Morgunblaðið - 03.11.1931, Blaðsíða 2
MOROPX BI/ A ÐI Ð
tcta i ... ■ ....
TIP TOP hreinsar þvottinn best.
TIP TOP inniheldur ekki klór.
TIP TOP er drýgst í notkun.
TIP TOP er ódýrt.
TIP TOP er framtíðar-þvottaefnið.
REYNIÐ TIP TOP ÞVOTTAEFNIÐ. FÆST MJÖG VÍÐA.
Fyrirligglaiidis
Allar tegundir af niðursoðnum ávöxtum bæði í heilum og
hálfum dósum.
Eggert KrisifáiBssoM <& Co.
Símar 1317, 1400 og 1413.
Mjólkurbúðin Laugaveg 58
(húsi Sigurðar Skjaldbergs)
verður opnuð aftur í dag. Brauðin eru eins og áður frá G.
ólafsson & Sandholt. Mjólkin verður frá Austurhlíð og
verður því oft hægt að fá hana volga. Gömlum og nýjum
viðskiftavinum er alveg óhætt að reyna viðskiftin, því að
við munum gera okkur alt far um að þeir verði ánægðir.
Á útsölunni seljum við meðal annars:
Talsvert af kvennbjólnm
fyrir bálfvirði.
Msrteinn Elnnrssnn S Gn.
Stðr Atsala
hjá K. Einarsson & Björnsson,
frá 2.—10. nóv. — 10—20% *f ölln.
K. Einarsson & Björnsson,
Bankastræti 11.
Brlelsnfnaknssar.
mjög miklð árval og fallegt í
Bðkaverslun Sigfúsar tymundssonar.
t
Síra Stefðn Jónsson
frá Staðarhrauni andaðist að heim-
iJi sínu lijer í bænum á sunnudag-
inn, rúmlega sjötugur að aldri.
Flugferðir Luft-Hansa.
Þýska fjelagið Buft-Hansa þyk-
ist nú hafa kómið á svó víðtækum
fJugferðum í Evrépu, að þær verði
ekki auknar á næstu árum. Enn
fremur heidur það uppi póstflugi
í sambandi við gufuskipaferðir
;yfir Atlahtshaf, bæði að norðan
og sunnan. Flugvjelar eru Játnar
fara með póst á eftir skipunum
út í liaf, og á skipunum eru flug-
vjelar, sem fljúga frá skipunum
■með póstinn, löngu áður en þau
koma í höfn. Á norðurleiðinni yfir
Atlantshaf kemst pósturinn þrem-
ur dægrum fljótar á þennan hátt
milli álfanna, lieldur en með skip-
unum. Og á suðuirleiðinni munar
meiru — 7 dögum af 16, sem skip-
in eru á leiðinni. Verður þessari
aðferg lialdið þangað til komnar
eru flugvjelar sem treystandi er
til þess að fljúga í alla leið yfir
Jiafið.
Þýskair flugvjelar halda uppi
reglubundnum póstferðum til
Moskva. Þar taka rússneska flug-
.vjelar við og fl.júga austur að
Jandamærum Kína, og þar taka
aftur við þýsk-kínverskar flug-
vjelar og flytja póstinn alla leið
til Shanghai. Þessi leið er 10 þús.
kílómetrar og fara flugvjelarnar
hana á 6—7 dögum, en járn-
brautarlestir fara leiðina á 12 dög-
um. Á næsta sunuri verður opnuð
ný flugleið: London — París —
Perlín — Moskva — Mansjúría
— Shanghai. Samvinna er milli
Luft-Hansa og póstflugvjela í öðr-
rm 'löndum ólfunnar.
Luft-Hansa hefir nú 1600 menn
í þjónustu sinni — aðallega verka-
ménn, vjelamenn og flugmenn. —
Það á 165 flugvjelar, sem hafa
viðkomustaði i 50 borgum í Þýska-
landi og 30 erlendum borgum.
Hosningar (Bandarfkium.
Washington 2. nóv.
United Press. FB.
Aukakosningar fara firam á
morgun í fimm kjördæmum til
fulltrúadeildar þjóðþingsins og
geta iirslitin orðið til þess, að
annar hvor aðal flokkanna fái
rneiri hluta í deildinni. Eins og
kunnugt er, urðu úrslit þjóðþings-
kosninganna þau, í fyrra, að repu-
bbkanir rjett að eins hjeldu meiri
hlutanum í deildinni, en síðan
kosningarnar liafa farið fram, hafa
11 þingmenn í deildinni látist, og
hefir því orðið að halda auka-
kosningar til þess að kjósa þing-
menn í þeirra stað. Það hefir vald-
ið ýmsum óþægindum hve flokk-
arnir eru jafnir að styrkleika og
stjórnmáJaástandið orði ð óörugg-
ara. Nú er engan veginn fnllvíst
að annar hvor flokkanna fái hrein-
an meiri hluta í fulltrúadeilddnni,
að afstöðnum kosninguntim á
morgun, en aukakosning fer fram
í Wiseonsin 13. nóv. og hún getur
ráðið úrslitum. Þann 29. sept. s.'l.
unnu demokratar sigur í auka-
kosningu í sjöunda kjördæmi í
Wisconsin. Að afstaðinni þeirri
kosningu stóðu flokkarnir þannig
að víg.i í fulltrúadeiidinni: Repu-
blikanir liöfðu 214 ])ingsæti, deirio-
lcratar 214, Farmer-Labourite
(bænda- og verklýðsþingm.) 1.
