Morgunblaðið - 17.02.1932, Page 2

Morgunblaðið - 17.02.1932, Page 2
M O R GtTN BX AÐIB Flugsamgöngurnar. XTm miðja öldina sem leið var gerður út mikill leiðangur hingað til lands, og til Grænlands til þess fið rannsaka, hvort tiltækilegt þætti, að koma símasambandi á mílli Evrópu og Ameríku þessa leið. Þá þótti ófært, að leggja síma yfir þvert Atlantshaf. — Tækni manna og þekking ekki lengra komin. Þó blossuðu upp vonir manna hjer „á hala veraldar11 um það, að fyrir tilverknað óviðkomandi stór- þjóða kæmist ísland í símasam- band vjð umlteiminn. Fyrir nokkrum árum, er farið var að tala um reglubundnar flug- ferðir yfir Atlantshaf, fengu menn auga á sömu flugleiðinni, og hinni gömlu fyrirhuguðu síma leið. En margir hafa litið svo á, sem h jer . myndi fara á sömu leið og með símann, tækni manna fleygði svo frarn, að farið yrði beint yfir bafið er til kæmi. Óþárfi er að rekja það fyrir ís- lenskum'lesendum, livað gerst hef- ir í tilraunum manna til flugs þessa leið. Menn muna ameríska f'lugið 1924. Þá komust tveir flug- menn vestur. Einn datt niður ná- lægt Færeyjum. Locatelli hinn ít- alski ,komst hjerna vestur í Græn- landshaf. Þar var hann fiskaður upp heill á húfi. þá muna menn Ahrenberg, er hjer var „góða stund“ eins og í vísunni stendur. A flugv.jeJ lians var málað með skýrum stöfum: „Flugpóstur — Stokkhólmur —• New York.“ Hann varð bensínlaus við Skaptárós. — Komst eftir margar vikur vestur í mitt Davíðssund og fór sjóleiðis heim um haustið, með póstinn til New York. Hirth komst til Kald- aðarness. Það töldu menn viljað hafa honum til lífs, að Grænlands- stjórn neitaði honum um leyfi til landtöku í Grænlandi, svo hann sneri hjer við. ílassel ' kom að vestan, lenti á Grænlandsjökli og týndi vjelinni. Cramer komst yfir Grænland seinna, en týndist við Orkneyjar. Það er Luft-Hansa maðurinn v. Gronau, sem kom- ist hefir ferða sinna þessa leið, eins o.g hann hefir ætlað sjer. En það eftirtektarverðasta við alian þenna barning er, að enginn flugmaður hefir enn farist á norð- nrleiðínni, því Cramer var kominn inn á venjulegt flugsvæði Evrópu er haiin fórst, og kemur því ekki málinu við. Þrátt fyrir óhöpþin, illan út- búnað stundum og glannaskap oft- ar, hefir ekkert- mannslíf týnst á þessari leið. Er hjer ólíku saman að jafna eða flugleiðinni yfir þvert Atlantshaf. Þar hefir fjöldi manna fa rist. loftið á tækjum, sem þyngri eru |cn Joftið. er það augljós hagur, að þurfa ekki að hafa nema sem minst jaf brensluefni með sjer í einu. Ir lugvjelar, sem fara um þvert At- lantshaf, geta lítið sem ekkert ann- að tekið með sjer af stað, en olíuna. Flugleiðinni milli Chicago og Evrópu á að skifta í 10 áfanga, ýftir því sem Guðm. Grímsson skýrði frá í Mbl. í gær. En svo kemur annað til greina. Kostirnir við það, að geta haft marga áfangana, rýrna ekki við það, að lögð sje mikil lykkja á ieiðina milli Chicago og London, þó farið sje um Island. Menn eiga erfitt með að átta sig á þessu nema á hnattlíkani. Reykjavík, t. d. er mjög skaimt frjt stystu loftleiðinni milli iChicago og London. Vilhj. kStefánsson hefir haldið því fram, að eigi væru meiri erfið- leikar á flugi í norðlægum löndum, en í suðlægari löndum, með mild- ara loftsfagi. Athugunum hans á jiví sviði hefir verið veitt eftirtekt vestra. Og reynsla undanfarinna ára hefir vafalaust styrkt kenning- ar hans. Hjer á