Morgunblaðið - 14.01.1933, Side 4
MORGUNBLADIÐ
Rugl$singadagbðk
MATUR OG DRYKKUR.
Fast fæði, einstakar máliíðir,
kaffi, öl, gosdrykkir með lægsta
v&rði í Café Svanurinn. (Homið
vtð Barónsstíg og Grettisgötu.
400 inflúensusjúklingar í
einu skipi.
Hinn 26. desember kom farþega-
pið „Cameronia“ til G-lasgow
Ameríku. Hafði það fengið af-
veður í hafi. Var sjógangur-
in^ svo mikill, að farþegar hentust
ú€. úr rúmum sínum og höfðu
sujpar. meiðst nokkuð- Bn annað
þó verra, því að á leiðinni
kfcm upp illkynjuð inflúensa í
bigjpinu, og lágu 400 farþegar
vfnr af henni þegar skipið náði
&££. Hafði skipslæknirninn haft
taSð nóg að starfa, enda hafði
hasnn, ekki farið úr fötum í fjóra
scfaírhringa.
Norsku lýðskólamennimir
i • ófundnir.
öslo 13. jan.
NRP. PB.
Pjörutíu nemendur af undirfor-
iilgjaskólanum í Trondheim hafa
Jeítað í gær og í dag að tveimur
lý'ðskólanemum, sem menn óttast,
afi hafi orðið úti. Leitin af þeim
hefir engan árangur borið til þessa
Nýr ritstjóri við ,Tidens Tegn'
. Ramm, einn af ritstjórum Morg-
enbladet, hefir gerst meðritstjóri
Tfjjlens Tegn. (FB)
Dagbók.
Veðrið í gær: Stormsveipur yf-
ir Grænlandshafi á hreyfingu norð
austur eftir. Vindur er yfirleitt
hyass S með regni og 5—7 stiga
hita hjer á landi. En brátt mun
snúast í Suðvestrið með hríðar-
jeíjum.
Lægðir hafa að undainförnu
farið með fram austurströnd Græn
lands og því ekki verið hætt við
N"-áhlaupum hjer á landi. Nú lítur
út fyrir að lægðirnar fari að
ganga hjer yfir landið og verður
þ'á hættara við norðanveðrum.
Veðurútlit í dag: SV og V-átt
me<ð snörpum hríðarjeljum.
Messur á morgun: f Dómkirkj-
unni kl. 11, síra Ólafur Magnús-
son, kh 5 síra Bjarni Jónsson.
. í Fríkirkjunni í Reykjavík kl.
2 sára Árni Sigurðsson.
í Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2 sr. Jón Auðuns.
1 Aðventkirkjunni kl. 8 síðd.
Ræðuefni: Helgidómurinn og helgi
dójnsþjónustur. Allir velkomnir!
Dánarfregn. í gærmorgun and-
aðist hjer í bænum Guðrún E.
Waage, móðir Páls Eggerts óla-
sonar skrifstofustjóra. Hún var
inigin að aldri og hafði verið
keilsutæp seinustu missirin.
Hjörtur Björnsson trjeskeri og
giþsari fór utan með Lyru í gær-
mbrgun. Ætlar hann að dveljast
í Noregi til vors og kynna sjer
þar heimilisiðnaðarskóla, að und-
irlagi Heimilisiðnaðarfjelags ts-
Iands. ;
Aðaldansleikur Glímufjelagsins
Ármanns verður í kvöld í Iðnó.
ísfisksala. Skallagrímur hefir
selt afla sinn í Englandi, 700 kit,
fyrir 979 sterlpd.
Innflutt var árið sem leið til
landsins tilbúinn 'áburður fyrir
528 þús. kr., en ekki 700 þús.
eins og stóð hjer í blaðinu nýlegá
í grein eftir Sig. Sigurðsson bún-
aðarmálastjóra. Blaðið hefir enn
fremur verið beðið að geta þess,
að tætara þann eða „þúfnabana“,
sem getið er um í sömu grein, að
reyndur sje í Danmörku um þess-
ar mundir, sje hægt að nota við
flestar þær tegundir dráttarvjela,
sem hjer hafa verið notaðar við
jarðyrkjustörf.