Sex þingsæti auð. AIls 435. Auka-
kosningar fara fram á morgun í
sjöunda kjördæmi í New Yorlí,
fyrsta og tuttugasta kjördæmi í
Ohio, öðru kjördæmi í Pennsyl-
vania og áttunda kjördæmi í
Michigan. Mesta eftirtekt munu úr-
slitin vekja í fyrsta kjördæmi í
öhio. Þar veirður kosið í stað
Nicholas Longworth þingforseta.
Hftla menn, að sú kosning muni
get'a nokkura bendingu um horfur
fyrir úrslitum i forsetakosningunni
að árl. Þair er John Hollister í
kjöri af liálfu repúbiikana, en
David Lohrbach af hálfu demo-
krata. 1 sjöunda kjördæmi í New
York er búist við að demokratar
vinni. Frambjóðandi þeirra fekk
1930 22.387 atkv., en frambjóðandi
repubiikana 8.834. í 22. kjördæmi í
Ohio unnu demokratar dnnig með
glæsilegum meiri hlut.a 1930. — f
liinum kjördæmunum af þeim, sem
kosið verður í á morgun, unnu
repubiikanir seinast. í fyrst.a kjör-
dæmi í Ohio er þó talið vafasamt
um iirslit. Horfurnar eru þær, að
annað hvor flokkanna bæti við sig
einu atkvæði og fáj alls 217, en
hirin fiokkurinn 216 og Farmer-
Labourite 1. Urslitin í Wisconsm
geta því ráðið fulinaðarúrslitum
um, hvort það verða demokratar
eða republikanir, sem verða í rneiri
hluta í fidltriiadeild þingsins í
vetur.
Pýskir sjómenn
á 41 sldpi gera verkfall í rúss-
neskum höfnum.
Frá Hamborg kemur sú frjett 14.
október, að sjómenn á 41 þýsku
skipi í rússneskum höfnum hafi
gert verkfall.
Um leið og þetta sannaðist ákvað
samband þýskira skipafjelaga að
þessir verkfallsmenn skyldi þegar
afskráðir og hætt væri að greiða
kaup þeirra til f.jölskyidna þeirra.
Jafnframt var ákveðið að kæra
alla mennina fyrir samblástur
(mytteri). Skipfjelagasambandið
ætlaði síðan að senda skip til
liinna ýmsu rússnesku hafna, þar
sem skipinu lágu, með nógu marga
sjómenn til þess að taka við af hin-
um. En á seinustu stundu var hætt
við þetta. Það kom sem sje upp
úr kafinu, að þýsku sjómennirnir
þóttust hjeir gera samúðarverkfall,
því að þeim hafði verið sagt, að
ailsherjarverkfall hefði verið hafið
í Þýskalandi, en fyrir því var
enginn fótur. Þykjast þýskir skipa-
eigendur hafa fengið sannanir fyr-
ir því, að rússneska ráðstjómin
hafi komið þessari flugu í munn
þeirra og stuðlað að verkfallinu.
Laval kominn heim.
, Le Havre, 2. nóv.
United Press. FP>.
Laval forsætisráðherra Frakk-
iand.s kom hingað úr Washington-
för sinni í morgun kl. 9.30.
—-----«*»>--------
Radio.
Stói't móttökutæki (Audiola)
fyrir rafmagn og „Batteri“, til-
A’alið fyrir skip.
Tekur aliar stöðvar í Evrópu.
Selst ódýrt. Tilboð merkt:
,,RADIO“
sendist A. S. í.
fa
fl.s. Islanfl
fer annað kvöld klukkan 8 til
Kaupmannahafnar (um Vest
mannaeyjar og Thorshavn).
harþegar sæki farseðla i
dag.
Tilkynningar um vörur
komi sem fyrst-
C. Zimsen.
Besta eign
barni hverju er líftrygging í
Lífftryggingafjel. Hndvöku
Sími 1250.
Vallarstræti 4.
Laugaveg 10.
B|ðml
allan daglnn.
Hápur og kiólar
10—15% afsláttur þennan mántið.
Sigurður Guðmundsson,
Þingholtsstræti 1.
Refanet
til 'sölu. Upplýsingar í síma 426.
Dienoia-
trakkar
mikið úrval nýkomið í
fEanchester.
Sími, 894.