Morgunblaðið - 28.06.1932, Síða 2
3
MORGUNBIAÐIÐ
Nokkrir kassar óseldir.
Hyggnar húsmæður kaupa að eins Libby s dósamjólkina.
Leggið ekkl f mlistOðina
en notið „Therma“ rafmagnsofna. — Þeir eyða rafmagni
fyrir 6 aura á klukkustund og fást hjá
Jnlíns Björnsson.
Raftækjaverslun. — Austurstræti 12.
verið utan um hana alla sements-
steypu, svo að hún væri nú orðin
sem úr steini. Ný prestseturshús
höfðu verið reist á Mosfelli í Mos-
fellssveit, á Skinnastað og á Yatns
enda í Ljósavatnsskarði.
Loks mintist biskup bókagerðar
kristilegs og kirkjulegs efnis, tíma
rita, sem hætt væru að koma út
(Straumar og Lindin) og þeirra
sem enn kæmu út (Prestafjelags-
rits og Bjarma o. fl.) Þá drap
liann að endingu á endurskoðun
Helgisiðabókarinnar, sem nú mætt.i
fullger heita af hendi þeirra
vígslubiskups Sig. Sivertsen og
docents Ásmundar Guðmundsson-
ar, sem falið hafði verið það verk
á síðustu prestastefnn. — Og
mundi það verk þeirra verða lagt
fyrir preststefnu þessa og nefndir
kosnar til yfirfara það.
Þá fór fram úthlutun styrktarf jár
til 52 prestsekkna og 4 uppgjafa-
presta. Var a'lls úthlutað kr. 9590,-
00. Enn fremur var lagður fram
reikningur Prestsekknasjóðs, sem
við nýár var orðinn kr. 62.480.43.
Voru að endingu kosnar fjórar
nefndir til að yfirfara tillögur
helgsiðabókarnefndar, og að því
loknu fundi slitið .
Kl. 9 um kvöldið flutti vígslu-
biskup Sig. P. Sivertsen erindi í
dómkirkjunni um starfshætti
kirkjunnar.
Prestastefnan 1932
Á fimtudag 23. júní hófst
prestastefnan hjer í bænum, með
guðsþjónustu í dómkirkjunni, að
viðstöddum fjölda presta og miklu
fjölmenni sóknarfólks; því að í
guðsþjónustu þessari fór frarn
vígsla þriggja prestsefna, kandí-
datanna Garðars Þorsteinssonar
(skipaðs sóknarprests í Garða-
prestakalli). Jóns Jakobssonar
(setts sóknarprests í Bíldudal) og
Jóns Þorvarðarsonar (aðstoðar-
jirests til Mýrdalsþinga). Sjera
Eiríkur Albertsson á Hesti flutti
synodus-prjedikun og lýsti um leið
vígslu, en við vígsluna aðstoðuðu
sjera Eiríkur Albertsson, sjera
Þorvarður próf. Þorvarðarson og
báðir dómkirkjuprestarnir. Sjera
Jón Jakobsson prjedikaði eftir
vígslu, en síðan voru ungu prest-
arnir ásamt biskupi og synodus-
prestunum til altaris, en dóm-
kirkjuprestar báðir þjónuðu fyrir
altari.
Ki. 5 síðd. var prestastefnan sett
aí' biskupi í samkomusal K.F.U.M.
og hófst með bænarflutningi og
sálmasöng. Voru þar þá mættir
38 andlegrar stjettar menn (meðal
þeirra 6 uppgjafaprestar) og 4
kandidatar í guðfræði.
