Morgunblaðið - 28.02.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIf)
a
\ JPIcrtigtutHðMd :
■JJ Ctref.: H.f. Arvakur, Reykjavtk. •
« Rltatjörar: Jön KJartanaaon. •
:■» Valtýr Btef&naaon, •
2 Rltatjörn og afgrelBala: *
Austuratrœtl 8. — Slaal 100. •
• AuBlýaingaatjöri: B. Hafbarr. J
• Aug-lýainffaakrifatofa: •
Austuratrætl 17. — Slaat 700. •
a Helnaalnar: •
< Jön KJartanaaon nr. 741. •
Valtýr Stefánaaon nr. 1110. •
• E Hafberr nr. 770. •
• Aakrlftagjald: •
Innanlanda kr. 2.00 á mánuOl. ?
V W
« Utanlands kr. 2.CI> á aaánuOL •
J f lausasölu 10 aura elntaklO. J
• 20 aura meO Liaabök. •
• •
»•••••••••••••••••••••••••«
Sókn lapana.
4000 menn fellu í vikunni
sem leið.
Shanghai, 27. febr.
United Press. PB.
Japanskar flugvjelar hafa gert
mikiar árásir á Tazang og Chemju
«g vamarstöðvar Kínverja milli
þessara staða og varpað sprengi-
kúlum niður á þær, en stórskota-
lið Japana hefir haldið uppi lát-
lausri skothríð á Kiangwang og
‘Tazangvígstöðvunum. Br þetta und
irbúningur hinnar miklu sóknar,
sem Japanar ltafa verið að boða
annað veifið að undanförnu. Kín-
verjar kannast við, að manntjón
þeirra liafi numið 3000 vikuna
sem leið, en Japanar, að manntjón
þeirra hafi numið 1000.
Bruning
fcer traustsyfirlýsfngu.
Forsetakosning í Þýskalandi.
Berlin, 26. febr. Mótt. 27. febr.
United Press. PB.
Fundum ríkisþingsins hefir verið
frestað eftir að Briining hafði feng
ið traustsyfirlýsingu með 280:264.
Þingið hefir einnig fallist á, að
forsetakosningar fari fram þ. 13.
mars.
Gengið.
London, 26. febr.
United Press. PB.
Gengi sterlingspunds, miðað við
<dollar 3.48, er viðskifti hófust, en
•3.481/2, er viðskiftum lauk.
New York: Gengi sterlingspunds
$3.481/8—$3.481/4.
Veösetning
á óveiddum fiski.
1 þjóðþingi Dana bar Zahle
<1 ó m sm ál a r á ðh e r r a nýlega fram
frumvarp um það, að bankar og
yfirvöld megi taka óveiddan fisk
Færeyinga á þessu ári að veði
fyrir lánum til útgerðarinnar. —
Frumvarp þetta er fram komið
að tilhlutan lögþingsins í Pær-
eyjum, og var stutt með því. að
þetta væri regla á fslandi, að veð-
setja óveiddan fisk.
Dr. Björg Þorláksson flytur há-
hkólafyrirlestur um arfgengiskenn
ingar á morgun kl. 5—6. Allir vel-
komnir.
Frjálslynd og rjettlát
stjórnarskrá.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins í kjördæmanefndinni flytja frum-
varp um breytingu á stjórnarskránni, sem
tryggir öllum flokkum þingsæti í sam-
ræmi við atkvæðamagn þeirra.
Á Alþingi í gær var útbýtt frum- að
varpi um breyting á stjórnar-
skránni, er þeir flytja í samein-
ingu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
pg Alþýðuflokksins í kjördæma-
nefndinni, þeir Jón Þorláksson,
fjón Baldvinsson og Pjetur Magn-
ússon.
í 1. gr. frv., sem koma á í stað
,26. gr. stjórnarskrárinnar, segir
svo:
„Á Alþingi eiga sæti þjóðkjörn-
iv fulltrúar. Alþingi skal svo skip-
,aö, að hver þingflokkur liafi þing-
■sæti í samræmi við atkvæðatölu
(þá, sem greidd er frambjóðendum
floltksins samtals við almennar
kosningar.
Kjósa skal varaþingmenn á sama
hátt og samtímis og þingmenn eru
íkosnir. Ef þingmaður deyr eða fer
frá á kjörtímanum ,teltur varaþing
maður sæti hans, það sem eftir er
kjörtímans. Sama er og, ef þing-
maður forfallast, svo að hann get-
ur ekki setið á einhverju þingi,
eða það sem eftir er af því þingi.
