Morgunblaðið - 28.08.1932, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 28.08.1932, Qupperneq 3
B——■—■ wmmmmmmmmm MORGUNBI nBBHBBBBHBHBBa A Ð 1 fí : ^ jsTXKríSBK!*8aasaas 3HorginiWaM$ 2 H.f. Árvaknr, XtxUtTlk. • Sltatjörar: Jön KJartanaaon. Valtýr Staí&naaoB, • Kltatjörn og afaralCala: • Auaturatraatl S. — Slatl itl. • AUKlýalnKaatJörl: BL Hafbarc. 2 Auclýalng-aakrlfatofa: • Auaturatraetl 17. — llnl TM. • Halmaalaaar: Jön KJartanaaon nr. T4S. • Valtýr Btafánaaon nr. ÍSSS, • B. Hafbarg nr. 770, 2 Áakrtftagjald: • Innanlanda kr. 1.00 á aaánnVl. 2 Utanlanda kr. t.10 á aULnnVL • I laaaaaölu 10 aura alntaklV. 2 t0 aura ataV Laabðk. t. S. L Meiri samvinna einstakra fjelaga og Sambandsstjdrnar nauSsynleg. * ______________ Út er komin skýrsla stjórnar Í.S.Í. um framkvæmdir og störf á árinu 1931—1932. Má á henni sjá, að stjórnin hefir ekki legið ■á liði sínu, því að það er ótrúlega margt sem hún hefir komið í verk. ^ýnir þetta að íþróttamenn lands- ins hafa trygga forystu áhuga- samra manna, því að stjórnin fær ekki neitt fyrir starf sitt. Væri því vel ef stjórnir Sambandsfjelag- anna út um landið sýndi jafn mikinn áhuga í starfi sínu. Bn því er ekki að heilsa, um allar þeirra, því miður. í Sambandinu eru nú alls 120 íþróttafjelög og munu vera í þeim nm 10 þúsundir manna. Bn það eru aðeins fá af þessum fjelögum sem hafa sent ársskýrsl- ur sínar, eða meðlimaskrár. Mörg hafa ekki greitt iðgjöld sín. Mörg •svara alls ekki umburðarbrjefum Samhandsstjórnar o. s. frv. Kann það ekki góðri lukku að stýra og :samvinna fjelaganna og Sambands stjórnar skuli ekki vera betri «n þetta. Um það segir svo í skýrslunni; Mörg fjelög vinna vel og dyggi- lega að sínum eigin málum, en láta heildarstarfið sitja á hakanum. — Þarf ekki annað en benda á van- xækslu fj’elaganna við að senda :skýrslur, jafnvel fjelög í Reykja- vík senda ekki ársskýrslur árum saman, þó þau sjeu marg ámint um það. Sama er að segja um til- kynningar um íþróttamót og kapp leika, sem halda skal eða haldnir hafa verið. Aðeins fá fjelög hafa sent meðlimaskrár sínar, sem þó er óhjákvæmilegt að fá, ef full- ■komnara og fljótvirkara skipu- lagsstarf á að komast á hjer á landi í íþróttamálum. Enn er ó- 'komið svar frá mörgum fjelögum, viðvíkjandi sundlaugum og skil- ;yrðum fyrir snndlaugahyggingum ■og fá eru þau fjelög, sem svarað hafa fyrirspurn vorri um allsherj- arfimleikamótið 1933. Margt fleira mætti benda á sem -orðið lrefir til þess að tefja fyrir framkvæmdum og störfum stjóm- ar Í.S.Í. á síðasta starfsári. Skal það þó eigi gert að þessu sinni. Bn óhjákvæmilegt er, að minna fje- lögin á skyldur sínar gagnvart Sambandinu, og mælast til auk- innar og hetri samvinnu við stjóm I.S.