Morgunblaðið - 14.06.1932, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
i
Úteeí.: H.f. Árvakur, Revkjavlk.
Rltatjörar: Jön Kjartanason.
Valt.ýr Stefánaaon.
Rltatjörn og afgrelBala:
Auaturatrœtl 8. — Slati 100.
Augrlýsingaatjöri: B. Hafbarr.
▲uKlýalngraakrifatofa:
Austurstrœti 17. — Slaal 700.
Heimasimar:
Jön Kjartanaaon nr. 741.
Valtýr Stefánaaon nr. 1110.
B. Hafberg nr. 770.
Áakrlftagjald:
Innanlands kr. 2.00 & mánuBi.
Utanlanda kr. 2.60 & æánuBi.
1 lausasölu 10 aura elntaklB.
20 aura met! Leabök.
Frá Siglufirði.
Sig'lufirði, 11. júní.
Mótt. 12. júní. FB.
Agætis tíðarfar að undanförnu
þangað til í fyrri nótt. Gerði lijer
þá norðvestan bleytuhríð og hjelst
hún allan daginn í gær og varð
alhvítt niður að sjó. Sólskin í dag
og liefir snjóinn leyst upp.
Afli hefir verið ágætur að und-
anförnu og er skamt sóttur. Haf-
síldar hefir orðið vart. Hefir veiðst
allvel af henni í reknet.
Frakknesk skonnorta kom lijer
inn í vikunni með veikan mann.
Var hann lagður inn á sjúkrahús
hjer.
Færeysk Skúta, „Silver Bell“
kom inn í gær með 12 menn veika
af inflúensu. Voru þeir einangrað-
ir í skipinu. Mennirnir eru allir í
afturbata.
Safnaðarf undurinn.
Safnaðarfundurinn í dómkirkj-
unni í fyrrakvöld, var fjölsóttur
(um 500 manns). Urðu umræður
miklar um kristindómsfræðslu
æskulýðsins og prestafækkun, en
fóru að mestu leyti allar í þá átt
að árásir þær, sem gerðar hafa
verið gegn kirkju og kristindómi
ætti að verða söfnuðinum hvöt til
meira starfs, einkanlega meðal
•æskulýðs.
Þessar tillögur voru samþyktar
í einu hljóði,-
1. Safnaðarfundurinn mælist til
að sóknarnefnd leitist við að koma
á fót næsta vetur fleiri barna-
guðsþjónustum, eða sunnudaga-
skólum en verið hafa hjer í bæ, og
telur sjerstaklega æskilegt að sú
starfsemi hefjist í þeim hlutum
bæjarins sem lengst eiga til kirkju.
2. Safnaðarfundurinn er mótfall-
inn allri prestafækkun, en telur
nauðsyn á að þjónandi prestum
sje fjölgað hjer í bænum.
Fráfarandi sóknarnefndarmenn,
Matthías Þórðarson og Sigurbjöm
Á. Gíslason voru endurkosnir í
einu hljóði og sömuleiðis safnað-
arfulltrúinn, Kn. Zimsen, borgar-
stjóri.
Verslun Breta.
London, 13. júní .
United Press. FB.
Skýrslur verslunarráðuneytisins
herma, að innflutningur afurða í
maí hafi numið 55.735.344 sterlings
pundum eða 2.248.157 meira en í
apríl, en 13.893.140 sterlingspund-
um minna en í maí í fyrra. Út-
flutningurinn nam í maímánuði
30.196.984 sterlingspundum eða
4.584.929 sterlpd. minna en í apríl
og 3.698.445 minna en í maí 1931.
Fitlantshafsflugið.
Álit sjerfræðingafundarins í Róm, að besta
leiðin sje um Grænland og Island.
Frásögn Sir Hubert Wilkins.
Hinn frægi flugmaður og for-
ingi „Nautili.s1 ‘ -norðurfararinnar,
Sir Hubert Wilkins kom til Kaup-
mannahafnar hinn 2. júní. Hann
var þá á leið til Bergen til þess
að ráðgast við prófessor Sverdrup
um næstu kafbátsför norður í ís-
haf, því að hann er alls ekki hætt-
ur við það áform sitt. Kom hann
nú rakleitt í flugvjel frá sjerfræð-
ingafundinum, sem haldinn var í
Róm, til þess að íhuga og koma
fram með tillögur um það hver
væri heppilegust flugleið yfir At-
lantshaf. Sagðist honum svo frá í
samtali við blaðamann frá „Poli-
tiken“ :
— Vjer, sem höfum flogið yfir
höf og höfum þekkingu á þeim
flugum, komum saman í Bóm til
þess að bollaleggja um það hvort
hægt. muni að koma á föstum og
reglubundnum flugferðum yfir út-
höfin.
