Morgunblaðið - 25.11.1932, Side 2

Morgunblaðið - 25.11.1932, Side 2
2 MORG UNBLAÐJÐ Um meðferð ueiðarfcera. í nýútkomnum ,Ægi‘ (10. tbl.) er birt grein, sem kom fyrir nokkru i blaðinu ,íslendingur‘ á Akureyri og skömmu síðar í ,Vest- urlandi' á ísafirði. Grreinin er viðtal við norskan mann, Tanke Hjemgaard að nafni, á Akureyri, sem hefir um nokk- urt skeið unnið að viðgerð veiðar- færa þar nyrðra. Forseti Fiskifjelagsins, Kristj- án Bergsson, bætir við greinina í ,Ægi‘ og árjettar boðskap henn- ar til útgerðarmanna. Ræðir greinin og ritgerð K. B. um viðhald og endingu veiðar- færa og hvetur menn til þess að hreinsa þau vel að aflokinni notk- un og barkarlita þau jafnan í ver- tíðarbyrjun. Hægt er að fá barkarlitaðar fiskilínur beint frá útlöndum, en hefir viljað gefast misjafnlega og er alment álitið að miklu trygg- ara sje að láta barkarlita línurn- ar hjer heima, enda mun það vera litlu eða engu kostnaðarmeira. Kostnaðvírinn við að láta bark- arlita fiskilínur er hverfandi lít- ill í samanburði við innkaupsverð línanna og því hverjum útgerðar- manni fært að tryggja betri end- ingu þeirra á þennan hátt. En út- gerðarmenn, sem hafa látið gera þetta á rjettan hátt, fullyrða að línurnar endist alt að því helmingi lengur fyrir vikið. Svipað þessu mun vera um botnvörpur, enda eru nú alímargir togarar hjer farnir að láta bark- arlita vörpur sínar. f þessu sam- bandi má einnig geta þess, að þeir sem kunnugir eru enskri togara- útgerð segja að þar sje nú orðið yfirleitt ekki notaðar nema lit- aðar bot.nvörpur. Um stærstu og dýrustu veiðar- færin, síldarnæturnar, má segja það sama. En þar við bætist þó, að nví er talið fullvíst að mjög miklu máli skifti að þær sjeu hreinsaðar vel að lokinni notkun <>g öruggasta ráðið til þess að ná úr þeim öllum óhreinindum, salti og síldargrút, er að hreinsa þær í sjóðheitu vatni. Sje ekki um tjargaðar nætur að ræða á svo að barkarlita þær á hverju vori, áður en vertíð byrjar. Það er eftirtektarvert að K. B. segir að Norðmönnum endist oft sama síldarnótin í 12 til 14 ár. En hjá okkur má telja það eins- dæmi að síldarnót dugi meira en 3—4 sumur og þá undantekning- arlítið með afarmiklum og kostn- aðarsömum viðgerðum. Svona er- um, við Norðmönnum miklu 'síðri í þessum efnum. Það er sannarlega ekki vansa- laust hve meðferð og hirðing veið- arfæra hefir verið og er ábóta- vant. hjá okkur fslendingum, því tií skams tíma hefir undantekn- ingarlítið sama og ekkert verið gert til þess að viðhalda þessum afardýru tækjum. Veiðarfærin eru þó svo stór liður í útgerðarkostnaðinum, að hjer er vissulega ekki um neitt hjegómamál að ræða. Nokkrar tölur, teknar úr Hag- tíðindunum. sanna þetta best. — Tnnkaupsverð veiðarfæranna hefir verið sem kjer segir: Færi, taumar og önglar .......... Síldarnet, -nætur og netjagarn.. Botnvörpur og botnvörpugarn .. Samtals eða samtals þessi þrjú ár (þau síðustu sem verslunarskýrslur ná yfir): kr. 7.591.276.00. | Hjer við bætist svo álagning kaupmanna og annar kostnaður, svo að í rauninni hefir útgerðin greitt talsvert meira en þetta. Að kunnugra manna sögn, sbr. og ritgerð K. B., mun ekki vera ofmælt þó sagt sje, að ef hirðing og meðferð veiðarfæra hefði verið hjer í ákjósanlegu lagi þessi ár, þá mundi hafa sparast sem svarar einum þriðja hluta innkaupsverðs ins eða kringum tvær miljónir og 500 þús. krónur og er það álitlegur skildingur, á aðeins þremur árum. Fyrir þá upphæð mundi nú mega kaupa 6 eða 7 góða togara eða 60 nýja 25 smálesta vjelbáta. 1927 1928 1929 kr. 617.252 1.171.381 1.821.250 — 736.815 908.914 1.138.229 — 256.900 514.610 425.925 kr” 1.610.967 2.594.905 3.385.404 Láta mun nærri að upphæð þessi sje röskar þrjú hundruð krónur á hvern einasta fslending, sem sjó mensku stundaði á þessum árum. Þegar rætt er um möguleika til bættrar afkomu iitgerðarmanna og sjómanna, verður ekki hjá því komist að athuga veiðarfæra- kostnað landsmanna og skilyrðin til þess að draga úr honum. Og þess er að vænta, að ekki líði á löngu áður en allir útgerð- aimenn og sjómenn sannfærist um rjettmæti þessara orða forseta Fiskifjelagsins, í fyrnefdri rit- gerð: ^ „Það er misskilin sparsemi, að það borgi sig ekki að hirða vel veiðarfærin, enginn hlutur borg- ar sig betur.