Morgunblaðið - 14.07.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
%
■#
• Útref.: H.f. Arvakur, Rcykjavfk.
• Hltetjörar: Jön KJartanaaon.
s Valtýr Stefánuon.
• Rltatjörn ogr aferelVala:
J Auaturatrœtl t. — Slaal (00,
• Auílýaingraatjöri: H. Hafbar*.
• Auelýaingaakrifatofa:
• Auaturatræti 17. — Slaal 700.
2 Helnaafmar:
a Jön KJartanaaon nr. 741.
• Valtýr Stef&naaon nr. 1110.
E. Hafberg nr. 770.
s lakrlftagjald:
• Innanlanda kr. 2.00 á mánnOl.
s Utanlanda kr. 2.S0 á mánufli.
? t lauaaaölu 10 aura elntaklB.
s 20 aura maö Laabök.
•
fltænlandsleiðangur
Ejnar Mikkelsen.
Norðmenn hafa 111-
an bifur á honum-
f norska blaðinu „Aftenposten“
stendur þessi grein:
Yenjulega hafa Danir h.átt um
Grænl'ándsleiðangra sína. Bn sú
var ekki raunin á um leiðangur
Ejnar Mikkelsens, sem nú er ný-
farinn til Grænlands. Það hefir
verið svo hljótt um hann, að mann
fer að gruna margt.
MikkeTsen ætlar fyrst og fremst
-að fara til Kangerdlugsuak. Það
er fjörður miðja vegu milli Ang-
magsalik og Scoresbysund. O'g
þarná á hapn að stofhá nýlendu.
Þáð á að flytja nokkra Bskimóa
frá Yestur-Grænlandi þangað og
láta þá reisa þar bú, segir h'laðið
„Tromsö“. Er ætlunin sú að gera
þar samskonar nýlendu og í Ang-
magsalik, reisa þar loftskeytastöð
og forðabiír og gera ýmislegt
annað. Á yfirborðinu er sú fagra
hugmynd, að gefa Eskimóum kost
á að bjarga sjer sem best. En bak
við hana er falinn sá tilgangur
að sporna við því að Norðmenn
geti fært út kvíarnar suður með
austurströnd Grænlands, ef svo
skyldi fara, að dómstóllinn í Haag
yáðurkendi yfirráðarjett þeirra í
Eandi 'Eiríks rauða.
Þegar Mikkelsen hefir komið
npp stöðinni í Kangerdlugsuak, er
förinni heitið meðfram austur-
strönd Grænlands, en Dánir þegja
vandléga um það hváð hann á að
gera þ<ar.
íslenöingur
fremur sjálfsmorð
í Þýskalandi?
Hinn 1. júní framdi maður
sjálfsmorð í gistihúsi nokkru í
Stralsund í Þýskalandi. Yar hann
öllum ókunnur, en lögreglan þótt-
ist hafa uppgötvað, að hann mundi
hafa verið íslendingur. — Seinna
gaus upp sá kvittur að það hefði
verið Sigurður Skagfield söngvari
— en það er ósatt með öllu. Sig-
urður er í Ameríku enn. Stendur
í „Berl. Tidende“ 5. júlí, að
Axel Jensen, forstjóri Polyfon
hafi fengið brjef fré Sigurði,
skrifað í Yartcouver 18. júní, eða
nær þremur vikum eftir að sjálfs-
morðið var framið í Stralsund. —
Ségir Sigurður í því brjefi, að
hann sje nú hættur áð syngja, en
hafi fengið góða stöðtv og sjer
líði ágætlega.
En hvaða Islendingur það hefir
verið, sem fyrirfór sjer í Stral-
sund, er enn óupplýst.
Samningar takast
með Kuelöulfi og
5iómannQfieIaginu.
i
Sama mánaðarkaup og í fyrra, en upp-
bótin 3 auíar á síldarmál og miðað við
aflann í fyrra nemur lækkunin 33%.
Ét
Auk þess taka sjómenn að sjer að vinna
að útskipun á kolum og salti og hreinsun
skipanna án sjerstaks kaups.
1 fyrradag fór stjórn Sjó-
mannafjelagsins á fund h.f.
Kveldúlfs með tilboð það um
kjör á síldveiðum, er samþykt var
á Sjómannafjelagsfundinum kvöld
ið áður. Yar það tilboð þannig,
að mánaðarkaup skuli vera ó-
breytt eins og það vaf í fyrra,
214 krónur á mánuði, en uppbót
3 aurar af hverju máli síldar.
