Morgunblaðið - 18.12.1931, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.12.1931, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ rowwaw Tæklfæriskanp. Höfum ljómandi falleg íslensk dagatöl í blokkum fyrir árið 1932 til sölu með mjög lágu verði. Hjer er sjerstakt tækifæri fyrir verslanir til að fá verulega smekkleg og ódýr íslensk dagatöl handa viðskiftamönnum sínum. Hafið Vim altaf handbært. Ein dós af Yim er sá vinur, sem best í raun reynist búkonu hverri. \ Óvið.iafnanlegt til að hreinsa, bvo, nudda o g fægja- málma, marmara, málningu, hnífa, leir, vjelar, glös, glugga, olíuborðdúka, baðker og \ látúnsmuni. Fyrir Vim hverfur ryð, ó- hreinindi, blettir, flekkir o.fl. Hreinsar og fægir alla hluti, rispar ekkert nje rákar. Pakkinn 25 aura. Hósin 60 aura. MV í-10 tfV»* BROTHERS UMITED. PORT SUNLIOHT. ENGLAND Fersteklasses norsk trelastfirma söker representant for Island. — Billet mrk. „Trevarer“, med utförlige oplysninger, indsendes til dette blads expedition. Hernaðarskaðabceturnar. Fyrir 12 árum gaf enski hag- fræðingurinn J. M. Keynes út bók sína: „The eeonomic consequenses og the peace“. Þar sýndi hann fyrstur manna fram á, að greiðsla hernaðarskaðabótanna mundi ekki eingöngu verða Þjóðverjum um megn, heldur líka lama atvinnulíf annara þjóða og jafnvel valda gjaldþroti í öllum löndum. Höf- undar friðarsamninganna hirtu ekki um viðvaranir hans. En nii hefir reynslan .sýnt að þær voru á rökum bygðar. Mitt í hinni ir.estu kreppu í veraldarsögunni er flestum utan Frakklands orðið ljóst, að hernaðarskaðabæturnar og stríðsskuldimar eru ein aðal- orsök heimskreppunnar og við- skiftastriðsins. Og almennur, var- anlegur bati í heiminum er ekki væntanlegur, fyr en skaðabóta og skuldamá'lin verða leidd til far- sælla lykta. Hinsvegar eru allar líkur til að ástandið muni versna . stórkostlega, ef úrlausn þessa máls dregst lengi. Einkum eru horfurnar í Þýska- landi iskyggilegar. Eins og kunn- ugt er, er greiðslufresturinn á stuttu verslunarlánum Þjóðverja útrunninn 29. febrúar 1932. — „Times'‘ segir, að lún stuttu lán þýska ríkisins, bankanna, iðnaðar- fjelaga og bæjarstjórna nemi 12 þúsund miljónum marka, en Þjóð- verjar geta ekki greitt þessi lán þegar greiðslufresturinn er á enda. Á einhvern hátt verða menn að breyta þeim í langt lán. En það er ekki hægt nema skaðabótamálið verði fyrst leitt til farsælla lykta. Annars verða Þjóðverjar gjald- þrota 29. febrúar. Og bíiast má við, að gjaldþrot í Þýskalandi myndi hafa markhrun í fiir með sjer, ef til vil'l valda byltingu og borgarastríði í Þýskalandi, og yfir- leitt liafa stórkostlegar og víðtæk- ar afleiðingar fyrir allar þjóðir. stjórnin hefir því beðið alþjóða- bankann í Basel að kalla saman sjerfræðinganefnd, sem á að rann- saka greiðslugetu Þjóðverja, þeg- ar þeir geta eklri g-reitt skaðabæt- urnar. Nefndin kemur saman í Basel 7. þ. m. Enginn vafi er á því, að Þjóð- verjar geta ekki haldið áfram að greiða skaðabæturnar. Þeir geta ekki greitt þær öðru visi en með útfluttum afurðum. Laytonnefndin sagði í skýrslu sinni í sumar m. a.: „Annað Iivort verða menn að strika skaðabætumar ilt eða þá að skapa Þjóðverjum möguleika til þess að auka útflutningsverslun sína“. En að undanförnu hafa verndartollar og önnur viðskifta- höft aukist stórkostlega og út- flutningsmöguleikar Þjóðverja minkað að sama skapi. Verslunarskuldir