Morgunblaðið - 30.12.1932, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
5kýrsla
Árangur af starfsemi Vinnumið-
stöðvar kvenna.
------ Niðurl.
Teljum við þetta betri árang-
ur en við þorðum að búast við
fj-rsta árið. Hefir fyrirtækið orðið
vinsælt bæði af húsmæðrum og
verkakonum og höfum við orðið
þess varar að oft hafa húsmæður
ráðið stúlkur frá stöðinni, þó þær
hafi auglýst samtímis, enúa er
bersýnilega hagkvæmara að mið-
stöð sje fyrir ráðningar og þá
hægra tim úrval fyrir báða aðilja.
Eins og skýrslan ber með sjer er
mikil eftirspurn eftir stúlkum,
sem geta tekið að sjer heimili í
forföllum húsmóður, þar sem kon-
an liggur sjúk eða á sæng, er ný-
komin af sjúkrahúsi, eða fjarver-
andi á sjúkrahæli. Teljum við
mikla nauðsyn að útvega þessum
heimilum hjálp og ekki síður þörf
á þesskonar hjálp og hjúkrun. Oft
er erfitt eða ómögulegt að útvega
stúlkur á fátæk heimili, sem fftið
eða ekkert kaup geta greitt og
þar sem allsleysi er fyrir, þó hafa
stúlkur stundum tekið þetta að
sjer af hreinni góðsemi. Þá teljum
við þýðingarmikið að geta útvegað
stúlkur í sveit og virðist það ekki
lág tala að iitvegaðar hafi verið
189 stúlkur á heimili utan Reykja-
víkur og 51 í umhverfi bæjarins,
samtals 240. Leitað hefir verið
stöðvarinnar alls staðar af land-
inu og stúlkur ráðnar í fjarlæg
heruð, t. d. norður í Fljót og
austur í Skaftafellssýslu. Teljum
við bænum hag í því engu íjður
en sveitunum að stuðla að því að
slíkar ráðningar takist.
Þegar litið er á starfsemi stöðv-
arinnar til atvinnubóta, þá sjest,
eins og áður er sagt, að mjög
margar stúlkur hafa fengið vistir
fyrir milligöngu stöðvarinnar, sem
annars hefðu verið atvinnulausar.
Um sveitavistirnar er það að segja
að allar hafa ráðningarnar tekist
fyrir þrábeiðni stöðvarjnnar, nema
kaupavinnan. því allar hafa stúlk-
urpar óskað eftir vistum í Reykja
vík, þó binsvegar þær hafi tekið
sveitavistirnar þegar ekki var
hægt að fá sambærilega staði í
Reykjavík, eða mjög var lagt að
stúlkunum.
Þá finst okkur mikils um vert
að hafa getað útvegað svo mörg-
um mæðrum (stúlkum og ekkjum)
heimili, sem liafa haft barn eða
jafnvel börn með sjer. Hafa marg-
av þeirra fengið góða staði og ver-
ið ánægðar.
Eins og áður er sagt er mikill
liörgull á dagvinnu handa konum.
Hjer í bæ eru nokkur, hundruð
konur, sem sjálfar standa straum
af heimili (300—400) nöfn eru á
lista þeim sem Mæðrastyrks-
nefndin ljet taka í fyrra eftir
manntalinu, yfir slíkar húsmæður.
Þessar konur hafa flestar mjög
lítið fyrin sig að leggja og eru
yfirleitt fátækastar allra hjer í
bæ. Þær vinna í fiski, ef þær geta,
eða við þvotta, hreingerningar,
þjóflustumenn þeirra eru atvinnu-
lausir og svo bætast í hopinn kon-
ur atvinnulausra manna, sem
rgyna að vinna utan heimilis,
fólki sínu til bjargar. Þessar kon-
ur koma á stöBina og er okkur
mikil raun að því að geta ekki
veftt þeim meiri vinnu en orðið
hefir. Þó hafa ýmsar fengið vinpu,
sem þeim hefir líomið vel, og við
treystum því að þegar stöðin starf
ai lengur muni húsmæður læra að
nota liana betur til þess að fá
slíka cíag- og tímahjálp og muni
þá þessi vinna aukast að miklum
mun.