íslandi t. d; hafa engin flugslys enn komið fyrir. Og þá koma kostir flugleiðarinn- ar um ísland og Grænland ti’ jrreina. Meðan á annað borð er farið um Að þessu athuguðu verður það sýnilegt, að hugvit þeirra manna og starfsorka, sem vinna að því að gera flugvjelar nothæfar til ör- uggra langferða, beinist einmitt að því, að gera þessa færustu flug- póstferð færa heimsálfanna á milli. Viðbúið er, að menn vantreysti því, að óreyndu, að farið verði á næstu árum daglega og á 1—2 sól- arhringum milli Rvíkur bg Chi- cago. Að þotið verði vestur yfir Grænlandsjökul eins og lítilfjör- legt haft á leiðinni. Að Reykjavík verði aðalmillistöð í daglegum, póstferðum milli stærstu borga í heiminum. Hefir hugvit manna og tækni ekki tekið þeim framförum á síð- ustu árum, að óvarlegt sje að þver taka fyrir hvað gerast kunni — þegar hugvitið getur tekið ame- ríska auðvaldið í þjónustu sína. Því Bandaríkjamenn eru ekki að undirbúa daglegar ferðir milli álf- anna rjett, að gamni sínu. Þeir ætla að bæta póstsamgöngurnar. Nú er liægt, að koma pósti á 4—5 dögum yfir hafið, með stærstu skipunum, og með því að láta flugmenn taka sig upp frá skip- unum í hafi, er þau nálgast Ame- ríkuströnd. En þá kemur til greina biðin milli skipsferða. Hjer á að haldast óslitinn póstflutningur alla dága, loftleiðina. Cltuegsbankinn reikningsskil hans. Transamerican Airlines C'orpora- tion sækir um leyfi til að byggja hjer flughöfn, flugskála, -loft- skeytastöð, leggja hjer nokkra tugi eða hundruð þúsund dollara í kostnað eða miljónir þegar alt kemur t.il alls, til ]>ess að ísland komist í daglegt póstsamband við löndin boggja megin hafsins. Alt ]>arf vitanlega að vera form- legt og löglegt. En allur almenningur mun lít.a svo á, sem leyfi til slíkra fram- kvæmda ætti ekki að verða tor- sótt frá íslendinga hálfu. •Tafn vel hið lokaða nágranna- land okkar, Grænland, hlýtur að opnast, ]iegar slíka gesti ber að garði. Fraœncknarf iel r g Reykiavíkur heldur fund í kvöld kl. 8% í Tðnó uppi. Rjá nánar auglýsingu í blað- inu í dag. Sjómannakveðja. FB. 16. febr. Farnir til Englands. Kærar kveðj- ur fil vina og vandamannav Rkipverjar á \'alpole. Eins og allir, bæði h'luthafar og aðrir, hafa veitt eftirtekt, hefir lltvegsbanki íslands h.f., vanrækt að birta jafnaðarreikninga sína fyrir mánuðina ágúst, september og október síðastliðið ár. Sem einn hluthafi þessarar stofn- unar fanst mjer jeg hafa heimild til að óska eftir að fá að sjá reikningsskil fyrir þetta tímabil, Og sneri jeg mjer því hinn 12. desember s.l. til bankastjóra H. P. Briem og fór þess á leit við hann, að reikningarnir væri birtir eins og lög mæla fyrir, en til vara, að injer væri látið í tje eftirrit af þeim, ef birting einhverra hluta vegna væri ekki orðin tímabær. Skal þess getið, að vjer virtist fyrst í stað koma á bankastjórann hik eins og þann, sem ekki vissi hverju svara ætti, en tók hann sig þó brátt á og vísaði mjer til bók- haldsins, sem svaraði eins og vænta mátti, því ekki ber það neina á- bjmgð á, hvort reikningar eru birtir eða ekki. Þann 21. desémber skrifaði jeg bankanum og óskaði brjeflega svars um birtingu eða afrita af reikningum bankans umgetið tíma- bil, og lagði jeg með frímerkt um- •slag undir svar. Ekkert svar var komið við þessari málaleitun hinn 14. janúar, og ítrekaði jeg þá þessa kröfu mína með nýju brjefi. Bæði