Morgunblaðið - 22.01.1933, Blaðsíða 3
MOBGUNBLAÐIÐ
Er ríkisvaldið máttlaust?
i
JpRorgttttbkt^to
Útgref.: H.f. Árvakur, Reykjavfk.
Rltftjórar: Jón Kjartanaeon.
Valtýr Stefansson.
Rltstjórn ok afgrelOsla:
Austurstrœtl 8. — Slmi 1600.
AUfflýslngastjórl: E. Hafberg.
▲UKljralngraskrlfstofa:
Austurstræti 17. — Slml 8700
Helmaslmar:
Jón Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskrlftagjald:
Innanlands kr. 2.00 & mánuBl.
Utanlands kr. 2.50 á mánuOl.
1 lausasölu 10 aura eintaklO.
20 aura meO Lesbðk.
Rufcin löggcrsla.
Á fjárhagsáætlunum bæjar-
sjóðs og hafnarsjóðs Reykjavík-
ur fyrir árið í ár, eru áætlaðar
69 þús. kr. til aukningar lög-
gæslu, frá því sem nú er. Eftir
|)eim atburðum, sem hjer hafa
gerst síðustu mánuðina, getur
engum komið það á óvart, að
ráðstafanir verði gerðar til að
auka löggæsluna hjer í höfuð-
staðnum.
Er þá fyrst að telja þardag-
ann 9. nóv., en síðar en ekki
síst baráttu Alþýðuflokksins og
samþyktir verkalýðsfjelaganna
gegn aukinni löggæslu og laga-
vernd í landinu.
Andstöðu jsína gegn lögreglu
byg'gja sósíalistar á því, að lög-
regla sje hjer óþörf. En þeir
"vara sig ekki á, eða virðast hafa
gleymt því, að nokkrir af brodd
um flokksins hafa með eigin
framferði og handafli sýnt, að
lögregla er hjer nauðsynleg,
•«kki síður en annars staðar. —
Kennir ekki lítillar mótsagnar
t. d. hjá Hjeðni Valdimarssyni,
■er hann leggur hönd að verki
:aneð kommúnistiskum óaldarlýð,
til þess að ráða niðurlögum lög-
regluvalds í landinu, og fer síð-
an heim og heldur því fram, að
lögregla sje óþörf. Hann getur
a hæsta lagi sagt, að lögregla sje
honum óþörf og flokki hans. En
meðan hann starfar með upp-
reisnarlýð, þá getur hann trauðla
haldið því fram, að lögregla sje
þjóðfjelaginu óþörf. Hefði hann
■verið í hóp friðmælenda og sátta-
-semjara, þá væri aðstaða hans
öll önnur.
Á Norðurlöndum hafa bæir á
.stærð við Reykjavík jafnaðarlega
'Jögreglulið 60 manna, eða tvo lög-
reglumenn fyrir hvert þúsund í-
búa. Hjer nær lögreglulið bæjar-
ins ekki helmingi á við það með-
.-altal. Ein 4% af bæjargjöldun-
um hafa ffarið til lögreglunnar.
Og svo heldur formaður Dags-
hrúnar, útlærður í þjóðfjelags-
fræði, því fram, að lögreglu sje
*hjer óþarft að auka.
Hann vinnur að vísu að því,
að sannfæra þjóðina um hið
gagnstæða. Og hefir honum og
flokksbræðrum hans tekist furðu
fljótt að koma öllum almenningi
.á þá skoðun, að hjer á landi verði
ekki frekar en annarsstaðar vas-
rækt sú frumstæða skylda þjóð-
fjelagsins, að hafa samtök um að
'halda uppi lögum og rjetti.
Annað erindi mn stjórnmál á
•guðspekilegum grundveli flytur
’ón Arnason í Guðspekifjelags-
ífiúsimt í lcvöld kl. 8f4.
íslenska ríkið hjelt háííðlegt
14 ára fullveldisafmæli sitt á
síðastliðnu ári.
