Morgunblaðið - 08.03.1932, Page 3
MOBGUyBLAÐIS
T
mm
*
«
<4
*
•4
•4
•»
«
41
4
4
«
«
«
*
9
3M$ntBia^
?Xt*ef.: H.f. Arrakur, KirUitlk.
Kttatjðrar: Jðn KJartanaaon.
Valtyr BtefAnaaon.
Itttetjðrn og afgrelttela:
Aueturetrœtl 8. — Slmi 100.
auelýelníastjðrl: B. Hafberg.
vuerlýatneaskrlfatofa:
Anaturatrntl 17. — Blml 700.
'telaiaslaiar:
Jðn Kjartanaaon nr. 748.
Vattýr Stef&nason nr. 1110.
SJ Hafbere nr. 770
iskrtftagjald:
innanlanda kr. 1.00 & m&nutti.
Utanlanda kr. 8.60 & as&nuBI.
tausaaðlu 10 aora elntaklB
(0 aura meB Leebök.
Askorunin
til Rlþingis.
Undirskriftirnar hafa geng-
ið mjög vel.
Um 9000 kjósendur höfðu
skrifað undir í gær.
Undirskriftasöfnunin hjer í bæn-
«m undir áskorunina til Alþingis
nm rjettláta kosningatilhögun, hef-
ir gengið mjög greiðlega, eins og
vænta mátti.
í gærkvöldi höfðu um 9000 kjós-
endur skrifað undir áskorunina, en
allmargir listar voru ekki komnir
til skrifstofunnar.
Nú er vitanlegt, að á þessari
slcjótu yfirferð hefir ekki tekist að
ná til allra kjósenda, sem vilja
skrifa undir þessa áskorun. Bæði
er það, að sumir hafa eklti verið
lieima, þegar komið var með list-
ana í húsin, og einnig getur hitt
viljað til, að láðst hafi að koma í
smn hús. Þess vegna eru það til-
mæli þeirra, er gengist liafa fyrir
undirskriftasöfnuninni, að þeir,
sem ekki hafa enn skrifað undir,
en vilja vera með, annað hvort
komj, sjálfir á, skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Varðarhúsinu,
eða láti skrifstofuna vita, ef þeir
kjósa heldur, að sent verði heim
til þeirra með undirskriftalista. —
Skrifstofan er opin allan aaginri.
Undirskriftalisti liggur einnig
frammi á skrifstofum dagblaðanna,
Morgunblaðsins, Vísis og Alþýðu-
íjlaðsins.
Linðbergh
leiiar aðstoðar bófaforingja til
J>ess að hafa upp á drengnum
sínum.
Hopewell, 7. mars.
United Press. PB.
Lindbergh liefir gripið til ]ieirra
ráða, vegna þess að hann og kona
lians eru að glata allri von um
að sjá barn sitt- aftur, að leita
aðstoðar bófaforingjanna Sal vy,
Spitale, Trwing og Bitz, sent ætla
mætti að gæti komist að því hverj-
ir væri ATaldir að barnsstuldinum.
Hefir Lindbergh beðið þá að reyna
að koma því til leiðar. að barninu
verði skilað aftur. Bófaforingjarn-
ir sem að framan em nefndir og
allir eru valdamenn í „undir-
heimalífi" stórborganna vestra
hafa heitið Lindbergh aðstoð sinni.
Stóðu þeir í stöðugu sambandi við
tmdirforingja sína allan daginn á
sunnudag, en tilkyntu í gærkvöldi,
að þeir hefði ekki getað náð sam-
bandi við barnsþjófana.
Þingtiðindi.
Kartöfluflutningur.
Nálega allur fundartími Nd. í
gær fór í að ræða frv. um innflutn-
ing á kartöflum, sem landbúnaðar-
nefnd flytur. Efni frv. er, að
banna sknli innflutning á kart-
öf-lum þann tíma árs, sem nægar
birgðír eru fjTÍr hendi í landinu,
af innlendum kartöflum, að dómi
Búnaðarfjelags íslands. — Bann
þetta skal auglýst 3 vikum áður en
það öðlast gildi á hverjum tíma
og skal tiltekið hvenær því skuli
afljett. Enn fremur segir í frv.,
að atvinnumálaraðherra skuli heim
ilt að greiða alt að lielmingi flutn-
ingskostnaðar með skipum ríkisins
á kartöfflum frá þeim hjeruðum,
sem aflögufær eru, f.il hinna, sém
þurfa að kaupa að kartöfltir.
