Morgunblaðið - 28.02.1932, Blaðsíða 8
8
MORG JNBLAÐIÐ
Lýsistnnnnr » Hrognatnnnnr.
Eins og undanfarið útvegum við bæði lýsis- og hrognatunnur með
sanngjörnu verði og hagkvæmum greiðsluskilmálum.
Utgerðarmenn, talið við okkur með nægum fyrirvara.
Eggert Kristjánsson & Ce.
Símar 1317 og 1400.
Ný bðk:
Erik F. Jensen: Með Niels Bukh Jorden rundt. Stór bók með fjölda
mynda. Kemur út í 12 heftum og kostar hvert kr. 0.85 ísl. Eitt hefti
kemur út á viku.
Mjög eiguleg bók íyrir alla íþróttavini og íþróttamenn.
Bökaveralun Slglúsar Eymundssonar.
Auglýsing.
Eftirfarandi skip: Bolli í. S. 125, Geysir í. S. 126,
Svend í. S. 315, Eli í. S. 338 og hálft skipið Björn í. S. 443
með vjel, rá og reiða, seglum og öðru tilheyrandi, svo og
skipið Hekla í. S. 127, eign þrotabús Marsellíusar Bern-
harðssonar, ísafirði, eru til sölu. Lysthafendur snúi sjer
til undirritaðs skiftaráðanda, er gefur nánari upplýsingar.
Tilboð sendist innan 25. mars næstkomandi.
I Skiftaráðandinn á ísafirði, 24. febrúar 1932.
Oddnr Gíslason.
Kjörskrá
til alþingiskosninga í Reykjavík,
er gildir fyrir tímabilið 1. júlí
1932 ti'l 30. júní 1933, liggur
frammi almenningi til sýnis á
skrifstofu bæjarins, Austurstræti
16, frá 1.—14. mars næstkomandi,
að báðum dögum meðtöldum, kl.
10—12 f. h. og 1.—5. e. h. —
(laugardaga kl. 10—12 árd.)
Kærur yfir kjörskránni sjeu
komnar til borgarstjóra eigi síð-
ar en 21. mars.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
27. febrúar 1932.
K. Ztmsen.
Er húð
Um það skai jeg vera fáorður.
Jeg vil að eins geta þess, að mjer
er ókunnugt um, að „máttarstólpar
Læltnafjel. hafi undirbúið það mál
vikum saman“ eða „íhaldslæknar“
skipað dr. H. T.“ nokkuð í því,
heldur ekki að stjórnmálamenn
liafi hleypt því af stað. Fundir
þeir, sem sagt er að hafi verið
haldnir á Vífilsstöðum og hjá
Matth. Einarssyni, eru sennilega
af sarna toga og fundurinn hjá
Bjarna Snæbjarnarsyni, sem aldrei
var haldinn.
Annars vil jeg ekki ræða þetta
alvarlega mál í blöðum, og jeg
skil ekki í mönnum, sem vilja
Uyggja Það upp aftur og aftur
!og ata hvert sitt orð nleð ógeðs-
legri tilfinningaslepju, til þess að
það gangi betur í fáfróðan al-
Imenning.
En það er svo margt sinnið sem
skinnið.
wft I L'.
> * i m
yðar
slæm?
Ef þjer hafið saxa, sprungna
húð, fílapensa eða húðorma, notið
þá Rósól Glycerin, sem er hið full-
komnasta hörundslyf, er strax
græðir og mýkir húðina og gerir
hana silkimjúka og fagra. Varist
eftirlíkingar. Gætið þess að nafnið
Rósól sje á umbúðum.
Fæst í Laugavegs Apóteki,
lyfjabúðinni Iðunni og víðar.
H.i. Einagerð Reykjavíkur
kemisk verksmiðja.
Útvarp í síma.
K AJlt «8 l&leaskam skipnm!
