Morgunblaðið - 22.12.1932, Page 3
MORGUNBLAÐ7Ð
3
JRorguuWaM^
Útgref.: H.f. Arvakur, Reykjavlk.
Rltstjörar: Jön Kjartanseon.
Valtýr Stofánsson.
Rltstjörn og afgreitSala:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Auglýslngastjöri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrif stof a:
Austurstræti 17. — Simi 8700
Heimasimar:
Jön Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 & mánuOl.
Utanlands kr. 2.E0 á mánuttl.
1 lausasölu 10 aura elntaklO.
20 aura meO Lesbök.
Saslaus bcer.
Skömmu eftir hádegi í gær
tæmdust gasæðar bæjarins.
Engar fregnir af kolaskipinu
Rudolf.
Hin væntanlegu gaskol seldi
J.'C. Peacckos i Glasgew hingað.
Samningur við H. Benediktsson
& Co. hljóðar þannig, að skipið leggi
af stað frá| Englandi strax eftir
10. nóv.
Gas kom aftur
í gærkvöldi kl. 7, og helst það
fram til miðnættis. Er vonast eft-
ir því, að gas haldist í lengri tíma
í dag en í gær, þó ekki verði öðru
~til að dreifa en kolum þeim, sem
hjer hafa fengist.
Eru gaskolin á leiðinni?
í gær kom Belgaum hingað frá
Englandi, hafði aðfaranótt þriðju
dags sjeð skip 100 mílur frá
Vestmannaeyjum á leið hingað.
Er talið að þar hafi varla annað
;skip verið á ferðinni en kolaskip-
ið Rudolf með gaskolin.
Innflutningur
á fiski til Bretlands.
Timinn
London 21. des.
United Press. FB.
Innflutningstolla-ráðgjafarnefnd-
In heldur nú fundi til þess að
ræða brjef ' það, sem Samband
breskra botnvörpuskipaeigenda
hefir sent nefndinni. Hefir sam-
handið farið fram á, að þegar í
stað verði tekið til athugunar að
leggja aultinn innflutningstoll á
fisk, sem lagður er á land í Bret-
landi af erlendum fiskiskipum. —
Ákvörðunum nefndarinnar út af
málaleitan þessari, er beðið með
mikill óþreyju.
Gullforði Frakka minkar.
Gullforði Frakklands nemur nú
3 miljörðum og 392 miljónum.
Hefir gengið allmikið á hann í
tíð Herriot-stjórnarinnar og er um
kent ýmsum nauðsynlegum greiðsl-
um, sem Frakkar hafa orðið að
láta af hendi í gulli.
Skipaárekstur.
Breskt gufuskip, Gateshead, og
norskt gufuskip, Miranda, rák-
ust á skamt frá Seaham-höfn
snemma í morgun. Gateshead
sökk á stuttum tíma, og er talið
að skipstjóri og 7 af skipshöfn-
inni hafi farist, en fyrsta stýri-
manni, og 4 af skipshöfninni, var
bjargað af Miranda. Skipið, sem
var 712 smálestir að stærð, var
á leið til Amsterdam. (F.tJ.)
Í20. desember birtir greinar með
eftirfarandi fyrirsögnum:
1. Stórkostlegt rjettar-
hneyksli. Stjórnarskráin og
hæstarjettarlögin þverbrotin af
dómendunum sjálfum.
2. Pöntunin afgreidd í Hæsta-
rjetti í gær. «.
3. „Rjettvísin sefur“.
4. Hraðsýknun.
5. Hæstirje'ttur gefur ranga
skýrslu.
6. „Guði sje lof að til er Hæsti-
rjettur“ og margt fleira.
Talið er líklegt, að Hermann
Jónasson lögreglustjóri sje höf-
undur að talsverðum hluta grein-
anna.
Greinar þessar, sem allar eru
að sjálfsögðu ritaðar í hinum
þjóðkunna sorpblaðastíl Tímans
og væru ekki taldar birtingarhæf-
ar í siðuðu þjóðfjelagi, verða
eigi gerðar hjer að umtalrefni.
Fyrirsagnirnar einar gera grein
fyrir svip þessa alveg einstaka
stjórnarblaðs, er nú hefir tekið
upp á stefnuskrá sína, að sví-
virða’hæstarjett þjóðar sinnar.
Enga yfirlýsingu birti Tíminn
frá forsætisráðherra Ásgeiri Ás-
geirssyni um það, að hann væri
fylgjandi ofsóknunum á Hæsta-
rjett. En vera má, að þögnin eigi
hjer að þýða sama og samþykki.
—• ••••
Þýsfcur togari
strandar á Meðal-
landsfjörum.
Mannbjörg.
í gærmorgun strandaði þýskur
togari á Meðallandsfjörum, á svo-
nefndri Fljótafjöru, vestan við
Eldsvatnsósinn. Togarinn heitir
»Alexander Raber« og er frá
Weesermiinde.