Tilgangur flm. er, að styrkja
innlenda kartöflurækt. Ymsir þing-
ménn urðu til þess að andmæla
frv. og töldn, að það yrði fyrst
og fremst til þess að hækka verðið
á þessari nauðsynjavöru. En það
mundi aftur leiða af sjer minni
neytslu en ella.
Yitanlega má margt segja með
og möti slíku máli, sem þessu. All-
ir eru sammála um, að efla beri
innlenda framleiðslu sem mest og
best. En verður þetta gert með
höftum og bönnum? Er ekki hin
leiðin farsælli, að bæta skilyrðin
fyrir innlenda framleiðendur? —
Hugsum okkur t. d. hjeruð eins og
Mýrdal og Eyjafjallasveit, sem
sennilega hafa best skilyrði allra
hjeraða á landinu til kartöflurækt-
ar í stórum stíl. En eins og sakir
standa nú, geta þessi hjeruð ekki
notfært sjer sín góðu skilyrði
vegna aðstöðu sinnar; þaxi vanta
samgöngur. Um leið og samgöng-
ur væru orðnar góðar og öruggar
til þessara hjeraða, myndi fram-
leiðslan óðara margfaldast, og þá
hyrfi erlenda varan af sjálfu sjer.
Pyrstu umr. máls þessa varð
ekki lokið í gær.
E>ýska
togaranum
bjargað.
Hann er óskemdur að
öðru leyti en því, að
skrúfan er brotin.
Þýski togarinn, sem strandaði á
laugardaginn, heitir „Lúbeek“ og
er frá Nordenham. Hann var ný-
lega kominn hingað til lands og
hafði að eins verið tvo daga k veið-
um. Hann strandaði 'ekki í Selvogi,
eins og áður er sagt, heldur vestan
við Selvogsvita, inni í Herdísarvík,
á skeri, sem er um 400 metra frá
landi.
Togarinn strandaði kl. rúmlega
tvö á laugardaginn í blindhríð.
Var þá og mikill sjógangur, svo
ao brotsjóar gengu yfir skipið þar
sem það lá. Skipið hefir loftskeyti
og sendi þegar út skeyti og bað
um lijálp. Heyrðust köll þess hing-
að og brá skipaútgerð ríkisins við
og símaði til ,,Ægis“, sem var i
Vestmannaeyjum, og bað hann að
fara vestur, skipinu til aðstoðar.
Nú vildi svo til, að „Uettifoss1,
sem var að koma frá útlöndum, og
I
bafði farið frá Vestmannaeyjum
Hafísinn.
ís úti fyrir alla leið frá Meirakk -
sljettu og vestur á Dýr-.tjö ð.
Undanfarna daga, laugardag og
sunnudag, var stórliríð um Vestur-
land og Norðurland. Áður en hríð-
in brast á, liafði sjest allmikill
hafís fyrir Norðurlandi, jafnveil
bcrgarjakar á stangli skamt frá
Grímsey. Og þegar „Súðin“ fór
fyrir Rauðugnúpa á Sljettu hinn
3. þ. mán. var að eins lítil rás
auð, er hún komst í gegn um.
Þegar norðvestan stórhríðin
brast á, óttuðust menn að hafísinn
mundi reka að landi, en vegna
dimmviðris bárust engar fregnir
um það fvr en í gær. Þá fekk
Veðurstofan frjettir víðs vegar að
og í gærkvöldi fekk Morgunblaðið
þetta jTfirlit frá henni:
Eftir því sem Morgunblaðið
frjetti í fyrradag, hafði talsverðan
ís rekið inn í Dýrafjörð, Húna-
flóa, Siglnfjörð og Eyjafjörð.
