Morgunblaðið - 30.12.1932, Síða 4

Morgunblaðið - 30.12.1932, Síða 4
4 MORGUNBLATHÐ Glæný ýsa. Piskbúðin í Kola- sundi. Sími 4610. Glæný ýsa og stútungur fæst í síma 4933. Fisksala Halldórs Sigurðssonar. ■ ———i-------------------—■— Stúlka óskar eftir skrifstofu- eða búðarstörfum. A. >S. f. vísar á. Glæný ýsa. Piskbúðin í Kola- supdi. Sími 4610. Dokkrar heiltunnur af spaðsöltuðu dilkakjöti til sölu. Verð 92 kr. MagnúsTh.S. Blöndahl hf. Simi 2358. Harlnnnna ffit, Frakkar, Ryk og Regnfrakkar. VOruhúsli. HVkomli: Náttföt og náttkjólar með löng'um og stuttum ermum. mjög ódýrir. Kven og barna- sokkar, svartir og mislitii. Sömuleiðis lífstykki, sokka- bandabélti, korselett o. m. fl. Manchester. Sími 8894. Heiðruðu húsmæður! Jbiðjið kaupmann yðar eða kaup- Ijelag ávalt um: Vanillu búðingaduft frá Citron Cacao Rom H.f, Efnagerð Reykjavíkur, Besta þorskalýsið I bsennm fiið þið í nndirritaðri verslnn. Bí- vaiandi sala aann&r gæðin. BJðrninn, Bexgstaðastræti 35. Sími 4091. Hollensku flugvielinni hlekklst ð. 1 1 gærmorgun fór önnur hol- lenska flugvjelin, sem hjer er, til loftrannsókna, eins og vant er. Pór hún hátt, og hrepti slæma veðurhryðju á fluginu og gat þess vegna ekki náð flugvellinum hjer aftur, en varð að halda vestur með Reykjanesi og nauðlenti á túninu á Auðnum á Vatnsleysuströnd. — Ekki sakaði flugmanninn og flug- vjelin mun hafa skemst lítið eða ekki. Plugmaðurinn kom hingað í gærkvöldi. Hjnn hollenski flug- maðurinn, Diesen, hefir verið las- inn í nokkra daga og liggur rúm- fastur enn. Dagbók. I.O.O.F. = 11412308V2- Veðrið (fimtudagskvöld kl. 5): Lágþrýstisvæðið helst óbreytt. að mestu yfir íslandi og umhverfis það. Veður er því kyrt um alt Iand, aðeins í Vestmannaeyjum er vindur allhvass !SV. Á S- og V- landi gengur á með jeljum. Hiti er um 0 stig. Veðurútlit í Rvík í dag: Breyti- Ieg átt og hægviðri. Snjójel. Sjómannakveðja. Gleðilegt nýár. Skipshöfnin á Andra (PB.). Strandmennirnir af þýska tog- aranum, sem strandaði á Meðal- landsfjörum á dögunum, komu hingað til bæjarins í fyrrakvöld. Þeir voru fluttir á hestum úr Meðallandi til Víkur, en þaðan kómu þeir á hílum. Sama og engu hefir enn verið bjargað úr skip- inu, og er það nú að mestu komið í kaf. Skipafrjettir. Gullfoss fer frá Reykjavík 3. janúar. — Goðafoss kom til Hamborgar í fyrrinótt. — Brúarfoss og Lagarfoss eru í Kaupmannahöfn. — Dettifoss er á útleið. — Selfoss er í Reykjavík. Veðráttan í apríl. Tíðarfar var óhagstætt, lengst af norðanátt með snjókomu nyrðra og frosti, og oft hvast. Gróður, sem lifnað hafði í febrúar og mars, dó alveg út og víða varð að taka fjenað á gjöf. Loftvægið var 1.4 mm. yfir meðal- lag, hitinn 1.5 gr. fyrir neðan meðallag, og sjávarhiti 0.3 gr. til 0.5 gr. undir meðallagi. Úrkoma var, 24% umfram meðallag á öllu landinu, mest á Vestfjörðum og Norðurlandi. Á Akureyri var hvin t. d. 243% yfir meðallag. — Þoka var sjaldgæf. Norðanátt var tíð- ust, en sjaldnast austanvindar. — Mest snjódýpi var mælt 67 em. á Grímsstöðum þ. 11.—13. — Hagi var í meðallagi á öllu landinu, en nýttist víða illa vegna óveðra. — (Eftir Veðráttunni). Veðurstofnunin á Snæfellsjökli. Jensen, danski loftskeytamaðurinn í vísindastöðinni á SnæfelLsjökli, var í Ólafsvík í gær. — Hafði hann þær frjettir að færa, að á jólakvöldið hefði sest svo mikjl ísing á loftskeytaþræði stöðvar- innar, að þungi þráðanna hefði sligað símastaurana og þeir báðir brotnað. Öðrum staurnum tókst þeim fjelögum að koma upp aftur, en hinum ekki, og verður það að gerast seinna. Er stöðin sambands laus við umheiminn eins og