Þingmenn sku'lu kosnir til 4
ára‘
í 2. gr. frv. (27 gr. stjórnar-
skrár) segir svo:
„Alþingi skiftist í tvær deildir,
efri þingdeild og neðri þingdeild.
Á þriðjungur þingmanna sæti í
efri deild, en tveir þriðju hlutar
í neðri deild. Yerði tala þingmanna
þannig, að ekki sje unt að skifta
til þriðjunga í deildirnar, eiga þing
menn, einn eða tveir, sem umfram
,eru, sæti í neðri deild.
Sameinað Alþingi kýs með hlut-
fídlskosningu þingmenn þá, sem
sæti eiga í efri deild, úr flokki
þingmanna í byrjun fyrsta þings
á kjörtímabilinu. Hinir eiga sæti
í neðri dei'ld“.
Þriðja grein frv. nemur burtu
28. gr. stjórnarskrárinnar; en í 4.
gr. (í stað 29. gr. stj.skr.) segir
svo:
„Kosningarjett við kosningar til
Alþingis hafa allir, karlar sem
konur, sem eru 21 árs eða eldri,
þegar ko.sning fer fram, hafa ríkis-
borgararjett hjer á landi og hafa
verið búsettir í landinu síðustu
fimm árin áður en kosning fer
fram. Þó getur enginn átt kosn-
ingarjett, nema hann hafi óflekkað
mannorð og sje fjár síns ráðandi.
Gift kona telst. fjár síns ráðandi,
þótt hún eigi óskilið fjárlag með
manni sínum.
sjer
rjett til að gera aðra tillögu um
skifting Alþingis ( að þingið verði
ein málstofa); einnig vill hann
nema burt 5 ára búsetuski'lyrði
fýrir kosningarrjetti.
Svo sem sjá má á breyting-
um þeim á stjórnarskránni, sem
lijer eru fram bornar, er eitt höf-
uðatriðið það, að þingflokkunum
sje trygð þingsæti í samræmi við
atkvæðatölu flokkanna. Þetta er
það atriði, sem skiftir lang mestu
máli. Þá eru einnig aðrar veiga-
miklar breytingar, svo sem færsla
aldurstakmarks um kosningarrjett
í 21 ár og burtfelling ákvæðisins
um, að sveitarskuld valdi missi
kosningarrjettar.
Flutningsmenn ætlast til, að á-
kvæði um kjördæmaskipun og kosn
ingatiljiögnn sje ekki í sjálfri
stjórnarskránni, heldur í kosninga-
'lögum. Er það í samræmi við
stjórnarskrár flestra Norðurálfu-
ríkja.
Dagbók.
I.O.O.F. 3 == 1132298 = 8»/2 II.
□ Edda 5932317 — 1.
Messan í fríkirkjunni fer fram
kl. 2 í dag, en ekki kl. 5, eins og
misritast hafði á messuauglýsingu
til blaðsins í gær.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 5):
Háþrýstisvæðið nær nú frá Græn-
landi austur yfir ísland og Norður-
lönd og suður yfir Bretlandseyjar.
Yfir vestanverðu Atlantshafi og
V-Grænlandi er loftþrýsting frem-
ur lág. Hjer á landi er hæg S-átt
með dálítilli rigningu á S- og V-
landi. Hiti 4—7 st. Útlit fyrir góð-
viðri áfram.
Veðurútlit í Rvík í dag: S-gola.
Smáskúrii.
77 ára er í dag frú Margrjet
Þorsteinsdóttir, Ránargötu 5A.
Fjelag ísl. loftskeytamanna held-
ur aukafund í dag kl. 14 að Hótel
Borg (herbergi 103).
Fimtugsafmæli á í dag Árni
Þórðarson verkam. á Barónsstíg
12. —
Leikhúsið. Sjónleikurinn „Silfur-
öskjurnar“, eftir Galsworthy, verð
jir sýndur í kvöld fyrir lækkað
iverð aðgöngumiða. Er þetta síð-
asta kvöldsýliingin á leiknum og
því hver síðastur að sjá hann. í
vikunni verður farið að sýna fær-
eyska sjónleikinn „Ranafell“ og
gamanleikinn „Afritið .
Kosningalög setja að öðru leyti, Morgunblaðið er 8 síður í dag
nánari reglur um alþingiskosning- !0„ Lesbók.
Jón Baldvinsson áskilji
í 5. gr. (í stað fyrri málsgr. 30.
r. stj.skr.) segir svo:
„Kjörgengur við kosningar til
Jlþingis er hver ríkisborgari, sem
osningarjett á til þeirra“.