Ráðstefnan skiftist í tvær deild-
ir; fjallaði önnur um flug á suð-
urhveli jarðar, en hin um flug á
norðurhve’li. Jeg var auðvitað í
hinni síðarnefndu og jeg get skýrt
yður frá því, að vjer vorum þar
allir á einu máli um það, að lang-
heppilegasta flugleiðin milli Ame-
Qrn rcenir bami
en ketaur því ekki upp
í hreiður sitt.
Sunnudaginn 5. júní kom fyrir
sá atburður í Naumudal í Noregi,
að örn rændi 4 ára gömlu stúlku-
barni. Þar var haldin skírnar-
veisla á bæ, og meðal gestanna
voru foreldrar litlu stúlkunar og
höfðu þau lofað henni með sjeff.
Seinni hluta dags var telpan ein
úti að leika sjer, en þegar farið
var að skygnast að henni fanst
hún hvergi. Var nú lengi leitað,
en loksins hugkvæmdist einhverj-
um að örn, sem á hreiður þar
uppi í háfjalli, mundi hafa rænt
barninu. Var nú lagt á stað upp
í fjallið og hátt uppi í því fanst
barnið meðvitundarlaust, óskaddað
að öðru en því, að það hafði nokkr-
ar smáskrámur á höfðinu. Barnið
sagði frá því, að stór fugl hefði
komið og tekið sig og flogið með
sig þangað. — Menn ætla að örn-
inn hafi ekki haft nóga krafta
til þess áð fljúga með barnið alla
leið upp í hreiðrið; hafi hann
ekki getað hækkað flugið nóg og
er hann tók niðri hafi hann skilið
barnið eftir Þetta var heldur ekki
svo lítil byrði fyrir össu, því að
barnið vegur 18 kíló.
Munnmælasagnir ganga um það
hjer á landi, og geta vel verið
sannar, að ernir hafi haft það til
að ræna ungum börnum.
Forsetakosningin í U. S. A.
Chicago, 13. júní.
United Press. FB.
Flokksþing demokrata kemur
saman hjer þ. 27. þ. m., til þess að
velja forseta og varaforsetaefni
flokksins, í forsetakosningunum
sem fram fara í haust.
ríku og Evrópu væri um Labrador
— Grænland — Island og Norð-
urlönd. Vjer höfum enga trú á
fioteyjunum. Leiðin um Azoreyjar
er ekki heppileg hvorki um veðr-
áttufar nje vegarlengd, og beina
flugleiðin milli Newfoundlands og.
írlands er alt of löng til þess að
flug þar á milli geti borgað sig.
Það verður að velja hina stystu
leið með millistöðvum — og híin
liggur um Grænland.
Jeg þekki svo mikið til flugs á
norðurleiðum, að jeg þykist mega
fullyrða, að þessa leið muni unt að
halda uppi nokkurn veginn reglu-
bundnum flugferðum með flugvjel-
um þeim, sem við eiga. Og þvert
á móti því, sem aðrir halda fram,
hygg jeg að hún sje enn heppilegri
á veturnar, heldur en á sumrin.
Snjórinn leyfir nauðlendingar
miklu víðar, og dimman er ekki til
neinnar hindrunar.
A sumrin eiga menn að nota
flugbáta, á vetrum flugbáta með
skíðum. En að sjálfsögðu er nauð-
synlegt að leita uppi hina rjettu
lendingarstaði og rannsaka veðr-
áttufar rækilega, áður en hinar
föstu flugferðir hefjast.
Hrossamarkaður
f Danmörku.
Morgunblaðið 14. apríl þ. á.
hefir liaft eftir all-langt viðtal
við fyrsta stýrimann á „Island“,
um markað í Danmörku fyrir ís-
lenska hesta. Stýrimaðurinn full-
yrðir, að takast megi að auka sölu
íslenskra hesta erlendis. Jeg trúi
því vel, enda hefi jeg nokkurum
sinnum ritað um það efni í „Vísi“
og fleiri blöð, en jeg hefi þá einatt
tekið fram, að íslendingar fylgdu
hestunum og kendu sem flest-
um útlendum kaupendum, að færa
sjer gæði þeirra í nyt, treysti þeim
betur til þess en mönnum, sem
aldrei hafa við hesta fengist.
Sitt hvað af því, sem stýri-
maðurinn segir, er á rökum bygt,
og hafi íslendingar ekki dáð í
sjer til að notfæra sjer þessar
bendingar hans og annara, um
sölu á reiðhestum nú, þá er að
láta danskinn gera það.
Rjett er það hjá stýrimanni, að
hann stofnaði til sölu á íslenskum
hestum vorið 1929, og fekk Chr.