Biskup gaf síðan ítarlegt yfir-
lit yfir viðburði næstliðins far-
dagaárs. — Mintist hann fyrst 3
látinna presta þjónandi, þeirra
prófastanna sjera Árni Björnsson-
ar í Hafnarfirði og sjera Jóns
Pálssonar á Höskuldsstöðum og
prestsins sjera Sigurðar Jónssonar
á Lundi, og svo uppgjafaprest-
anna og prófastanna sjera Einars
Jónssonar á Hofi og Stefáns Jóns-
sonar frá Staðarhrauni. Enn frem-
ur prestsins Þórðar Tómassonar í
Yemmetofte á Sjálandi, og loks
fyrrum prests á Kvíabekk sjera
Magnúsar Ó. Jósefssonar, sem lát-
ist hafði vestur í ‘W'innipeg. —
Einnig mintist biskup látinnar
prestsekkju Ragnbildar Gísladótt-
ur frá Eyvindarhóium. Lausn frá
prestskap hafði aðeins einn prest-
ur fengið, sjera Einar próf Thor-
lacius í Saurbæ. Nýir prófastar
höfðu verið skipaðir, sjera Björn
Stefánsson á Auðkúlu fyrir Húna-
vatnsprófastsdæmi og sjera Þor-
steinn Briem fyrir Borgarfjarðar-
prófastsdæmi. Settir höfðu verið
prófastar sjera Bjarni Jónsson fyr-
ir Kjalarnes- og sjera Þorv. Þor-
varðarson fyrir V.-Skaftafellspró-
fastsdæmi. Prestaköll höfðu verið
veitt 5 að tölu: Eyraprestakall sr.
Einari Sturlaugssyni, Grenjaðar-
staðir sjera Þorgr. V. Sigurðssyni,
Höskuldsstaðir sjera Helga Kon-
ráðssyni, Breiðabólstaður á Skóga-
strönd sjera Bergi Björnssyni og
Garðar á Álftanesi kand. Garðari
Þorsteinssyni. En í þessi prestaköll
höfðu verið settir prestar: í Kirkju
bæjarklaustursprestakall: kand.
Oskar Þorlákssson, í Bíldudals-
prestakall kand. Jón Jakobsson
og Saurbæjarprestakall á Hval-
fjarðarströnd : sjera Sigurjón Guð-
jónsson. Vígslu höfðu tekið á ár-
inu: Prófessor S. P. Sivertsen, sem
vígslubiskup, en 5 kandidatar
hlotið prestsvígslu (að þremur síð-
astvígðum meðtöldum).
Þá mintist biskup nýrra kirkju-
legra iagaboða frá sumarþinginu
1931 og frá síðasta þingi, skýrði
frá kosningu í kirkjuráð af hálfu
prestastjettar (Kosnir höfðu verið
Þorsteinn prófastur Briem og
vígslubiskup S. P. Sivertsen). -
Nýjar kirkjur höfðu verið reistar
í Vallanesi og Skarði á Landi,
endurreistar í Gröf í Skaftár-
tungu og á Lágafelli, og væri þær
að skoða sem nýjar. Lágafells-
kirkju hafði biskup vígt, svo og
kirkjuna í Vallanesi og á Skarði.
Hann hefði og lagt hyrningar-
stein hinnar nýju kirkju Siglu-
fjarðar, sem enn væri í smíðum.
Einnig væri í smíðum ný kirkja
að Tjorn á Vatnsnesi. Loks hefði
Skútustaðakirkja fengið þá ein-
kennilegu viðgerð, að steypt hefði
Framh.
Iðnsýningin.
Húsgögn.
Eins og að líkum lætur, er tals-
vert af húsgögnum á sýningunni
og frá mörgum framleiðendum. í
stofu nr. 9 er sýning frá Smíða-
stofunni Reyni, í stofu nr. 10
sýningar frá Jóni Halldórssyni &
Co. og Erlingi Jónssyni, í stofu
nr. 13 sýning á svefnherbergis-
húsgögnum, sem blindur maður
hefir smíðað og sýnir Blindravina-
f jelagið þau. I stofu nr. 14 er sýn-
ing frá Lofti Sigurðssyni. Þar sýn-
ir einnig ungfrú Soffía Stefáns-
dóttir myndskeri, en á sýningu
hennar verður síðar minst í öðru
sambandi. í stofu nr. 16 er sýn-
ing frá trjesmíðavinnustofunni
Dvergur í Hafnarfirði og í stofu
m. 7 sýnir vjelsmiðjan Hjeðinn
lnisgögn úr járni.
Jón Halldórsson & Co. mun
vera elsta starfandi búsgagna-
verksmiðja á landinu, á aldar-
fjórðungsafmæJi á næsta ári. —
Stendur því á gömlum merg, og
aðallega vegna þess, að langt er
síðan að hún var nafnkunn um
alt land íyrir framleiðslu sína.