Stundum hefir stöðin óbeinlínis
orðið til atvinnubóta fyrir hús-
bænclur, því komið hefir það fyrir
að menn hafa orðið af vinnu
vegna þess að þeir urðu að vera
heima hjá veikri konu, en stöðin
liefir bætt úr því með því að út-
vega stúlku til húsverkanna.
Stofnkostnaður stöðvarinnar,
húsgögn, innlagning síma og svo
frv., nam um 1000 kr. Annar
kostnaður, húsaleiga, ljós og hiti
í 15 mánuði, kaup starfskonu,
ræsting og annar rekstrai'kostn-
aður í 13 mánuði nemur um 2500
kr. Á móti þessum kostnaði kem-
ur 2000 kr. styrkur, veittur af
bæjarfje og 1000 kr. styrkur, sem
ríkisstjórnin hefir nýlega veitt af
atvinnubótafje. Verður þá um 500
kr. lialli á starfstímabilinu, til 31.
des. 1932, sem Kvenrjettindafje-
lagið ber.
Fjelagið væntir þess að styrkir
fáist áfram af opinberu fje svo
starfsemi stöðvarinnar þurfi ekki
að leggjast niður. Telur það að
skýrsla stöðvarinnar sýni að starf-
semin hafi komið að margvísleg-
um notum, húsniæðrum til hag-
ræðis en verkakonum til atvinnu-
bóta, .og geti orðið til þess að
spara bæjarfjelagi okkar og ýms-
um öðrum hreppum töluvert fje,
þar sem hún miðar að því að gera
konum fært að bjarga sjer sjálf-
um, sem annars þyrftu styrkjar,
eins og t. d. sumar mæðurnar, sem
vistaðar hafa verið með börnum.
Stöðin þakkar öllum viðskifta-
mönnum sínum, husmæðrum og
verkakonum, það traust sem þær
hafa sýnt henni á þessu fyrsta
starfsári. Enn hefir stöðin ónóga
starfskrafta til þess að geta haft
svo fullkomið bókhald og eftirlit,
sem þyrfti, á þeim tímum þegar
aðsókn er mest. Væntir hún að
géta bætt það þegar henni vex,
fiskur um hrygg. En gengi henn-
ar er undir því komið að viðskifta-
konur skoði sig sem samverka-
konur stöðvarinnar, sem styðji
hana með því að leita hennar,
gefa henni upplýsingar greiða fyr-
ir verkakonum, sem skifta við
hana með því að lána þeim síma,
og skýra þýðingu hennar fyrir
kunningjum sínum, svo hún verði
vaxandi þáttur í daglega lífinu,
og enginn, sem býður eða veitt
getur slíka vinnu gleymi að til er
vinnumiðstöð kvenna.
Laufey Valdimarsdóttir.
Erlendar frjettir.
Berlin, 29. des.
Jarðskjálftar í Mexíkó.
Jarðskjálftar hafa geisað í Aust
ur-Mexíkó og lagt þar eina borg
algerlega í eyði. — Fórust við
það 21 manns, en yfir 50 meidd-
ust, Þetta skeði 19'. desember,
en frjettist fyrst núna, (FÚ.).
Sprenging í kolanámu.
Sprenging varð í gær í kola-
námu í Suður-Ungverjalandi og
fórust við það 13 námamenn. —
(FÚ.).
Pólland og Danzig.
Samningatilraunir hefjast 2.
janúar milli Póllands og Danzig
um ýms málefni þjóðanna m. a.
um það, hvernig skifta eigi sigl-
ingum milK Danzig og nýju pólsku
hafnarinnar Gdingen og um rjett-
indi pólskra borgara í Danzig. —
(FÚ.).
Banatilræði við Grikkja-
forseta.
Frá Aþenuborg kemur sú fregn,
að komist hafi upp um tilraun til,
þess að myrða ríkisforseta Grikk-
lands. — Stjórnarvöldin þar í
laödd skýra svo frá, að það sjeu
erlendir stjórnleysingjar, sem ætli
sjer að fremja árás þessa og muni
þeir vera á leiðinni til Aþenú-
borgar, en yfirvöldin hafa gert
allar þær varúðarráðstafanir, sem
hægt er. (FÚ.).
Gullið í Suður-Afríku.
