Morgunblaðið - 29.11.1932, Side 4
*
MORGUNBLAÐIÐ
Blöm og Á^ex’ti*', Hafnar
Stræti 5. Daglega allar fáanlegar
tegundir afskorinna blóma. M kið
úrval af krönsum úr tilbúnum
blómum og lifandi blómum. Margs-
konar tækifærisgjafir.
Skíðakennari óskar eftir stöðu.
tfpplýsingar hjá Bjarna Ágústs-
syni, Viðey.
5—6 góðir eikarstólar óskast til
kspips. Sími 503.
Pótaaðgerðir. Laga niðurgrón-
ar neglur, tek burt líkþorn og
h%rða húð. Gef hand- og rafur-
mágnsnudd við þreyttum fótum o.
fi. Sími 16. Pósthússtræti 17 (norð-
urdyr). Viðtalstími kl. 10—12 og
2—4 og eftir samkomulagi. Sigur-
björg Magnúsdóttir.
Kjötfars heimatilbúið 85 aura
y2 kíló og fiskfars 60 aura %
kíló. Fæst daglega á Fríkirkjuveg
3. Sími 227. Kristín Thoroddsen.
Munið símanúmerið 1663, því
það er í Nýju fiskbúðinni, Lauf-
ásvegi 37.
Fæði, einstakar máltíðir, kaffi, öl,
gosdrykkir með lægsta verði í Café
Svanurinn. (Hornið við Barónsstíg og
Grettisgötu).
Glænýtt fars er altaf til. Fiskmetis-
gerðin, Hverfisgötu 57. Sími 2212.
Best hita kolin frá Kolajverslun
Ólafs Benediktssonar. Sími 1845.
Beiðhjól tekin til geymslu. „Orn-
inn“, sími 1161, Laugaveg 8 og
Langaveg 20.
Liugarvatn.
Bamkoma verður haldin á
liauffarvatni 1. des.
Ferðir frá
Aðalstttðiniii.
Fiskfars
fiyergi eins gott. Reynið það
í dag.
Verslunin
Kjöt- fi Grœnmeti.
%*argarstíg 16. Sími 464.
urinn kominn þaðan fram í hina
stofuna. Þess má geta um leið,
að í betri stofunni var ekkert
eldfæri, en rafmagn var þar.
Það varð með svo skjótri svip-
an að húsið varð alelda niðri, að
ekki mun hafa skift nema nokk-
urum mínútum frá því að konan
varð fyrst eldsins vör. Fólkið
flýði lxúsið í dauðans ofboði og
varð einn maður á neðri liæðinni
svo naumt fyrir, að hann varð
að fleygja sjer út um glugga, og
sviðnaði þó talsvert á honum hárið
en ekki mun hann hafa fengið nein
brunasár. Uppi á loftinu fyltist
alt samstundis með reyk og hjarg-
aðist fólkið þaðan með naumind-
um eins og það stóð, en gat ekk-
ert tekið með sjer. Brann þarna
inni öll húslóð ítráanna svo ger-
samlega, að ekkert hjargaðist úr
eldinum nema einn stóll.
Á efri hæð hússins var íbúð mín
og Eiríks Kristjánssonar, sem er
starfsmaður hjá Sjóklæðagerðinni.
Var innhú okkar beggja vátrygt
sæmilega hátt. Á neðri hæðinni
bjó Hans Kristjánsson, stofnandi
Sjóklæðagerðarinnar og var innhú
hans vátrygt. 011 þessi innbú voru
vátrygð hjá Sjóvátryggingarfje-
lagi íslands. En þarna bjó einnig
leigjandi, Jón Halldórsson smiður
frá Klöpp. Innbú hans var óvá-
trygt.
Ef bálið hefði orðið svo mikið,
mælti Jón enn fremur, að kvikn-
að hefði í verksmiðjunni, þá mundi
ekki hafa orðið við neitt ráðið,
því að hjer er afar mikið af olíu-
bornum sjóklæðum. Eru hjer í
húsinu geymd sjóklæði og vinnu-
föt fyrir 70—80 þús. kr.
Qagbók.
□ Edda 593211297 — 1.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
Fyrir vestan og norðan land er
djúpt lægðarsvæði, sem veldur all-
hvassri og víða hvassri SV-átt
hjer á landi. Veður er orðið bjart
á A-landi en annars staðar gengur
á með jeljum eða hryðjum. Hiti
er víðast um frostmark. Norðan
til !á Vestfjörðum er vindur orð-
inn N-lægur með 2—3 st. frosti,
og er útlit fyrir NV-átt hjer á
landi 4 morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: NV-
eða N-kaldi. Sennilega úrkomu-
laust, en kaldara.
Alþýðufræðsla safnaðanna. Þessa
vikn verða erindi flutt í frakk-
neska spítalanum, sem hjer segir:
Þriðjudagskvöld kl. 8%, Magnús
Runólfsson, stud. theol. Fimtu-
dagskvöld kl. 8%, Guðgeir Jó-
hannsson, kennari. Laugardags-
kvöld kl. 8y2, Valgeir Skagfjörð,
stud. theol. Allir velkomnir. Á
sunnudaginn kl. 3 verður barna-
guðsþjónusta haldin á sama stað.
