Morgunblaðið - 15.06.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
»
^IorgnnblaM^
Útget.: H.f.i Arvakur, Raykjavlk.
Rltatjörar: Jön KJartanaaon.
Valtýr Stef&naaon.
Rltatjörn ogr afgrrelöala:
Auaturatrœtl 8. — Slaal 100.
Aufflýalngaatjörl: H. Hafbarc.
Au^lýslngraakrifstofa:
Auaturatrætl 17. — Slml 700.
Helmaalmar:
Jön KJartanaaon nr. 741.
Valtýr Stefánaaon nr. 1110.
H. Hafber* nr. 770.
AakrlftagrJald:
Innanlanda kr. 2.00 & mánuOl.
Utanlanda kr. 2.60 & mánuBl.
1 lauaaaölu 10 aura eintaklO.
20 aura meO Leabök.
Mentaskóli Norðurlands.
Akureyri, FB. 14. júní.
Mentaskóla Norðurlands var
sagt upp í dag. Stúdentsprófi luku
fimtán nemendur, jjar a£ tvefr ut-
anskóla. Níu hlutu fyrstu einkunn,
en sex aðra, — Gagnfræðaprófi
luku fjörutíu og átta nemendur,
tuttugu og sex með fyrstu ein-
kunn, tuttugu og einn með annari
og einn með þriðju einkunn. Alls
gengu 196 nemendur undir próf í
skólanum.
Pjóðaratkuceði um
bannið í Banða-
ríkjunum.
Washington, 14. júní.
United Press. FB.
Fullyrt er eftir áreiðanlegum
heimildum að Hoover forseti muni
fallast á, að tekið verði upp í
stefnuskrá republikana í forseta-
kosningunum, að þjóðaratkvæði
verði látið fram fara um það,
ihvort afnema skuli bannlögin eða
ekki, en hinsvegar er bann mót-
fallinn því, að flokkurinn lýsi yfir
fylgi við afnám eða breytingu að
svo stöddu.
Blaðasýning í London.
5amsteypustiórnin,
kjörðcEmamálið og blöðin.
London í júní. FB.
Þ. 25. maí s.l. var opnuð „blaða-
sýning“ í London í þeim tilgangi,
að gera mönnum ljóst, hve miklar
framfarir hafa orðið í öllu, sem
snertir iitgáfu frjettablaða í Bret-
landi, frá árinu 1665 til vorra
daga, en það ár má te!lja að útgáfa
frjettablaða hafi byrjað í Bret-
landi. Br hjer auðvitað átt við
frjettablaðaútgáfu, sem líkist að
nokkru frjettablaðaútgáfu eins og
hún tíðkast á vorum dögum. —
Frjettablaðið breska sem þá hóf
göngu sína, kemur enn út, „London
Gazette“. Þegar póstferðir urðu
almennar og búið var að skipu-
leggja þær vel hófst velgengnis-
tímabil fyrir frjettablöðin, enda
var þá farjð að stofna dagblöð,
„The Times“ og fleiri. Þótti Times
þegar fyrirmynd annara blaða og
þykir enn í dag. Br það talið eitt
af vönduðustu og bestu frjetta-
blöðum heims, og margir sjerfróð-
ir menn álíta, að að öllu saman-
lögðu standi Times fremst heims-
blaðanna. — Á sýningu þeirri, sem
að framan getur um, er mikinn
fróðleik að finna, um sögu fereskra
blaða. M. a. eru sýnishorn af helstu
blöðum landsins alt frá stofndegi
«g t'il vorra daga.
Tildrögin að myndun sam
steypustjórnar.
Alþýðublaðið og Tíminn virðast
vera í vandræðum með að skýra
fyrir lesendum sínum tíðindi þau,
er gerðust nú í þinglokin, þegar
mynduð var samsteypustjórn,
studd að mestu leyti af tveimur
aðalflokkum þingsins. Bæði eru þó
blöðin sammála um eitt, en það
er: Að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
svikið kjósendur sína í kjördæma-
málinu. Þó vita þessi blöð mjög
vel, að þessi fullyrðing þeirra er
tilhæfulaus og því sögð gegn betri
vitund. Þau vita, að þátttaka
Sjálfstæðisflokksins í myndun
samsteypustjórnar var einmitt með
það fyrir augum, að fá viðunandi
lausn á kjördæmamálinu.
Þegar ráðuneyti Tryggva Þór-
hallssonar hafði beðist lausnar,
^benti Framsóknarflokkurinn á Ás-
geir Ásgeirsson til þess að mynda
nýtt ráðuneyti. Reyndi Ásgeir Ás-
geirsson fyrst að mynda hreint
flokks-ráðuneyti, en það strandaði
á því, að ekki fekkst samkomulag
um lausn kjördæmamálsins. Meiri
hluti Framsóknarflokksins stóð þar
í vegi.
