Morgunblaðið - 27.07.1932, Blaðsíða 4
1
MORGUNBLAÐIÐ
Nokkrar stúlkur, vanar frammi-
stöðu, geta fengið'atvinnu nú þeg-
ar. Eiginhandar umsóknir ásamt
mynd sendist' A. S. í. í dag eða á
morgun, merkt „Frammistöðu-
stúlka' ‘.
Á Valdastöðum í Kjós er brúnn
hestur í óskilum. Mark: biti aftan
bæði eyru.
Athugið! Hattar, harðir og linir,
sokkar, húfur, manchettskyrtur,
vinnuföt, axlabönd, nærföt o. fl.
með lægsta verði. Hafnarstræti 18.
Karlmannahattabúðin. — Einnig
gamlir hattar gerðir, sem nýir.
Café Höfn selur meiri mat, ó-
dýrari, betri, fjölbreyttari og
fljótar afgreiddan en annars stað-
ar.
Það vita allir að besta og ódýr-
asta fæðið selur Fjallkonan, Mjó-
stræti 6.
ákvörðunar kristindóms og kirkju
mál þjóðarinnar. Mun að vísu of
seint, að sá fvmdur verði haldinn
hjeðan af á þessu ári, því að
góðan skal undirbúninginn hafa,
en slíkan fund — sem haldinn
yrði í Keykjavík — ættu að sækja
allir prestar landsins (einnig frí-
kirkjuprestar) og kjömir fulltrú-
ar úr hópi leikmanna, einn úr
hverju prófastsdæmi (mætti kjósa
þá á auka-hjeraðsfundi, ef með
þyrfti). Fundartími er vafalaust
hentastur, eins og hjer hagar til,
að vor- eða sumarlagi, og ætti
fundurinn því að haldast á næsta
vori, í júnímánuði. Væri jafnvel
ákjósanlegt, að'þá gengi fundar-
tími synodus og prestafjelags að
mestu til þessa allsherjarfundar,
með því að í þann mund sækja
klerkar m. a. hvort sem er til
Reykjavíkur, en leikmanna-full-
trúum yrði að sjá fyrir farar-
kaupi, ef þeir takast þessa för
eigi á hendur án þess.
Jeg teldi rjett og viðeigandi,
að prestar höfuðstaðarins( sem eru
áliugasamir kennimenn) og söfn-
uðirnir þar gengjust aðallega fyr-
ir þessu fundarhaldi, væntanlega í
samráði við stjórn prestafjelagsins,
biskup o. fl. En æskilegt væri
og myndi áhrifamest, ef kirkju-
málaráðherrann nýi (sem jeg'met
mikils, án tillits til stjórnmála-
skoðana) tæki að sjer forgöngn
málsins, enda er hjer aðkallandi
liin brýnasta andleg nauðsyn al-
þjóðar.
G. Sv.
Hátfðahðld f Bergen.
í fyrra voru þjóðleg hátíðahöld
í Haakonshallen í Bergen og var
það rithöfundurinn Stein Bugge,
sem kom þeim á stað. Nú eiga
sams konar hátíðahöld að fara
þar fram dagana 4.—21. ágúst.
Þessi hátíðahöld eru aðallega
helguð skáldinu Björnstjerne
Björnson, í tilefni af því að 100
ár eru liðin síðan hann fæddist,
og tónskáldinu 'Edvard Grieg, sem
fæddur var í Bergen. Verða þar
tvær hátíðarsýningar. A annari
verður farið með útdrátt úr skáld-
ritum Björnsons og tónverk Griegs.
Á hinni fer fram sýning á nýju
norsku leikriti um „Friðþjóf og
lngibjörgu“. Er það eftir Olav
Hoprekstad.
A Bergenhús-víginu umhverfis
Haaltonshallen fara auk þess fram
alþýðlegar skemtanir mjög marg-
breyttar. Þar verða sýndar þjóð
dansar, þar fer fram fiðluleikur
og lúðrablástur, þar verða sýning-
ar manna óg kvenna í þjóðbúning
um, lcór æskumanna frá öllu Vest
urlandi syngur undir stjórn J. L
Mowinckel yngra. í hinum gamla
Kristskirkjugarði fer fram guðs-
þjónusta undir berum himni og
prjedikar Fleischer biskup þar.