Öll börn velkomin.
Jarðskjálftakippir fundust í
nótt í suðvestur Hollandi og telja
vísindamenn að npptök þeirra hafi
verið í Hollandi sjálfu. Er það
merkilegt að fyrir 3 árum sagði
amerískur vísindamaður fyrir að
uppfyllingin á Zuidersee mundi
hafa jarðskjálfta í för með sjer
síðar meir, sökum truflana í jarð-
veginum, vegna breytinga á þrýst-
ingi. (28. nóv. F. Ú.).
Hjálpræðisherinn. Opinber æsku
lýðssamkoma í kvöld kl. 8. Kapt-
einn Hilmar Andrésen stjórnar.
Annað kvöld kl. 8 samkoma, þar
sem elstu trúarhetjurnar eru í
hroddi fylkingar. Allir velkomnir!
Bifreiðastjórafjelagið Hreyfill
heldur skemtuu að Vífli í nótt eins
j og auglýst ér á öðrum stað hjer
j í blaðinu.
Sjómannakveðjur. Farnir áleiðis
ti! Englands. Kærar kveðjur. Vel-
líðan. Skipverjar á Karlsefni. (FB.
28. nóv.).
Bethanía. Biblíulestur í kvöld
kl. 8. Allir velkomnir.
Heimatrúhoð leikmanna, Vatns-
stíg' 3. Almenn samkoma í kvöld
kl. 8.
Heimdallur. Á morgun, miðviku-
dag, efnir Heimdallur til skemti-
kvölds með kaffidrykkju og dansi
að Café Vífli.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.05 Fyrirlestur
Fiskifjelags fslands. 19.30 Veður-
fregnir. 19.40 Tilkynningar. Tón-
leikar. 20.00 Klukkusláttur. Frjett
ir. 20.30 Erindi: — Björnstjerne
Björnson, I. (Ágúst H. Bjarna-
son). 21.00 Tónleikar: Celló-sóló
(Þórh. Árnason). 21.15 Upplestur.
(Herdís Andrjesdóttir). 21.35
Gramófóntónleikar: Beethoven:
Trió í h-dúr.
Lögregluþjónarnir sem meiddust
í bardaganum í). nóvember eru
þrír allmikið veikir enn. Sveinn
Sæmundsson er verst lialdinn. —
Hann hefir fengið heimakomu í
höfuðið. Magnús Hjaltested hefir
sogæðabólgu í hendi, og Sigtrygg-
ur Eiríksson er mjög máttfarinn
enn. Einir 4 eða 5 aðrir eru enn
frá verki.
Sjúkrasamlag Reykjavíknr ósk-
ar þess getið, að eins og áður var
auglýst, verða samlagsmenn að til-
kynna skrifstofu samlagsins, um
læknaskifti, fyrir 1. des. næstk.
Magnús Pjetursson hjeraðsl. og
Jón Hj. Sigurðsson próf. hætta um
næstu áramót að gegna almennum
störfum fyrir S. R. Þeir, sem hafa
haft þá, verða því að velja sjer
aðra lækna. Það er afaráríðandi
að samlagsmenn muni það, að til-
kynna um læknaskifti fyrir þenna
ákveðna tíma.
Old Boys, f. R. halda dansleik
að Hótel Borg laugardaginn 3.
desemher. A.ðgangur heimill öllum
meðlimum eldri flokka fjelagsins
og gestum þeirra. Nánar auglýst
á morgun.
Jarðarför Jóns heit. Fjeldsted
klæðskerameistara fer fram á
morgun frá dómkirkjunni og hefst
með kveðjuathöfn iá heimili hans,
Þórsgötu 19, kl. 1 síðd.
Árni Kristjánsson, hinn frægi
píanósnillingur, er kominn hingað
til bæjarins og ætlar að halda
hljómleika í Gamla Bíó annað
kvöld. Síðan Árni helt hjer fyrstu
hljómleika sína og heillaði alla
áheyrendur sína, hafa hljómelskir
Reykvíkingar þráð það að fá að
heyra til hans aftur. Er því enginn
efi iá því að færri munu komast að
en vilja í Gamla Bíó annað kvöld.
Maður verður bráðkvaddur.
Um hádegisbilið í gær varð einn af
starfsmönnum Slippsins, Jón Sig-
urðsson „kalfatrari“ hráðkvaddur
við vinnu sína um borð í skipinu
„Sæbjörg“. Sat hann á þilfari og
var. að reka kaðaltásu milli þil-
farsborða, en hneig alt í einu út
af. Heldu menn fyrst að liðið
hefði yfir hann og var Sveinn
Gunnarsson læknir þegar sóttur,
en er hann kom var maðurinn ör-
endur. — Jón var með elstu starfs-
mönnum Slippsins, hafði unnið þar
frá því að Slippurinn var stofnað-
ur, nema tvö seinustu árin, sem
hann lá veikur. Nú var hann þó
orðinn það hress, að hann ætlaði
að hyrja að vinna þar aftur,- og
var þetta fyrsti vinnudagurinn
hans eftir veikindin Hann mun
hafa verið á láttræðisaldri.