Þjóðverja, stuttar og langar, eru samtals um 23 þúsund miljónir marka. „Ber- liner Tageblatt“ hefir reiknað út, að vextir og afborganir af þessum skuldum muni nema 3000 miljón- um marka á ári. Búast má við, að tekjuafgangurinn af útflutn- ingsverslun Þjóðverja muni verða um 3000 milj. á þessu ári, eða sem svarar vöxtum og afborgunum af verslunarskuldunum. Þannig verð- ur ekkert afgangs til þess að greiða skaðabæturnar. Frakkar og Þjóðverjar hafa samið um skaðabótamálið síðan að Laval kom heim úr Ameríku- för sinni. Eins og menn ef til vill muna gekst Hoover fyrir ]>ví, á síðastliðnu sumri, að skaðabóta- greiðslunum var frestað frá 1. júlí 1931 til 30. júní 1932. Hinn 20. f. m. tilkynti þýska stjómin opin- berlega, að Þjóðverjar gæti ekki greitt skaðabætur samkv. Young- samþyktinni, þegar greiðslufrest- urinn er á enda 30. júní nk., því yfirfærsla skaðabótanna stofni gjaldeyri Þjóðverja í voða. Þýska Sjei-fræðinganefndin í Base'l á að senda hlutaðeigandi ríkisstjórn- um álit sitt, og svo verður haldinn fundur til þess að taka endanlega ákvörðun í málinu. Þjóðverjar heimta að skaðabæt- urnar verði að minsta kosti færð- ar niður að miklum mun. — En Frakkar virðast ekki ætla sjer að slaka til neitt að ráði. Frakkar segja að væntanlegar ráðstafanir í skaðabótamálinu megi aðeins vera bráðabirgðaráð- stafanir, þær megi aðeins gilda á meðan kreppan stendur yfir og þær verði að byggjast á fyrirmæl- um Youngsamþyktarinnar, því hún vei'ði að gi’lda áfram. Þjóðverjar eiga á komandi ári að borga 1600 miljónir marka í skaðabætur. Þessi upphæð skiftist í tvent. Skilyrðis- laust ársgjald, 600 miljónir og skilyrðisbundið ársgjald, 1000 miljónir. Frakkar fá skilvrðislausa árgjaldið svo að segja óskert. — SamkvæmtýYoungsamþyktinni geta Þjóðverjar fengið gjaldfrest á skil- yiðisbundnu upphæðinni. Henni er annars varið til þess að borga stríðsskuldir bandamanna við Bandaríkin. Franska stjórnin liugsar sjer að Þjóðverjar fái greiðslufrest á skil- yrðisbundnu upphæðinni, en ekki á skilyrðislausa ársgjaldinu, — Greiðslufrestur er þó vafalaust ónógur til þess að skapa að nýju traust á Þjóðverjum. En Frakkar vilja ekki færa skaðabæturnar nið- ur nema að Bandaríkin færi stríðs- skuldirnar niður. Þó getur nið- urfærsla á skilyrðislausu upphæð- inni, sejn Frakkar fá, ekki komið til mála, segir franska stjórnin. Eina leiðin út úr vandræðunum er því sem stendur sú, að Banda- ríkin gefi Bandamönnum upp stríðsskuldirnar að nokkuru eða öllu leyti. En þorir Hoover að beita sjer fyrir því nú, þegar forseta- kosningar í Bandaríkjunum fara i liönd ? Annars verða allár þessar um- ræður um skaðabótamálið ef til vill þýðingarlausar. Ef til viil komast nazistar til valda í Þýska- landi áður en skaðabótamálið verð- ur leitt til lykta. En nazistar ætla blátt áfram að neita að borga skaðabæturnar. — Og livað gera Frakkar þá ? Grípa þeir þá til þvingunarráðstafana eins og þeg- ar þeir 'hertóku Ruhrhjeraðið árið 1923? Jafnhliða sjerfræðingafundinum i Basel um skaðabæturnar er annar fundur haldinn í Berlín til þess að ræða um viðskiftaskuldirnar þýsku og reyna að afstýra gjald- þroti í Þýskalandi. Englendingar og Bandaríkjamenn eru aðallánar- drottnar Þjóðverja. Á siðastliðnum 10 árum hafa þeir lánað Þjóð verjum stórfje, til þess að þeir gætu greitt skaðabæturnar. Enskir og amerískir bankar verða því fyrir stórkostlegu