Morgunblaðið - 31.08.1932, Page 2

Morgunblaðið - 31.08.1932, Page 2
2 MORGUNBLAÐIF* Jarðarför Gunnars Hinrikssonar fer fram föstudaginn þann 2. september klukkan 1. Húskveðja á Elliheimilinu. Fyrir hönd aðstandenda, Haraldur Sigurðsson. Hjer með tilkynmist vinum og vandamönnum, aáð jarðarför dóttur og dótturdóttur okkar Skúlínu í. Gústafsdóttur fer fram frá Aðventkirkjunni í dag 31. þ. m. kl. 2 síðd. Kristín Einarsdóttir. Ingibjörg Vigfúsdóttir, Bragagötu 25 B. MmMMBMKmMflHMnMKMMiMMMMflnMMN'flaBMBææBfllMMMflMMMHMMMMMMMMIMMflflflOMMMBMOHMaMMnEniMnMnMflMMtaaMMæMMMMBæBI Innilegt hjartans þakklæti fyrir sýnda samúð og hluttekn- ing við andlát og jarðarför Kristínar Gunnarsdóttur. Stefán Brynjólfsson og böm. Jarðarför föður mins, Páls Pájssonar, fer fram frá Eyrar- bakkakirkju, laugardaginn 3. september kl. 2 síðdegis. Fyrir hönd móður minnar og systkina. Eeykjavík, 30. ágúst 1932. Sveinn Pálsson. Jarðarför Kjartans sonar okkar fer fram frá fríkirkjunni fimtudag 1. sept. og hefst á heimili okkar, Njálsgötu 71 kl. 1 e.h. Ef einhverjir hafa hugsað sjer að gefa kransa, þá eru þeir atf- beðnir. Væri okkur geðfeldara að andvirði rynni í Minningarsjóð Sig. Eiríkssonar, eða bókasafnssjóð sjúklinga á Vífilsstöðum. Sigríður Halldórsdóttir. Jóh. Ögm. Oddsson Amatörar látið okkúr framkalla, copiera og stækka myndir yðar. Öll vinna fljótt og vel af hendi leyst. Kodakfilmur með 8 myndum, venjulegar og ljósnæmar fást í Amatördeild Fljótir nn! Nýslátrað dilkakjöt, ódýrast 1 bænum. Lifur og hjörtu, sviðin svið. Hangikjöt. Salt dilkakjöt. íslenskar Gulrófur. Sendið eða símið. AHir í Björninn, Bergstaðastræti 35. Sími 1091. Nýtt Ullarkiólatau, faliegir lfltir. Enairemnr mflrg falleg efnl í Samkvæmiskfóla é Kristinn Uigfússon Minning. Hryggur leitar hugurinn, horfir á skarðið auða. Varstu að lúta, vinur minn, valdi.hvíta dauða. í minninganna fögrum fans fremstan hlýt þig finna, er jeg minnist ágæts manns æskustöðva minna. Oft jeg mjer í bernsku brá bæja okkar milli og með andakt eg þá sá alla þína snilli. Leit jeg þína högú hönd hvar hún var að smíða, eins jeg sveif um undralönd oft með söngnum þíða. Ef að vanda að mjer bar úrlausn þurfti bráða, farsæl leiðin fanst mjer þar að finna þig til ráða. Ástríkt hjarta. örlát mund, aflaði vinsæld manna, ])ú varst oft á alla lund athvarf smælingjanna. Hrygga gladdi hugur þinn, hraktí kvíða af baki, eignaðist margnr auminginn yl frá handartaki. (festi oft að garði bar, gott var í þínum ranni, enda sambent altaf var ágæt kona manni. Lúinn, þjáður líkaminn loks varð hvíidum feginn. Vel þig faðmi, vinur minn, vorið hinumegin. Sje jeg þegar sólin rís sorgarklædd er vonin: Hafnarfjarðar heilla dís hún er að gráta soninn. Guðlaruj- Narfadáttir. Lancashireöeilan. Frá baðmullariðnaði Breta. Frá London er skrifað: Frá því ófriðnum lauk hefir baðmullariðnaðurinn breski barist fyrir því, að ná aftur í markaði þá, sem hann misti í ófriðnum. — Þetta hefir tekist, framar öllum vonum, enda þótt Indverjar hafi lagt viðskiftabann á breskar baðm ullarverksmiðjur. En baðmullariðnaður Breta hef- ir alt fyrir það átt andstætt nú undanfarið. Hafa verksmiðjustjórn endurnir haldið uppi þeim sið, að hafa vinnutíma lengri, >en tíðkast í öðrum verksmiðjum, en, á hinn bóginn ekki lagt eins mikla vinnu á hvern einstakan vefara, eins og venja er annars staðar. Nú hafa verkalýðsfjelögin heimt að, að vinnutíminn yrði aðeins 8 klsft á dag. En þetta hefir átt að fást í baðmullarverksmiðjunum, án þess að