í afmælisgjöf fekk það ó-
þyrmilega áminningu. Eftir 14
ára sjálfstæðisvímu vaknaði
þjóðin loks við þá staðreynd, að
ríkisvaldið hjá hinu unga og
marglofaða sjálfstæða ríki var
máttlaust og úrræðalaust.
Nokkrir ribbaldar úr liði komm
únista og sósíalista urðu til þess,
að vekja þjóðina af svefni. Bæj-
arstjórn Reykjavíkur sat á ráð-
stefnu, til að taka ákvarðanir um
ýms málefni, er höfuðborg ríkis-
ins varðaði. Mitt í ráðstefnunni
ryðjast þar að ofbeidismenn
úr liði kommúnista og sósíalista.
Þeir hóta bæjarfulltrúunum lík-
amlegu ofbeldi — og jafnvel
beita ofbeldi — ef þeir ekki vilja
gera eins og þeim best líkar. —
Leikur þessi endar með því, að
bæjarstjórnarfundinum er hleypt
upp, en lögreglulið bæjarins, sem
kvatt er til aðstoðar, er barið til
óbóta af ofbeldismönnunum.
Þegar ríkisvaldið hafði fundið
vanmátt sinn, reyndi það úr að
bæta. Það ákvað að koma upp
nokkru lögregluliði, til aðstoðar
lögreglu bæjarins, ef á þýrfti að
halda, til þess að tryggja frið-
inn í landinu og vernda borgar-
ana fyrir ofbeldisverkum óróa-
seggja.
Þóttist nú ríkisvaldið þess
megnugt, að reyna að koma fram
ábyrgð að lögum á hendur ofbeld-
ismönnunum. Það skipaði sjer-
stakan rannsóknardómara til að
upplýsa, hvað fram hefði farið 9.
nóv., og nú hófust langar og
strangar yfirheyrslur. Að þeim
loknum fyrirskipaði ríkisvaldið,
að sakamál skyldi höfðað gegn 17
mönnum, og bíða þeir nú dóms.
En á meðan rannsóknarvjel
ríkisvaldsins var í fullum gangi,
taká höndum saman hinir ákærðu
ofbeldismenn og hefja skipulags-
bundna herferð gegn varalög-
reglu ríkisins. Þeir eru við og
við kvaddir til yfirheyrslu, en óð-
ara slept aftur, svo að þéir geti
haldið áfram iðju sinni. Varalög-
reglumenn ríkisins eru ofsóttir
leynt og ljóst. Þeir eru rægðir og
svívirtir, og reynt er að stimpla
þá sem örgustu úrhrök þjóðfje-
lagsins. — Ofbeldismennirnir fá
stjettarfjelög verkalýðsins 1 lið
með sjer í herferðinni gegn vara-
lögreglunni. Þessi stjettarfjelög
hafa hingað til viljað starfa á
löglegum grundvelli, og hafa þau
þess vegna hlotið viðurkenningu
ríkisvaldsins, hvað sem úr verð-
ur, eftir síðustu atburði.
Varalögreglumennirnir eru ekki
fastir starfsmenn ríkis. Þeir eru
einskonar ígripa-lögregla, sem
jafnan á að vera til taks, ef hin
fasta lögregla reynist ónóg. Þar
af leiðir, að varalögreglumenn fá
aðeins litla þóknun fyrir starf
sitt, enda svo til ætlast, að þeir
hafi annað aðalstarf.
Varalögreglumenn tilheyra ýms
um stjettum og flokkum. — Þar
eru verslunarmenn, iðnaðarmenn,
námsmenn, sjómenn, verkamenn
o. s. frv. Þegar varalögr^glu-
menn eru ekki bundnir við æfing-
!ar eða á vakt, reyna þeir að fá
sjer vinnu, þar sem hún býðst, ef
þeir ekki hafa fasta atvinnu. En
nú hafa ofbeldismennirnir feng-
ið stjettarfjelög verkamanna til
þess, að bola varalögreglumönn-
unum frá allri vinnu.
