Morgunblaðið - 05.11.1931, Page 2
2
V O na T'NB L AÐIÐ
BX
75 ára.
Frú Sigríður Pálsdóttir.
Siglufirði.
Frú Sigríður er fædd í Holti við
lieykjavík 5. nóv. 1856. Vom for-
eldrar hennar Páll Magnússon óð-
idsbóndi og útgerðarmaður, er þar
bjó langa æfi og var kunnur mað-
ur meðal hinna eldri Reykvíkinga,
ug kona hans Guðný Lýðsdóttir.
Sigríður ólst upp með foreldrum
sínum þar í Reykjavík til tví-
tugsaldurs og mun hafa notið þar
betri mentunar en alment gerðist
á þeim árum, og kom hún lienni
að góðu haldi síðar í lífinu.
Tvítug fluttist hún norður að
Steinnesi í Húnavatnssýslu til Bi-
ríks prófasts Briem og konu hans
■og dvald'ist þar til haustsins 1879
að liún flutfist hingað fii Siglu-
fjarðar. Hjer giftist hún 9. apríl
1880, Hafbða Guðmundssyni, síð-
ar. um langt. skeið hreppsstjóra
hjer. Hefir frú Sigríður dvalist
óslifið hjer í Siglufirði æ síðan.
Mann sinn misti hún 12. apríl 1917
og hefir hún síðan dvalist hjá
dóttur sinni, Olöfu og manni henn-
ar Sophusi A. Blöndal konsúl.
iÞeim hjónum, Sigríði og Haf-
liða varð sex bama auðið. Dó eitt
jieirra í æsku en fimm ,lifa, þau:
Helgi kaupm. og afgreiðslumaður,
Kristín, ekkja Halldórs Jónasson-
ar kaupm. h.jer, Guðmundur, hafn-
arvörður hjer, Andrjes, kaupm.
hjer, og Ólöf, sem fyr getur. Auk
þess ólu þau hjón upp frá barns-
aldri, frú Guðmundu Benedikts-
dóttur Jacobsen, gifta Bdvin Jac-
obsen útgerðarmanni og kaupm.
í Fosnavaag í Noregi.
Þegar frú Sigríður fluttist hing-
að á blómaskeiði aldurs síns, var
Siglufjörður að eins örlítið út-
kjálkakauptún, með einni verslun,
fáeinum hákarlaskútum og örfá-
um sálum sem flestar bjuggu hjer
í ljelegum torfkofum. Reykjavík
mun þá að vísu ekki hafa verið
búin að fá á sig neitt stórborgar-
«nið, en þó má óhætt fullyrða, að
viðbrigðin hafa verið mikil fyrir
hina ungu konu að koma þaðan og
'setjast að hjer í hinni harðviðra-
sömu og einangruðu útkjálkavík
sem Siglufjörður þá var, en frú
Sigríður mun fljótt hafa sýnt það,
að hún var þeim vanda vaxin að
laga sig eftir ástæðunum, enda
mun hún brátt og að verðleikum
hafa hlotið sess í fremstu kvenna
röð hjer og þótt víðar væri leitað,
og stuðlaði margt til þess: Hún
var hin glæsilegasta kona í sjón,
hög flestum konum fremur á hvert,
verk, hin stjórnsamasta húsfreyja
ng besta móðir börnum sínum og
hin umhvggjusamasta og nákvæm-
asta húsmóðir við hvern gest sem
að garði bar, hvort hann á.tti mikið |
Síra Majnúa Bl. lónsson
sjötugur.
í dag er síra Magnús Bl. Jóns-
,-;on frá X'allanesi sjötugur að aldri.
Br hann fyrir löngu þjóðkunnur
orðinn íyrir dugnaðar sakir og far-
sælla afskifta af opinberum málum.