Gullframleiðendur í Suður-
Afríku hafa, að því er fregn frá
Johannesbourg liermir, lýst því
j’fir, að þeir muni framvegis selja
gull sitt á frjálsum markaði. —
Þeir hafa hingað til haft samning
við ríkisbankann um að selja hon-
um alt gull, en með nýjustu ráð-
stöfunum stjórnarinnar um gull-
innlausn telja þeir, að samningur
þessi sje úr gildi genginn. — Það
er þó ekki talið ólíklegt, að samn-
ingar geti tekist að nýju milli
stjórnarinnar og gullnámueigenda.
— Seðlabankinn í Suður-Afríku
hefir lýst því yfir, að verð á er-
lendum gjaldeyri muni ekki verða
opinberlega skrásett fyrst um sinn.
(FÚ.).
Fransk-þýsku samningarnir.
Viðbótarsgmningur við þýsk-
frönsku verslunarsamningana var
gerður í Berlin í gær og mun
verða birtur, í dag. — Samkvæmt
lionum munu framvegis gilda
sömu reglur um gjaldejrisvið-
skifti eins og þegar eru í gildi
milli Þýskalands annars vegar og
Ítalíu og Svíþjóðar hins vegar. —
(FÚ.).
Rússar, Kínverjar, Japanar.
Frjettaritari enska þlaðsins
Daily Telegraph í Austur-Asíu rit-
ar grein um nýja samninginn
milli Rússlands og Kína um stjórn
málasamband og telur liann, að
samningnrinn sje ekki gerður af
Rússa liálfu af fjandskap við
Japana heldur þvert á móti. —
Rússneski utanríkisráðherrann
muni ætla sjer að koma á sam-
komulagi milli Japana og Kín-
verja, ef tilraunir Þjóðabandalags
ins misheppnast, en það megi nú
telja víst. — Sjeu margir þeirrar
skoðunar, að ef þetta takist þá
muni Rússar, Kínverjar og Jap-
anar gera með sjer bandalag. —
(FÚ.).
Skip ferst.
Fiskiskip, sem var á wiðum við
austurströnd Skotlands, kollsigldi
sig í gær, og fórst öll áhöfnin.
(FÚ).
Skuldagreiðslmnálin.
Normann Davis, fulltrúi Banda-
ríkjanna á afvopnunarráðstefn-
unni, hefir í viðtáli við blaða-
menn lýst því yfir, að skulda-
greiðslumálið muni ekki verða lagt
fyrir fjármálastefnuna, eins og
Skrtfstofnr
okkar verða lokaðar 2. |uf-
ar næstkomandi, allan daginn.
KNUT HADISUN
er af mörgum talinn fremstur þeirra skáldsagnahöfunda, sem Noröurlönd hafa
aliö. Degar hann varö sjötugur (1929), var hann hyltur á öllnm niQnningartung-
um lieimsins. í nýútkominni merkisbók íslenskri (Sögum frá ýmsum löndum)
segir svo um hann: „Sumar mannlýsingar hans eru svo frumjegar, máttugar og
fagrar, og frásagnarlist hans svo einstæö, að vafamál er, hvort nokkru norrænu
sagnaskáldi veröi til hans jafnaðú
Knut Hamsun er Thomas Hardy Norðurlanda.
Hjer á landi á enginn erlendur höfundur, ekki einu sinni Byron, einlægari
dýrkendur en Hamsun. Hitt er annaö mál, að rit lians eru of fágæt á fslenskum
bókahillum, en þaö er af þeirri sök, að efnalitlum mönnum, eins qg flestitm ís-
lendirfgum, hefir verið um megn að eignast þau. Hingað til hefir .éfcki verið unt
að fá þau öll fyrir minna en 330 kr. En nú horfir þetta öðruvísi við. Gyldendal
er byrjaðuf á heildarútgáfu af öllum ritum Hamsuns, 19 sögum, er kemur í 12
binduni, einu á mánuðí, og verður lokið seint á árinu 1933. Hún verður snildarleg
að öllum frágangi og svo ódýr að undrum sætir. Hvert bindi í undurfallegu skinn-
bandi kostar kr. 6.35, eða alt safnið 76 kr. Fyrsta bindið er komið, pg er til sýnis
í bókaverslun minni.