Zimsen heit. konsúl, til áð annast
um kaup á nær 30 hestum, og
mátti segja, að þeir væru allir
prýðis fallegir og sæmilega góðir
til reiðar. Þessa hesta borgaði C.
Zimsen mjög sómasamlega, og
menn hjer fóru að gera sjer vonir
um framhalds sölu á samskonar
hestum, en hvað skeður 1 Jú, það
sem skeður er það, að stýrimann-
inum eru boðnir hestar fyrir lægra
verð, en um leið lakari. Hann
stenst ekki freistinguna-og kaupir
þá, og síðan mun hánn hafa lagt
stund á, að kaupa ódýrt, og held-
ur lokað augunum fyrir gæðum
hestanna. Eftir sögn mun Zimsen
hafa kunnað þessn illa, og eftir
það því lítið fengist. við kaup á
hestum fyrir stýrimann og fjelaga
hans.
Innanhandar var fyrir stýrimann
að fá liesta með þeirri stærð, sem
hann telur heppilega, 52—54 þml.
hefði hann fundið hvöt hjá sjer til
að greiða fyrir þá sæmilegt verð,
og jeg þori að fullyrða, að enn þá
getur hann fengið nokkur hundruð
hesta af þessari stærð, ef hann
sjer sjer fært að borga þá nokkuð
hærra verði en algeng markaðs-
liross.
Rjett er það hjá stýrimanni, að
bændur hjer þurfa að rækta hesta
sína og er fyrir löngu byrjað á
því, þótt enn kunni að, sjást þess
lítil merki.
í þetta sinn hirði jeg eigi að
rita um þetta mál lengra, en
benda vil jeg bændum á, að eitt-
hvað verða þeir að gera til þess
að opna markað fyrir hesta sína
erlendis, nema þeir ætli í framtíð-
inni aðeins að ala upp hesta til
átu fyrir menn og refi hjer.
Dan. Daníelsson.
Dagbók.
Veðrið (mánudagskvöld) kl. 5):
Suðvestur af Islandi er djúp og
víðáttumikil lægð, sem veldur SA-
og S átt hjer á landi með lítils
háttar rigningu á S- og V-landi,
en bjartviðri á N- og A-landi.
Suðvestan lands er vindur orðinn
allhvass og hvass í Vestmannaeyj-
um. Hiti er víðast 10—13 st., mest-
ur 15 st. á Akureyri og Seyðisfirði,
en minstur 8 st. í Grímsey og á
Raufarhöfn. Lítur út fyrir SA-læga
átt og hlýindi um alt land næstu
dægur með rigningu í flestum hjer
uðum landsins.
Veðurútlit í Rvík í dag: S-kaldi.
Hlýtt og dálítil rigning öðru
hvoru.
íslenska flugvjelin. Margir bæj-
arbúar gerðu sjer ferð í K. R.-
húsið á sunnudaginn á flugsýning-
una. Var það einkum íslenska flug-
vjelin sem vakti þar athygli
manna. Það hefði þótt ótrúlegt
lijer áður, ef því hefði verið spáð,
að íslenskir hagleiksmenn tækju
sjer fyrir hendur að smíða sjer
flugvjel. Menn fara í K. R.-húsið
til þess að sjá þetta með eigin
augum.
Prófprjedikun. Guðfræðikandí-
datinn Gunnar Jóhannesson flytur
prófprjedikun sína í dómkirkjunni
á morgun (miðvikudag) kl. 11 ár-
degis.
Skipafrjettir. Gullfoss kom í
fyrrakvöld og fer hjeðan á morg-
un áleiðis til Kaupmannahafnar.
— Goðafoss kom hingað á sunnu
dagsnótt frá útlöndum, fer í kvöld
kl. 10 vestur og norður. — Brúar-
foss fer frá Kaupmannahöfn í dag.
— Lagarfoss er í Kaupmannahöfn.
— Dettifoss kom til Hull í fyrri
nótt. — Selfoss er í Reykjavík.
Jarðarför frú Guðnýjar Ólafs-
dóttur fer fram í dag og hefst með
húskveðju kl. 1 að heimili hennar,
Ingólfsstræti 6.
Fjelag ísl. loftskeytamanna held
ur fund í dag kl. 14 í Hótel Borg.
Allsherjarmót í. S. f. hefst hjer
á íþróttavellinum 17. júní eins og
vant er. Munu þar keppa margir
fræknir íþróttamenn. Meðal ann-
ars er sagt að Vestmanneyingar
sendi 12—14 sína bestu menn. —
Meðal þeirra verða hlaupararnir
Karl Sigurhansson og Gísli Finns-
son.