Í. hjer eftir en hingað til. — Fjelögin verða að muna, að alt sem miðar að því að efla og bæta Sam- bandið, verður einnig þeim til auk- ‘ins styrks og trausts í framtíðar- •starfi þeirra. Rannsóknarleiðangur Lauge Koch og flug hans hingað. í gær var þess getið hjer í blað- inu, að dr. Lauge Koch landkönn- uður hafi ætlað að fljúga hingað í fyrradag frá Scoresbysund, en hann hafi lent við Akranes og gist þar. Nokkru fyrir hádegi í gær flaug hann hingað. Tíðindamaður blaðs- ins hafði tal af honum skömmu eftir að hann kom. Barst talið fyrst að hinum mikla rannsókna- leiðangri hans til Austur-Græn- lands í sumar. Enn sem komið er, sagði dr. Lauge Koch, get jeg ekki gefið fullkomið yfirlit yfir árangur af rannsóknum, athugunum og mæl- ingum þessa leiðangurs. Því eins og gefur að skilja er rannsókna- efnum sþift niður milli margra undirforingja, þar sem fjöldi vís- indamanna tók þátt í leiðangrin- um. Alls hafði jeg yfir að ráða 2 millilandaskipum, tveim flugvjel- um og allmörgum vjelhátum. En 100 manns tóku þátt í íeiðangri þessum. Af þeim vérða 20 eftir í Grænlandi í vetur. Br þeim skift í þrjá staði, og eru loftskeytatæki á öllum stöðvum þeirra. Landmælingar úr lofti tókust prýðilega. En það get j>eg þegar sagt, held- ur hann áfram, að jeg er ákaflega ánægður yfir því livernig leiðang- ur þessi hefir heppnast, rannsókn- ir og landmælingar flug og hvers- konar ferðalög hafa gengið greið- legar, en jeg gat gert mjer vonir um, að óreyndu. Og það sem mest er um vert, ekkert slys eða óhapp hefir komið fyrir, hvorki á sjó nje landi eða í lofti. Alls hafa flugvjelamar flogið um 30.000 kílómetra. Hæst höfum við farið í loft upp í 4600 metra hæð; og oft höfum við flogið í 20—30 stiga frosti. Landmæling- arnar með ljósmyndun úr loftinu tókust alveg prýðilega. Alls feng- um við uppdrætti af 45.000 fer- kílömetra svæði. Starf okkar skiftist aðallega í þrent, heldur dr. Lauge Koch á- fram. 1. að fljúga inn yfir hálend- ið, sem var með öllu ókunnugt áður, 2. að rannsaka og gera upp- drátt af hinu snjólausa vogskorna landi austan jökla, 3. að annast •einskonar lögregkistörf með strönd um fram. Landkönnunarflug. Flugferðirnar inn yfir hálendið fór jeg sjálfur. A þeim ferðum sá jeg, að landsvæði þessi voru alt öðru vísi, en jeg hafði gert mjer hugmynd um að ósjeðu. Fyrir innan fjarðarbotna hins vogskorna Austur-Grænlands ligg- ur mikill fjallgarður frá norðri til suðurs. Fram til þessa höfðu menn að'eins þekt austurhluta þessa mikla fjallgarðs. Jeg hafði búist við því að vestan við þenna fjallhrygg tækju við auð og íslaus svæði. En svo reyndist ekki að vera. Vestan við háhrygginn tekur við meginjökull Grænlands, með einstöku nybbum og fjallatindum upp, úr. Hið auða landsvæði er því inikið minna, 'en menn höfðu gert sjer vonir um, þrengra svið en búist var við fyrir dýralíf lands- ins, og dýrastofninn því minni, en menn gátu átt von á. Heimferðin- Skip leiðangurins koma til Scoresbysund á morgun, sagði dr. Lauge Koch, og halda síðan það- an og hingað. Jeg bíð eftir þeim hjer. Gera má fyllilega ráð fyrir, að þau komist greiðlega ferða sinna, því á leiðinni frá Scoresby- sund og til íslands eru engar sam- feldar hafísspangir, aðeins borgar- ís á stangli, en strjálingur hans nær allnærri íslandi. Ekki nema annað af skipum okk ar er svo stórt, að það getí tekið flugvjel okkar í heilu lagi. En jeg vildi losna við að þurfa að skilja hana í sundur þar norður frá. A hinn bógjpn 'ekki meira hættuflug frá Scoresbysund og hingað en t. d. ferðir þær sem við höfum farið inn yfir meginjökul Grænlands. Við liöfðum bensín til 7 tíma flugs, er við fórum