stend- ur. Jensen bjóst við því að leggja á stað aftur upp á jökul í dag. Súðin fer hjeðan til Flateyrar seinni partinn í dag, tekur þar fisk og fer síðan beint til Eng- lands. Hún tekur heðan póst og farþega vestur. Trúlofun sína opinberuðu á jóla daginn ungfrú María Helgadóttir, Hverfisgötu 104 og Ágúst Þor- steinsson frá Káraneskoti í Kjós. Leikhúsið. Vegna geisimikillar aðsóknar að sýningum Leikfje- lagsins á „Æfintýri á gönguför‘ ‘, verður Ieikið tvisvar á nýársdag, kl. 3 og kl. 8. Sala aðgöngumiða að nónsýningunni (kl. 3) hefst á gamlársdag kl. 1 síðd. Pantaðir aðgöngumiðar óskast sóttir fyrir kl. 6 á gamlársdag. Til þess að fyrirbyggja misskilning skal þess getið að engir sjerstakir harna- miðar eru seldir. Til Strandarkirkju frá H. P. 2 kr., Reykvíking 50 kr., H. J. 5 kr., ónefndum (gamalt áheit). 1.75. Efnileg kommúnistastofnun. — Jónas frá Ilriflu vissi hvað hann var að gera hjerna um árið, þegar hann valdi kommúnistann Pálma Hannesson í rektorssætið við Mentaskólanm Hann getur og ver- ið ánægður með árangurinn af þeirri ráðstöfun. Nýlega var hald- inn fundur í „Framtíðinni", mál- fundafjelagi lærdómsdeildar, og var löggæslan í landinu til um- ræðu. í því efni er í rauninni aðeins einni spurningu að svara, og hún er þessi: Á ríkisvaldið eða óaldaflokkur kommúnista að ráða. í landinu 1 Samkvæmt því er hlað kommúnista skýrir frá, hafa lærisveinar Pálma Hannes- sonar svarað spurningunni með svohljóðandi tillögu, sem samþykt var með 27:13 atkvæðum: „Pund- ur í „Pramtíðinni", málfundafje- lagi Iærdómsdeildar Mentaskólans lialdinn 17. desember 1932, lýsir yfir, að hann telur stofnun svo nefndrar varalögreglu svívirðilega árás á verkalýðshreyfinguna, og þá menn, sem í þetta lið ganga, vesæl leiguþý íslensks ríkisauð- valds“. Vafalaust hafa þeir í fje- lagi, Pálmi og Jónas gefið lummu- kaffi eftir þenna fund. Flugeldar á gamlárskvöld. Lög- reglustjórinn hefir beðið Morgun- blaðið að láta þess getið að bann- að sje að skjóta púðurkerlingum og flugeldum á götum hæjarins á gamlárskvöld og allar sprenging- ar bannaðar. En leyft er að hafa flugelda á Skólavörðuholtinu, á Tjarnarhrú og suður hjá íþrótta- velli. Þessi ákvæði eru sett sam- kvæmt 6. gr. lögreglusamþyktar Reykjavíkur. Tryggvi Magnússon, hinn al- kunni og vinsæli teiknari, ætlar nú upp úr áramótunum að kenna fólki að teikna og mála (sjá augl. í blaðinu). Dr. Eckener, skipstjóri loftskips ins fræga, „Graf Zeppelin", fer í dag frá Rotterdam áleiðis til Egyptalands og nýlendna Hollend inga í Asíu, til þess að gera athug- anir fyrir hollensku stjórnina um hvernig hest verði á komið skipu- lagsbundnum flugferðum milli Hol lands og nýlendanna. — Ráðgert er að nota Zeppeliu-Ioftskip í ferðum þessum. (FB.). Hjónaefni. Á aðfangadaginn op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Sigríður Guðmundsdóttir og Ey- jólfnr Eyjólfsson skósmiður. Heimir (ekki Mímir) heitir sö*ig kórinn, sem skemti í Kópavogs- hælinu á annan í jólum. Hekla fór í fyrradag frá Neapel til Livorno og Genúa. Málverkasýning Pinns Jónsson- ar í Bankastræti 7 (uppi) verður opin enn í nokkra daga frá kl. 10 til 10. Hjónaefni. Nýlega opinheruðu trúlofun sína ungfrú Bergþóra Brynjúlfsdóttir Björnssonar tann- læknir og Kristján Guðlaugsson cand. jur. Trúlofun. Á jóladaginn opinber- uðu t-rúlofun sína ungfrú Anna Magnúsdóttir, Mjóstræti 2 og Ár- sæll Einarsson, Ölcíugötu 30. Mullersskólinn. Athygli skal vak in á því, að næstu námskeið Mull- ersskólans í Austurstræti fyrir börn innan skólaskyldualdurs (5 —8 ára) liefjast 3. janúar, og verða umsóknir að