Eins og bræður hans Bjarni frá
Vogi og dr. Helgi er síra Magnús
gáfumaður. llaí'a gáfur hans stefnt
í hagnýta átt, sem einkanlega er
vert að minnast meðai þjóðar vorr-
ar, sem því miður er of skamt á
veg komin til að kunna að verð-(
leikum að meta slíka tegund hæfi-
ieika. — Síra Magnús hefir starf-
að mestan hluta manndómsára
sinna austur á Fljótdalshjeraði. —
Var hann prestur í Vallanesi um
30 ára skeið og jafnan vel metinn,
enda gerðist hann forgöngumaður
ýmsra framfara sem lijeraðið hefir
búið að síðan. Átti hann frum-
kvæðið að því að Fagradalsbrautin
var lögð, og hafði á.samt síi'a Bin-
ari Þórðai'syni forgiingu að stofnun
Búnaðarsambands Austurlands. —
Var hann formaður sambandsins
nær 20 ár. í stjórn Eiðaskólans átti
hann og lengi sæti.
Allra manna var hann afkasta-
mestur um túnrækt, og ber Valla-
nesstaður þess ljós merki. — IJtan
Austurlands eru afskifti síra Magn
úsar af stofnun Eimskipafjelagsins
og rekstri togaraútgerðarinnar
kunnust. Áhugi hans á hinu síðar-
yefnda máli varð einkum ljós eftir
að hann liafði flutst búferlum til
Reykjavíkur. — Sem kunnugt er,
standa ýmsir annmarkar þessum
mikilvægasta atvinnuvegi landsins
fyrir þrifum, og hefir síra Magnús
manna best skýrt þetta í blaða-
greinum er hann hefir um málið
ritað, og auk þess komið með marg
ar viturlegar tillögur til bóta.
Enda ])ótt síra Magnús sje nú
kominn á þann aldur er mörgum
tekur að förlast, þá sjást ekki á
honum. ellimörk. Hann llítur út eins
og hann væri fyrir innan sextugt,
og á þvj eflaust énn þá eftir að
grípa víða hendi til og sjá margar
af hinum vel grunduðu tillögum
sínum rætast.
H.
eða lítið að sjer. Mátti segja að
þeim hjónum báðum væri hin ís-
lenska gestrisni í merg runnin, því
aldrei voru þau glaðari, en þegar
fult var hús gesta hjá þeim og
voru þau í því sem fleiru sam-
hent, að geia gestum sínum stund-
ina sem ánægjulegasta. Mun gest-
risni þeirra hjóna, hjálpsemj og
holl ráð, sem margir nutu, hafa
átt sinn þátt í, að afla þeim þeirra
óvenju miklu vinsælda er þau nutu
utan lands sem innan og vsem sýndu
sig best er norskir vinir þeirra
reistu Hafliða veglegan bautastein
að honum látnum.
Margþ- munu þeir verða vinir
hinnar háöldruðu heiðurykonu, sem
minnast hennar með hlýleik og
virðingu í heimsókn til hennar og
skeytum, og eru fleiri þó, sem
minnast hennar og öðlingsins,
manns hennar og hins gestrisna og
glaðværa heimdis þeirra. „Hafliða-
hússins" í hugum sínum með hlý-
leik, virðingu og þökk.
Gamall vinur.
Hliómleikar.
Hans N-sff.
Næstkomandi sunnudag eiga
menn von á góðri skemtun í Gamla
Bíó. PíanóIeikaTÍnn Hans Neff,
kennari við Tónlistaskólann, ætlar
að halda hl.jómleika.
Það kvisaðist þegar í haust, er
]>eir komu nýju kennaramir að
Tónþstaskólanum, að píanóleikar-
inn væri snillingur á hljóðfæri sitt.
I)r. Mixa, sem útvegaði hann hing-
að, sendi skeyti þess efnis, að sjer
hefði tekist að útvega framúrskar-
andi pianóleikara og virðist það
ekki of sagt.
Hans Neff er ungur maður, að
eins 31 árs að aldri. Hann er Wien-
arbui og hefir fengið þar mentun
sína. Aðalkennari hans var Viktor
Ebenstein, sem talinn er fremstur
píanóleikari í Wienarborg og auk
þess í fremstu röð píanóleikara.
Mun Ebenstein hafa taUð Neff
einna efnilegastan nemanda sinna.
Þrátt fyrir ungan aldur hefir
Neff ])egar ferðast. allvíða sem
píanóleikari. Hann hefir haldið
hljomleika í Wien og víðar í Aust-
urríki, Sviss, Hollandi og Svíþjóð
og a'lls staðar hlotið ágæta dóma.