Einar Kristjánsson söngvari
hefir nú lokið söngprófi í Dresden
og var það í því fólgið að syngja
opinberlega óperuna Troubadour.
Tókst það ágætlega. Eftir að hann
hafði sungið aðal-aríuna var svo
mikið lófaklapp og læti, að hann
varð að endurtaka hana og er það
afar fátítt að slíkt komi fyrir í
óperum. Úrklippu úr blaði höfum
vjer sjeð, og segir þar að það
hafi verið hreinasta nautn að
hlusta á Einar. Honum sje að
fara stórkostlega fram og undra-
vert hvað rödd hans sje þjál og
hve auðvelt honum veitist að ná
háum og hreinum tónum. Einar
syngur öðru hvoru opinberlega og
hefir fengið ágætar viðtökur og
blaðadóma, og er það í rauninni
furða, þar sem \ hatur er lagt á
flesta útlendinga, sem koma fram
opinberlega. 26. nóvember söng
hann í operettu Offenbachs og
svo fekk hann einSöngshlutverk
í Sehauspielhaus. Nú er hann að
læra óperuhlutverk, svo sem Don
Juan eftir Mozart, Alfred í Tra-
viata eftir Verdi, Don José í
Carmen, hertogann í Rigoletto
og Rudolf í Bohéme. Þótt Einar
hafi lokið þessu prófi heldur hann
enn áfram að Iæra hjá dr. Staege-
mann í Dresden.
Landsmálafjelagið „Vörður"
hjelt fnnd í fyrrakvöld í Varðar-
húsinu. Þrátt fyrir slæmt veður
var fundurinn vel sóttur. Magnús
Jónsson alþm. flutti ýtarlegt og
fróðlegt erindi um kreppu og at-
vinnuleysi. Erindið kemur út í
,Stefni‘ innan skams og er mönn-
um ráðlegt að Iesa það þar. —
Nokkrar umræður urðu að er-
inu loknu.
Að blaka fisk. Dr. Bjarni Sæ-
mundsson hefir bent blaðinu á, að
til er gamalt íslenskt orð yfir það,
sem á Norðurlandamálum er nefnt
að „filetera" fisk, þ. e. að fletta
vöiðvunum frtá hryggnum beggja
megin. Er það kallað að blaka
fis'kinn. Hingað til hefir þetta orð
aðeins verið haft um meðferð á
lúðu, en síðan hjer kom til sög-
unnar hraðfrysting á þorski og
fleiri fisktegundum, er alveg eins
hægt að nota þetta gamla orð, þó
fisktegundir sjeu aðrar, því með-
ferðin er svipuð og á lúðunni.
Trúlofun. Á nýársdag opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Kristín
Jóhannesdóttir útgerðarmanns frá
Gaukstöðum í Garði og Atli Þor-
bergsson frá Jaðri í Garði.
Trjesmíðavinnustofa þeirra Ól.
Guðmundssonar og Halldórs Run-
ólfssonar á Óðinsgötu 13 hefir
nýlega verið stækkuð, og ætla
þeir fjelagar framvegis að leggja
stund á líkkistugerð, auk annar-
ar trjesmíðavinnu.
Bruni í sambandi við bruggun.
Orsökin til eldsins á Barónsstíg
61 var sú, að þar var verið „að
sjóða“. Uppi á lofti, um miðbik
hússins, var afþiljað herbergi, er
Guðmundur Sigurðsson bakari
hafði. 1 þessu herbergi stundaði
hann bruggun í hjáverkum sínum
og fundust þar þrjár tunnur full-
ar af legi, sem var að jastrast.
Þar voru og fullkomin bruggun-
aráhöld. f fyrra morgun, áður en
Guðmundur fór til vinnu sinnar,
setti hann upp suðuketil og
kveikti undir honum og fór svo og
ætlaðist til að þetta mallaði svona
fram á kvöldið. En rjett áður en
hann kom heim, varð fólk í hús-
inu vart við að eldur var í her-
berginu. Helgi, bróðir Guðmund-
ar, sem á húsið ásamt föður þeirra,
rauk þá upp á loft, en herbergið
var læst. Braut hann upp hurð-
ína, en þá var herbergið alelda,
svo að kalla varð slökkviliðið til
hjálpar. Guðmundur var settur í
gæsluvarðhald og meðgekk hann
þegar alt, éins og hjer er frá
skýrt og var honum að því loknu
slept úr gæsluvarðhaldinu aftur.