Þetta er að eins sýnishom af því,
sem fram á að fara, eins og for
stöðumennirnir hafa skýrt oss frá
□agbók.
Veðrið (þirðjudagskvöld kl. 5)
Veður er kyrt og víðast þurt hjer
á landi, vindur yfirleitt N—NA
Loft er meira og minna skýjað í
flestum hjeruðum landsins. Hiti er
7—10 st. á NA- og A-landi, en
annars 10—15 st. Lægðin yfir
Bretlandseyjum er nærri kyrstæð,
en yfir Grænlandi og Grænlands-
hafi eru grunnar lægðir, sem
hreyfast hægt A-eftir. Lítur út
fyrir kyrt veður næsta sólarhring
og úrkomulítið.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg
viðri. Sennilega úrkomulaust.
Knútur prins er 32 ára í dag.
Hann hefir verið liðsforingi á
Fyllu hjer við land síðan í vetur,
og verður á skipinu til hausts
Hann kemur hingað í dag og held-
ur sendiherra Dana honum veislu
í tilefni af afmæli hans.
Friðþjófur Nansen, norska eftir-
litsskipið, sem verið hefir við Norð
urland undanfarið, kemur hingað
til Reykjavíkur í opinbera heim
sókn í dag, og verður hjer :
nokkra daga.
Karlakór Reykjavíkur. Fundur
í K. R.-húsinu, uppi, á fimtudag
28. júlí kl. 9 síðd. Áríðandi að
allir mæti.
Ferð um óbygðir. Ferðaskrif-
stofur Geirs H. Zoega og Ferða-
fjelagsins Hekla efna til 9 daga
ferðalags upp í óbygðir og verður
lagt á stað ■ um aðra helgi. Farið
verður í Gljúfurleitir hjá Þjórsá,
að Arnarfelli í Hofsjökli, Kerlinga-
fjöllum, Hveravöllum, Hvítárvatni
og þaðan niður að Gullfossi og
Geysi. Ekki verða fleiri en 15 tekn
ir í ferðalagið (sjá augl. í blað-
inu). —
Trúlofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Hilla Johan-
sen frá Reyðarfirði og Stefán Á.
Pálsson heildsali.
Margrethe Löbner Jörgensen
hefir nýlega ritað ítarléga grein
í danslia bændablaðið „Vort Land-
brug“ um íslenskan landbúnað.
Skýrir hún þar frá fjárhagserfið-
leikum bænda, eins og þeir eru
nú. Hefir liún aflað sjer mikils
kunnleika um það efni. En greinin
er skrifuð af þeim hlýleik og vel-
vilja í vorn garð, sem höf. er lagið,
og með þeirri trú á framtíð lands
og þjoðar, sem þessi erlenda heið-
urskona hefir alið í brjósti sjer.
Útigangsfje. í vor hitti Ólafur
Pálsson á Sörlastöðum í Fnjóska-
dal útigangsfje fram í afrjett. Var
þar komin ær sem Hannes Jónsson
bóndi í Hleiðargarði í Eyjafirði
átti, en ekki kom fram í göngum
í fyrra haust. Hafði ærin verið
tvílembd í fyrra og verið með
hrút og gimbur. En nú var hún
þarna með f.jögur afkvæmi sín,
íljálpræðisherinn. Samkoma fyr-
ir hermenn og nýfrelsaða í kvöld
kl. 8i/2.
Áttræðisafmæli á í dag ekkjufrú
Bergþóra Einarsdóttir, Kláppar-
stíg 13. Hún er fædd í Skálholts-
koti hjer í bænum, 27. júlí 1852.
En að Klapparstíg 13 fluttist hiin
með manni sínum, Jóhanni Ás-
mundssyni, frá Miðvogi á Akra-
nesi, árið 1882, og hefir því búið
á sama stað nú um 50 ára skeið.
Bergþóra er í hópi þeirra mörgu
kvenna, er hafa unnið lífsstarf sitt
í kyrþey, og helgað heimili sínu
alla krafta, <en þó jafnframt átt
hlýja hönd að rjetta nágrönn-
um og öðrum samferðamönnum á
lífsleiðinni. Munu margir þeirra
minnast hennar í dag með hugheil-
um árnaðaróskum. J.