frá Scoresby- sund. Og til ísafjarðar vorum við ekki nema 3 tíma. En svo skall á okkur sunnanveðrið. Og þegar við sáum Akranes í ljósaskiftunum um kvöldið þá áttum við ekki eftir nema 40 lítra af bensíni, af rúml. 700 er við tókum með. Þá höfðum við mist loftnetið, svo við gátum engin loftskeyti fengið, og töldum því tryggast að staðnæmast þarna. Dr. Lauge Koch flaug hingað við þriðja mann. Flugmaður er Petersen fluglautinant og Kramme vjelámaður. Ljetu þeir fjelagar mjög vel yfir viðtökum þeim sem þeir hefðu fengið á Akranesi. Verkfall í baðmullariðnaði Breta. Manchester, 27. ágúst. United Press. FB. Að afloknum þriggja daga ár- angurslausum samningaumleitun- um hefst verkfall 200.000 vefara á hádegi í dag (laugardag). Vera má, að innan skamms taki allur verkalýðsskarinn í baðmullariðn- aðinum 500.000 manns, þátt í verkföllum út af launadeilunum. Samningaumleitanir fóru út um þúfur, vegna þess að samkomu- lag gat eigi náðst um að taka í vinnu á ný 3000 verkamenn, sem gert höfðu verkfall. London, 27. ágúst. United Press. FB. Vefaraverkfallið hófst á miðdegi í dag. Verkfallið er afleiðing þess, að eigi hefir náðst samkomulag í sambandi við launalækkunartil- raun þá, sem áður var um símað, en sumpart ber þó að líta á verk- fallið sem mótmælaverkfall, þar sem eigendur baðmullarverksmiðj- anna vilja kóma því á, að fram- vegis verði fleiri vefstólar í umsjá hvers vefara. Heimatrúboð leikmanna, Vatns- stíg 3. Almenn samkoma í kvöld kl. 8. Kuikmynð Knuö Rasmussen. Knud Rasmussen landkönnuður hefir í sumar starfað með þýsk- um kvikmyndaleikurum, að kvik- myndatölu norður í Thule, nyrstu nýlendunni á vesturströnd Græn- lands. Það er þýska fjelagið Uni- versal, sem kostar myndina. Frækinn flugmaður hefir tekið þátt í mynd þessari, og dansmær ein frá Vínarborg. Myndin á að sýna hina stórfenglegu náttúru þar norður frá, og stuttu en beið- ríku sumardýrð. — En í ramma þenna er fljettað atburðum, sem eiga að laða áhorfendur til við- kynningar við Grænland og sum- ardýrð þess. Gera menn sjer miklar vonir um mynd þessa. Snemma í ágúst kom Knud Ras- mussen til Angmagsalik, og starf- ar hann nú að landfræði athug- unum á austurströnd Grænlands, sunnan verðri. Balchen verður ekki 'á stóm flugvjelinni. Samkvæmt símskeyti til norskra blaða frá New York, hefir Bemt Balchen flugmaður tilkynt að hann verði ekki með stóru flug- vjelina, sem hingað á að koma. Hann segir að fregnin stafi að misskilningi amerískra blaða. Fje- lagið, sem stendur fyrir fluginu hafi ekki minst á þetta við sig, enda hefði hann ekki getað tekið þátt í flugi þessu, þar sem hann hafi lofað því að reyna um næstu mánaðamót nýja flugvjel í Los Angeles, Northrop-flugvjel, sem Lincoln Ellsworth hefir látið smíða handa sjer. Hefir Lee farist? Oslo, 27. ágúst. NRP. — FB. Samkvæmt Dagbladet í dag hef- ir enn ekkert frjest um afdrif þeirra Lee og Bochkon. •••• «<®>^ •••■ Svíþjóðarfarar Ármanns sýna í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjum 27. ág. FB. Svíþjóðarfarar Ármanns sýndu glímu og leikfimi undir stjóm Jóns Þorsteinssonar íþróttakennara hjer í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi áhorfenda. Ljetu