tapi ef Þýska- land verður gjaldþrota. Frakkar heimta að greiðsla skaðabótanna gangi fyrir greiðslu verslunarskuldanna. En Englend- ingar og Bandaríkjamenn heimta að Þjóðverjar greiði viðskifta- skuldirnar fyrst. Og Englendingar benda Frökkum á það, að láns- traust Þjóðverja eyðileggist til fulls og Þjóðverjar geti aldrei greitt Frökkum hernaðarskaðabæt- urnar, ef Þjóðverjar verði gjalcl- þrota og greiði ekki verslunar- skuldir sínar. Frakkar halda þó fast við kröf- ur sínar. En þeim getur orðið hált á því. Að vísu drottna Frakkar enn bæði í stjórnmála- og fjár- málaheiminum. En valdi Frakka er farið að hnigna. Gengislækkunin í Englandi og tollastríðið hefir veikt aðstöðu þeirra að miklum mun. Tap frönsku bankanna af völdum gengislækkunar sterlings- pundsins vex stöðugt; nemur þús- undum miljóna franka. Frakkar geta ekki um aldur og ævi clrottnað í álfunni, haldið Þjóðverjum í fjötrum og verndað fyrirkomulag V ersalasamningsins, sem lamar atvinnulíf allra þjóða. Svo að segja allar þjóðir rísa nú öndverðar gegn Frökkum. Jafnvel Danir. Þeir hafa lagt háa tolla á munaðarvörur og bannað innflutn- ing á vínum, sem því nær eingöngu koma frá Frakklancli. Englendingar hafa nú gerst for- vígismenn í baráttunni á móti stjórnarstefnu Frakka. Enginn veit hvernig þessi barátta muni enda. Enginn vafi er á því, að enskur sigur mundi verða heimin- um til blessunar. Khöfn í des. 1931 Fiskíleit með hitamæli. í ameríska blaðinu „Reacler’s Digest“, er frá þessu sag't: „Vísindamenn hafa veitt. því eft- irtekt að þorskur og ýsa halda sig ekki að eins á vissu dýpi held- ur í hæfilega hlýjum sjó. Botn- vörpungaskipstjórar frá HuII og Grimsby nota því hitamæli til þess að leita eftir fiski og síðan hefir þessi aðferð breiðst út í Ameríku. Hafa amerískir skipstjórar farið til Grimsby og Hull til þess að kynnast henni.“ Þekkja sjómenn vorir þessa að- ferð? Það er ekki ósennilegt að hún kunni að geta gefið góða leiðbeiningu, því fiskigöngur fara Evershito heimsfrægu ritblý og lindarpennar fást hjá Bókav. Sig. Krist- jánssonar, Banka- stræt', Johs. Norð- fjörð, Laugaveg 18 og E. P. Briem. Þrátt fyrir iunflntningshöftin, ’ hefir undirrituð verslun aldrei ver- ið birgari en.nú af alls konar vör- um. Get elcki talið neitt upp að ráði í stuttri auglýsingu. Vil að eins benda á svellþykkt sauðakjöt og glænýtt, pinklasmjör úr Borg- arfjarðardölum á 1.50 pr. y2 kg. Sendið eða símið beint í Björnian. Alt sent heim. Sími 1091. Ódýrir ðveztlr. Epli i/2 kR. 0.75, 1.00, 1.15. Appelsínur, 0.15, 0.20, 0.30. Bananar. Vínber. Gleymið ekki börnunum þyrir jóJin, í dag og næstu daga er jfækifæri til að fá góða klippingu fyrir börnín á rakarastofu Einars Olafssonar, Austnrstræti 5, beint á móti IsafoHdarprentsiniðju. mikið eftir hlýindum sjávarins. 1 æri fróðlegt að athuga hita sjáv- arins við botninn. þar sem vel veiðist. Námuslys í Englandi- 8eint í nóvembermánuði varð sorglegt slvs í hinni svokölluðu Bentley-kolanámu í Englandi. — Sprenging varð í námunni og kom upp eldur í henni. Fórust þar 42 menn en margir slösuðust meira og minna, t, d. mistu 5 menn sjónina. Lík þau, sem náðust voru svo brunnin að enginn gat þekt >au. Seinast voru fimm menn eftir n.iðri í námunni og var ekkert viðli't að bjarga, þeim vegna þess að eldhafið var á milli þeirra og útgÖngunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.