Næsta skrefið var svo það, að
Framsóknarflokkurinn sneri sjer
til beggja andstöðuflokkanna með
tilmæli um, að flokkarnir tækju
þátt í myndun samsteypustjórnar.
Þessu svaraði Alþýðuflokkurinn
neitandi fyrir sitt leyti. Sjálfstæð
isflokkurinn tók hins vegar þessari
málaleitan vel, eins og sjest á eft-
irfarandi brjefi:
„Reykjavík, 31. maí 1932.
Út af brjefi Framsóknar-
flokksins dagsettu í dag, sam-
þykti Sjálfstæðisflokkurinn á,
fundi sínum í dag svofelda
ályktun:
„Ef Ásgeir Ásgeirsson fjár-
málaráðherra, sem hefir eins og
stendur umboð konungs til að
mynda nýtt ráðuneyti, leitar til
Sjálfstæðisflokksins um þátt-
töku í myndun ráðuneytis með
sjer úr öllum flokkum í því
skyni fyrst og fremst að leysa
kjördæmamálið, þá vill Sjálf-
stæðisflokkurinn taka vel undir
þá málaleitan.
Um afgreiðslu fyrirliggjandi
þingmála mundi flokkurinn að
sjálfsögðu vilja taka fult tillit
Samsteypustjórmn og kjör-
dæmamálið.
Þáttaka Sjálfstæðisflokksins í
myndun samsteypustjórnar var
fyrst og fremst ger með það fyrir
augum, að fá viðunandi lausn á
kjördæmamálinu. Þetta kemur
skýrt fram í brjefi þingflokksins,
sem birt var hjer að framan. —
Þetta kom einnig fram í tilkynn-
ingu þeirri, er flokkurinn sendi
út, eftir að liann hafði ákveðið
þátttöku í samsteypustjórn og
valið mann til að taka þar sæti.
Hefir tilkynning þessi áður verið '
birt, en þar er svo að orði komist,
að flokkurinn telji „að í höndum
þessarar samsteypustjórnar fáist
viðunandi úrlausn kjördæmamáls-
ins á næsta þingi“.
Reynist það svo, sem vonandi
verður, að viðunandi iirlausn kjör-
dæmamálsins fáist á næsta þingi,
hljóta allir að sjá, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir ekki svikið í
þessu máli; þvert á móti. Hann
hefir þá borið gæfu til, að koma
þessu mikla rjettlætismáli í ör-
ugga höfn. En hitt vita allir, að
ómögulegt var að fá þetta mál
leyst á viðunandi hátt á síðasta
þingí.
Svikaáburður andstæðingablaða
Sjálfstæðisfl., ætti þá að byggj-
ast á því, að eigi hafi fengist full
trygging opinberlega fyrir því, að
má’lið verði leyst á viðunandi hátt
á næsta þingi.
Vitanlega er ógerningur að fara
að deila við þessi blöð, um þetta
eða hitt, sem á að ske á Alþingi
á komandi ári. Þingflokkur Sjálf-
stæðismanna er sannfærður um,
að leið sú, sem farin var sje ör-
uggust til þess að ná settu marki
í kjördæmamálinu. Og kjósendur
Sjálfstæðisflokksins víðsvegar um
land hafa fengið sannanir fyrir því,
að þingflokkurinn hefir ekki verið
að svíkja þá í málinu, því að
Ásgeir Ásgeirsson lýsti yfir því
á Alþingi, að hann telídi sjer skylt
að flytja stjómarskrárfrumvarp á
næsta þingi, er feli í sjer sann-
gjarna lausn á þessu máli.
Mótsagnir andstæðinganna.
Annars er það eftirtektarvert,
að innan um hróp andstæðingablað
anna um „svik“ Sjálfstæðismanna,
koma einnig fram háværar óá-
Þetta má til sanns vegar færa
að því er forsætLráðherranm snert-
ir. .Sjálfstæðismenn hefðu vitan-
lega aldrei fengist til þess að taka
þátt í myndun samsteypustjórnar
undir forystu manns, sem ekki
hefði viljað ganga til móts við þá
í kjördæmamálinu. Þetta gerði Ás-
geir Ásgeirsson núverandi forsæt-
isráðherra, og Sjálfstæðisflokkur-
inn treystir því, að hann beri gæfu
til að leysa málið giftusamlega á
næsta þingi.
Af því, sem að framan er sagt,
er ljóst, að Sjálfstæðismenn hafa
hreinan skjöld í kjördæmamálinu.