19. fánadagurinn var hátíðlegur
haldinn að Álafossi s.l. sunnudag,
að tilhlutun Sigurjóns Pjetursson-
ar glímukappa. Ræður hjeldu þeir:
Benedikt Sveinsson fyrv. alþm.,
fyrir minni fánans, og Steinn Sig-
urðsson skáld, fyrir minni Islands,
og sagðist báðum vel. Síðan var
haldið upp að Álafosslauginni. —
Voru þar háðir úrslitaleikir í
sundknattleiksmóti Islands. En það
mót hófst miðvikudaginn 8. júní.
Dómari var Björgvin Magnússon.
Þrjií fjelög tóku þátt I mótinu:
Ármann, K. R. og Ægir, er sendi
tvær sveitir. Urslit urðu þau, að
A-sveit Ægis vann mótið, hlaut 6
stig (sigraði Ármann með 8:1, K.
R. með 10:0 og B-lið Ægis með
14:0). Ármann fekk 4 stig (sigr-
aði K. R. með 3:0 og B-lið Ægis
með 11:2). K. R. fekk 2 stig, (sigr.
aði B lið Ægis með 2:1). tlrslita-
leikurinn var mjög skemtilegur,
síðari hálfleikurinn. þó ef til vill
nokkuð harður. Mátti þar sjá
marga vaska og snjalla sundmenn,
sem lofa góðu um framtíðina, ef
þeir sækja vel æfingar. Því næst
var sýndur skopleikur, þá afhent
verðlaun, og loks var dansað til
miðnættis. — Jónas Halldórsson,
sundkappi Islands, fekk sjerstök
heiðursverðlaun frá Sigurjóni Pjet
urssyni. Fjölment var að Álafossi
um daginn, enda veður gott.
Ferð Gullfoss til Hvalfjarðar. I
kvöld kl. 81/) verður lagt af stað
frá hafnarbakkanum í skemtiför
þá, sem kvennadeild Slysavamar
íslands efnir til, til ágóða fyrir
starfsemi sína. Þótt það kunni að
virðast að bera í bakkafullan læk-
inn að bjóða upp á eina útiskemt-
un enn, og það meira að t segja á
rúmhelgum degi, er hjer um nýj-
ung að ræða, sem er þannig, að
ólíklegt er að þátttöku skorti, verði
veður sæmilegt. Eimskipafjelag ís-
lands sýnir starfi deildarinnar þá
miklu rausn, að lána eitt af skip-
um sínum — sjálfan Gullfoss —
til fararinnar. Hjer gefst bæjar-
búum eitthvert hið besta tækifæri,
sem þeir geta kosið sjer, til þess
að lyfta sjer upp eina kvöldstund
•— við siglingu á sumarbjartri
nóttu — dans á þiljum uppi — og
geta um leið notið náttúrufegurðar
þess f jarðarins, sem skáld vor hafa
rómað, sem fegurstan allra ís-
lenskra fjarða. Og svo að sigla
heim aftur um sólarupprás. Þetta
er það sem kvennadeild Slysa-
varnarfjelagsins hefir upp á að
bjóða og væntir hiín þess að marg-
ir verði til að taka því boði og
styðja um leið að fjársöfnun þeirri
sem hún vinnur að með öðrum
deildum þessa þarfa fjelagsskapar,
og sem miðar að því að efla öryggi
sjófarenda hvar vetna við strend-
ur lands vors.
Sigurður Þórarinsson frá Akur
eyri hefir lokið prófi í heimspeki
við háskólann í Kaupmannahöfn,
með ágætiseinkunn.
Karlakórinn Geysir á Akureyri
fór í fyrradag til Húsavíkur að
halda þar samsöng. Segir frjetta-
ritari Morgunblaðsins þar, að söng
skemtunin hafi verið sótt mjög vel,
og áheyrendur hafi skemt sjer
prýðilega. Annan samsöng ætla,ði
kórinn að halda í Laugaskóla.
Prestskosningin í Hafnarfirði. —
Atkvæði verða talin á fimtudag-
inn kemur.
Kvenfjelagið Gefn í Garði ætlar
að halda skemtun í samkomuhús-
inu í Gerðum næstk. föstudag kl.
4%. Sjá nánar í auglýsingu í blað-
inu í dag.
Aðalræðismaður Svía, Holmgren,
sigldi með islandi á laugardaginn
var, og verður fjarverandi um
t.veggja mánaða tíma. Fenger fyr-
verandi ræðismaður er settur sem
útsendur ræðismaður'. til að gegna
ræðismannsstörfum hjer á meðan.
Skipstjóra- og stýramannafjelag-
ið „Ægir“ heldur aðalfund sinn í
Varðarhúsinu í dag kl. 2 síðd.