Leikni hans er örngg og mikil, svo
mikil, að hún myndi vera hættu-
leg öðrum en þaulmentuðum og
þroskuðum listamanni. Tónmyndun
og hrynjandi er með ágætum. —
Allur flutningur ber vott um ríka
og ]>roskaða listgáfu og skap.
Þeir, sem ókunnugir eru at-
vinnumálum annara ])jóða, hljóta
að undrast, að slíkur maður skuli
hingað kominu, en því meiri á-
stæða er fyrir okkur til að gleðj-
ast yfir þeirri heppni okkar að-fá
hann hingað.
Píanóhljómleikar hafa verið
heldur fágætir hjer í seinni tíð,
svo að ástæða er til að ætla, að
menn' noti þetta tækifæri til að
hlýða á jafnfrábæran píanóleik-
ara og Neff. Auk ]>ess má ætla,
að mörgum leiki forvitni á að
kynnast manni þessum, sem hing-
að er kominn ti.l að taka þátt í
þeirri þörfu menningar og upp-
eldisstarfsemi, sem Tónlistaskól-
inn hefir gert að hlutverki sínu.
Verkefni á sunnudaginn verða
eftir Mozart, Chopin, Debussy,
Paderewsky og Liszt.
Ó. Þ.
Atvinnuleysi minkar í Eng-
landi.
London, 4. nóv.
United Press. FB.
Tala hinna atvinnulausu var þ.
26. okt. 2.726.092 eða 11.789 færri
en vikuna á undan.
ifflgtoHSMaOLSEMClSÍI
i. fl. KarMHinmJOl
er nn aftur fyririiggjaudi,
Fyrirliggjandi:
Allar tegundir af niðursoðnum ávöxtum bæði í heilum og
hálfum dósum.
Eggert Kristjáissoo & Co.
Símar 1317, 1400 og 1413.
Alaborgar rúgmjöl
og hálfsigtimjöl
seljum við mjög ódýrt.
H. Benediktsson & Co.
Sími 8 (fjórar línur).
ATVINNA.
Arðvænlegt fyrirtæki, sem gefur kaupanda góða og
hæga atvinnu, er til sölu nú þegar. Lysthafendur leggi
nafn sitt og heimilisfang í lokuðu umslagi inn á A. S. í.
fyrir sunnudag, 8. þ. m. Merkt: „ATVINNA.“
VETRARFRAEKAR
fyrir karlm., ungÞnga og drengi.
Mest og fallegast úrval. Lægst verö
jíaiafduijlina^ot
Góð kuölöstunð.
Mig langar til að benda bæjai'-
búum á, að þeir eiga kost á því
að njóta góðrar stundar í dóm-
Jvirkjunni í kvöld kl. S1/^.
Kirkjunefnd kvenna, sem starf-
ar að því að prýða kirkjuhúsið,
hefir með samsöngvum safnað fje,
sem varið hefir verið til skreyt-
ingar kirkjunni, eins og sjá má,
er lifið er á kórgólf kirkjunnar
og horft er á altarið blómum
prýtt. Nefnd þessi á þakkir skilið
fyrir sitt veglega starf, og er það
mjög gleðilegt, að hún hefir á-
valt átt því láni að fagna að geta
fengið fólk til aðstoðar, karla og
konur, sem með söng og hljóð-
færaslætti hafa veitt mörgum á-
nægju og gleði. ei' kirkjuhljóm-
leikar hafa verið haldnir ; dóm-
kirkjunni að tilstuðlun nefndar-
innar.
Er nú áformað að halda kvöld-
söng til stuðnings starfi þessarar
nefndar, og verður þar völ á
ýmsu, er eykur fróðleik og gleði.
Köngsveit kirkjunnar ætlar að
syngja andleg Ijóð. Verður söngn-
um stjórnað af Sigfúsi Einarssyni
o) ganleikara. Jón Guðmundsson
dtildarstjóri syngur eiiisöng og
síra Friðrik Hallgrímsson flytur
erindi.
Vona jeg, að öll sæti kirkjunnar
verði skipuð og að menn á þann
hátt styðji gott. málefni um leið
og þeir veita sjálfum sjer gleðh
Bj. J-
••••—^ ....
Sjóraannakveðja.
FB. 4. nóv.
Farnir áleiðis til Þýskalands. —>
Kærar kveðjur til vina og vanda-
manna.
Skipshöfnin á Hannesi ráðherra-