„Nova“ kom norðan um land í
fyrrinótt, sagði hafíshroða fyrir
öllu Norðurlandi, en siglingafært.
„Lagarfoss“, sem var á Borðeyri í
fyrradag komst til Hólmavíkur í
^gær.
Nú eiga tvö skip Eimskipafje-
lagsins að fara í strandferðir,
Dettifoss norður til Akureyrar í
liraðferð og „Brúa.rfoss“ austur
mn til þess að safna saman frystu
kjöti til útflutnings á höfnunum:
Revðarfirði, Kópaskeri, Húsavík.
Akureyri, Sauðárlirók og Hvamms
Hafísfregnir Veðurstofunnar.
Mikil ísbreiða liefir sjest NNV
af Patreksfirði. Jakastrjáling hefir
rekið inn Húnaflóa, og er hann
kominn inn á Þingeyrarsand og í
fjöruna lijá Blönduósi.
Mikinn hafís liefir rekið inn á
Skagafjörð vestanverðan. Sjest nú
(í gær) ísbreiða frá Hegranesi út
með Reykjaströnd. En enginn ís
er að austanverðu í firðinum.
Jakastrjálingur er norðan við
Grímsey, en skygni er slæmt til
hafsins fyrir norðan, og erfitt að
gera sjer grein fyrir hvort um
spengur eða liafþök sje að ræða.
tanga.
Nú er undir hafísnum komið,
hvort úr þessum ferðum getur orð-
ið. —
í gær komu þær frjettir að
Ingólfsfjörður og Ófeigsfjörður á
Ströndum væri fullir af ísi. Var
þar kafáldsdimma, svo að ekki
sást hve ísinn var mikill iiti fyrir.
1 Eftir fregnum LTtvarpsins,
reyndu tveir enskir togarar í
fyrradag að komast frá Reykjar-
(firði, en nrðu að hætta við vegna
íss.
Prá Akureyri var símað í gær,
áð töluverður ís væri kominn alla
leið inn fyrir Hrísey.
þá um morguninn, varð var við
togarann og sigldi inn á Herdísar-
vík og lagðist þar nærri strand-
staðnum. Þetta nnm hafa verið
Um kl. 4. Var þá enn mikill sjó-
gangur, og veðurhæð 8 af norð-
aus-tri. Gengu þá brotsjóir yfir
skipið og var ekki viðlit að reyna
björguii. En um þetta leyti var
áttin að breytast meira til norðurs
og dró þá úr kvikunni. Og kl. 5
var sjó farið svo að lægja, að
Dettifoss treysti sjer að setja bát
á flot og reyna að bjarga mönn-
unum úr togaranum. Var það þó
háskalegt mjög en svo giftusam-
lega vildi til, að eftir 214 klukku-
stund hafði tekist að hjarga öllum
togaramönnum, 14 talsins, yfir í
Dettifoss, án þess að neitt slys
yrði að.
Þýski skipstjórinn mun nú hafa
farið fram á það, að Dettifoss biði
þarna og reyndi að ná togaranum
út með flóðinu. En af því að Detti-
foss var í áætlunarferð og með
farþega, og von var á Ægi von
bráðar frá Vestmannaeyjum, gatj
Dettifoss ekki gert annað betra.l
en bíða eftir Ægi. Kom hann undir.
kvöld og stóð togarinn þá enn áj
rjettum kili, og brim fór minkandi.
Þegar Ægir kom voru fluttir um
borð í hann frá Dettifossi skip-
stjóri, fyrsti stýrimaður og fyrsti
Vjelstjóri þýska botnvörpungsins.
•— Lagði Dettifoss svo á stað til
Reykjavíkur kl. rúmlega 9 um
kvöldið með ollefu skipverja af
„Liibeck". og kom með þá hingað
um nóttina.
Björgun skipsins.
Eins og áður er sagt stóð þýski
togarinn á rjettum kili allan tím-
an, og enginn sjór var kominn í
liann. Bar það vott um að skipið
mundi ekki brotið.