“ E. H. 5úðin og Loftur Bjarnason, í sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins hinn 20. þ. m. átalar L. B. i íkisstjórn og Skipaútgerð ríkis- ins fyrir að hafa leigt ,,Súðina“ til flutninga á ísvörðum fiski til útlanda. Þar sem jeg fyrir hönd S.f. Fram, sem er leigutaki skipsins, gekk frá samningumi um leigu á greindu skipi, vil jeg ekki láta hjálíða að gefa eftirgreindar skýringar. Við 'áttum kost á að fá leigt er- lent skip, mjög heppilegt til þessa flutninga, en þar sem við vildum heldur, ef þess væri nokkur kost- ur, nota íslenskt skip heldur en erlent, spurðist jeg fyrir um hjá Skipaútgerð ríkisins, hvort Súðin mundi fáanleg til þessa flutninga, þann tíma sem skipsins væri ekki þörf til strandferða og lægi hjer aðgerðalaust. Eftir nokkurt þóf um leiguupphæðina tókust samn- ingar, síst fyrir lægri leigii, en þó eftir atvikum fyrir svipaða leigu og erlent skip var fáanlegt fyrir. Það getur því varla talist, að ríkisstjórn og Skipaútgerð ríkis- ins hafi stuðlað að öðru en því, að halda atvinnu og peningum i landinu, en kasta þeim ekki að óþörfu í leigu erlendra skipa. Jeg ætla ekki að fara að deila um hvort nokkurir Jrassar af báta- fiski verða vel eða illa sjeðir lijá nokkurum enskum iltgerðarmönn- úm, eða hvort rjett er að hindra útflutning bátafiskjar, sem þá ekki væri hægt með öðru en iit- flutningsbanni. Elínmundur Ólafs. Askorun. Það eru vinsamleg tilmæli vor til almennings að gera innkaup sin í sölubúðum bæjarins fyrir hinn lögákveðna lokunartíma þeirra, sein er í verslunum, brauð og mjólkurbúðum kl. 7 að kvöldi alla virka daga yfir vetrarmánuð- ina og á sunnudögum kl. 1 í brauða og mjólkurbúðum. Þessi tilmæli eru franikomin til að koma , í veg fyrir óþarfa eftirvinnu versl I í unarfólks, sem hefir átt sjer stað en gæti horfið öllum aðiljum að slcaðlausu, ef almenningur at- hugaði að gera innkaup sín nógu tímanlega. Finnig eru það tilmæli vor til kaupmanna, ' að þeir taki eigi á móti pöntunum í síma eftir kl. 7 að kvöldi, er nú á sjer víða stað, en sem mun vera brot á lögunum um lokunartíma sölubúða. Það er sannfæring vor að nauð- svnlegt sje að bafa betra eftirlit með lokim sölubirða en átt hefir sjér stað undanfarið, en til þess að koma í veg fyrir að beita þurfi sektarákvæðum laganna, í þessum efnum, er áskorun þessi framkomin. F. h. Verslunarmannafjel „Merkúr“, Stjórnin. Enöurminningar Friðriks Guðmundssonar. J Það er líklega rúmt ár síðan að ' í „Heimskringlu' ‘ byrjuðu að birt- ast „Endurminningar“ Friðriks ’ Guðmundssonar frá Syðra-Lóni á Langanesi. Eru þær enn að koma út í blaðinu, og eru orðnar langt mál. Fyrri hluti „Endurminning- anna“ hefir nú verið gefinn út í bókarformi og er þókin komin bingað fýrir skömmu. Manni verður fyrst að dást að þeirri elju og atorku, sem höf. liefir sýnt með því að rita endur- minningar sínar, sjerstaklega þar sem liann er blindur.og verður að skrifa alt, í myrkrinu. Þess yegna verður það líka að fyrirgefas,t að frásögnin ei- nokkuð sundurlaus með köflum. En fjörugir kaflar eiu víða í frásögninni og er víða, komið við. Er þar og lýst hjölda nafnkunnra manna, en hvort allir geta aðhylst þær lýsingar, er ann- að mál. Ymislegt mun og vera far- ið a’ð ryðga í minni höf., sem eðli- 1,'egt er, eftir svo mörg ár. Er því hætt við að sumir þykist finna þar ýmsar villur, en stórvægilegar munu j>ær þó tæplega geta talist. Eins og eðlilegt er, segir mest frá Þingeyingum í bókinni og gleypa þeir því sjálfsagt við henni. En hún er líka skemtileg aflestrar fyrir þá;, sem ekkert þekkja til þar nyrðra. * nthugasemö frá útvarpsráðinu. í Morgunblaðinu 13. þ. m. er útvarpsstjóranum gefið það að sök, að hann hafi látið endurvarpa ræðu Halldórs Kiljan Laxness frá Moskva 7. þ. m. og þar með brotið hlutleysi útvarpsins. I Tt af þessu vill útvarpsráðið taká þetta fram: 1. Að útvarpsstjórinn átti engan hlut að þessu endurvarpi, heldur var þetta gert eftir ákvörðun út- yarpsráðs. 