í 6. gr. frv. segir enn fremur:
„Umboð þingmanna fellur niður
egar stjórnskipunarlög þessi öðl-
st gildi, og fara þá fram almenn-
r kosningar til Alþingis“.
Þess er getið í greinarg'erðinni,
Franskur togari kom hingað í
gær til þess að taka fiskiskip-
stjóra handa sjer og 7 öðrum
frönskum togurum, sem eru við
Vestmannaeyjar. Þessir 8 skipstjór
ar, sem fóru hjeðan, eru Guð-
mundur Guðmundsson frá Nesi,
■Þórður Georg Hjörleifsson. Guð-
jón Pinnbogason, Baldvin Sig-
oeundsson, Ingvar Benediktsson, Jó
hannes Bjarnason, Jón Árnason og
Jens Jónsson. — Þeir eru ráðnir
yfir alla vertíðina.
SUasta sKemHflansæBaa
á mornni kl 1. f l‘| 2 tt 1 2
fyrir fuliörðna neo Hlioms 1. V frð f vetur og undanfarna vetur og gesti. eit Hotel Island.
Lelksýulng
í Iðnó, undir stjórn Soff||i Guðlaugsdóttur.
Frðken Jáíia.
Leikrit eftir A. Strindberg.
Leikendur:
Fröken Júlíia.... Soffía Guðlaugsdóttir.
Jean, þjónn...... Valur Gíslason.
Kristín eldabuska .. .. Emilía Indriðadóttir.
Sólódans.
Schottich.
Hekla og Daisy Jósefsson.
Sænskir þjóðdanskar undir stjóm Heklu og Daisy.
Hljómleikar.
Fyrsta sýning þriðjudaginn 1. mars kl. Sy2 síðd. Verð
aðgöngumiða: Kr. 3.00, kr. 2.50, kr. 1.50 og að auki 0.25
fatageymslugjald. — Aðgöngumiðar verða seldir í Iðnó
sunnudag og mánudag frá kl. 4—7 síðd. og á þriðjudaginn
frá kl. 10 árd. (Sími 191).
Spanskir togarar, þrír að tölu,
eru á leið hingað til fiskveiða. Eru
farnir frá Englandi og koma á
næstunni. Þeir taka hjer íslenska
fiskiskipstjóra.
Útvarpið í dag: 10.40 Veður-
fregnir. 11.00 Messa í dómkirkj-
unni ( síra Bjarni Jónsson). 15.30
Tilkynningar. Tónleikar. 18.40
Barnatími (síra Friðrik Hallgríms-
son). 19.15 Grammófóntónleikar.
Píanó-sóló: Alexander Brailo'wsky
leikur: Vals í Cis-moll, Op. 64 og
Etudes í F-moll, Op. 25 og í Ges-
dúr. Op. 10, No. 5 eftir Chopin, og
Spinnlied úr „Fljúgandi Hollend-
ingnum“, eftir Wagner-Liszt. 19.30
Véðurfregnir. 19.38 Erindi: Ut-
yarp, skóli og kirkja, I. (Guðmund-
ur G. Hagalín). 20.00 Klukkuslátt-
ur. Erindi: Flugleið um ísland
(Guðmundur Grímsson). 20.30
Frjettir. 21.00 Erindi: Um Beet-
hoven. (E/ Thoroddsen). 21.15
ÍGrammófóntónleikar: Symphonia
nr. y, ettir Ueetnoven. Ilansiog tu
kl. 24.
Útvarpið á morgun: 10.15 Veð-
urfregnir. 12.10 Tilkynningar. Tón-
leikar. Frjettir. 12.35 Þingfrjettir.
16.10 Veðurfregnir. 19.05 Þýska, 1.
fiokkur. 19.30 Veðurfregnir. 19.35
Enska, 1. flokkur. 20.00 Klukko-
sláttur. Erindi: Útvarp, skóli og
kirkja, II. (Guðmundur G. Haga-
lín). 20.30 Frjettir. 21.00 Tónleik-
hr: Alþýðulög (Útvarpskvartett-
íinn). Einsöngur (Einar Sigurðii-
json). Sjöberg: Tonarne. M. Árna-
'son: Útlaginn. B. Guðmundsson
jKvöldbæn. Sv, Sveinbjörnsson
Sverrir konungur. Grammófón
Haydn Variationen. eftir Brahnss.
Eggert M. Laxdal heldur sýn-
|ingu á myndum sínum þessa daga
á Laugaveg 1 (bakhúsinu). Eru
þar sýndar um 40 myndir, olíu-
jmyndir og vatnslita, flestar frá
'Þingvöllum og úr Þjórsárdal.