„Heyrðum vjer Brandes og heyrðum vjer þig“, kvað Dorsteinn til Björn-
sons á sjötugsafmæli hans. Landar mlnir, síðan eru nú liðin 30 ár, en enn hafið
þið sannað orð skáldsins, því sexfalt fleiri eintök seldi jeg af ritum Björnsons á
árinu 1932 heldur en jeg liafði fyrirfram hugsað mjer að með nokkru móti kynnl
að reynast mögulegt. Vera má, að vjer íslendingar sjeum ekki miklir konunga-
dýrkendur, en engin vansæmd þykir okkur að lúta hátigninni þar, sem liún birtist
okkur í heimi andans og listarinnar, og fyrir skáldkonungi Norðurlanda, Knut
Hamsun, beygjum vjer auðmjúkir knje. Jeg hefi nú sagt ykkur frá þessari nýju
og fögru útgáfu af riturn hans, og jeg veit, að þið munuð hylla hann með því að
kaupa þau og auðga þannig sjálf ykkur að andlegum fjársjóðum. Pantanir yðar
afgreiði jeg á sama hátt og jeg ~hefi gert um rit Björnsons.
Jeg nota þetta tækifæri*til þess að þakka viðskiftamönnum mínum nær og
fjær fyrir alla þá margföldu velvild og alt það traust er þeir hafa auðsýnt mjer á
árinu, sem er að kveðja, og óska mjer þess, að mega njóta hins sama frá þeirra
hendi framvegis. Ollum þessum mönnum sendi jeg bestu nýárskveðjur.
Reykjavík, 29. desember, 19^2.
Snæbjörn Jónsson.
Stúlka.
Sökum veikinda annarar, óskast dugleg stúlka til
Hafnarfjarðar nú þegar, eða 1. næsta mánaðar. Upplýs-
ingar hjá Jörgen Hansen, Laufásveg 61, Reykjavík.
Ný bðb:
Sveinbjöm Sveinbjörnsson: Tólf sönglög fyrir karlakór: (Inni-
bald: Lofsöngur — Til stjörnunnar — Sumarkveðja — Ó, fögur er
vor fósturjörð — Aldamótaljóð — Töframyncl í Atlantsál —- Ingólfs
minni — Dettifoss (með undirleik) — Fífilbrekka — Móðurmálið —
Ólafur og álfamær — Þar sem elfan er tær.) 48 bls. 4vo, með mynd
höf. Kostar ób. 4.00. Gefið út af sambandi ísl. karlakóra.
Ágæt jólagjöf handa söngvinum. Fæst hjá bóksölum.
Békaverslnu Siginsar Eymnudssonar
(og bókabúð Austurbæjar BSE, Laugaveg 34).
sumir haldi, lieldur muni sjer-
stök ráðstefna fjalla um það. —
(FÚ.).
Flugslys.
Oslo, 29. desember.
Á Spáni hrapaði flugvjel til
jarðar í gær og kviknaði í henni,
er hún kom niður. Einn maður og
ein kona fórust og var konan á
brúðkaupsferð, en maður hennar,
sem var með í vjelinni. slapp lítið
meiddur. (FÚ).
Kvikmyndafjelög tapa.
Amerísku kvikmyndafjelögin
hafa tapað mjög miklu fje á
rekstri sínum á þessn ári. — Á
fyrstu þremur fjórðungum ársins
hefir Paramount tapað 15 miljón-
um dollara, en Fox fjelagið yfir
10 miljónum. — Eina fjelagið,
sem grætt hefir, er Metro Gold-
win. — GróSi þess er tæpar 3
miljónir, en þó rúmlega helmingi
minni en árið á undan. (FÚ.).
Sjóslys.
Tvö strandferðaskip rákust á
fyrir utan höfnina í Napier á
Nýja Sjálancli. — Tíu verkamenn,
scm verið var að flytja til vinnu,
drukknuðu, en nokkrir meiddust
af ketilsprengingu, sem varð við
árelcsturinn, og voru þeir fluttir v
i spítala. (FÚ).
Mac Donald og jafnaðar-
menn.
London, 29. des.
United Press. FB.
Leiðtogi jafnaðarmanna, George
Lansbury, lýsti því yfir í gær, að
^ liann mundi verða formaður nefnd
ar, er ákveðið væri að færi á fund
i , .
Mae Donalds, forsætisráðherra
j Bretlands, til Lossiemouth, en þar
er Mac Donald, í því skjmi, að
; mótmæla fangelsun byltingarleið-
togans Toms Manns. — Mac Bon-
ald hefir tilkynt, að hann muni
ekki veita pólitískum sendinefnd-
um áheyrn á heimili sínu.