Mjólkurþjófnaður. Snemma á
hverjum morgni sendir Mjólkur-
fjelag Reykjavíkur mjólk út um
bæinn til fastra kaupenda. Eru þá
hús enn víða lokuð, og hafa mjólk
urílátin verið skilin eftir við dyr.
En að undahförnu hefir kveðið
mikið að því, að þessum mjólkur-
ílátum hefir' verið stolið. Lög-
reglan hefir mi komist á snoðir
nm það hverjir valdir muni að
þjófnaði þesfiúm.
Innbrotið í Sápuhúsið. Sá, sem
braust ínn í Sápuhúsið á dögunum
og stal þar, heitir Yernharður
Eggertsson, en sá, sem var í vit-
orði með Honum heitir Óskar
Sigurmundssdn. Þeir eru báðir enn
í gæsluvarðhaldi. Hefir Óskar ver-
io tregur að meðganga, en nú
hefir hann þó játað það, að hann
hafi fengið helminginn af hinum
stolnu peningum.
Inflúensan ■ mun hafa borist til
Englands frá Ameríku, en þar
hefir hún gejsað að undanförnu
og verið mannskæð. Fyrir jólin
Ijetust 4 nokkrum dögum 870
menn úr henui í Bandaríkjunum.
Hermir fregn þaðan að vestan,
að inflúensa þessi líkist mest
„spönsku veikinni“ hjerna um ár-
ið. Það er því fullkomin ástæða
til þess fyrir oss að reyna með
öllu móti að sporna við því, að
hún berist hingað til lands.
Skipafrjettir. Gullfoss er í Höfn
— Goðafoss er væntanlegur um
helgina. — Brúarfoss fer frá Rvík
í kvöld kl. 10 vestur til fsafjarð-
ar. — Dettifoss er í Hamborg. —
Lagarfoss er á leið frá Leith. —
Selfoss fór frá Hull í gærmorgun,
áleiðis til Antwerpen.
Ofviðrið. Ekki hefir frjest að
veðrin að undanförnu hafi valdið
inanntjóni, en ýmsar skemdir hafa
orðið á skipUm. Hingað komu í
gær 9 eða 10 vjelbátar frá Akra-
nesi, meira og minna brotnir. Enn
fremur komu tveir togarar, enskur
og belgískur/ báðir bilaðir, eftir
ofviðrið. Sá belgíski hafði fengið
brotsjó á sig.
Frá höfninni. Á veiðar fóru
í gær Júpíteir og Ármann. Tog-
arinn Vinur kom hingað frá Kefla
vík og liggur í sóttkví á ytri
höfn vegna þess að inflúensa er
um borð. Tveir þýskir togarar
fóru lijeðan, hafði annar leitað
hafnar til viðgerðar, hinn til að
fá kol og matvæli.
Heimilisiðnaðarfjelagið efnir til
saumanámskeiðs fyrir stúlkur og
hefst það 24. þ. m. Það stendur
í tvo mánuði, og fer kensla fram
daglega kl, 2—7.
Vesturbæjarklúbburinn heldur
dansleik í K. R. húsinu í kvöld,
sjá augl.
Margir vermenn hafa síðustu
dagana komið hingað austan úr
Skaftafellssýslu; þeir eru flestir á
leið til Vestmannaeyja.
Útvarpið í dag: 10,00 Veður-
fregnir. 12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir. 19,05 Barna-
tími. (Steingrímur Arason kenn-
ari). 19,30 Veðurfregnir. 19,40
Tilkynningar. Tónleikar. 20,00
Klukkusláttur. Frjettir. 20,30
Skugga-Sveinn. Danslög til kl. 24.
Farsóttir í desembermánuði ’32.