koma hið allra fyrsta, því að takmarkað er hvað skólinn getur tekið á móti mörg- um nemendum. Það hefir svo oft verið brýnt fýrir fólki hve nauð- synlegt er að börn fái að njóta líkamsmenningar sem allra fyrst. að óþarfi er að fjölyrða um það. En á hitt skal bent, að þau hörn, sem eru líkamlega þroskuð og heil brigð, hafa að jafnaði hagnýtara gagn af andlegri fræðslu heldur en önnur, og því er líkamsmentun nauðsynlegur undanfari hinnar andlegu mentunar og besta ráðið til þess að fóllc komist heilu og höldnu út úr langri skólaseJ Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 19.05 Fyrirlestur Búnaðarf jelags Islands: Búnaðar- afkoman 1932. (Bjarni Ásgeirs- son). 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynningar. — Lesin dagskrá næstu viku. Tónleikar. 20.00 Klukkusláttur. Prjettir. 20.30 Kvöldvaka. Mötuneyti safnaðanna hafa bor- ist eftirtaldar gjafir: N. N. 50 kr. Skipstjórafrú gaf skófatnað fyrir 60 kr. N. N. 200 kr. Kristján Egg- ertsson 20 kr. Ónefndur 100 ltr. saft. Áfeugisverslun ríkisins ýmis- legt til bökunar. N. N. % tonn kol. Gísli Sveinsson sýslum. 100 kr. Magnús Blöndahl h.f. 1 poki kartöflur, sveskjur o. fl. Jón Lofts son strangi af taui, liangikjöt, síldartunna. N. N. 2 eplakassar. H. K. 35 kr. Áheit 10 kr. Á. 20 kr. A. T. (afh. Sig. Halldórssyni) 150 kr. og 100 kr. E. B. 50 kr. Fata- böggull frá Kristjáni Sigtryggs- syni kaupm. A. K. 50 kr. Guðrún Hannibalsdóttir 10 kr. S. I. trje- smiður 10 kr. G. 5 kr. N. N. 200 kr. N. N. 40 kr. B. Þ. 50 kr. Jón Ölafsson & Co. 200 kr. B. S. 20 kr. Kolaverslun Guðna og Einars 1 tonn kol. Kolasalan 1% tonn kol. Pramtíðin ullarnærfatnaður. Danskur maður 100 kr. L. H. M. 50 kr. Jóhanna Magnúsdóttir 200 krónur. Völundur h.f. 250 krónur. S. M. S. 100 krónur. B. L. 20 kr. N. N. 10 kr. N. N. 20 kr. Kona 20 kr. G. B. 10 kr. Nafnlaust í hrjefi 10 kr. G. G. 5 kr. Gamall maður 10 kr. N. N. 5 kr. Einar Jónsson 10 kr. N. N. 10 kr. Ólafur Bene- diktsson 1 tonn af kolum. S. P. S. 20 kr. G. Þ. 50 kr. N. N. 10 kr. Aukavinna frá N. N. 24 kr. Pá- tækur 5 kr. N. N. 10 kr. M. B. 50 kr. Stúlka 5 kr. N. N. 10 kr. Ó- nefndur 10 kr. Óskar 10 kr. J. J. J. 5 kr. Maggi 10 kr. K. A. 10 kr. Guðbergur 10 kr. S. K. 10 kr. M. 20 kr. P. H. 100 kr. Stúlka 10 kr. Kristjana 5 kr. Kona 5 kr. N. N. 20 kr. G. Ó. 20 kr. Prá skipshöfn- inni á varðskipinu Ægi 138 kr. Samskot í fríkirkjunni kr. 127.41. Samskot í dómkirkjunni 485 kr. Áheit frá Keflavík 5 kr. Bestu þakkir. Gísli Sigurhjörnsson. Alar ódýr kg. 1.00. I! „DYN6JA“ er íslenskt skúri- og rsestiduft og fæst i Dýlenduvöruvepslunin les Zimsen. Holasalan s.r. Sími 45144; 21 K. R. lúlatrlesskemtan fjelagsins 2, janúar. — Aðgöngur- miðarnir eiga að sækjast í dag og- á morgun í verslun Haraldar- Árnasonar, eða til Guðmundar- Ólafssonar, Vesturgötu 24. Jðn Benediklsson fiskimatsmaður. Fæddur 2. febrúar 1880. Dáinn 4. desember 1932. Kveðja frá samverkamönnum hans. Á leiði þitt við leggjum þennan kranæ vor látni vin í nafni kærleikans. Sem þakkarfórn fvrir liðna lífið þittr sem lokið hefir nri við starfið sitt. Þú vinur góði, ávalt þökk sje þjer frá þínum vinum, sem þú áttir hjer, þín fagra lífsbraut firnast ekki kann, þó feli jörðin dáinn líkamann. Þó holdið sofi, sálin vakir þín í sælu, þar, sem lífið aldrei dvín. Þar fegri krans þú færð um höfuð þitt, er föður hönd guðs opnar ríkið: sitt. Vor fjelagshróðir, sofðu sætt og- rótt, þjer Sjálfur Drottinn veiti góða nótt. Þín ljúfa sál á himnum hærra skín. f hjörtum okkar geymist minningr þín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.