Hún hefir jafnan haft úrvalssmið-
um á að skipa og hefir lagt sjer-
staka áherslu á vandvirkni í hví-
vetna. Svefnherbergishúsgögn þau
sem hún hefir þarna á sýning-
unni munu líka eiga að vera sýnis-
horn þess hvað Islendingar geta
framleitt vandaðar og fallegar
vörur. Og handbragðið á þessum
munum er bæði firmanu og smið-
unum til sóma.
Erlingur Jónsson sýnir dagstofu-
húsgögn, fóðruð og bólstruð. Eru
þau smíðuð af Guðjóni Pjeturs-
syni húsgagnasraið og hin smekk-
legustu, að öllum frágangi og með
nýtísku lagi. Er þar stór setubekk-
ur, tvær tegundir af stólum, bóka-
skápur, sem jafnframt er skrifborð
og rafmagnslampi. Húsgögn þessi
eru vönduð, en þurfa lielst að
vera í stórri stofu til þess að
njóta sín.
Sýning Smíðastofunnar Reynis
ei hin stærsta húsgagnasýning
þarna. Þar eru setustofuhúsgögn
úr rósavið og birki, af nýjustu
gerð. Eru þar t. d. stólar með
löngum lausum setum og er það
lag fátíttxhjer. Þarna er og sam-
settur skápur, í rauninni þrír
skápar, sem falla saman. — Má
eftir því, sem húsakynni eru, gera
úr honum tvo eða þrjá skápa. —
Einn skápurinn er skrifborð um
leið og skjalageymsila, annar fyrir
bækur og sá þriðji fyrir borð-
búnað.
— Svefnherbergishúsgögn eru
þarna úr sítrónviði og Zebra-
viði. Eru þau sljett og einföld eins
og nú tíðkast mest. Enn fremur
eru þarna sýnd húsgögn í forstofu.
Oll eru húsgögn þessi hin smekk-
legustu og í sama stíl, og geta
rnenn fengið þama svip af því,
hvert samræmi þarf að vera í öll-
um húsgögnum, til þess að .húsin
verði skemtileg.
Sýning þessi er jafn framt sýn-
ing handaverka Þorbjamar Þórð-
arsonar málara, sem hefir málað
húsgögnin, Óskari & Hjalta vegg-
fóðrurum, sem hafa klætt svefn-
herbergishúsgögnin og Friðrik
Ólafssyni húsgagnafóðrara, er hef-
ir bólstrað dagstofuhúsgögnin. —
Verður ekki annað en gott sagt
um frágang þeirra.
Loftur Sigurðsson sýnir svefn-
lierbergishúsgögn, einföld og sljett
og snotur að frágangi.
H.f. Dvergur í Hafnarfirði sýn-
ir einnig tvær gerðir rúma. Eru
þau frábrugðin öðrum húsgögnum
þarna á sýningunni. Eins er um
eikarskáp og skrifborð úr eik,
sem þar eru líka sýnd.
Sjerstaka athygli vekja á sýn-
ingunni húsgögn, íir járni, sém
Vjelsmiðjan Hjeðinn er farin að
framleiða. Húsgögn þessi eru að-
allega ætluð til þess að hafa í
görðum, en nú eru húsgögn úr
járni einmitt sem óðast að ryðja
sjer til rúms erlendis, eigi aðeins
úti við og í veitingastofum, heldur
og á heimilum. Þykja þau taka
öðrum húsgögnum fram að mörgu
leyti og hafa ýmsa kosti fram
yfir þau. Má vera að þetta verði
vísir til þess að hjer rísi upp járn-
liúsgagnagerð, því að sjálfsagt
berst sá siður hingað fyr eða síðar
að nota þau.
Merkilegustu húsgögnin á sýn-
ingunni er að finna í stofu nr. 13.