Kverkabólga: Reykjavík 195. —
Suðurland 60. Vesturland 16. Norð
urland 40. Austurland 22. Alls
333. Kvefsótt: Rvk 350. Sl. 293.
VI. 71. Nl. 77. Al. 23. Alls 814.
Barnaveiki: Rvk. 1. Alls 1. Blóð-
sótt: Nl. 26, þar af Siglufirði 2,
Akureyri 24, Alls 26. Gigtsótt:
Rvk. 2. Sl. 4. VI. 1. Nl. 2. Alls 9.
Iðrakvef: Rvk 61. Sl. 73. VI. 38,
Nl. 9, Al. 43. Alls 224. Inflúensa:
Rvk 6, Sl. 5? Nl. 21, Al. 7. Alls
39. Kveflungnabólga: Rvk 15, Sl.
14, VI. 2, Nl. 5, Al. 2. Alls 38.
Taksótt: Rvk 7, Sl. 4, VI. 5, Nl.
11. AIls 27. TJmferðargula: Suð-
url. 1, Vesturl. 5 Norðurl. 9,
Al. 5. Alls 20. Heimakoma: Rvk.
3, Sl. 1, Nl. 1. Alls 5. Stingsótt:
Rvk. 2. Alls 2. Svefnsýki: Sl. 1
(Mýrdalshjeraði). AUs 1. Kossa-
geit: Rvk. 3, AI. 1. Alls 4. Hlaupa-
bóla: Rvk 15, Nl. 6. Alls 21. Munn
angur: Rvk 11, Sl. 4, VI. 1, Nl.
2. Alls 18. Þrimlasótt: VI. 1. Alls
1. Farsóttartilfelli í Reykjavík,
alls 671,, Suðurlandi 464, Vestur-
landi 140, Norðurlandi 240. Aust-
urlandi 120, samtals á öllu land-
inu 1635. — Landlæknisskrifstof-
an. (FB).
Dánarfregn. Þann 17. des. sl.
andaðist að heilsuhælinu á Vífils-
stöðum, eftir Ianga legu, Krist-
mundur S. Guðmundsson frá
Bíldudal 51 árs að aldri. Þektur
sómamaður. Hann var jarðsung-
inn að Görðum á Álftanesi, 23.
desember sl.
Deilumál íra og Breta.
Keldare 13. jan.
United Press. FB.
í ræðu sem Cosgraves hjelt í
gær, 1 jet hann svo um mælt, að
ef hann yrði aftur stjórnarforseti,
mundi hann þegar taka upp samn
inga við Bretlandsstjórn á þeim
grundvelli, að öllum greiðslum
yrði frestað, og yrði miðað við
greiðslugetu fríríkismanna, þegar
greiðslurnar yrði hafnar á ný. —
„Það ætti 'að vera auðið að semja
um þetta mál við Breta á þremur
dögum“. Og bætti Cosgrave því
við, að menn yrði að gera sjer
vonir um, að bresku ráðherrarnir
myndi standast áreynsluna. ,,
Mjólkurbrúsar,
liakkavjelar o. fl., sem farið er að
rvðga, fæst tinliúðað (fortinað)
hjá Guðm. J. Breiðfjörð, blikk-
smiðja og tinhúðun, Laufásveg 4.
Sími 3492.
Barnn-
rúmstæðí
hvítlakkeruð,
4 tevundir.
Besta þorskaRsiö
f bænnra
íiið þiC í nndirritaCri verslnn. Sl-
vazandi sala sannar gæðin.
B|0rninn,
Bergstaðastræti 35. Sími 4091.
SaltklUt
Hangið kjöt
Krydd- salt-
marineruð-síld.
- í '
L|ósvnlIasO>a 10.
Sími 4879.
FrOnsk
OagstofnhúsgOgn
og amerískt eikar skrifborð
(Roltop) til sölu og sýnis í
Vonarstræti 4, neðstu hæð.
Fyrirspurnum ekki svarað í
síma. —
Ungfrú Sirrí segir að RÓSÓL>
tannkrem sje það besta sem hún
hafi reynt, enda beri tennur sínar
þess ljósasta vottinn.
Þeir sem einu sinni hafa reynt
Rósól tannkrem, nota aldrei annað.
H.f. Efnagerð Reykiavfkur
kemisk teknisk verksmiðja.
*fi kllt meO islenskin kklpum!