brjefin vóru send sem á- byrgðarbrjef. Það vekur ekki litla undrun hjá m.jer, að jeg skuli ekki enn þá hafa fengið neitt svar, því svo virðist sem það ætti að vera út- látalítið fyrir stofnunina að verða við þessum tilmælum mínum, ekki síst þegar þess er gætt ,að það þarf ekki að kosta bankann, sem jeg veit að er peningalítill ,nein fjárútlárt, þar. sem jeg hefi sent frímerki undir svar og dregið með því úr. rekstrarkostnaði lians. En hvað er það þá, sem veldur þess- ari tregðu? Mjer finst þessi þögn og dráttur á svari bankans geta verið var- hugaverður fyrir álit stofnunar- innar sjálfrar. Því verður ekki neitað, að þetta getur orðið til ]>ess, að grunur vakni hjá alþjóð inanna um að líjer sje ekki alt eins og ætti a.ð vera, jafnvel eitt.hvað, sem dylja þurfi, en með svari sínu er bankanum gefinn kostur á að koma í veg fyrir slíkt. P. Stefánsson, Þverá XXXVT. Hjá Iækninum. \ 'r augnlæknis kom kar] með mjög skerta sjón á öðru auganu, en var heilskygn á hinu, Hann Inpurði lækrii hver.ju þetta mundi Isæta. Læknirinn leit á veika augað jog kvað þetta sjúkdóm sem staf- aði af elli. j Þá ságði karl: — Þetta augað er nú ekkert eldra en' hitt. Námskeið í saumaskap og mat- eiðslu verður haldið í Hafnar- firði og hefst 20. þ. mán. í Strand- götu 41. TIP-TOP hreinsar þrottin best TIP-TOP inniheldnr ekki klór. TIP-TOP er drýgst i notknn. TIP-TOP er ódýtt. TIP-TOP er framtioar-þTotlaefnið. Reynió TIP-TOP þTottaefnið. Fæst Tíða. Jirðln Engey (tveir þ.riðjupartar), er til leip,-u eða sölu. — Upplýsingar í síma 31, eða 520. Islendingar I Hafið þér athugað með sjálfum yður, hvað það er, að vera sannur Is- lendingur, og hvað er að vera það ekki? Hafið þér veitt því eftirtekt, að t. d. Norðmenn hér á landi kaupa eingöngu norskar, Danir einungis danskar, Englendingar einvörð- ungu enskar tóbaksvör- ur? — Því ættuð þér þá að kaupa annað en íslenzkan kaffibæti, sem er fyllilega jafn-góður erlendum tegund- um. — Fálkakaffibætirinn (í bláu umbúðunum) kostar að eins 55 aura stöngin. Heildsölubirgðir hjá HJALTA BJÖRNSSYNI & CO. Símar 720—295. IskoTknrsns Sor Lær • re oy Lærerinder. For at hringe Lærere og Lærerinder i Forbindelse med Folkehöj- skolens Syn paa Opdragelse og Undervisning holdes i Askov i Maaned- erne Maj, Juni, Juli udvidet Höjskole for Lærere og Lærerinder) som allerede er i Virksomhed, eller som har en Læreruddannelse bag sig. Undervisningen, der vil blive meddelt i Foredrags form i Samtale- timer og Studiekredse, vil omfatte: Dansk Sprog og Litteratur, fremm- ede Sprog, Historie, Kunsthirtorie, Samfundslære, Gcografi, Naturfag, Sandhedslære, Matematik, Regning, Pædagogik, Pyskologi og Sang. I Foredragsrækker vil der dels blive gjort Rede for Hovediinier i Historie, Litteraturhistorie og Naturvidenskab, deTs for vor Tids pædagogiske og psylcologiske Indstiiling. Kursuset koser alt inbefattet (Undervisning, Kost og Logi) for tre Maaneder 180 Kr. — Ansögning om Optagelse indsendes til Höj- skolelærer C. P. 0. Cliristiansen, Askov, Vejen, Danmark, hos hvem Undervisningsplan og nærmere Oplysninger kan faas. J. Th. Arnfred. C. P. 0. Christiansec. á morgnn kl. 8 j2: SUfuröíikiurnar. Sjónleikur í 3 þáttum eftir John Galsworthy. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó (sími 191) í dag kl. 4—7 og eftir kl. 1 á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.