2. Utvarpsráðinu barst brjef frá H. K. L., dags. í Moskva 13. okt. Þar segir: „Jeg hefi farið fram á. að iit- varpsstöð hjer í Moskva leyfði mjer að halda tuttugu til þrjátíu mínútna útvarpserindi á íslensku í næsta mánuði, og liafði jeg þ,á hugsað mjer að velja að umtals-i efni Dnjeprostroj, eitt hið mesta mannvirki, sem sögur fara af og, langsamlega stærstu aflstöð lieims- ins, sem reist hefir verið í Dnjepr- fljótinu, ásamt nýtísku borg fyrir 150.000 íbúa og ógrynni verk- smiðja,, þar sem 'fyr’ir aðeins 'fjór-j um árum var auð og óbygð gresja. Aflstöð þessi var opnuð nú fyrir þremur dögum. Jeg lýsi þessu að- eins sem sjónarvottur og mun ekki minnast á pólitík í erindi mínu. Ef úr því verður, að' jeg haldi þetta erindi, sem allar líkur eru +il, þá langar mig til að fara fram á það við útvarpsráð Íslands, að þið endurvarpið erindinu, svo framarlega sem á því eru nokkrir möguleikar. Með það fýrir augurn verður ykkur símuð stund og bylgjulengd í tæka tíð, áður en erindið verður flutt“. Brjefið var lagt fram á fundi útvarpsráðs 24. okt. Eftir nokkurt umtal virtust allir vera á því, að fróðlegt væri frá verkfræðilegu sjónarmiði að reyna að endur- varpa um svo langa leið. og að öðru leyti væri ekkert á móti að endurvarpa erindinu. — Atkvæði voru ekki greidd og málinu frest- að. — 2. nóv. barst útvarpsráðinu sím- skeyti, samhljóða þeim, sem birt- ust í blöðunum, að H. K. L. flytti erindi sitt 7. nóv., kl. 24 í Moskva. 3. nóv. óskaði útvarpsstjóri brjef- lega eftir ályktun útvarpsráðs um það, hvort verða skyldi við tilmæl- um H. K. L. um endurvarpið, og næsta dag var útvarpsstjóra af- hent svolátandi tilkynning frá for- manni útvarpsráðs: „Samkomulag hefir orðið um það í dag í útvarpsráðinu, utan fundar, að gerð verði tilraun til að endurvarpa frá Moskva lýsing Halldórs Kiljan Laxness á Dnjepr- aflstöðinni, 7. þ. m., kl. 21. Eitt atkv. í útvarpsráðinu (Fr. H.) var á móti“. Mismunur á Moskvatíma og Reykjavíkurtíma hefir verið 3 klst. en álitið var af sumum, án þess að full vissa gæti fengist um það, að Moskva væri 4 klst. á undan, og reyndist svo. G. Briem verk- fræðingur, sem undirbjó endur- varpið, og annaðist það, hlustaði á Moskva kl. 20, er ræða H. K. L. byrjaði, og endurvarpaði henni þegar. Af því, sem hjer er sagt, er það a.uðsætt,, að aðalatriðið við þetta endurvarp var af útvarpsins hálfu endurvarpið sjálft, þ. e. að gera Mig langar að gefa Það má ekki vera dýrt, en fallegt verð- ur það að vera og eitthvað, sem kemur sjer reglulega vel. Hvað á það að vera? Við höfum t.d. fengið mikið úrval af fallegum sokkum í afarsnotrum umbúðum. C H I C BANKASTEÆTI 4 Penlngaskápnr, hentu^ stærð, til sölu. Magnús Matthfasson. Sími 532. Vetrarfrakkar 03 Huldahúfur. Odýr blómaborð Skínandi failegar snlnr mjög ðdýrar. Húsgagnaverslunin við Dómkirkjuna. tilraun til að endurvarpa um svo langa leið töluðu máli. Ef erindi H. K. L. hefði hins vegat' legið fv rir iitvarpsráðinu, eins og það var flutt, mundi eng- inn í útvarpsráðinu hafa greitt atkvæði með að endurvarpa því. Reykjavík, 16. nóv. 1932. Fyrir hönd útvarpsráðsins. Helgi Hjörvar. Mússolini bárust óteljandi gjafir á 10 ára afmæli fascistastjórnarinnar. Ein gjöf var þar mjög merkileg. Hún Tar frá miljón kvenna í Ung- verjalandi. Yar það handdúkur kostulega gerður. — Höfðu fnnm konur unnið að því 10 stundir á dag í fjóra mánuði samfleytt að gera dúkinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.