm-
arinnar, en það nær engri átt. -
Núverandj valdhafar í Englandi
eru eindregnir fylgismenn þing-
ræðisins. Enska stjórnin fær að
vísu takmarkað einræðisvald, en að
eins um stundaorsakir, út úr neyð
og með samþykki meirihluta þings-
ins. Og þingið getur lýst vantrausti
á stjórninni og felt hana, hvenær
sem það óskar þess.
En eðlilega vekur það eftirtekt,
að stjórnin í Englandi, móðurlandi
þinræðisins, neyðist til að víkja
frá venjulegri þingræðisleið, þótt
ekki sje nema í bili. Ef til -vil I
er það na.uðsynlegt, eins og nú er
ástatt, en þó engan veginn hættu-
laust. Verkamannaforinginn Cly-
nes sagði t. d. nýlega í neðri mál-
stofunni að samvinnustjórnin sje
að löghelga óþingræðislega stjórn-
arhætti; það geti því faríð svo að
næstu verkamannastjórn finnist
það vera auðveldara að fara ein-
ræðisleiðina en þingræðisleiðina, til
þess a.ö framkvæma þjóðnýtíngu í
Englandi.
Öll líkindi eru til þess, að sam-
vinnustjórninni takist að jafna
tckjuhallann á fjárlögunum. —- En
mikið vantar á, að ráðin sje bót
á fjárhagsvandræðunum í Eng-
landi, þótt tekjuhalli ríkisins verði
jafnaður. Orsakir vantraustsins
á Englendingum og „flóttans frá
pundinu“ eru aðallega tvær. I
fyrsta lagi tekjuhalli ríkisins, í
öðru lagi óhagstæður viðskifta-
jöfnuður. A fyrstu 8 mánuðum á
þessu ári, fluttu Englendingar inn
vörur fyrir 553 miljónir punda, en
vöruútflutningur þeirra nam að
eins 262 miljónum punda. Ensku
stjórninni er ljóst, að Englending-
ar verða að lagfæra viðskiftajöfn-
nðinn. Án þess verður ekki ráðin
varanleg bót á fjárhagsvandræð-
unum.
Enskir stjórnmálamenn af öllum
flokkum hallast nú meira og meira
á þá skoðun, að vemdartollar sjeu
nauðsynlegir í Englandi, til þess
að lagfæra viðskiftajöfnuðinn. —
Churcliill fullyrðir, að % allra
enskra þingmanna sjeu fylgjandi
tollvernd. En þó er ekki búist við
að verndartollar verði lögleiddir
ensku þjóðina. En allar stjettir í Englandi fyr en eftir þingkosn-
nostads-fiaglar
eru veiðnastir.
Gamli maðurinn veit
hvað hann syngur. —
Hann notar eingöngu
MDSTADS öngla.
Aðalumboð:
0.
Reykjavík.
Látið
vinna fyrir
yður.
Ekkert
erfiði,
aðeins gleði og ánægja.
Alt verður svo hreint og
spegilfagurt.
H.f. Efnagerð Reykjavíknr
Það er verið að taka
upp:
Ullartauskjóla.
Vetrarkápur.
Danskjóla.
Branns-
Verslnn.
Hmerfkst skrifborð
sem nýtt (minni stærðin) með
renniloki, 5 skiiffum og skáp til
sölu. Upplýsingai' í síma 702.
ingar. Sem stendur er talið lík-
legt að þingið verði rofið í byrjun
október. Kosningar fari svo fram
eins fljótt og unt er. Og þá má
búast við að tollverndarstefnan
yerði ofan á í móðurlandi verslun-
arfrelsisins.
Khöfn í sept. 1931.