Um nokkurt skeið hafa verið
gerðar tilraunir erlendis með það
að ná útvarpi í ta'lsíma. Er tal-
símaáhaldið mjög lítið frábrugðið
venjulegu talsímaáhaldi. Næstsam-
band við útvarpið með því að
skrúfa til dálítinn takka, sem á •
því er. Þjóðverjar kalla þetta
„Drath Rundfunk“. Ef það þarf
að nota símann til að tala í hann,
er útvarpið litilokað með því að
skrúfa takkann. — Það er sagt
að truflana gæti ekki líkt því eins
mikið í þessu áhaldi eins og í
venjulegu útvarpsviðtæki. En sá
ókostur er á því, að ekki er hægt
að hlusta á neina aðra útvarpsstöð
en þá. sem áhaldið er gert fyrir.
Horðurheirasrannsðknlr.
18 lönd. taka þátt í þeim.
Það er nú ákveðið að úr fram-
kvæmdum verði um Norðurheims-
rannsóknirnar 1932—33’. Er talið
að 18 lönd ætli að taka þátt í
þeim: Argentína, Austuníki, Belg-
ía, Búlgaría, Catalonía, Danmörk,
Finnland, Frakkland, Hol'land,
ísland, Kanada, Pólland, Spánn,
Stórbretaland, Sviss, Svíþjóð,
Tjekkóslóvakía og S.S.S.R. (Sovjet
Rússland). Norðmenn vilja gjarna
vera með að einhverju leyti, og
hefir „polarárs-nefndin1 ‘ þar far-
ið fram á 19.500 króna styrk til
þess að kaupa vísindaleg áhöld
handa þeim rannsóknastöðvum, er
landið á, og komið geta til greina
við þessar rannsóknir.
Svíar hafa þegar fyrir löngu
ákveðið hvaða þátt þeir ætla að
taka í þessum rannsóknum. Þeir
ætla að reisa rannsóknastöð á 1050
metra háu fjalli, skamt frá Long-
yeareity hjá Adventfirði á Sval-
barða. „Store Norske“, sem stund-
ar kolanám hjá Longyear-eity
hefir lofað að flytja efniviðinn í
húsið og nauðsynlegan farangur
vísindamannanna upp á jökulinn
í febrúar eða mars í vetur. Er
það vandkvæðalaust, því að fjalls-
hlíðarnar eru langar og aðlíðandi.
Vísindamennirnir, er þarna verða,
geta altaf liaft samband við Long-
yearcity og eru því ekki jafn ein-
angraðir eins og ýmsir aðrir vís-
indamenn sem taka þátt í rann-
sóknunum.
Það er talið líklegt að Þjóð-
verjar muni reisa rannsóknastöð
einhvers staðar hjá ísafirði á Sval
barða, og Rússar hafa beðið Norð-
menn um leyfi til þess að reisa
tvær ránnsóknastöðvar á Karls-
konungslandi — austanvert á Sval-
barða.
Gert er ráð fyrir því að íslend-
ingar leggi fram sinn skerf til
þessara rannsókna, með því að
•eisa rannsóknastöð á tindi Snæ-
fellsjökuís, en enginn undirbún-
ingur er hafinn að því enn og
ekki hefir stjórnin tekið upp neina
fjárveitingu í fjárlagafrumvarpið
um þetta efni. Þó munum vjer
teljast bundnir við það að leggja
fram það fje sem lofað var áður.
Skinnnuppbo'ð
í London.
í janúarmánuði seldi firmað C.
M. Lampson & Co. Ltd. í London
29.200 refabelgi á uppboði. Var
verðið þá 20—30% lægra heldur
en á næsta uppboði firmans þar
á undan.
Dýrustu skinnin, y2 silfur, voru
að meðaltali sekl á £ 7.5.0 og höfðu
fallið um 20%. Sama verðlækkun
hafði orðið á % silfur og voru þau
skinn að meðaltali seld á £ 7.0.0.