Hitt er skiljanlegt, að bitlingaliðið
í fylkingu Framsóknar og sósíal-
ista kunni því illa, að matgjafi
þeirra liefir nú hröklast úr valda-
stóli. — I ergelsinu ráðast þessir
menn á þann flokk, sem stutt
hefir að ’ þessari ráðabreytni, en
gæta þess ekki, að árásir þeirra
eru hjáróma og missa marks.
Dagbók.
Ýmsar frjettir.
til óska hinnar nýju stjórnar.” nægjuraddir í garð þeirra manna
innan Framsóknarflokksins, er
Þetta tilkynnist yður hjermeð.
Virðingarfylst,
Jón Þorláksson.
Pjetur Ottesen.
Til starfandi formanns Frams-
sónkarflokksins,
hr. álþm. Binars Árnasonar,
Alþingi."
Bn samsteypustjórn með þátt-
töku allra flokka strandaði á því,
sem kunnugt er, að Alþýðuflokk-
urinn vildi ekki vera með.
Leitaði þá Ásgeir Ásgeirsson
héfanna hjá Sjálfstæðisflokknum,
gengið hafa til móts við Sjálf-
stæðismenn, einmitt í kjördæma-
málinu. Þetta er sjerstaklega áber-
andi í Tímanum. Þannig skrifar
nýlega ritstjórinn langa forystu-
grein, þar sem hann breiðir sig yfir
„svik“ Sjálfstæðismanna. En á
næstu síðu í sama blaðinu birt-
ist kjállaragrein eftir dómsmála-
ráðherrann „sáluga“, þar sem
hann skýrir frá því, að Ásgeir
Ásgeirsson sje staðráðinn í að
ganga til móts við Sjálfstæðis-
menn í kjördæmamálinu og leysa
það á næsta þingi. Meira að
segja tekur J. J. svo djúpt í
Ástandið á Spáni þykir mjög
varhugavert. Verkföll eru tíð og í
sambandi við þau hafa verið alls
konar óspektir, sprengjur og skot-
vopn notað og almargir drepnir.
Lögreglan hefir víðsvegar gert
upptæk vopn, og komið í veg fyrir
upphlaup og morð. Jafnaðarmenn,
sem staðið hafa fyrir flestum verk
föllunum, afsaka sig með því, að
þeir geti ekki hafið verkföll án
þess að syndikalistar, kommúnist-
ar og stjórnleysingjar taki þátt í
þeim. Og jafnframt eru þeir
ráðalausir að hefta það, að hinir
svæsnustu af þeirra mönnum sýni
af sjer ofstopa. Frjettaritarar á
Spáúi segja að ekki sje hægt að
kveða upp neinn dóm um það,
hvort alvarleg hætta sje á ferðum,
eða þetta sje alt málamyndaupp-
þot. Stjórnin heldur því fram, að
hún sje fullkomlega fær um það að
halda uppi friði og reglu, og mest-
ur þorri þjóðarinnar trúir þessu,
lifir rólegu lífi og sýnir ekki af
sjer neinn óttavott.
Zuidersjóriim er nú orðinn að
stöðuvatni. Fyrir nokkurum dög-
um var fu'llgerður varnargarðurinn
þvert yfir hann. Br sá varnargarð-
ur um 30 kílómetra langur. Bru
fjögur ár síðan Hollendingar byrj-
uðu á þessu verki og þurkun fló-
ans, og hefir það kostað 216 milj
marka. Bráðabirgðahátíðahöld fóru
þar fram þegar garðhleðslan var
fullgerð, en innan skamms verður
garðurinn vígður í viðurvíst Vil-
helmínu drotningar.
um þátttöku af hans hálfu í mynd- árinni, að hann fullyrðir að Sjálf-
un samsteypustjórnar. Eftir að
samningar höfðu staðið um hríð
viðvíkjandi lausn kjördæmamáls-
ins, o. fl., komst á fult samkomu-
lag og samsteypustjómin var
mynduð.
stæðismenn hafi — með tilliti til
kjördæmamálsins — valið menn-
ina í samsteypuráðuneytið, ekki
aðeins sinn eigin flokksmann, held-
ur einnig ráðherra Framsóknar-
fiokksins.
Hraðsigling. Hinum stóru segl-
skipum fækkar óðum, en þó taka
allmörg þátt í keppninni í sumar
um það, hvert siglt geti á skemst-
um tíma milli Ástralíu og Bng-
lands, eins og áður hefir verið
sagt frá í blaðinu. Fyrsta skipið
„Herzogin Cecilie“ (fjórmastrað
skip) er nýlega komið til Fal-
mouth í Englandi eftir 106 daga
siglingu frá Port Augusta í Ástr-
alíu og er þetta sú hraðasta ferð,
^em sögur fara af í þessari sigl-
ingakeppni. Skipstjórinn heitir
feven Briksson og sagði hann að
skipið hefði fengið hörð veður
á leiðinni, en verst af öllu hefði
þó verið það, að hann hefði einu
smni orðið að liggja sex daga
samffleytt í byrleysu.