Fimtudaginn 19. þ. m. höfðu
15 verkamenn úr varalögreglunni
fengið loforð um vinnu við upp-
skipun úr saltskipi, sem lá hjer á
höfninni. Þegar vinna skyldi hefj
ast, kemur Ólafur Friðriksson á
vettvang með hóp manna með
sjer. Hann kveðst vera þar mætt-
ur í umboði verkamannafjelags-
ins „Dagsbrúnar“, og flutti þau
skilaboð, að varalögreglumenn
mættu ekki vinna við uppskipun-
ina. Ef þeir ekki þegar í stað
hlýddu þessu boði, yrði beitt
valdi.
Leik þessum lyktaði þannig, að
þessir starfsmenn ríkisvaldsins,
varalögreglumennirnir, lögðu frá
sjer vinnutækin og fóru heim.
Rjett er að geta þess, að Hjeð-
inri Valdimarsson er formaður
,,Dagsbrúnar“. — Hann er einn
þeirra manna, sem ríkisvaldið
hefir fyrirskipað sakamálshöfðun
gegn, fyrir þátttöku í ofbeldis-
verkunum 9. nóv. s. 1. Hinn á-
kærði, Hjeðinn Valdimarsson,
beitti sjer mjög fyrir því, að
„Dagsbrún“ stigi þetta djarfa
spor, sem nú hefir verið stigið.
Sú ákvörðun getur ekki hafa ver-
ið tekin með hagsmuni fjelagsins
fyrir augum, því að vitanlega bak
ar fjelagið sjer ábyrgð með því
að rísa þannig upp gegn ríkis-
valdinu.
Ríkisstjórnin hefir ekki neitt
aðhafst til þess að brjóta á bak
aftur þessa síðustu kúgun ofbeld-
ismanna. Þetta aðgerðaleysi sýn-
ir, að ríkisvaldið er enn mátt-
laust.
Ekki er minsti vafi á því, að
„Dagsbrúnar“-broddarnir hafa
með framferði sínu teymt verka-
lýðsfjelögin út á háskalega braut,
sem getur haft hinar alvarleg-
ustu afleiðingar fyrir samtök
verkamanna. Samtök verkamanna
hafa með þessu verið tekin út af
hinum löglega grundvelli, sem
þau hafa hingað til starfað á.
Þau hafa beinlínis stofnað til
uppreisnar gegn ríkisvaldinu.
Ekkert þjóðfjelag, sem vill
vera í tölu rjettarríkja, getur
þolað það, að borgararnir rísi,
gegn lögreglu ríkisvaldsins. Og
þó að íslenska stjórnin treysti
sjer ekki, að láta nú þegar til
skarar skríða gegn uppreisn-
inni, þá getur Alþingi ekki setið
þegjandi og horft á, að verið
sje að grafa undan stoðum rík-
isvaldsins.
Alþingi það, sem saman kem-
ur í næsta mánuði, verður að
setja almenn vinnulög í landinu.
Þar verður að setja skýr tak-
mörk fyrir því, innan hvaða vje-
banda verkalýðsfjelögin megi
starfa. Þau hafa með framferði
sínu sjálf knúið fram slíka lög-
gjöf. —
iStjórnarskráin mælir svo fyr-
ir, að fullkomið atvinnufrelsi
skuli vera í landinu. — Þetta
stjórnarskrárákvæði er ekki til
lengur. Það er dauður bókstaf-
ur. Sjálft ríkisvaldið hefir ekki
mátt til þess, að vernda atvinnu
frelsi borgaranna. — Á meðan
þetta ástand ríkir, verður ekki
sagt, að við lifum í rjettarríki.
Böta uantar.
í fyrrakvöld vantaði þrjá vjel-
báta úr róðri, einn af Sandi, ann-
an úr Ólafsvík og hinn þriðja
af Akranesi. