Morgunblaðið - 17.10.1931, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
9
1
= Crtgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. M
'M Ritstjörar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Ritstjörn og afgreiBsla: S
Austurstræti 8. — Slmi 600. ^
c Auglýsingastjöri: E. Hafberg.
':g Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Simi 700. =
'P Heimasimar: =
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220. =|
E. Hafberg nr. 770.
E Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuOi. ^
Utanlands kr. 2.50 á mánuOl. =
= í lausasölu 10 aura elntaklö. =
20 aura meC Hesbök. =
ÍÍ'llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllimilllllllÍ
Embcettaueitingar
Og
skoðanaskifti.
1. Stjórnin veitti Bergi Jóns-
,syni Barðastrandarsýslu fyrir
fám árum. Hann var Jafnaðar-
maður á meðan hann var hjer
í bænum.
Nú er hann kominn í stjórn-
arflokkinn og er þingmaður
hans.
2. Stjórnin gerði Steingrím
Steinþórsson að skólastjóra á
Hólum og forstjóra búrekstrar
ríkisins þar. Þegar hann var
kennari á Hvanneyri var hann
rammur Jafnaðarmaður.
Nú er hann kominri í stjórn-
arflokkinn og er þingmaður
hans.
3. Stjórnin gerði Sveinbjörn
Högnason að skólastjóra í
Hafnarfirði og leit á tímabili
út fyrir, að hann ætti að hafa
tvö embætti, skólastjóraembætt
ið og prestsembættið á Breiða-
bólstað. Hann var fyrst komm-
únisti og síðar Jafnaðarmaður.
Nú er hann kominn í stjórn-
arflokkinn og orðinn þingmað-
ur hans.
4. Stjórnin veitti Jóni Stein-
grímssyni Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu, án þess að
embættið væri auglýst laust.
Þegar hann víar á Akureyri
var hann mjög ákveðinn Jafn-
aðarmaður.
Nú er hann kominn í stjórn-
.arflokkinn og studdi hann við
síðustu kosningar.
Stjórnin veitti Pálma
TTannessyni rektorsembættið við
Mentaskólann hjer. Hann var
Kommúnisti og rússneskur
mjög í anda.
Nú er hann kominn í stjórn-
.arflokkinn.
Án efa mætti nefna fleiri,
:sem svipað er ástatt um; en
undir þessa, sem hjer eru
nefndir, hiliir einna mest. Þetta
sýnir, að það er talsvert strand
högg, sem stjórnin hefir gert
hjá Jafnaðarmönnum. Það er
rjett eins og makaskifti hafi
verið á embættum og sannfær-
ingu. En því trúir þó væntan-
fega enginn.
Og svo er nú sjálfur forseti
Alþýðusambands Islands,
bankastjóri og alþingismaður
Jón Baldvinsson. Hann sýnist
hálfur í stjórnarflokknum, ef
<læma má eftir hjálpinni, sem
hann veitti á síðasta þingi til
að klína nafninu á samþykt
landsreikningsins og fjárauka-
laganna.
Þá er nú nýi landlæknirinn,
Vilmundur Jónsson, alþingis-
maður og Jafnaðarmaður. Hvað
skyldi verða um hann? Víst er
það, að vel gekk hann fram í
að sætta stjórnarflokkinn og
sína flokksmenn á síðasta þingi.
En hann hefir kannske verið
svona sáttfús þá af því að ,,með
göngutíminn“ stóð yfir.
Enginn þarf að ímynda sjer,
að menn hafi í raun og veru
skoðanaskifti, þótt þeir fái em
bætti, nje þótt þeir fari flokk
úr flokki. Hún er orðinn tals-
vert öflug, jafnaðarmannadeild
stjórnarflokksins. Hún hafði
það í gegn í sumar, að ráðá
hver yrði dómsmálaráðherra
og auðvitað valdi hún mann af
sínu sauðahúsi. En Jón í Stóra-
dal og aðrar „bændalyddur“
urðu að láta í minni pokann.
Deila
lapana ogKínuerja
Genf, 16. okt.
Tlnited Press PB.
Framkvæmaráðið hefir samþykt
með 13 at.kvæðum gegn 1 að bjóða
Bandaríkjunum að taka þátt í
störfum ráðsins. Yoshizawa greiddi
atkvæði á móti tillögunni.
Tokio 16. okt.
Káðuneytisfundur var haldinn í
t.ilefni af því, sem gerst hefir í
Genf í sambandi við Mansjúríudeil-
una. Fulltriii ríkisstjórnarinnar
hefir skýrt frá því, að Japan hafi
alls ekki í huga að segja Kín-
verjum stríð á liendur og ef Kína
segi -Tapan stríð á hendur rnuni
Japan hafa slíka stríðyfirlýsingu
að engu. Ennfremur sagði fulltrú-
inn: „Ef Japan gengur úr banda-
laginu, sem fyrir gæti komið vegna
framkomu i'áðs bandalagsins, þá
gæti svo farið, þótt jeg vilji ekk-
ert um íþað fullyrða, að afleiðing-
arnar reyndist mjög alvarlegar.“
Genf. 16. okt.
United Press. FB.
Japan hefir mótmælt þátt-
töku Bandaríkjanna í ráðinu
með skírskotun til lagaákvæða.
Briand hefir, þrátt fyrir mót-
mæli Japana úrskurðað að
Bandaríkjunum skuli boðið að
taka þátt í Störfum ráðsins.
Sí'ðar: Bandaríkin hafa þeg-
ið boð um þátttöku í störfum
framkvæmdaráðs Bandalagsins
og útnefnt Prentiss Gilbert til
þátttökunnar. Tók Briand á
móti tilkynningu um það kl.
6 e. h. í dag.
Hosningarnar (Englandi.
60 sjálfkjörnir — þar á meðal
Stanley Baldwin.
London, 16. okt..
United Press. FB.
Um það bil 1300 frambjóð-
endur til þings hafa verið út-
nefndir. Sextíu eru sjálfkjörn-
ir, þar eð um enga mótfram-
bjóðendur er að ræða. Á meðal
þeirra eru Stanley Baldwin og
Sir Thomas Inskip og Duff
Cooper, fjármálaritari hermála
ráðuneytisins.
• »«»——— •*»
Frá Danmörlm.
(Frá sendiherra Dana).
Stjórnmálamaður látinn.
Tvede, landsþingmaður, for-
maður Hægrimannaflokksins í
Danmörku, andaðist skyndilega
á miðvikudagskvöld á heimili
sínu á Helsingeyri, 64 ára að
aldri. Hann hafði þenna sama
dag mætt í þinginu, hafði m. a.
framsögu í landsþinginu og
tók þátt í þýðingarmiklum
flokksfundum, sem haldnir
voru viðvíkjandi kreppunni.
Ráðstafanir gegn kreppunni.
Opinber tilkynning hermir,
að undanfarið hafi farið fram
samningatilraunir milli stjórn-
arflokksins (sósialista) og
hægrimanna, um afgreiðslu
ýmissa frumvarpa í sambandi
við kreppuna.
Eftir þvi, sem blaðið „Ber-
lmgske Tidende“ skýrir frá, hef
ir náðst fullkomið samkomulag
milli þessara flokka um þessi
mál. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins, verður frumvarp
stjórnarinnar afgreitt með ýms
um breytingum og eru þessar
helstar: Landbúnaðurinn fær
30 milj. kr. lán (í stað styrks),
sem endurgreiðist eftir vist
árabil ef verð á smjöri og fleski
h -kkar aftur um 25% ; sjerstak
ur styrkur vegna atvinnuleys-
is verði 11 milj. kr. Þessum 41
milj. kr. á að ná inn á þann
hátt: Hækkun tekjuskatts til
ríkis á tekjuskattsupphæð yfir
3 kr. á ársfjórðungi, og eru
áætlaðar tekjur af því 17þ£
milj. kr.; eignaskattur hækk-
ar um 2 milj. kr.; bensínskatt-
ur hækkar um 2 aura pr .líter,
áætl. 6 milj. kr.; ölskattur
hækkar um 1 eyri, áætl. 4
milj. kr. Utgjöld til hersins
lækkuð um 2,3 milj.; tollur er
lagður á ýmsa ávexti og
grænmeti, áætl. 2. milj. kr.;
amtsskatturinn lækkar um 15%
áætl. 3 milj. kr. —
Þýska stjórnin fær trausts-
yfirlýsingu.
Berlín, 16. ok.
United Press. FB.
Ríkisþingið hefir samþykt
traustsyfirlýsingu til stjórnar-
innar með 294 atkvæðum gegn
270.
Gengið.
London, 16. okt.
United Press FB.
Gengi sterlingspunds miðað við
dollar 3.87.
New York: Gengi sterlingspunds
er viðskifti hófu.»t í gær $ 3.87%,
en $ 3.87Í/2’ er viðskiftum lauk.
Laval fer í heimsókn til
Bandaríkjanna.
Paris, 16. okt.
United Press FB.
Laval forsætisráðherra er lagður
af stað áleiðis til Bandaríkjanna.
Vextir hækka.
New York, 16. okt.
TTnited Press FB.
Fedéral Reserve bankinn hefir
hækkað forvexti úr 2%%, í
Trúbragðafrelsi á Spáni.
Madrid, 16. okt.
United Press FB.
Þjóðþingið hefir samþykt 25. gr.
stjómarskár-frumvarpsins, er gerir
öll trúarbrögð, sem menn nú að-
hyllast á Spáni, jafn rjetthá.
Sjómannakveðja.
FB. 15. október.
Farnir áleiðis til Eng.lands. —
Vellíðan allra. Kærar kveðjur til
vina og vandamanna.
Skipshöfnin á
Kára Sölmundarsyni.
Wick Radio 16. okt. FB.
Erum á Norðursjónum á leið til
Þýskalands. Vellíðan. Kveðjur.
Skipverjar á Andra.
Dagbók.
□ Edda 593110207—Fyrirl. RM.
Veðrið í gær: Lægð fyrir norð-
austan ísland, en háþrýstisvæði
fyrir sunnan og suðvestan.
V-kaldi eða gola um alt land,
með 3 stiga hita á Vestfjörðum,
en 6—7 stiga hita í öðrum lands-
hlutuin. Hefir yfirleitt kólnað
um 2—3 stig síðasta sólarhring.
Vestan lands eru regnskúrir, en
þurt veður og ljettskýjað austan
lands .
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
V- eða NV-kaldi. Nokkrar skúrir,
en sennilega ljettskýjað á milli.
Messur á morgun: I Dómkirkj-
unni, kl. 11, Prestsvígsla; kl. 2,
Bamaguðsþjónusta (sr. Fr. H.).
Engin síðdegismessa.
í Fríkirkjunni í Reykjavík kl.
5, síra Árni Sigurðsson.
Dánarfregn. 6. þ. m. andaðist
að heimili sínu á Eskifirði, Óli
Þorleifsson útgerðarmaður, 38 ára
að aldri, lætur eftir sig konu og
7 börn, öll í ómegð. Óli heit. var
mikill atorku- og dugnaðarmaður
í hvívetna, og drengur góður. Er
hans því sárf. saknað af ástvinum
og öllnm þeim er honum kyntust
á hans skömmu lífsleið. S.
Útvarpið í dag: Kl. 10.15 veður-
fregnir, kl. 16.10 veðurfregnir, kl.
18.45 barnatími (Guðjón Guðjóns-
son). kl. 19.05 fyrirlestur Búnað-
arfjelags íslánds, kl. 19.30 veður-
fregnir. kl. 19.35 fyrirlestur Bún-
aðarfjelags lsl„ kl. 20 npplestur
_(H. K. Laxness), kl. 20.25 óá-
kveðið, ld. 20.30 frjettir ,kl. 20.55
óákveðið, kl. 21.00 grammófón-
bljómleikar (svmfonia eftir Baeh :
Útvarpskvartettinn) Danslög til kl.
24.00.
Heimdallur efnir fil dansleiks í
kvöld, svo sem áuglýst er á öðram
stað í blaðinu. Vegna þess að
aðgangur er takmarkaður eru fje-
lagar beðnir að segja til í tíma.
Aðgöngumiðar eru afhentir í skrif-
stofu Heimdallar kl. 4—7 og í
Bókav. Sigf. Eymundssonar allan
daginn.
Jarðræktarfjelag Reykiavíkur
heldur aðalfund sinn í Varðarhús-
inu í dag ld. 1. Að loknum venju-
legum aðalfundarstörfum skýrir
form. fjelagsins frá helstu störf-
um þess á Tiðnum 40 áram. Fje-
lagið á 40 ára afmæli í dag.
>,Stormur“ verður seldur á göt-
unum í dag. Efni: Sölvi Helgason
og Jónas. — Bergur dýri. — Lje-
legur vitnisburður. — Hæstarjett-
ardómar. — Heimskreppan. Lands-
reikningurinn og fjáraukal. o. fl.
K.F.TJ.M. í Hafnarfírði heldnr
skemtun næstkömandi sunnud. kl.
8(4; til skemtunar verður: Frií
nú er hann ávalt fáanlegur.
Með nýjustu og fullkomnustu
vjelum göngum við nú frá
kaffirjóma í (4 líters flösk-
um, þannig að geyma má
hann margar vikur í óopn-
uðum flöskum.
Verðið er aðeins 55 aurar
flaskan, en tóm flaskan er
endurkeypt fyrir 20 aura,
svo að rjómaverðið er raun-
verulega ekki nema 35 aurar.
Þetta er aðeins kaffirjómi,
og er ekki ætlaður til að
þeyta hann. Hann fæst ávalt
í öllum okkar mjólkurbúð-
um, mjólkurbílunum svo og
versluninni LIVERPOOL og
öllum hennar útbúum.
/
Gætið þess að ,Litla stúlkan‘
sje á hverri flösku. Þá er
rjóminn áreiðanlega góður.
Kaupið þennan rjóma í dag
og fullvissið yður um að þjer
getið ávalt treyst honum .
Nýreykt dilkakiöt
lifur og hjörtu og nýtt dilka-
kjöt í heilum kroppum og
lausri vigt.
Verðið lækkað mikið.
KjSt &
Fiskmetisgerðiu.
Grettisgötu 64. Sími 1467.
KveDSkðr.
margar tegnndir nýkomnar.
Hvannbergsbræður.
Kryddsíld og
mariueruð sfld.
Versl. HjSt S Hskur.
Símar 828 og 1764,
Iflj illt ■»! Islsaskiui sklpom! tfj