□ Edda. Skemtiferð 2. júlí.
Þátttaka tilkynnist S.‘. M.-. (sími
96) fyrir 20 þ. m.
Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5):
Lægðin fyrir suðvestan land fer
nú minkandi og breytist lítið. Húm
veldur hlýrri S-lægri átt um alt
land og dálítilli rigningu á A-, S-
og V-landi. Hiti er 12—-15 st. á S-
og V-landi og alt að 18—20 st.
nyrðra. Veðurhæð er víðast 3—5
vindstig. Mun S-læg átt og hlýindi
haldast hjer á landi næstu dægur.
Veðurútlit í Rvík í dag: S- eða
SV-gola. Smáskúrir. Hlýtt.
Hjálpræðisherinn. Samkoma í
Bethaníu í kvöld kl. 8y2. Ofursti
Holmes og majór og frú Bechelt
tala. Margir foringjar aðstoða. —
Mikill söngur og hljóðfærasláttur.
Allir velkomnir.
Farsóttir í maí. í þessum mánuði
eru skráð 635 tilfelli af kvefsótt,
mr af 469 í Reýkjavík og á Suður-
landi, 387 tilfelli af kverkabólgu,
218 af inflúensu, 130 af iðrakvefi,
50 af kveflungnabólgu, 32 af tak-
sótt, 20 af gigtsótt, 30 af skarlat#-
sótt (7 í Rangárhjeraði, 18 í Vest-
manneyjum, 4 í Siglufirði, 1 í
Svarfdælahjeraði), 13 af mænusótt
(7 í Reykjavík, 2 í Skipaskagæ-
hjeraði, 2 í Eeyrarbakkahjeraði, 2
í Hólshjeraði), 17 af blóðsótt (19
Svarfdælahjeraði og 7 í Oxar-
fjarðarhjeraði).
Hafnarvitamir. Sú breyting hef-
ir nýskeð verið gerð á vitunum
báðum megin við hafnarmynnið
hjer, að nú sýna þeir leiftur 39
sinnum á mínútu, í stað 20 sinnum
áður.
Jón Ingimarsson bóndi í Breið-
holti hefir farið fram á það við
bæjarstjórn, að hann fái styrk
yegna fræðslu þriggja skólaskyldra
barna sinna s.l. vetur, því að
fræðslan segir hann að hafi kostað
sig 300 krónur, eða 100 krónur á
barn. Skólanefnd hefir ekki sjeð
sjer fært, að svo stöddu, að mæla
með beiðninni.
Áttræðisafmæli á í dag Sigurður
Gunnarsson járnsmiður, Laugaveg
51. —
Lokunartími sölubúða. Verslun-
armannafjelagið „Merkúr“ hefir
farið fram á það við bæjarlaga-
nefnd að sú breyting verði gerð á
samþykt um lokunartíma sölubúða,
að biiðum verði lokað kl. 4 á laug-
ardögum í júní, eins og í júlí og
ágúst. Þá hefir stjórn Bakara-
meistarafjelags Reykjavíkur farið
fram á þá breytingu á lokunartíma
brauðsölubúða, að á sunnudögum
verði búðirnar opnar kl. 9—4 og
á laugardögum, yfir sumarmánuð-
ina frá kl. 8—19. Nefndin leggur
til við bæjarstjórn að hvorugu er-
indinu verði sint. Þó vill einn
nefndarmanna (St. Jóh. St.) verða
við fyrri beiðninni.
Bóksala Mentaskólans heitir
sjálfstæð stofnun innan skólans,
sem starfað hefir í nokkur ár. —
Markmið hennar er það, að kaupa
vorin þær námsbækur, er nem-
endur þurfa eigi lengur á að halda
og selja þær aftur á haustin öðrura
nemendum. Hefir blaðið verið beð-
ið að minna Mentaskólanemendur
á, að bóksalan verði opin í dag
kl. 1—3.
Gaskolaskip. Gasnefnd bæjarins
óskaði nýlega eftir tilboðum um
sölu á alt að 1200 sm'ál. af gas-
kolum. Bárust henni 8 tilboð. Var
hæ4ta verðið 26 shillings 1 x/2 d.
smálestin, en lægsta 23 sh. 11 d.
cif. Reykjavík. Var það tilboð frá
O Johnson & Kaaber, og hefir
gasnefnd samþykt að taka því til-
boði, þó með þeim fyrirvara, að
erlendur gjaldeyrir fáist til
gieiðslu á koluntim.