þeir hrifni sína yfir fimi og framkomu flokksins óspart í Ijós. — Knattspyrnufjelög Vestmannaeyinga hjeldu Ármenn- ingum samsæti á Hótel Bergi að sýningunni lokinni. Síldveiðin nyrðra. Siglufirði, 27. ág. FB. Síldveiðin hjer á síðasta mið- nætti 78.772 tn. saltsíld, 23.801 !tn. krydd- og sykursöltuð, 32.796 Þýskalandsverkuð, 6485 sjerverk- uð á ýmsan hátt og 547 tn. milli- síld. Ríkisbræðslan hefir tekið á móti 116.000 málum, Hjaltalín 28 þús. málum. Kolkrabba verður altaf vart í síldinni. Flestir voru orðnir hjer um hil tunnulausir seinustu dag- ana en tunnuskip kom í morgun. Annars flestir að hætta söltun. •t Björn Arnason hreppstjóri í Vindhælishreppi ljest að heimili sínu, Hólanesi, 24. þ. m. eftir mjög skamma legu í lungnabólgu. — Hann var fæddur 22. desember 1870 að Þverá í Hall- árdal, sonúr Árna hreppstjóra Jónssonar og Svanlaugar Björns- dóttur, er þar bjuggu mjög lengi. Hann ólst upp í foreldrahúsum, en gekk í Möðruvallaskóla haustið 1890, og útskrifaðist þaðan vorið 1892. Hann giftist 1895 Þóreyju Jónsdóttur, ættaðri af Hjeraði, og hóf um það leyti búskap á Þverá móti föður sínum, og bjuggu þeir þar í .samhýli til 1907, en fluWia þá báðir að Syðriey og bjó Björn þar síðan uns hann ljet af búskap 1930 og fluttist í Ilólanes og gerðist forstöðumaður verslunar Einars kaupmanns Thorsteinsson. Þórejgu konu sína misti hann 1914, og lifa fjórir synir þeirra upp- kornnir, en dóttir þeirra, vaxin, dó fyrir nokkrum árum. Synir þeirra eru: Ámi magister hjer í bænum, Þórarinn 1. stýrimaður á Óðni, Stefán og Ólafur verslunarmenn. Bjöm giftist aftur Guðrúnu Sigurðardóttur frá Syðriey, lifir hún hann, og voru þau barnlaus. Björn heitiön hafði mörg störf á hendi. — Tók við hreppstjórn eftir föður sinn um 1910, var oft oddviti og sýslunefndarmaður, enn fremur jarðamatsmaður kosinn af sýslunefnd við jarðamatið 1920. Hann var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. Skagfirðingur. Uerkalýðsmenn svíkja fje út úr norska ríkinu. C. Wolmersen kaupmaður í Len- vik og Sören Hansen oddviti þar — báðir úr verklýðsflokknum — hafa verið kærðir, annar fyrir skjalafölsun, hinn fyrir lyga- vottorð. Málsástæður eru þessar: Fyrir tveimur árum, sótti Wolmersen um 7000 króna lán hjá ríkinu, til þess að byggja myllu í Lenvik. Korn- einkasala ríkisins áleit að þörf væri fyrir myllu þarna og gaf umsókninni méðmæli og fekk Wol- mersen því lánið. Svo var fyrirmælt að korneinka- sölunni skyldi jafnan tilkynt hvernig verkinu miðaði áfram, og var lánsfjeð borgað út smám sam- an eftir því. Skýrslur um það komu líka reglulega frá Lenvik, og greiðslur fóru fram jafnharð- an. En til þess að lokaborgun færí fram, þurfti vottorð oddvita á staðnum, um það að myllan væri fullsmíðuð. Þetta vottorð kom, og þá greiddi ríkissjóður út eftirstöðvarnar. En svo varð Korneinkasalan alls ekki vör við það, að þessi mylla starfaði neitt, og bað hún því landbúnaðarráðuneytið að grensl- ast eftir hvernig á því stæði. Og þá kom upp úr kafinu að þar hafði engin mylla verið bygð, heldur hafði Wolmersen notað peningana til þess að reisa nýtt. verslunarhús!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.