Morgunblaðið - 01.07.1932, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
jj)) Himm i Qlsein) CÍj
nJÚLKIN
ER
B-E-S-T.
Nokkrir kassar óseldir.
Hyggnar húsmæður kaupa að eins Libby s dósamjólkina.
iS
Tilkynning.
Hjer með er skorað á vátryggingarfjelög, sem hjer
á landi starfa og aðalumboð hafa í Reykjavík, en ekki
hafa ennþá sent skýrslu um eignir sínar við árslok 1931
og tekjur það ár, að senda þær skýrslur til Skattstof-
unnar í Hafnarstræti (Edinborg) í síðasta lagi 10. þ. m.
Annars kostar yerða þeim áætlaðar eignir og tekjur til
skatts að þessu sinni eins og lög standa til.
Skattstjórinn í Reykjavík.
Eysteinn Jónsson
GarðslSngnr.
nýkomnar. Verðið er nú 1.00 pr. meter.
Einnig fyrirliggjandi alls konar Dreifarar, Vatnskranar,
Klemmur og Samtengingahólkar.
0. Ellingsen.
fflistHr i Fliótshlið dailega
irá BifreiðnstSð Steináérs
fllnnið Þlðrsármðtið á morgnn aðeins
S krðnnr sætið hvora ieið.
Nttlð íslenzkar vörw ®g isltink stdy.
Rannsóknir
í Grcrnlanöi.
Lauge Koch og nokk-
urir leiðangursmenn
hans komu með ,,ís-
landi“ og fóru til Ak-
ureyrar í gær með
„Hvidbjörnen“.
Með-„Islandi“, sem hingað kom
í fyrrakvöld, var dr. Lauge Koch
og nokkurir af förunautum hans
í Grænlandsleiðangrinum. í gær-
morgun fluttu þeir yfir í danska
varðskipið „Hvidbjörnen“, sem
legið hefir hjer í nokkra daga
og biðið eftir þeim, og fyrir há-
degi lagði „Hvidbjömen“ af stað
norður til Akureyrar, en þar bíða
leiðangursskipin „Godthaab“ og
„Gustav Holm.“
Morgunblaðið hitti þá að máli
í gærmorgun dr. Lauge Koch og
Söminemester Petersen, sem á að
stjórna fluginu í Grænlandi í
sumar.
Dr. Lauge Koch sagði að leið-
angursskipin, sem bíða á Akureyri,
ætti að leggja á stað til Grænlands
þegar eftir komu „Hvidbjörnens“
þangað. Ekki höfðu þeir frjett
neitt um ísinn í Grænlandshafi,
er: töldu þó engin tormerki á því,
að skipin mundu fljótlega komast
til hafna í Grænlandi. En þeir
Lauge Koch og Petersen dvelja
á Akureyri þangað til þeir fá
frjettir frá Grænlandi um það,
að firðir sje orðnir íslausir, svo
að liægt sje að lenda þar á flug-
vjel. Fer „Hvidbjörnen“ þá með
þá og flugvjelina, sem liggur á
Akureyrarhöfn, vestur að ísrönd-
inni, en þaðan ætla þeir fjelagar
að fljiiga inn til Grænlands.
í leiðangrinum eru alls 98 menn.
Starfa þeir í sumar að rannsóknum
í 15—20 flokkum og hafa 12 vjel-
báta til ferðalaga inn um firðina.
Sjerstaklega á að rannsaka Franz
Jósefs-fjörð rækilega, dýralíf þar
og botngróður. Standa þær rann-
sóknir í sambandi við aðrar haf-
rannsóknir, en eiga þó einkum
að leiða í ljós hver veiðiskilyrði
þar sje og hvort Skrælingjum sje
byggilegt við fjörðinn.
En aðalverkefni leiðangursins
í sumar, er að gera kort af strand-
lengju Grænlands frá Scoresby-
sund norður til Danmarkshavn og
alla leið inn á meginlandsísinn. —
Verða flugvjelarnar hafðar til
landmælinganna og taka ljósmynd
ir af landinu. Er landflæmi það,
sem á að „kortleggja“ um 500 km.
langt og 300 km. breitt að meðal-
tali.
Nó ætla Norðmenn að gera út
stóran leiðangur til Grænlands í
sumar, og hafa tvær flugvjelar
til landmælinga, norðan við það
svæði sem Danir mæla. — Hafði
norska blaðið „Aftenposten“ orð
á því fyrir nokkru, að sjálfsagt
væri að hafa samvinnu við Dani
um landmælingar. Spurði Morgun-
blaðið Lauge Koch hvort nokk-
urt samkomulag væri um það. En
hann kvað þvert nei þar við. —
Kvaðst hann fyrir löngu hafa tek-
ið að sjer fyrir hönd alþjóða-
landabrjefanefndar, að gera kort
f austurströnd Grænlands, og
samningar nm það gerðir löngu
áður en Norðmenn hefði farið að
hugsa um að gera þar landmæl-
ingar.
Uppsögn
íTlentaskólans.
24 nýir stúdentar.
Mentaskólanum var sagt upp
í gær.
Stúdentsprófi luku 24 nemendur,
12 í máladeild og 12 í stærðfræði-
deild. Hlutu 19 fyrstu einkunn og
5 aðra.
Þessir luku stúdentsprófi:
Máladeild:
Skólanemendur:
Armann Jakobsson. Ásdís Jes-
dóttir. Birgir Einarsson. Eiríkur
Eiríksson. Guðlaug Sigurðardótt-
ir. Jóhann S. Guðmundsson. Ket-
ill Gíslason. Ragnhildur Benedikts-
dóttir. Skarphjeðinn Þorkelsson.
Valgerður Tómasdóttir. Þórður V.
Oddsson.
Utamskóla:
Björn Sigurðsson.
