Morgunblaðið - 19.01.1932, Page 4

Morgunblaðið - 19.01.1932, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ To trawler skippers visiting Grímsby. Wireless HnU sbips stores Co. Limited. Telegraphic address: Chandlers, Hnll And thelr represent-tíve will meet vessel on arrival. B Nýtt! Frönsk brauðblúm á kjóla ög blús&ur í fallegu úrvali. Rigmor Hansen, Aðalstræú 12. Nýlagað fiskfars og nýreyktur fiskur fæst daglega í Kjöt. & Fisk- metisgerðinni, Grettisgötu 64. — Sími 1467. Þakkarávarp. 13. þ. m. á 88. afmælisdegi mín- um sendu nokkrir vinir mínir mjer vönduð og dýr ntvarpstæki, sem mjer eru livort tveggja i senn, ti! fróðleiks og skemtunar. Fyrir þessa höfðinglegu gjöf, skeiti og' lieimsóknir, votta jeg öllum, sem þar áttu hlut að máli mitt innileg- asta hjartans þakklæti. Skildinganesi, 16. jan. 1932. Eiríkur Guðmundsson. Nýstrokkað smjðr fré mjólkurbúi okkar, er nú ávalt á boðstól- um í öllum okkar mjólk urbúðum, svo og versl uninni LIVEBPOOL og útbúum hennar. Mjólkurfjelag Reykjavfkur. Hnnið A. S. I. □agbók. I. O. O. F. = 0. b. 1. P. = |1131198V4 — Veðrið (í gær kl. 5 síðd.): — Á sunnudagskvöldið var óvenjulega djúp lægð (705 mm.) og krappur stormsveipur við S-strönd tslands; olli hann A og NA stormi um alt land, en fór svo hratt yfir að ó- veðrið varð ekki langvint. — í lcvöld er sveipurinn kominn norð- austur um Finnmörku í Noregi, enda er víða SV-rok á vestur- strönd Noregs norðanfjalls. Hjer á landi er nú veður stilt og aðeins nokkur snjólsoma á Aust fjörðum, Yfir Grænlandsháfi er fremur grunn ilægð, sem hreyfist mjög hægt úr stað, en mnn þó valda nokkuð vaxandi SA-átt á SV- landi. Veðurútlit í Reykjavík í dag: Stinningskaldi á SA. Dálítil snjó- koma og hiti um frostmark. Jarðarför Baldurs Sveinssonar, fer fram í dag, og hefst með hús- kveðju á heimili hans, Laugaveg 66, blukkan 1 e. hád. Austfirðingur, blað Sjálfstæðis- manna á Austurlandi fæst á af- greiðslu Morgunblaðsins. — Þrjú blöð eru nýkomin. Sigurðiu: Birkis, söngkennari er nýkominn hingað til bæjarins frá Seyðisfirði, en þar hefir hann dvalist um hríð á vegum söngfje- lagsins „Braga“, og kendi söng þar eystra. Afturhaldið í sinni rjettu mynd. Laugardaginn 28. nóvember s.l. var þingmálafundur haldinn að Egilsstöðum á Völlum. Fundur þessi mun hafa verið boða.ður að tilblutan nokkurra tryggustu fylg- ismanna „Framsóknar“ í Múla- þingi, og mætti þar einlit hjörð. Á fundinum mættu einnig þing- mennirnir Páll Hermannsson og íngvar Pálmason. 1 kjördæmamál- inu var samþykt svo hljóðandi tillaga: „Fundurinn skorar á Al- bingi að halda fast við þá kjör- dæmaskipun sem nú gildir, og hvika í engu frá henni“. Heyrst hefir, að Sveinn Jónsson á Egils- stöðum hafi borið tillögu þessa fram. Hann virðist hafa góðan skilning á því, hvað Afturhald- inu kemur best. Geta má þess. í viðbót við fregn þessa, að það var á „Framsóknar“-fundj að Egils- stöðum í fyrra, sem samþykt var að ríkisskuldirnar hefðu ekkert liækkað í tíð núVerandi stjórnar!! í Ártúnsbrekku ljeku sjer um 4—500 manns á sunnudagsmorgun síðastliðinn. Skíðafjelagið hafði auglýst, að norski skíðakennarinn H. Torvö, ætlaði að sýna þar ýmsar skíðaæfingar. Var búinn til stallur í brekkunni og sýndi Torvö þar stökk og skemtu menn sjer hið besta við að horfa á hann. Einnig