Nokkuru eftir að Dettifoss fór,
kom varðskipið „Óðinn“ á strand-
staðinn, og vildi hjálpa til við
björgunina. Varð einhver misskiln-
ingur iir því, og var símað til
Ríkisútgerðar, en hún svaraði, að
ef togarinn næðist út skyldi björg-
unarlaun skiftast jafnt á milli
varðskipanna. -(Skipshafnir fá-
nokkum hlnta björgunarlauna).
Á sunnudagsmorgun var veður
gott og um klulikan 10 tókst að
draga þýska togarann af skerinn.
Var hann þá, sem sagt, óskemdur,
að öðru leyti en því, að skrúfan
var brotin.
Ægir dró svo skipið hingað og
kom með það inn í höfn 1 fyrri-
nótt.
Mun verða gert við togarann
hjer, og er hann þá fær í allan
sjó. —
Úrslit kosninganna í írlandi.
Dublin 5. mars.
United Press. PB.
Kosningaúrslit em nú knnn í
Sligo og Leitrin. Pianna Pail flokk
urinn kom að 4, en stjórnarflokk-
urinn 3. þar á meðal frú Reyn-
old, en maðnr liennar, sem var
frambjóðandi í kosningunum, var
skotinn til bana skömmu áður en
þær fóm fram.
Fullnaðarúrslit þessi:
Pianna Fail 72 þingsæti.
Stjórnarflokkurinn 56 þings.
Óháðir 13 þings.
Verkamenn 7 þings.
Bændur 4 þingsæti.
a i
Brianö Idtinn.
París, 7. mars.
United Press. FB.
Aristide Briand.
Briand andaðist kl. 1 e. h. Bana-
mein hans var hjai'taslag.
Síðar: Briand ljetst í íbúð Sinni
í París. Hafði hann fyrir skömmu
farið til sveitarseturs síns og átt.i
þar við lasleika að stríða. Læknar
hans höfðu bannað honum að fara
til París, en hann skeytti því engU,
því að hann gerði sjer eigi 'jóst,
að lasleiki hans var alvarlegs eðlis.
Versnaði honum skömmu eftir köm
una þangáð. Misti hann meðvítund
í morgun og andaðist, sen: fýrr
segir, kl. 1 e. h.
París, 7. mars.
United Press. PB.
Tardieu hefir tilkynt, að útför
Briands fari fram á kostnað ríkis-
ins og með svipaðri viðhöfn og út-
för Foehs hershöfðingja. Biiist er
við að lík Briands verði jarðsett á
fimtudag á sveitarsetri hans, Göe-
hercel.
(Dagnús Torfason.
Ur Árnessýslu er blaðimi skrif-
að: —
— Okkur lijer eystra kom það
kynlega fyrir sjónir, að Magnús
okkar Torfason skyldi ekki véra
kosinn í neina nefnd í þingbyrjun.
Nú höfum við heyrt, að hann
hafi afsalað sjer dýrtíðaruppbót
af þingkaupi sínu. Leiða menn get-
um að því, að bann hafi afsaíað
sjer dýrtíðaruppbótinni af þvi að
hann fyndi að hann ynni fyrir
minna kaupi en hinir, er töldust
hæfir til nefndarstarfa. En lík-
legt er talið, að stjórnarflokkur-
inn bafi t.alið hann óhæfan til að
starfa í nefndum, vegna þess að
hann sje kominn yfir sextugi.
Svo er því flevgt, að Magnús
sje genginn aftur úr skaítínu í
Framsóknarflokknum, og sje sem
stendur utanflokka, en sje í ein-
hverju snuðri utan um herbúðir
jafnaðarmanna; og talið óvíst. að
honum verði hleypt. þar inn.
-—-»<*>-»“----
„Fröken Júlía“. Næst veiðnr
leikið í kvöld (þriðjudag). Þing-
1 mönnnm verðnr boðið á leiksýn-
ingu þessa. Aðsókn hefir verið
ír.jög mikil að þessari leiksýningu
undanfarið, enda er mikið af leikn-
um látið.
Verslunarskóli íslands beldu"
skólamót í Tðnó 12. þ. m.. verður
nánar auglýst. síðar.