liver einstakur verka- maður fengi meira að sjá um, en hann hafði áður, þann tíma sem unnið er. Hafa verksmiðjueigendur breytt um tilhögun vefanna, svo hver maður gæti stjórnar fleiri vefum en áður. En verkalýðsfje- lögin hafa þverneitað því, að bæta mætti nokkru á vefarana. í þessu stappi hefi-r staðið. Fyr- ir hálfu öðru' ári var stofnað til vinnustöðvúnar út ‘ af ágrein- ingi þessum, sem endaði með því, að í sumum verksmiðjum tóku vef- arar að sjer að sjá um nokkru fleiri vjelar en þeir höfðu áður haft umsjón með. En nú síðasta árið hefir sam- keppnin í baðmullariðnaðinum aukist svo mikið, að verksmiðjurn- ar hafa orðið að gera annað hvort, að lækka launin, eða leggja meira en áður á hvern verkamann. Deilan :er nú um vinnulaunin. Yerksmiðjurnar hafa farið fram á, að launin mættu lækka um 10%. Verkamenn hafa sagt, að þeir gætu sætt sig við nokkra lækkun, en ekki svona mikla. Er búist við að verkamenn sætti sig við 5% lækkun. — Því gætnari menn í þeirra flokki sjá sem er, að vinnu- stöðvun nú muni koma þeim sjálf- um verst í koll. Því hún verði | fyrst og fremst vatn á myllu er- lendra keppinauta þeirra. Verksmiðjueigendur halda því fram, að 10% lækkun muni vera það minsta sem þeir geti sætt sig við, að öðrum kosti geti þeir ekki staðist erlenda samkeppni. í lengstu lög vonuðust menn eftir því að verkfalli yrði afstýrt. Því þegar þessar verksmiðjur liætta, þá verður brátt fjöldi ann- ara verksmiðja að loka, sem vinna í sambandi við þær. En eigi hefir tekist að afstýra, verkfallinu, eftir því sem síðustu fregnir herma. 500.000 manns, sem hafa vinnu í sambandi við baðmullariðnaðinn, missa atvinnuna bráðlega, ef sam- komulag fæst ekki um la.un manna í baðmullarverksmiðjunum næstu daga. í myndakassa K. R. á Iþrótta- húsinu, eru nú ýmsar myndir frá íþróttamótunum hjer í sumar og myndir frá Olympsleikunum. Fertugsafmæli á í dag Ólafur Ólafsson, Bakkastíg 1. Stormvax er nauðsynlegt fyrir vetur- inn, til þess að þjetta hurðii; og glugga. Fasteignir til sðlns Nýlegt tveggja hæða steinhús á Grímsstaðaholti, ásamt ca. 1 ha. af ræktuðu landi. Fimm manna fólksbifreið getur fylgt í kaupunum. — Nýtt, einlyft timburhús í Skildinganesi, ásamt ea. 370 fermetra lóð. í húsinu eru öll nýtísku þægindi. Þeir, sem kynnu að vilja kaupa lítið steinhús í Austur- bænum, skamt frá Skólavörðuholti, leggi tilboð inn á skrifstofu vora, sem fyrst. — Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Húsnæðisskrifsloia Reykjaviknr, Búnaðarfjelagshúsinu, uppi. Opið frá kl. 11—1 og 6—9. Sí M It 2 15 1. Tll sOln með tækifærisverði hálf hú í Austurbænum. Upplýsingar gefur Jón Ólafsson lögfræðingur, Lækj artorgi 1. Sími 1250. — Sími heima 2167. Fálkinn flýgur út. f Fálkakaffibætirinn er elsti J íslenski kaffibætirinn. — • Heildsölubirgðir hjá J fijalta Björnssyni 8 Go. j Símar 720, 295. J Vonarstræti II. Stóri salurinn verður að nokkru leyti til leigu í vetur fyrir fimleikaæfingar, og um helgar — laugardaga og sunnudaga — verður hann leigð- ur til alls konar mannfagnaðar. Salurinn, sem ávalt er vel skreyttur, er sjer- lega hentugur fyrir dansleiki, jólatrjesskemtanir, samsæti, hljómleika og annan mannfagnað. Enn fremur verður hann leigður til funda- halda og fleira, fleira. . flokks veitingar eru á efri hæð hússins. Þeir, sem þurfa að fá salinn leigðan og ekki hafa gert aðvart enn þá, eru beðnir að gefa sig fram við Kristján L. Gestsson, Smáragötu 4. —— Símar: 219, 1073. ----

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.