Eru það svefnherbergishúsgögn (2
rúm, 2 náttborð með skápum, fata-
skápur, þvottaborð og „toilet“-
hirsla), smíðuð af blindum manni,
Guðmundi Guðmundssyni á Ljós-
vallagötu 10. Hann misti sjónina
af slysi, þegar hann var 10 ára
gamall drengur, en nú er hann
tvítugur. Hefir hann lært í
myrkrinu trjesmíði af sjálfum
sjer; byrjaði fyrst á því að smíða
kassa og koffort, en fyrir 3—4
árum byrjaði hann á því að smíða
stærri muni. Hann hefir ekki haft
efni á að kaupa sjer nægileg og
góð smíðatól, en vonast til þess
að geta selt. húsgögn þessi á sýn-
ingunni (þau kosta 700 krónur)
og æt.lar þá að kaupa sjer, ný
smíðatól. Það er undrnnarvert.
að blindur maður, sem ekkert
hefir ilært í trjesmíði, skuli með
ljelegum áhöldum hafa getað smíð-
að hfisgögn þessi, og er því mjög
tíklegt að margan fýsi að eiga
þau sem kjörgripi. Þess skal getið,
að útskurð á húsgögnunum hefir
hann ekki gert sjálfur, en hann
hefir sagað alla boga, sem útsag-
aðir eru. Ekki hefir hann heldur
málað þau, sem ekki er von. Það
hafa þeir gert Oddur & Hjalti.
Sjerstaks eðlis er sýning Körfu-
gerðarinnar í stofu nr. 13. Þar
eru sýnd ýmiskonar húsgögn úr
reyr og strái, alls konar stólar
og borð, bekkir, körfur, þvotta-
körfur og barnarúm. Körfugerðin
hefir ekki starfað nema í nokkur
ár, en hún hefir fengið orð á sig
fyrir sjerstaklega vandaða vinnu
og munir þeir, sem hún sýnir
þarna. ern talandi vottur um það.
Sýning þessi minnir mann ósjálf-
rátt á það, að margs konar hand-
verk er hægt að stunda hjer með
góðum árangri, handverk, sem
enginn lítur við, en allir kaupa
umhugsunarlítið eða umhugsunar-
iaust af útlendingum.
Þegar maður fer um sýninguna
og skoðar öll þau húsgögn, sem
þar eru, saknar maður þess að sjá
hvergi votta fyrir því, að hjer sje
neinar tilraunir gerðar til þess
að skapa þjóðlegan stíl í hús-
gagnagerð og framleiða ódýr og
he]ipileg húsgögn handa þeim,
sem reisa bú af litlum efnum og
hafa ef til vill þröng húsakynni.
Það er ekki nóg, að húsgagna-
verksmiðjur vorar geti framleitt
dýr og vönduð húsgögn. Þær eiga
Ííka að sjá fyrir því, að öll alþýða
geti eignast smekkleg og hentug
húsgögn. Þær hafa' blátt áfram
skyldu til þess að koma hjer upp
þjóðlegum stíl í húsgögnum, sem
jafn framt eru svo ódýr, að allir
geti eignast þau. Það vita allir, að
húsgögn setja svip á íbúðir manna
og valda því að miklu 'leyti hvort
þær eru viðkunnanlegar eða ekki.
En það hefir aftur á móti mikil
áhrif á menn hvernig heimilissvip-
urinn er. Og aldrei verður það
heimili viðkunnanlegt þar sem t.
d. eru eingöngu útlendir birki-
stólar, en við það verða margir
að sætta sig, vegna þess að hjer
fást ekki húsgögn, sem eru við
þeirra hæfi.
Atvinmileysið í Bandaríkj-
ununi.
Washington, 27. júní.
United Press. FB.
Flokksleiðtogar í fulltrúadeild
þjóðþingsins gera sjer vonir um,
að frumvarp Wagners um að verja
tveimur biljónum og 300 miljónum
dollara til atvinnnbóta og aðstoðar
handa atvinnuleysingjum, verði
samþykt, þrátt. fyrir undirskriftar-
neitun Hoovers. (Frv. verður að
lógum vestra, ef þjóðþingið sam-
þykkir það aftur eftir að forsetinn
hefir neitað að skrifa undir). —
Ætla leiðtogarnir, að það muni
hafa mikil áhrif, að Willam Green,
forseti ameríska verkalýðssam-
bandsins, hefir lýst yfir því, að
það færist mjög í vöxt að menn
eigi við hungur að stríða um öll
Bandaríkin. — Atvinnuleysingj-
eru nú ellefu miljónir talsins og
aukast enn um tvær miljónir tals-
ins í vetur, efþjóðþingið hefst ekki
handa nú þegar.