Stærðf ræðideild:
Skólanemendur:
Benjamín H. Eiríksson. Björn
B. Olafs. Friðrik Kristófersson.
Gísli Þorkelsson. Guttormur Er-
lendsson. Haukur Oddsson. Hösk-
uldur Dungal. Magnús Pjetursson.
Sigurður Þorkelsson. Þörsteinn
Einarsson.
Utanskólanemendur:
Arnljótur Guðmundsson. Olafur
Tryggvason.
Hæstu einkunn við stúdentspróf
liiaut Benjamín Eiríksson (7.23 í
aðaleinkunn). En hæstu einkunn í
skólanum að þessu sinni hlaut
Dagný Ellingsen (7.43 í aðalein-
kunn); hún er í 4. bekk.
Gagnfræðapróf stóðust 25 nem-
endur, þar af 5 utan skóla. 15
gagnfræðingar náðu það háu prófi,
að þeir öðlast rjett til að taka
sæti í 1. bekk lærdómsdeildar.
Eftir að rektor hafði afhent
stúdentum og gagnfræðingum
skírteini þeirra, úthlutaði hann
nokkrum verðlaunum.
Að því loknu ávarpaði rektor
hina nýbökuðu stúdenta, minti á
þá alvörutíma, er nú standa yfir.
Athngiðl
íslenskt smjör.
Sveskjur.
Rúsínur.
Gráfíkjur.
Súkkulaði margar tegundir.
Nýir og niðursoðnir ávextir.
Verslnn
Einars Eyjólfssonar
Sími 586.
Prestastefnan 193Z
Niðurl.
Á næsta fundi voru að lokum
ræddar nokkrar athugasemdir, sem
synódusnefnd hafði gert við frum-
vörp handbókarnefndarinnar um
kirkjuvígslu, kirkjugarðsvígslu og
um útför framO'iðinna. Voru frum-
vörpin síðan afhent nefndinni á-
samt athugasemdum synódusnefnd-
anna, og henni þakkað af biskupi
fyrir starf hennar, sem þrátt fyrir
framkomnar athugasemdir væri í
alla staði hið lofsverðasta og bæri
alls yfir fagran vott um áhuga
hennar á að leysa þetta vanda-
mikla verk svo vel af hendi, að
allir mættu vel við una. Tóku
fundarmenn undir það með því pð
standa upp.
Þá hreyfði sjera Gísli Skúlason
því hvort ekki væri hægt að fá
settar fastar reglur um notkun
kirkna af hálfu leikprjedikara,
sem færu um landið og vildu fá
að nota kirkjurnar til ræðuflutn-
ings. Eftir nokkrar upiræður var
borin fram og samþykt með sam-
hljóða atkvæðum svohljóðandi til-
laga:
„Prestastefnan skorar á kirkju-
ráðið að setja fastar reglur um
það hverjum prjedikurum úr leik-
mannastjett sje heimilt að tala í
kirkjum vorum“.
Einnig kom fram svohljóðandi
tillaga frá öllum prestum í Árnes-
þingi, sem eftir nokkrar umræður
var samþykt í einu hljóði:
„Prestastefna fslands leyfir sjer
að skora á ríkisstjórn íslands, að
hún festi kaup á Skálholti, hinu
fornfræga biskupssetri, nú er það
til sölu, svo að það gangi ekki
kaupum og sölum milli einstakra
manna, og geri það aftur að
kjrkjueign eins og það var áður,
og felur prestastefnan biskupi
landsins að bera fram þetta mál
fyrir sína hönd og styðja að því
eftir mætti, að það nái fram að
ganga“.
Minst var því næst á frumvarp
það er lá fyrir síðasta alþingi um
fullkomna friðun skírdags sem
helgidags og síðan borin fram, og
samþykt í einu hljóði, tillaga
þessi:
„Préstastefnan telur æskilegt, að
næsta alþingi samþykki frumvarp
það, sem frú Guðrún Lárusdóttir
flutti á síðasta Alþingi um að
skírdagskvöld verði friðhelgað
engu síður en kvöldin fyrir stór-
hátíðir, svo og að samþykt verði,
að fyrri dagur stórhátíða og föstu-
dagurinn langi verði fullir frí-
dagar jafnt á sjó sem landi eftir
því sem frekast verður við komið“.
í sambandi við þessa tillögu sam-
þykti prestastefnan í einu hljóði:
„Að votta frú Guðrúnu Lárus-
dóttur einlæga virðingu sína og
þakklæti fyrir einarðlega fram-
komu hennar á Alþingi bæði í
kirkju- og mannúðarmálum, sem
þingið hefði haft til meðferðar“.
Loks var reifað málið um presta-
fækkun, sem í vetur komst á dag-
skrá með þjóðinni með tillögu til
þingsályktunar, sem borin var
fram á Alþingi, og var eftir nokkr
ar umræðiu- samþykt svohljóðandi
tillaga með öllum greiddum at-
lcvæðum:
„Prestastefnan mótmælir ein-
dregið þingsályktunartillögu þeirri
um prestafækkun, er samþykt var
á síðasta Alþingi og lætur jafn-
framt í ljós undrun sína yfir því,
að slík tillaga skuli koma fram,
þar sem allir hjeraðsfundir og ná-
lega allir söfnuðir og hreppsnefnd-
ir landsins hafa árið 1929 sent
kirkjumálanefnd eindregin mót-
mæli gegn fækkun presta“.
Að þessari tillögu samþyktri á-
varpaði biskup fundarmenn nokkr-
um orðum út frá 2 .Kor. 13, 11—13
og lauk fundinum með bæn. Sagði
hann síðan prestastefnunni slitið.
Kl. 8% um kvöldið sátu synódus-
prestar kvöldboð heima hjá bisk-
upi. —