Menn urðu varir við strandið
frá næstu bæjum, sáu bál og
heyrðu að* skip flautaði í ákafa.
Brugðu menn skjótt við og fóru
á fjöru og fundu strandið. Voru
skipsmenn þá enn úti á skipinu,
en það tókst brátt að koma þeim
á land á línu. Skipsmenn voru 12
talsins og björguðust allir og eng-
in meiðsl urðu. Var strax farið
með þá til næstu bæja, Feðga og
Hnausa. Ekkert er hægt um það
aðsegja, hvort takast mundiað
bjarga nokkru úr skipinu.
Sakauppgjöf i Þýskalandi.
Berlín 20. des. F.U.
Þýska ríkisráðið samkykti í dag
með 44 atkvæðum gegn 19, að
hefja engin mótmæli gegn lögum
þeim um uppgjöf pólitískra saka,
sem ríkisþingið hafði samþykt,
Móti voru fulltrúar Bayern, Baden
og Wiirtenberg, og lýstu þeir því
yfir, að þeir álitu, að það væri
löndin hvert fyrir sig, sem ættu
að gefa upp sakir, en ekki ríkið
Ríkisþingið mun ekki verða kall-
að saman fyrir jól, eins og búist
var við, ef ríkisráðið hefði sam-
þykt mótmælin. Prússneska stjórn-
in hefir gefið út fyrirskipun um
það, að hraða meðferð mála þeirra,
sem heyra undir lögin um saka
uppgjöf, þannig, að allir þeir póli-
tiskir fangar, sem koma til greina,
geta verið komnir heim til sín
fyrir jól.
Viðreisn Mið-Evrópu fæst
ekki vegna Frakka.
Berlín 21. des. F.U.
Franska blaðið Excelcior ræðir
um tvær leiðir til viðreisnar Mið-
og Suður-Evrópu. Fyrri leiðin sje
sú, að Þýskaland og Austurríki
myndi með sjer tollsamband, en
þaið f muni Frakkar aldrei ganga
ián á* -i- Hin sje, að Donau-lönd-
in t)g Balkanlöndin slái sjer sam-
an með Austurríki sem miðdepil.
— Blaðið gerir hinsvegar ekki
ráð fyrir að sú leið verði nokk-
urntíma trygg, því vegna legu
sinnar og skyldleika á þjóðerni
og tungu muni Austurríki aldrei
til lengdar verða skilið frá Þýska-
landi.
Kúgun Sljesiu.
Berlín. 21. des. F.Ú.
í amtsráðinu í Eystri-Efri-Sljesíu
á Póllandi urðu í gær miklar um-
ræður um frumvarp, sem pólska
stjórnin hafði lagt fyrir ráðið, og
sem gengur út á það að draga
mjög úr sjálfsforráðum þessa
andshluta. Var frumvarpi þessu
sjerstaklega mótmælt af tveim
mönnum úr þýska minnihlutanum,
og loks, að loknum umræðum,
vísað til nefndar.
Fjárhagsstríð Breta og íra
Svo sem kunnugt er, hefir írska
ríkisstjórnin neitaði að greiða’um-
samdar borganir til bresku stjórn-
arinnar, en það hefir orðið til?þess,
að breska stjórnin varð í gær að
leita aukafjárveitingar fyrir 18
miljónum marka, en það sam-
svarar upphæð þeirri, sem írar
neituðu að greiða.
Merkilegur fornleifa-
fundur.
Rannsóknarleiðangur í norður-
vegi, sem hefir vetursetu á Wran-
geleyjunni í Norður-íshafi, hefir,
að því er rússneska stjórnin til-
kynnir, fundið þar geisimiklar
leifar af fortíðarfíl þeim, sem
Mammuth er kallaður. Fundu þeir
tennur úr á að giska 52 fílum, og
vógu þær, sem stærstar voru, um
100 pund.
Bankarán.
í gærdag var framið bankarán
mikið í borginni Philadelphiu í
Bandaríkjunum. í miðjum af-
greiðslutimanum rjeðust ræningj-
arnir að bankanum, og stóðu
sumir þeirra á verði við dyrnar,
en aðrir leituðu inn i afgreiðslu-
stofuna og ljetu þar greipar sópa.
Ræningjarnir höfðu 168.000 mörk
upp úr tiltækinu, og tókst þeim
að loknu verki að komast undan
með ránsfenginn.
Atvinnuleysið i
Þýskalandi.
Tala atvinnuleysingja i Þýska-
landi hefir aukist um tæp 25Ó
þús. fyrri helming desembermán-
aðar. — Tekur atvinnuskrifstofan
það fram, að þetta sje ekki meiri
aukning en búist var við. —
Roosevelt
og stríðsskuldirnar.
Franklin Roosevelt hefir lýst
því yfir, að hann muni kalla ýmsa
helstu fjármálamenn heimsins til
fundar um skuldamálin eftir 4
mars. — Hann er ekki samþykk-
ur öllum aðgerðum Hoovers
þessu efni, en kveðst þó ekki
munu grípa fram í neinar af þeim
Dagbók.