sýndi hann livemig á að standa á skíðum, ganga upp brekkur og fleira. Tóku nú ýmsir skíðamenn að stökkva fram af stallinum, og vakti sjerstaka eft; irtekt stökk 13 ára drengs, Björns Ólafssonar Blöndals. Er leið á daginn gerði versta veður, svo að skíðafólkið varð að hverfa heim og hætta við Vífilsstaðaferðina. Fiskiskipin. Frá Englandi hafa komið þessir togarar: Snorri goði, Draupnir, Valpole, Belgaum, Skúli fógeti og Sindri. Ver ltom inn í fyrri nótt irieð slasaðan mann; fór aftur á veiðar. Útva'rpið í dag: 10,15 Veður- fregnir. 16.10 Veðurfregnir. 19.05 Þýska, 2. fl. 19,30 Veðurfregnir. 19,35 Enska, 2. fl. 20,00 Klukku- sláttur. Erindi: Áfengið og þjóð- arbviskapur. (Pjetur G. Guðmunds son). 20.30 Frjettir. 21.05 Grammó fón hljómleikar. Pianosóló: Prélu- des og Fugues nr. 3 og 4, eftir Bach, leikin af Harriet Colien. 21,20 Upplestur. (Grétar Ó. Fells) 21.35 Grammófón hljómleikar. Kvartett, Óp. 18, nr. 3, eftir Beet- hoven. Minningaspjöld Landspítalasjóðs íslands fást á þessum stöðum: á Laugavegi 37, hjá frú Lilju Kristj- ánsdóttur, í versluninni „Chic“, Bankastræti 4, og í Túngötu 2, bakhúsið, hjá frú Ólafíu Lárus- dóttur. einnig eru samúðarskeyti sjóðsins afgreidd daglega á Land- símastöðinni, allan starfstímann. Samúðarskeytin má senda til ým- issa stöðva úti um land, svo og innanbæjar. Fyrstu styrkveitingar úr sjóðn- um voru veittar í marsmánuði síðastliðið ár. — Á liðnu ári var alls veittur styrkur að upphæð kr. 3644.00, Skipulagsskrá sjóðs- ins mælir svo fyrir, að ekki megi veita minni upphæð en Ys hluta sjúkrahússkostnaðar, og er það vitanlega fátækum sjúklingum mikil lijáp. Styrkveitingar sjóðs- ins liafa þó alloft farið langt fram úr lágmarksákvæðinu; í nokkurum tilfellum liafa sjúklingar fengið allan sjúkrahúskostnað sinn greidd an, og hefir það bjargað mörgum frá að þurfa að þiggja af sveit. Þótt starfstími Minningargjafa- sjóðs' Landsspítalans sje enn eigi langur, er ]iað þegar augljóst, að sjóðurinn liefir mikið og gott lilut- verk að vinna. Hann verðskuldar liylli almennings, enda hefir hann notið hennar hingað til. Er því 'kki síður ástæða til að ætla, að hann muni halda vinsældum sín- um nú, er hann er byrjáður að 'iia af hendi sitt mikla og góða mannúðarstarf. Germamia heldur fund í Iðnó, uppi, miðvikudaginn 20. þessa mán aðar klukkan 9. Herra stud. Hel- muth Schwabe heldur fyrirlest- ur um Gleriðnaðinn í Jena. — Kaffidrykkja og dans á effir. Kristileg samkoma á Njálsgötu 1, kl. 8 í kvöld. Allir velkomnir. Loksins vaknaðir. Á þingmála- fundi að Egilsstöðum á Völlum 28. nóvember síðastliðinn, ]iar sem saman var komin nál. einlit ,Fram- sóknar‘-lijörð, var samþykt í einu liljóði svo liljóðandi tillaga: — ;,Fundurinu lítur svo á, að síðasta þing hafi sýnt alt of litla gætni við afgreiðslu fjárlaganna, þar scm þau voru samþykt hærri en nokkuru sinni áður og með tekju- haila, þrátt fyrir þá yfirstandandi fjárhagsörðugleika, sem atvinnu- vegir þjóðarinnar eiga nú við að búa og svo eru þungbærir, að Jieim liggur við hruni. Skorar því fundurinn mjög alvarlega á næsta Alþingi að sýna ítrustu varfærni um afgreiðslu fjárlaganna fyrir árið 1933, áætlá tekjur varlega^ stilla gjöldum svo í lióf, sem unt er og afgreiða þau alls ekki með iekjuhaltla". Er það vel farið,. að