Morgunblaðið - 25.02.1932, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 25.02.1932, Qupperneq 3
MORGrN B T Af)lH » Rífcisdbyrgð á ínnstceðufje Útuegsbanka íslanðs. Frumvarp um þatta efni varö aö lögum í gær. * : H.f. Arvakur, Reykjavtk. ? ktlt.tjðrar: Jön KJartanaaon. V’altýr Stefánaaon. J Rltetjörn og afgrreinala: Auetur.trætl 8. — Slml 100. * Auglý.lngra.tjörl: H. Hafbers. '9 ^ Augrlýelngaakrlfatofa: i Auaturatrætl 17. — Slml 700. * Hetmaifnar; $ Jön KJartansaon nr. 741. <3 Valtýr Stef&naaon nr. 1110. H. Hafberc nr. 770. f Aakrlftagjald: <• Innanlanda kr. 8.00 á mánnSt. Utanlanda kr. 1.60 & nánutL í lauaaaölu 10 aura elntaklB. * 10 aura m( laaHk. Cltuegsbankinn. I>. 3. febrúar 1930 fór banka- xáð Islandsbanka fram á það við Alþingi, að fengin yrði rík- isábyrgð á innstæðufé bankans. I>ví var neitað. Tímaklíkan reis upp með of- forsi. Talað var um, að þá hefði •átt að smeygja ábyrgð á tugum miljóna um háls þjóðarinnar, um „stærsta gjaldþrotabú Is- lands", o. s. frv. Margir innstæðueigendur ís- landsbanka höfðu undanfarna <iaga tekið fé sitt úr bankanum. Ástæðan til þess, rógur um bank ■ann utan lands og innan. — Og Ríkisábyrgð var komin á inn- stæðufé Landsbankans tveim ár- um áður. Ríkisábyrgð á innstæðufé í einum banka fremur en öðrum, verkar sem segulmagn á sparifé manna, meðan traust er á gjald- getu ríkissjóðsins. Þetta er svo auðskilið fjár- hagsmál, að jafnvel Tímamenn geta skilið það, eftir nokkurra ára reynslu. Síðan Útvegsbank- inn var settur á laggirnar, hefir verið stofnaður annar banki með ríkisábyrgð, Búnaðarbankinn. — Ríkisábyrgðarlaus hefir Útvegs- bankinn orðið að starfa, með sinn bankann á hvora hlið, með ríkisábyrgð á innstæðufje. Til þess að þetta gæti blessast þurfti ábyrgðarlausi bankinn að hafa svo mikið traust umfram hina, að það væri nægilegt til þess að vega upp forrjettindi keppinautanna. En bankanum hefir ekki tek- Ist að ávinna sjer það traust. Verkin sýna merkin. Innstæðu- fjeð hefir minkað um 3 miljónir síðan bankinn tók til starfa. Og að því kom, að bankaráðið til- kynti fjármálaráðherra með hrjefi þ. 22. þ. m., að bankinn gæti ekki starfað nema ábyrgð- arjöfnuður fengist milli hans og hinna bankanna. Svo mikið fje hafði verið tekið úr bankanum undanfarna daga. En eins og hinn eini ábyrgðar- lausi banki var frá öndverðu í augsýnilegri hættu, eins hefir það verið fyrirsjáanlegt nú í vet- ur, að hverju stefndi, í náinni framtíð. Traust manna á bankanum hef- ir farið rýrnandi. Á þajð hefir fjármálastjórn landsins horft aðgerðarlaus. Um bankann hafa gengið sögusagnir ! allan vetur, sem eigi hafa verið gerðar hjer að umtalsefni í blað- inu. Morgunblaðið hefir ekki viljað auka á þann sögusagnaelg fram að þessu. Sá eini maður, sem hefir öll gögn í hendi, fjármála- ráðherra, hefir þagað. — Hann hefir ekkert aðhafst. Hann hefir sjeð á eftir sparifjenu úr bankan um. Hann hefir ekkert gert til þess að styrkja bankann, ekki mótmælt traustspillandi sögusögn um um hann. Ekki neitað þeim. Ekki rjett stofnuninni líkn arhönd með því að taka í taum- ana. — Þó yar sýnilegt, að lítið þurfti til til þess að ríkisábyrgðarlaust sparifje tæmdist úr bankanum. Hvers konar órói um bankann gat