I. O. O. Fo Bbr. mæti i dag
kl. 2'/a i Vonarstræti 10. Fjöl-
mennið.
Veðrið í gær. Vindur er all-
hvass með regni og 6 st. hita á
SV-Iandi. í öðrum hjeruðum er
yfirleitt SA-kaldi og 4—5 st. hita.
Á Snæfellsjökli þó SA-hvassviðri
með mikilli fannkomu og þriggja
st frosti.
Lægðin hreyfist norður eftir
Grænlandshafi.
Veðurútlit i Reykjavik í dag.
S og SV-átt, stundum allhvast
og skúrir. Þíðviðri.
Vestur-fslending’ur ferst. — í
Heimskringlu þann 23. nóvember
er birt eftirfarandi fregn: „Tveir
menn, er stunduðu fiskveiðar á
Young Lake í Ontario, eigi langt
frá Port Arthur, hafa sennilega
farist í hríðarveðri þann 3. þ. m.
Þann 11. nóvember kom maður
að kofa þeim, er þeir bjuggu í,
,og varð þess brátt var, að þar
höfðu menn ekki verið nokkurn
tíma. Hundar voru bundnir úti
hjá kofanum nær dauða en lífi
af hungri. Á borði í kofanum var
skrifað á miða: „Við skruppum
á pósthvisið. Komum heim innan
skamms.11 Á pósthúsið, sem nefnt
er ‘VVetcomb, komu þeir ekki, og
til þeirra liefir ekki frjest síðan.
Smábátur (eonoe), er þeir áttu, lá
niður í flæðarmálinu á ströndinni.
Virtist bátinn hafa rekið á land.
Mennirnir hjetu Hörður Bergvins-
son og Ollie Lafroth. Allar líkur
benda til, að þeir hafi drukknað
í vatninu. Hörður kvað hafa verið
frá Manitoba." (FB).
Skipafrjettir. Gullfoss er í Rvík.
-— Goðafoss er í Hull. — Detti-
foss kom til Reykjavíkur í gær-
morgun, að vestan. — Lagarfoss
er í Kaupmannahöfn. — Brúar-
foss er á leið til Hafnar frá
London. — Selfoss er í Reykja-
vík.
Morgunblaðið er 8 síður í dag.
Árshátíð Verslunarskólans verð-
ur haldin 2. janúar næstk. Að
undanförnu hafa samkomur skól-
ans verið haldnar í skólahúsinu
sjálfu, en vegna væntanlegrar
mikillar aðsóknar verður árshá-
tíðin haldin að Hótel Borg. Eins
og í fyrra, má búast við að marg-
ir gamlir nemendur, sem yngri,
fjölmenni á þessa skemtun. Nánar
auglýst síðar hjer í blaðinu.
Til mæðrastyrksnefndar. J. B.
5(1 krónur. Ónefndur 10 lcrónur.
,Hemill‘. Sigurjón Ólafsson seg-
ir í Alþýðublaðinu um vin sinn
Jón Baldvinsson: „Á tímum eins
og þeim, er við lifum á, þurfnm
við að eiga menn eins og Jón
sem „rasa ekki um ráð fram“, og
sem eru nokkurs konar „hemill“
á okkur æi’slabelgina,"
Umsækjendur um borgarstjóra-
stöðnna eru þessir: Jón Sveins-
son, bæjarstjóri á Akureyri
Magnús Jónsson lagaprófessor
Torfi Hjartarson cand. jur. og
Sigurður Jónasson einkasölufor
stjóri.
Bæjarstjórnarfundi þeim, sem
halda átti í dag, vérður frestað
um nokkra daga,
Kylfur í Noregi. Nokkrir ungir
menn komu af stað óspektum í
Kristianssand í gær. Lögreglan
varð að skerast í leikinn og ryðja
götumar. Beitti lögreglan kylfun-
Hgæt jólagiðf
er lítil ryksuga, sem
heitir BICZA. Vönduð
oþ,- ljett. Verð aðeins
kr. 97.00,
með öllum áhöldum, að
eins nokkur stykki, sem
af sjerstökum ástæðum
seljast nú í
Haraldamúl
Komið og skoðið
hetta fióða áhald.
>OV) E
Iðiasaimar
á plötnna.
Fallegar jólaplötur —
spilaðar og sungnar.
Nýjar
flansDlðlur
aðeins 3 krðnnr stykkið.
Tónverk eftir rnestn snill-
mgana. —
Verðið lækkað.
Hljóðfæraverslun.
Lækjargötu 2.
SHkisokkar
frá 1.95, upp í 6.50,
sjerstaklega sterkar
og góðar tegundir.
Kaupið jólasokkana á
böm og fullorðna
i verslun
Guðbí. Bergbúrsdðttur.
Laugavegi 11.
um. Sjö menn voru handtfiksir.
(NRP, FB)