jafnvel tryggustu fylgismenn stjórnarinnar skuli vera farnir að víta fjármálastefnu þingmeiri- hlutans, þó betra hefði verið, að þeir hefðu vaknað fyr. Dr. Justesen, sem getið var um hjer í blaðinu nýlega, að lagt- hefði á fjallgöngur, ásamt konu sinni, var á Kálfatjörn er seinast frjettist til hans. Þau hjónin vora í tvær nætur í tjaldi sínu nálægt Kaldárseli, en hurfu síðan frá þeirri ætlun, að fai'a suður yfir Sveifiuhól.s, og sneru til Hafnar- fjarðai'. Ljetu þau vel yfir tjald- vistinni. Frá Kálfatjörn ætluðu þau til Grindavíkur, þaðan út á Iíeykjanes. Það mun vefa ætlunt þeirra, að vera eina 3—4 mánuði á ferðalagi um landið, Skjaldarglíma Ármanns verður háð í Iðnó mánudaginn 1. febrúar. Kept verður um nýjan skjöld og: bikai', sem verður veittur fyrir- fegurðarglímu. Keppendur skuliu hafa gefið sig skriflega fram við< formanns Ármanns, Jens Guð- björnssonar, eigi síðar en ’25. jam. Dánarfregn. Nýlega er látinn hjer í bænum Tómas Klogh Páls- ::on. Hann var fæddur að Pálsbæ á Seltjarnarnesi og dvaldist hjer í bænum allan aldur sinn. Tómas heitinn var einstakt Ijúfmenni tíl orða <<g verka, og var öllum lilýtt til hans, sem einliver kynnf höfðu af lionum. Fyiirspurn svarað. Samkvæmt ósk, vottast hjer með, að Samband ísl. samvinnu- íjelaga, Reykjavík, skuldar hvorki Lando-verslun eða vara- sjóði hennar. Var það skuldlaust þegar hún hætti verslunarstarf- semi sinni og hefir ekki skuld- að henni síðan. Reykjavík, 18. janúar 1932. f.h. Landsverslun Islands. Gísli ísleifsson (endurskoðandi). G. Kr. Guðmundsson (reikningshaldari). í smágrein í Morgunblaðinu 15. þ. m. er þess getið, að með- al eigna ríkissjóðs sje talinn varasjóður landsverslunar að upþhæð yfir milj kr. en að ]>essi „sjóður“ muní vera útistand- andi skuldir. í 'sámbandi ' við þetta var spurt um hvar skuld þessi væri, hvort S. I. S. mundi skulda þar um hálfa miljón. Nú er upplýst, að S. 1. S. skuldar þar ekki. En hvar er skuldin? Og hvers vegna er hún ekki inn- heimt? Dutlunvar ðstarinnar. Hún gekk tíl dyranna sem lágu að herbergjum hans. Litlu áður hafði Nadina farið inn um þessar sömu dyr blygðunarlaus útlits og með augnaráði sem Myrtíle hafði skilið að nokkru, þrátt fyrir sak- leysi sitt og fábreytta lífsreynslu. Ljettúðugur hláturinn og háværar raddirnar hljómuðu enn þá fyrir eyrum hennar. Svo hjelt hún áfram inn í dagsofuna. Gerald fór með henni og ljet aftur hurðina á eftir sjer. Fiðluhljóðið lieyrðist varla. Myrtíle hanst hún alt í einu verða alveg afllaus. — Þú ert ])reytt, sagði Gerald áhyggjufullur. Hún lagði hendurnar um háls hans eins og þreytt og fyrirhyggju- laust barn. — Gerald, hvíslaði hún, taktu mig að þjer. Jeg er svo hrædd — ó þú verður að vera góður við mig. Varir þéirra mættust, en dular- fullur ylur fyrsta kossins var nú horfinn. TTn)bvet'fið ljet þau finna sárt til ósamræmis. —- Andrúms- loftið var mengað af ilmefnum ó- kunnra kvenna. Nadina hafði slitið silkiband af aflöguðum fötum sín- um, og hent þvýhirðuleysislega á legubekkinn. — En þrátt fyrir alt betta færðist undra friður yfir hana, er Gerald hallaði sjer að henni; — Eins og hún hyrfi í haf- djúp óumræðilegrar sælu....... Svefnherbergishurðinni var svift upp og síðan skelt aftur allharka- lcga og Kristófer stóð frammi fyrir þeim. Hann