Svört og Ijettsilfruð skinn voru
seld á £ 4.0.0 að meðaltali, */£
silfur á £ 5.10.0 og 1/1 silfur á
£ 6.10.0. Allar þessar tegundir
höfðu lækkað um 30%. Ljelegustu
skinnin hjeldu sínu fyrra verði,
£ 3.5.0 að meðaltali.
Fuchs.
Hafbðturinn M 2.
Sjómenn í Devonshire hjeldu því
þegar fram að enski kafbáturinn
M 2, hefði farist þannig, að hann
hafi rekist á skipsflak í botni,
sennilega á járnsiglu, sem rekist
hafi í gegnum kafbátinn. Á þess-
um slóðum, þar sem kafbáturinn
fórst, liggja um 150 skip á sjáv-
arbotni og er því flóinn venju-
lega nefndur „Deadman’s Bay“, en
heitir rjettu nafni Westbay.
Kafbáturinn var smíðaður á ár-
unum 1918—1920, og voru þeir
þrír kafbátarnir af sömu gerð,
M 1, M 2 og M 3. í nóvember-
mánuði 1925 rakst M 1 á sænska
skipið „Vidar“ í Ermarsundi og
sökk, og fórust allir, sem á voru.
Ntt er M 3 einn eftir.
M 2 var 92 metrar á lengd
og 7,5 metrar á breidd og var
talinn 1950 smálestir. Á honum
var venjulega 60 manna áhöfn. —
Hann hafði þrjár fallbyssur og
gat farið 15.5 sjómílur á klukku-
stund ofansjávar, en 9,5 mílu í
kafi. Árið 1929 var bátnum breytt
þannig, að framan við skygnis-
turninn var gert stæði fyrir litla
flugvjel.
!
Kafbáturinn finst.
Það kom á daginn að tilgáta
sjómannanna um það hvernig kaf-
báturinn hefði farist, reyndist
rjett. Leitinni að honum var hald-
ið áfram af kappi og voru kaf-
arar enska sjóliðsins látnir fara
niður á mararbotn þar sem hin
sokknu skip lgigja. Þegar þeir
höfðu skoðað 60 skipsræfla, rákust
þeir að lokum á M 2, þar sem
hann lá hjá einu flakinu á 35
Ankaairiði
metra dýpi. Myndin hjer að
ofan sýnir kafara úr sjóliðinu, sem
eru að fara niður að kafbátnum.
Forvextir lækka.
New York, 26. febr.
United Press. FB.
Federal Reservebankinn hefir
lækkað forvexti úr 3V2% í 3%.
Skíðaíþróttin.
Alfred Belgakonungur, sem nú
er 57 ára að aldri, byrjaði að
læra á slcíðum í vetur. Þykir það
mikið um svo gamlan mann. En
emn kemur öðrum meiri. Hjer
í Reykjavík er 62 ára gamall
maður, sem byrjaði að læra á
skíðnm í vetur.
Eyðið ekki peningun-
um í kaup á ódýrum
smurningsolíum, sem
þynnast í hita vjelar-
innar og þar af leið-
andi geta ekki vemd-
að nægilega gegn sliti
— og sem brenna svo
ört, að vjelin hreint
og beint „etur olí-
una“.
Biðjið um Gargoyle
Mobiloil; hún sparar
yður ónauðsynlegar
viðgerðir.
3 áTfo 'MvÚ-'ðS
vacuum oim;omi*axv%
Umboðsmenn:
H. Benediktsson & Go.
Fjrrir berra.
Bðisbindl.
mjög smekklegt úrval. •
VQruhásið.
Nýstrokkað
in|fir
fri mjólkurbúi okkar,
er nú ávalt á boðatól-
um í ðllum okkax mjólk
urbúðum, svo og ver»I
uninni LIVERPOOL og.
útbúum hennar.
MtðtkarllelaB Reykiavlkur.