riðið baggamuninn að ó- fenginni ábyrgðinni. — Með rógsherferð Tímans í fersku minni, gegn Islandsbanka, vill Morgunblaðið ekki leika þann leik, að veikja starfsþrótt pen- ingastofnana landsins, þegar sýnilegt er, að þeim er hætta bú- in. — Ríkisábyrgð á innstæðufje banka er auígsýnilegur styrkjur starfsemi hans. En svo mikla vantrú geta menn fengið á banka, að ríkisábyrgð- in sje ekki nægileg fyrir fram- haldstarfsemi hans. Almenningur hefir tekið á- byrgð á innstæðufje Útvegsbank- ans. Almenningur lætur sjer ekki á sama standa, hvernig bankan- um er stjórnað. Almenningur spyr: Hvað er um seðlaútgáfu Útvegsbankans á þessu ári? — Hafa þar orðið misfellur á? — Hafa menn þeir rjett fyrir sjer, sem halda því fram, að svo hafi verið? Og hvernig er háttað við skiftum Útvegsbankans og Lands bankans undanfarna mánuði, veðum þeim, sem Landsbankinn hefir haft fyrir endurkeyptum víxlum? Umræður um þessi atriði geta ekki, úr því sem nú er komið málum, gert bankanum háska- legt skynditjón. Þvert á móti. Umræður um þessi efni hafa verið á allra vörum undanfarnar vikur. Hafa um þær spunnist sagnir, sem veikja svo traust bankans, að óviðunandi er, fyr- ir stjórn hans, fyrir viðskifta- menn hans, fyrir alþjóð manna, sem nú hefir tekið ábyrgð á bankans fé. Sögusagnir um þessi starfsat- riði bankans verða hlutaðeigend- ur að kveða niður. Eða Sjeu þær rjettar, verða ráða- menn bankans að taka misfell- urnar föstum tökum — ef bank- inn á að fá það traust, sem hon- um er nauðsynlegt. Stríðið í Kína. London 24. febrúar. United Press. PB. Kált og hráslagalegt veðnr á vígstöðvunum. Fallbyssuskothríð hófst á ný snemma í morgun. — Fótgönguliðið heldur kyrru fyrir enn sem komið er. — Nokkurar kúlur hafa komið niður á for- rjettindasvæðum útlendinga. Shanghai, 24. febr. United Press. FB. Kl. 3 síðd. rjeðist fótgöngulið Kínverja á varnarstöðvar Japana hvarvetna á Ohapeivígstöðvunum. Japanar ljetu hvergi undan síga. Lokaður fundur í sameinuðu þingi. Fundur var haldinn í sameinuðu þingi kl. 10 á þriðjudagskvöld. Var sá fundur lokaður. Áður en hinn lokaði þingfundur hófst, hjeldu þingflokkarnir fund hver fyrir sig. Þar tóku flokkarn- ir ákvörðun um þá málaleitun stjórnarinnar, að ríkisábyrgð yrði tekin á öllu innstæðufje Útvegs- bankans. Yfirleitt munu flokkarnir hafa verið sammála um, að bregðast vel við málaleitan stjórnarinnar, og var fullnaðarákvörðun um þetta tekin á lokyða fundinum í sam- einuðu þingi. Sá fundur stóð til kl. 12 á þriðjudagskvöld. Var þar gefin yfirlýsing frá flokkunum um, ,að þeir myndu styðja fjármála- ráðherrann í því, að koma frv. í gegn um þingið, með afbrigðum frá þingsköpum, svo fljótt, að það gæti orðið að lögum þegar á næsta degi (í gær). Frumvarp fjármálaráðherra. í byrjun þingfundar í gær var útbýtt frumvarpi frá fjármálaráð- herra, um ríkisábyrgð á innstæðu- fje Útvegsbanka íslands. Er það tvær stuttar greinir, svoliljóðandi: 1. gr. Ríkissjóður ábyrgist alt inn- stæðufje, sem tekið er til ávöxtun- ar í Útvegsbanka íslands h.f. og útibiium hans, og kemur sú ábyrgð næst á eftir hlutafje og áhættu- fje bankans. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Þetta frumvarp var tekið til um- ræðu í Nd. þegar að loknum dag- skrárfundi þar. Úr umræðunum. Ásgeir Ásgeirsson fjármálaráð- herra reifaði málið. Gat hann þess, að á mánudaginn var hefði sjer borist svohljóðandi brjef frá fuil- trúaráði Útvegsbankans: Reykjavlk, 22. febrúar 1932. Á fundi fnlltrúaráðs Útvegs- banka íslands h.f. 21. þ. m. var samþykt í einu hljóði, að senda fjármálaráðherra svohljóðandi er- indi: „Vjer leyfum oss hjer með að tilkynna yður, herra fjármála- ráðherra, að undanfarna daga hafa stórar fjárhæðir af spari- fje því er Útvegsbanki fslands h.f. hefir haft til ávöxtunar ver- ið tekið út úr aðalbankanum og útibiium hans, þannig, að ber- sýnilegt er að hræðslu fóiks um innstæður sínar í bankanum er um að kenna. Þar sem kringum- stæður bankans voru erfiðar áð- ur, er fyrirsjáanlegt að bankinn verður að loka, ef ekki er þegar í stað fyrirbygt að hann verði fyrir frekari fjármissi á þennan hátt. Vjer leyfum oss því hjer með að leita stuðnings yðar til þess að bankinn geti haldið áfram starfsemi sinni. Sá stuðningur sem vjer teljum óhjákvæmileg- an er: 1) Að ríkissjóður ábyrgist alt það fje sem Útvegsbankinn og útibú hans hafa tekið á móti eða taka á móti til á- vöxtunar eða geymslu, þar með talið innheimtufje. 2) Að endurkaup fáist á fisk- víxlum viðskiftamanna bank- ans á svipuðum grundvelli og verið hefir“. Þetta tilkynnist yður hjer með. Virðingarfýlst. Sv. Guðmundsson. Lárus Fjeldsted. Til fjármálaráðherrans, Reykjavík. Kvaðst ráðherrann samstundis hafa afhent formönnum flokkanna afrit af brjefinu og skýrt þeim frá, að sennilega yrði haldinn einkafundur um málið í sameinuðu þingi. Sá fundur hafi svo verið haldinn á þriðjudagskvöld. Ráðherrann gat þess, að það hefði ekki komið mönnum alls kostar óvart, að svona væri komið. fyrir Utvegsbankanum, því að á síðustu tveim árum hefði allmikið af fje bankans orðið fast og meira en við var búist. Til þessa lægju ýmsar ástæður m. a. ilágt afurða- verð og fleira, sem ekki yrði nefnt hjer. En Útvegsbankinn hefði ver- ið illa búinn undir þær þrengingar, sem komið hefðu. Útvegsbankinn hefði, síðan hann bvrjaði starfsemi alls mist um 3 milj. af innstæðufje sínu. Þetta sýndi, að bankinn nyti ekki trausts viðskiftamanna. Úttektin úr bankanum hefði á- gerst mjög í síðastliðinni viku, og stæði bankanum alvarleg hætta af þessari úttekt, ef hún yrði ekki stöðvuð. Tilgangurinn með frv. væri að stöðva þessa úttekt. Ráðherrann kvaðst nýlega hafa beðið fulltrúaráðið og bankaeftir- litsmanninn að athuga hag Útvegs- bankans. Álit þeirra var, að bank- inn ætti fyrir skuldum, en líklega væri hann búinn að tapa mestu af hlutafjenu. Bankinn hefði á tveim árum af- skrifað um 12 milj. króna. Að lokum gat ráðh. þess, að gera þyrfti frekari ráðstafanir við- víkjandi bankanum, svo sem við- víkjandi nýrri stjórn og fleira. — Um þetta kvaðst hann ræða fljót- lega við fjárhagsnefndir þingsins. Afstaða Sjálfstæðisflokksins. Magnús Guðmundsson kvað frv. þetta, um ríkisábyrgð fyrir Út- vegvegsbankann, ekki koma sjer á óvart. Sjálfstæðismenn hefðu jafn- an litið svo á. að þar sem einu sinni væri búið að stíga þetta ó- heillaskref, að láta ríkið ábyrgjast innstæður í bönkum, hlyti afleið- ingin að verða sú, að sams konar