K\eldúlfur liafði áður boðið 150
ki. mánaðarkaup og 3 aura upp-
bót.
Samningafundir stóðu yfir mest
an hluta dagsins og fram á nótt.
Kveldúlfur bauð að ganga að til-
boði Sjómannafjejagsins með því
skilyrði; að sjómennirnir á skip-
um þeirra skuldbindi sig til þess
að skipa út kolum í skipin utan
Reykjavíkur og salti á Hest-
eýri og í Reykjavík útgerð-
inni að kostnaðárlausu. Enn
frémur að þeir skuldbindi sig til
þess að hreinsa og ræsta skipin
að síldveiðum loknum, án sjer-
staks endurgjalds. Hreinsun
þessi er í því fólgin, að ræsta
skipið hátt og lágt innanborðs,
>vo allar lestar og vistarverur og
hreinsa skipið að utan að sjólínu.
Ekki tókust samningar á þess-
um grundvelli í fyrrakvöld, og
liófust því samningafundir aftur
í gær, og lauk þeim svo, að báðir
höfðu fram sínar kröfur, eins og
þeim er hjer lýst að fráman.
Munu allir fagna því, að málsað-
iljum skyldi takast að mætast
þannig.
Samningar þessir'eru þannig, að
sjómenn bera nokkuð meira úr
býtum, heldur en ef þeir hefði
gengið að ‘ 150 króna mánaðar-
ltaupi. En lækkunin á uppbótinni,
sem var 6 aurar í fyrra, nemur því,
miðað við sama afla og þá, að
kauplækkunin sje 33%.
! Fyrir Kveldúlf verður þetta fyr
irkomulag lítið dýrara heldur en
þótt sjómenn hefði gengið að til-
! boði hans, þegar hann losnar
jvið útskipunarkostnað á kolum og
j salti og kostnað við að ræsta skip-
in.
Samningur við verkamenn.
Jafnhliða því, sem Kveldúlfur
gerði samning þennan við Sjó-
: mannafjelagið, var gerður annar
samningur um kaup verkamanna
á Hesteyri. Höfðu verkamenn þar
boðið 20% kauplækkun frá því
í fytra, eh settu það skilýrði, að
Kveldiilfur veitti 43 hjeraðsmönn-
um vinnu á stöðinni.
Alþýðusambandið fór hjer með
umboð fyrir Yerkalýðsfjelag
Sljettuhrepps til þess að gera
samninga, og voru samningar und
irskrifaðir seinni hluta dagsins í
gtferr.1 — Þeir eru þannig, að verka
ménn vefttra skuldbinda sig til
þess að vinna fyrir 20% lægra
kaupi en í fyrra, en Kveldúlfur
skuldbindur sig til þess að veita
35 hjeraðsmönnum atvinnu.
Nú verður gengið að því með
kappi að búa tógéra Kvel'dúlfs
út á síldveiðarnar og geta þeir
senniléga lagt á stað um eða eftir
ihelgina.
örcFnlanösöeilan.
Horðmenn helga sjer nýtt
^^^^Hllanösúceði á Brcenlanði.^
Oslo 13. júlí. NRP—FB.
Á ráðuneytisfundi í gær var
gengið frá konunglegri tilskipun
þéss efnis, að svæðið milli 63 gr.
40 mín. og 60 gr. 30 mín. n. br.
væri lagt undir norskt ríkisveldi.
Helge Ingstad hefir verið sett-
vit' í embætti sem sýslumaður á
þessu svæði. Finn Devold hefir
verið falin framkvæmd lögreglu-
yalds á nefndu svæði. — 1 til-
kynningu frá ríkisstjóminni um
landnámið (okkupationen) segir
svo: Noregur hefir neyðst til
þess að grípa til þeirra varúðar-
ráðstafana að helga sjer þetta
svæði, þar sem Danmerkurstjórn
hefir í eitt ár veitt lögregluvald
foringjum leiðangra til Austur-
Grænlands.