Barnalýsi
mett bætiefnnm.
I blaðinu „lslendihg“ 4. nóv.
ei ritgerð eftir lir. Valdimar Step-
hensén lækni, á Akureyri. Er rit-
gerðin hvatning til almennings
að nota meira þorskalýsi en gert
er, sökum bætiefna þeirra er finn-
ast í lýsinu, og sem eru hinum
mannlega líkama ómissandi. Nefn-
ir læknirinn fleiri sjúkdóma, hjá
fullorðnum sem börnum, er lækn-
ast af lýsi. Ennfremur segir lækn-
irinn: „Til lýsisgerðar kunnum
vjer íslendingar ekkert. Það er
ekki nóg að bræða lifrina, og ekki
sarna hvernig það er gert. Það
hefir sýnt sig, að lýsi getur verið
svo bætiefnasnautt, að það er
gagnslaust til lækninga11. — Þýsk-
ar rannsóknir hafa sýnt þetta.
Við viljum sjerstaklega vekja
atliyg'li almennings á því, að
Laugavegs Apótek selur eingöngu
bætiefnaríkt þorskalýsi sem hæði
inniheldur A og D fjörefni og sem
hefir hin læknandi áhrif á líkama
mannsins, sem læknirinn talar um
að lýsi eigi að hafa.
Verðið er sem hjer segir: 1/1
flaska kr. 1.50 án íláts 1/2 flaska
0.75 án íláts og pelinn kr. 0.60 án
íláts.
Viljið þjer gott og ódýrt lýsi,
þá kaupið það í
Langavegs Apttteki.
MorgunblaðiS er 6 síður í dag.
Silfurbrúðkaup eiga lá morgun,
30. nóvember, Rannveig Ólafsdótt-
ir og Ásbjörn Pálsson, Öldugötu
52. —
Hjúskapur. Á laugardaginn var
voru gefin saman í hjónahand af
síra Friðrik Hallgrímssyni ungfrú
Björg Bjarnadóttir frá Geitabergi
og Jónas Ólafsson verslunarmaður
hjá Tóhakseinkasölu íslands. Heim
ili -þeirra er (á Sjafnargötu 5.
Hinn 22. þ.. mán. gaf síra Bjarni
Jónsson saman í hjónahand iing-
frú Helgu Nikulásdóttur og Ólaf
B. Magnússon kaupmann.
1. desember. Stúdentaráðið
gengst fvrir h'átíðahöldum l.des.,
eins og að undanförnu. Hefjast
þau kl 1 með skrúðgöngu stúd-
enta. Því næst flytur forsætisráð-
herra ræðu af svölum Alþingis-
hússins. Kl. 31/2 hefst almenn
skemtun í Gamla Bíó. Verður
skemtiskráin óvenjulega fjöl-
breytt. Skemtuninni verðiir ekki
útvarpað. Stúdentahlaðið kemur
út um morguninn og verður selt á
götunum allan daginn og sömu-
Teiðis „1. des.“-merki til lágóða
fyrir starfsemi Studentariáðsins. ís-
lendingahók liggur frammi í and-
dyri Háskólans. Um kvöldið verð-
ur dansleikur stúdenta að Hótel
Borg, hefst með borðhaldi kl. 7.
Aðgöngumiðar verða seldir á mið-
vikudag kl. 3—7 í lesstofu Há-
skólans. Vegna mikillar aðsóknar
og tiltölulega lítils hiisrúms, er
eigi unt að veíta öðrum en stúd-
entum aðgang að dansleiknum.
Hátíðahöldin verða nánar auglýst
síðar. Stvidentaráðið.
Georg prins
sonur Bretakonungs átti þrítugs
afmæli hinn 20. nóvember. f tilefni
af því var honum gefin hertoga-
nafribót.
Það er talið að seinustu fjögur
árin hafi glæpamenn í Chicago
valdið nm 600 miljóna tjóni með
sprengingum sínum í borginni.
Græaaiatl
ætið best .
Teofhhi
cigarettur
ilmandi egypskar.
20 stk. 1.25.
— I næstu búð. —
S. R. F. L
Sálarrannsóknafjelag íslands
heldur fund í Iðnó, miðvikudag-
inn 30. nóv. kl. 8V2 síðd.
Síra Kristinn Daníejsson flytur
erindi: Frá reynslu minni.
Stiórnin.
Hven-silkisokkar
frá kr. 1.25.
Barnasokkar í úrvali.
Kalmannasokkar,
Millipeysur og
Vinnuskyrtur.
Andrjes Pálsson.
Framnesveg 2, sími 962.
Úr minningarsjóði
Eggerts Ólafssonar og Gjöf dr.
Helga Jónssonar, verður úthlutað
fje nokkru til útgáfu vísindalegra
rita náttúrufræðilegs efnis. Um-
sækjendur sendi nmsóknir sínar
fyrir þ. 28. desember n. k. til próf.
Guðmundar G. Bárðarsonar, Laug-
arnesi, Reykjavík.
hf» Alit geð IslenSkom Skipuin!