ábyrgð yrði að veita öðrum bönk- um. Á þetta hefði verið bent á mörgum þingum undanfarið, alt jfrá því núverandi stjórnarflokkur, með aðstoð sósíalista, dembdu á ábyrgðinni á Landsbankanum á þingi 1928. Næsta skrefið hefði verið ábyrgð á Búnaðarbankan- um 1930. Hjer kæmi þriðja skrefið, sem væri eðlileg rás viðburðanna. Mikið veður hefði verið gert af því á þingi 1930, þegar Sjáifstæð- ismenn fóru fram á ríkisábyrgð 4 innstæðum í íslandsbanka, til þess að forða bankanum frá lokun. — Þetta máttu stjórnarflokkarnir pkki heyra nefnt. En nú kæmi fitjórnin sjálf og bæði um þessa ábyrgð handa Útvegsbankanum. Þetta sýndi best, að Sjálfstæðis- menn hefðu haft rjett fyrir sjer á fyrri þingum. Að því loknu lýsti ræðumaður yfir því, að stefna Sjálfstæðia- flokksins, að því er snerti ríkis- ábyrgð á bönkum, vær sú, að slík ábyrgð ætti alls ekki að eiga sjer stað. En þar sem búið væri að veita tveim bönkum af þremur í Reykjavík slíka ábyrgð, væri ó- hjákvæmilegt að veita þriðja bank anum sams konar ábyrgð, ef hann ætti að lifa. Las ræðum. því næst upp ályktun. sem samþykt var á flokksfundi í Sjálfstæðisflokknum viðvíkjandi þessu máli. Er sú á- lyktun svohljóðandi: „Sjálfstæðisflokkurinn felst á tillögu stjórnarinnar um að rík- issjóðnr taki ábyrgð á innstæðn- fje í Útvegsbankanum, þó að eins meðan sams konar ábyrgð er á innstæðufje í öðrum bönk- um í laaidinu, en telur hins veg- ar að allar slíkar ábyrgðir ættu að falla niður svo fljótt sem auðið er og samtímis“. Afstaða Alþýðuflokksins. Haraldur Guðmundsson tálaði f. h. Alþýðuflokksins. Skýrði hann frá því, að miðstjórn flokksins hefði samþykt að vinna ekki gegn þessu máli, heldur stuðla að því, að frv. næði fram að ganga. Hins vegar hefðu þingmenn flokksins óbundnar hendur í málinu og væri sjer kunnugt, að einn þm. (H. V.) væri frv. andvígur. Hjeðinn Valdimarsson lýsti svo sinni afstöðu, og kvaðst vera á móti þessu máli, en mundi þó ekki ganga gegn samþ. síns flokks. Gerði ræðum. því næst nokkuð /rekari grein fyrir afstöðu sinni. Er flokkarnir höfðu þannig gert grein fyrir afstöðu sinni til máls- ins við 1. umr., gekk frv. hljóða- laust og án mótatkvæða gegn um allar (þrjár) umræður í deildinni. Að því loknu hófst þegar fundur 1 efri dteild. Fjármálaráðherra reifaði þar málið með örfáum orðum. Jón Þorláksson gat. þess, að í Nd. hefði verið gerð grein fyrir afstöðu Sjálfstæðisflokksins, en kvaðst vilja undirstrika það, að þetta væri bein afleiðing þess sem gert var 1928 og aftur 1930, þegar ríkisábyrgð var tekin á Landsbank num og Búnaðarbankanum. Það mætti öllum vera ljóst hvaða af- ileiðingar af því hlytust, að ríkis- ábyrgð væri á sumum bönkum, en ekki öðrum. En rás viðburðanna ljeti ekki hjer staðar numið. Þegar bíiið væri að taka ábyrgð á ölhnm peningastofnunum í Rvík ,færðist lcikurinn lit um land — til spari- sjóðanna. Þegar eitthvað bjátaði á hjá sparisjóðum, sem enga ríkia- ábyrgð hefðu, Myti sparifjeð að streyma i'ir þeim og inn í stofn- anir, sem ábyrgðina hefðu. Sæu allir 1 hvílíkt óefni væri komið með þessu ábyrgðaflani. Afstaða Sjálf- stæðisflokksins væri því sú, að losta ríkið úr öllum slíkum á- byrgðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.