Siglfirðingar hafa keypt línu
veiðarann Bjarka og ætla að gera
hann út. Fór hann norður í gær,
Togararnir. Geir fór á ísfisk
veiðar í fyrrinótt. — Draupnir
fór á síldveiðar í gærmorgun.
Styrkur úr Snorrasjóði. Ráðu-
neyti forsætisráðherra hefir tilkynt
FB.: Uthlutun á styrk úr Snorra
sjóði hefir nú farið fram í annað
sinn. Styrk hafa hlotið: Ólafur
Hansson stúdent, frá Grund
Skorradal, 1000 kr., Ásgeir Hjart-
arson stúdent, frá Arnarholti, 900
kr„ Geir Jónasson stúdent, frá Ak
ureyri 900 kr., allir til sagnfræði-
náms við hásþólann í Oslo, Ár
mann Halldórsson stúdent, frá
Bíldudal, til heimspekináms við
sama háskóla, 850 kr„ Barði Guð-
mundsson magister, til sagnfræði-
legra rannsókna í Noregi, 800 kr„
og Sigrún Ingólfsdóttir, frá Fjósa-
tungu, til undirbúningsnáms fyrir
kenslustörf við húsmæðraskóla
hjer á landi, 700 kr.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir
19.40 Tónleikar (Útvarpskvartett-
inn). 20.00 Klukkusláttur. Grammó
fóntónleikar: Till Eulenspiegel eft-
ir Richard Strauss. Einsöngur:
Antonio Scotti syngur: Vi ravviso
úr „La sonnambula“ eftir Bellini
og Ei favella úr „Othello“ eftir
Verdi. Chaliapine syngur: Gullkálf
urinn og Serenade Mefistofelesar
úr „Faust“ eftir Gounod. 20.30
Frjettir. Músík.
Veðreiðar áttu að fara fram á
sunnudaginn var hjá Hróarsholti í
Flóa, en fórust fyrir vegna þess
að Magnús Torfason sýslumaður
bannaði þær. Kvað hann hið fræga
samkomubann, ier hann setti í vor,
vegna þess að Leikfjelag Reykja-
víkur ætlaði að sýna „Karlinn í
kassanum11 á Eyrarbakka, vera
enn í gildi. Þó fara fram þar
eystra ýmsar aðrar samkomur svo
sem leiðarþing og guðsþjónustur.
Það var af spjehræðslu að Magnús
setti ‘þetta bann fyrst (og upp á
■eigin eindæmi), en hvernig spje-
hræðslan getúr gengið svo langt,
að hún nái til veðreiða, er lítt
skiljanlegt.
Spennandi kappleikur verður
háður í kvöld kl. 9 á íþróttavell-
inum milli hins góðkunna knatt-
spyrnuflokks af skemtiskipinu
Atlantis“ og K. R. Nokkur und-
anfarin ár hefir þessi útlenski
flokkur keppt við K. R. kapp-
leika hjer og hafa bæjarbúar
ivrpst á- völlinn, því þessi leikur
hefir ætíð verið hinn ánægjuleg-
asti. Eru Englendingar feður knatt
spyrnunnar og þessi flokkur hefir
ávalt sýnt ihjög góðan leik, þó K.
R. hafi borið hærra hlut í viður-
eigninni. Mun flokkurinn enski
ætla mi að hefna fyrir ósigra, því
hann hefir skorað á K. R. Verður
án efa skemtilegt að horfa á þenn-
ar skyldi vera eign ættingja sinnal
Mæðgurnar með sitt lambið hvor. ‘an leik þar sem tveir svo ágætir 'sem ætti að reka þær í fjelagí.
Rijrktv laz,
2 kr. V2 kg.
Ostur frá 1 kr‘ V2 kg,
Jarðarberjasulta 1.25 pr. 1/2 kg.
Nýjar kartöflur 20 au. V2 kg.
Hjörfnr Hjartarsou.
Bræðrabcrgarstíg 1.
Sími: 1256.
knattspyrnuflokkar eigast við. —
Verður því sjálfsagt fjölmenni á
vellinum í kvöld.
Skipafrjettir. Gullfoss fór frá
Kaupmannahöfn í gær áleiðis til
Reykjavíkur. — Goðafoss fór frá
Hull í fyrrinótt, áleiðis til Ham-
borgar. — Brúarfoss kom hingað
á hádegi í gær að vestan. — Lag-
arfoss er í Kaupmannahöfn. —
Dettifoss fór bjeðan í gærkvöldi
vestnr og norður. — Selfoss er í
Antwerpen.