var dálítíð móður, liafði auðsægilega hlaupið upp stíg- ann. Andhtíð var fölt og Myrtile og Gerald hörfuðu ósjálfrátt und- an augnaráði hans. Gerald skyldi allar ástæður fylli- lega, en hann varð gripinn af ó- skiljanlegum ótta sem hann hafði aldrei fundið áður. Eftir stundarþögn spurði Kristó- fer með dásamlegri stíllingu: — Gerald — ætlaðir þú að ganga bak orða þinna? . — Já, svaraði Gerald, liálf hás- um rómi. Þú skalt hætta þessari Don Quichote aðferð Kristófer. — Jeg er að verða leiður á henni. Kristófer kom skrefi nær. — Myrtile fer með mjer heim til sín, sagði liann. Á morgun fer hún til Englands. Systir þín hefir lofað að annast um hana. — En þetta er fjarstæða, liróp- aði Myrtile æst. — Það er afráðið svaraði Kristó- fer óbifanlegur. Jeg fór heim til þín Myrtilc og þar laug Anette því að mjer að þú værir háttuð og sofnuð. Jeg bað hana þá fyrir skilaboð. Og í fyrsta sinn síðan jeg kom hingað, fór jeg í klúbb- inn og var þar lengi. En þegar jeg kom heim, heyrði jeg að gest- irnir þínir voru að skrafa um fram- úrskarandi heppni þína, Gerald. Gerald tók í liönd Myrtiles. — Og hvað liefir þú svo í liyggju — ef jeg má spyrja? — Að fara með Myrtile lieim til sín. — Þú færð það ekki. Hún verð- ur hjer. Kristófer leit á Myrtile. Hún hjelt dauðahaldi í Gerald, eins og hrætt barn. — Við höfum verið vinir alla okkar æfi. Gerald. Jeg lield við þekkjumst sæmilega. Að minsta kosti veist þú. að jeg .héld orð mín. Og jeg veit að þú ert í eðli þínu meira verður heldur en ætla mættí eftir einræði þínu og laus- lætisskemtunum. En nú dregur að úrslitum Gerald. Viltu láta Myrtile fara með mjer? — Hún skal kjósa sjálf, svaraði hann. — Alls ekki! svaraði hinn á- Vveðinn. Þú gætir jafn rjettilega beðið hana að segja' ])jer td vegar í alókuniíugri stórborg. Jeg kom ekki Ihingað til þéss að ásaka þig eða Myrtile — ja, vonandi skilur hún nú ekkert? Guði sjé lof að jeg kom hingað nógu snemma! — Myrtile farðu í kápuua. Hún ríghjelt sjer í Gerald og horfði kvíðafull í andlit hans. Það var eins og ósamræmið sem þau fundu áður, hefði aukist. Hún le-it á þá á víxl. Gerald var meði krepta linefa og þótt Kristófer- virtist rólegur, þá var sem falin ógnun í fasi hans. — Mig langar ekkert tíl að ríf- ast við þig, hjelt Kristófer áfram.. og jeg vona að þú stofnir ekki til þess., Gerald. Þú veist, að á- kvörðun mín er sú, að fara ekki hjeðan án Myrtile. Þú veist sjálf- ur bvað það þýðir. —• Sennilega það, að þú varst besti hnefaleikarinn í háskólanum.. gði Gerald. — Einmitt! og nú bið jeg þig: Gerald, láttu þetta ekki fara svo. langt------. Myrtile verðnr að fara með mjer. Sennilega koma þeh- tímar, að jeg verð ekki þrándui- \ götu ykkar — —. En í kvöld. verð jeg að ráða-------'MjTtile!. Hún laut niður og tók kápu sma. Kristófer hjálpaði henni í hana. En herðar hans sltulfu,. þegar hann snerti þetta fíngerða efni. Það var eins og hann vildi ekki niðurlægja sig’ til þess að snerta á því! — Ertu svo tilbúin Myrtílef — spurði hann. Enn þá einu sinni leit liún á Gerald. Henni sýndist hann vera orðinn svo fjarlægur — og alt í' einu tók hún eftír einhverju í svip- lians, sem mintí hana á nautna- sjúka ruddasvipinn á gestum hans.. Hann tók vindling úr veski sínu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.