Danir munu ennfremur ráðgera
að taka sjer lögregluvald í hend-
ur í Suðaustur-Grænlandi, þar
sem Norðmenn um langan tíma
hafa stundað selveiðar. Með þess-
um hætti reynir Da,nmerkurstjóm
að öðlast ríkisveldisrjett yfir þeim
sjvæðum Grænlands; sem um er
deilt, áður en úrskurður Haagdóm
stólsins um Land Eiríks rauða
fdlur. Hepnist þessi áform Dan-
merkurstjómar nær þetta einnig
til Austur-Grænlands, sem verð-
ur lokað öllum öðmm þjóðum en
Dönum, einnig Norðmönnum,
þegar Grænlandssamkomulagið er
útrunnið. Svæði það, sem Norð-
rcenn hafa helgað sjer verður op-
ið öllum. Noregsstjóm er fús til
þess að leggja misklíð þessa fyr-
ir dómstólinn í Háag til úrskurð-
ar Svæði það, sem um er að ræða,
er þáð svæði s'em mikilvægast er
fyrir Norðmenn að halda í Græn-
Jandi. Auk löðdýraveáði inni í
landinu er mikil selveiði (blöðra-
Selur) méð ströndum fram.
• Ríkisstjórnin hefir fengið eft-
irfarandi loftskeyti frá Finn De-
vold, dagsett 12. júlí:
„Jeg hefi í dag dregið upp
norska fánann í Finnsbu og í
nafni Hákonar konungs helgað
Noregi land í Grænlandi frá 63
gr. 40 mín. til 60 gr. 30 mín., í
viðurvist Sverre Marinus Jensen
loftskeytamanns.
K.höfn 13. júlí.
United Press. FB.
Ríkisstjómin kom saman á fund
í dag til þess að ræða landhelgun
Norðmanna í Suðaustur-Græn-
landi.
...»----------- - '
Spá er spaks geta
Morgunblaðið gat ekki fjarri
sanni, að úrsögn Sveins
Benediktssonar úr stjórn Síldar-
verksmiðju ríkisins myndi liggja
svö utan hugsanagangs niðurrifs-
manna, að þeim væri ofraun að
skilja. Rakkinn, sem beinið nag-
ar, mun seint trúa að maðurinn
meti meir framgang nauðsyn-
legs máls en eigin stimdar hag.
Árásir Afþýðublaðsins á Sv.
Ben. verða annars með hverjum
deginum hjákátlegri og sýna
frekar vilja en vit. í gær slær
blaðið því föstu, að Sveinn hafi
verið rekinn úr verksmiðjustjórn-
inni, þó hitt sje með opinberum
skjölum sannað, að þegar er
lausn kaupgjaldsmálsins stóð ein-
ungis á hinni fráleitu kröfu sigl-
firsku æsingamannanna um brott
vikning Sveins, sagði Sveinn af
sjer starfi sínu, en ráðherrann
lýsti á honum óskertu trausti og
fór þess á leit, að hann yrði kyr.
Þessi rökfærsla Alþýðublaðsins
er þó ekki einstæð. Þótt blaðinu
liafi gersamlega gleymst að gera
minstu tilraun til að hrekja hinar
þungu ásakanir Sv. Ben. um
skattaframtal Guðm. Skarphjeð-
inSsonar, hefir það þó talið sig sjá
eitt hæpið atriði í grein Sveins.
Atriði þetta var frásögn Sveins
um ákvæðisvinnuútboð Guðm.
Skarphjeðinssonar á sjóhúsbygg-
ingu á Siglufirði í vetur. Svo sem
rcénn ef til vill muna, sagði Sv.
Ben. í grein sinni í Mbl. 29. júní,
að Guðmundur hefði í vetur látið
byggja sjóhús „ásamt tveim mönn
um öðmm“, og látið vinnu við
sjóhúsið í ákvæðisvinnu til tveggja
smiða, þeirra Ólafs J. Reykdals
og SamúeLs Ólafssonar. Segist Sv.
Ben. hafa það eftir Ó. R. með leyfi
lians, að er þeir fjelagar gerðu
upp tímafjöldann, að kaupið var
ekki nema 64 aurar um klukku-
tímann. — Loks er tekið fram,
áð þeir fjelagar hafi ekki
Verið óánægðir með þessa út-
komu. Svo sem menn sjá, er þeasi
liður greinar Sveins einn af hin-
um ljettari, er hann fann Guðm.
Sk. til foráttu. Þegar því niður-
rifsmenn taka þetta atriði eitt
og reyna að hrekja með rökum,
er sú skýringin ,að þarna telji
þeir hægast á að ráða. Skulu nú
tekln upp rök blaðsins.
Síðastliðinn mánudag birtir Al-
þýðubl. vottorð Samúels ólafsson-
ar (ásamt tveim vitundarvottum)
og er efni þess þetta: 1) Að um-
rædd bygging hafi alls ekki ver-
ið „boðin út af Guðm. Skarp.“,
2) að þeir fjelagar S. Ó. og ób
B. hafi aldrei sfn á milli gert upp
tímann, er fór í þessa vinnu, haum
sjálfur (S. Ó.) hafi ekki skrif-
að tímann og viti ekkert um, hvort
Ólafur hafi gert það, 3) að Jóm
Jóhannesson hafi leitað hjá sjer,
S. Ó. upplýsinga um ákvæðisvinnu
þessa, en hann (S. Ó.) ekki gefiS,
en nú sje ljóst, hvers þjónn Jón
sje, 4) að S. Ó. hafi einungis einm
sinni unnið í ákvæðisvinnu hjá G.
Sk., og þá borið kr. 2.50 úr být-
um um tímann.
Það var þegar ljóst, að vottorí
þetta fór á snið við málefnið, og
upplýsti í rauninni með vissu það
eitt, að vottorðsgefandi væri lít-
ill hirðumaður um eigin hagi. Það
fór því að vonum, að Alþýðublað-
ið Ijeti ekki við svo búið standa,
og var nú hátt til höggsins reitt,
því að daginn eftir birti blaðið
vottorð frá Ólafi þeim Reykdals,
sem Sveinn hafði frásögn sína
eftir. Skal nú vottorð þetta birt.
Leiðrjetting.
1 tilefni af grein. sem kom út í
Morgunblaðinu 29. júní, um Guðm.
Skarphjeðinsson, Siglufirði, frá
Sveini Benediktssyni, einum úr
stjórn ríkisverksmiðjunnar á Siglu
fírði, minnist S. B. í grein sinni á
samtal við mig, sem hann fer ekki
rjett m*eð, og vil jeg hjer með
leiðrjetta það.
Samtalið byrjaði þannig, að jeg
sagði,' að jeg hefði tekið ákvæðis-
vinnu í vetur og fengið mann til
að ganga inn í tilboðið með mjer,
Samúel Ólafsson, og höfðum við
ekki nema 64 aura á tímann. Jeg
ljet það fylgja samtalinu, að jeg
væri eigendum ákvæðisvinnunnar
mjög þakklátur fyrir það, að jeg
fjekk vinnuna.
Sveinn Ben. spurði mig, hvort
hann mætti hafa þetta eftir mjer
og leyfði jeg það, gaf jeg honum
upp. hverjir hefðu átt útboðið. Það
er: Sigurður Kristjánsson, kaup-
máður, Siglufirði, Guðm. Skarp-
Iijeðinsson, skólastjóri. Siglufirði,
Friðleifur Jóhannsson, útgerðar-
maðnr. Siglnfirði. Enn fremur
hafði Friðl. Jóhannsson útboðið á
ákvæðisvinnunni.
Að endingu vil jeg hjer með lýsa
yfir, að jeg ætlaði ekki að skerða
heiður þessara velgerðarmanna
minna með þessu samtali.
Siglufirði, 4. júlí 1932.
Ólafnr J. Reykdaás.
Vottorð Samúels Ólafssonar var
samið til að blekkja. Vottorð ól.
Reykdals átti að taka af skarið.
Það hefir og tekist, en á nokk-
urn annan hátt en birtendur þeBa
hafa ætlast til. Því að svo seia
menn sjá, staðfestir vottorðið orði
til orðs frásögn Sv. Ben., en gef-
ur einungis um aukaatriði fyllri
upplýsingar, þar sem nöfn þeirrá
tveggja manna, er að útboðinu
stóðu með Guðmundi ,em birt og
að G. Sk. sjálfur hefir af ein-
hverjum ástæðum kosið að standa
að baki öðrum manni um þetta
höfðinglega útboð.
Frammistaða Alþ.blaðsins getur
ekki ljeíegri orðið. Þegar trausti
er lýst á manni, kveður það hana
rekinn. Þegar það revnir að bera
sakargiftir af vinum sínum. færir
það fullar sönnur fyfir þeim.
Skipakomur. Botnía kom í gær-
morgun. Dronning Alexendián©
kom í gærkvðldi.