Úr dönsku blaði. Út af þeim at-
burði er örn rændi telpukrakka í
Noregi fyrir skemstu, segir eitt
danska blaðið svo frá: — Fyrir
tveim árum rændi íslenskur örn
þriggja ára telpu og flaug með
hana upp í hreiður sitt. Alveg ný-
lega hafa menn fundið telpuna.
Henni leið vel. Örninn hafði gefið
henni nóg að eta. I staðinn sá
telpan um hreiðrið. Öminn var
sem sje gamall karlfugl og hafði
mjög gaman að því að láta telp
una mata sig. — Eftir þetta má
norski örninn láta í minni pokann
Upp að Siglufjarðarskarði fóru
þeir á bíl á sunnudaginn var frá
Siglufirði Vilhjálmur Hjartarson
og Guðvarður Steinsson. Töldu
þeir, að ferðinni lokinni, að ger-
legt myndi að ryðja bílveg alla
leið yfir skarðið.
Arne Möller hjelt fyrirlestur um
skólamál í Reykholti á sunnudag
inn var.
Sjálfvirka miðstöðin. Landsíma
stjóri gerir sjer nú vonir um, að
sjálfvirka miðstöðin verði fullger
svo hægt verði að taka hana í
notkun í byrjun desember í vetur.
Síra Jón Thorarensen, sem fyrir
tveim árum fekk Stóra-Núpspresta
kall, 'en hefir áfram setið í Hruna
og þjónað báðum prestaköllunum,
hefir aftur sótt um Hrunapresta
kall og náð þar lögmætri kosn-
ingu. Stóra-Núpsprestakall er því
nú laust.
Símalagningar í sumar. Land-
úmastjóri hefir skýrt blaðinu frá,
að eftirfarandi símalínur ætti að
leggja í sumar: Milli Bólstaðar-
hlíðar og Bergstaða í Svartárdal í
A-Húnavatnssýslu; milli Kópa-
skers og Leirhafnar á Sljettu og
Kópaskers og Skinnastaða; og
milli Sandgerðis og Stafness. Er
landsímastjóri nýkominn að norð-
an og hefir gengið frá samningum
við hjeraðsbiia um lagningu lín-
anna þar.
.Tarðarför Bata.
Frá Prag er nýlega símað að
iegar Thomas Bata „skófatnaðar-
kóngur“ var jarðaður, hafi 70
þúsundir manna fylgt honum til
grafar.
Mazaryk forseti og stjórnin
sendu þangað sjerstakan fulltrúa
til þess að koma þar fram fyrir
sína hönd.
40 prestar aðstoðuðu við út.för-
ína. —
Þegar erfðaskrá Bata var opnuð
kom það í Ijós að hann hafði mælt
svo fyrir að allar verksmiðjur sín-
Fljótir ml
Nýslátrað dilkakjöt, ódýrast £
bænum. Lifur og hjörtu, sviðin
svið. Hangikjöt. Salt dilkakjöt.
Næpur í búntum.
Sendið eða símið.
AUir í
BjðrSIÍEIEE,
Bergstaðastræti 35. Sími 1091.
Mafiborð
og Borðstofustólar.
Fallegar gerðir.
Lágt verð.
Húsgagnaversl. Reykjavíkur,.
Vatnsstíg 3. Sími 1940.
Borgarflðrður,
Borgaríies.
fastar ferðir Lvem
máundag og fimtnd.
frá
Bifreiðastðð Kristins.
Simar 847 og 1214
Amatðrfieild
LangaTegs Apðteks
er innrjettuð með nýjum áhöldum
frá Kodak. — Öll vinna fram-
kvæmd af útlærðum mynda-
smið. — Filmur sem eru.
afhentar fyrir M. 10
að morgni, eru
jafnaðarlega til-
búnar kl. 6 að
kvöldi. -
Framköllun Kopiering. Stækknn
Lofts í Nýja Bíó.
Framkðllun og kopíering’
fljótt og vel af hendi leyst.
Daglega
nvtt grænmeti.
Engeviartaða
til sðln við Lefts-
bryggjn í dag.
Reknet
óskast keypt. Upplýs-
ingar í síma 2370.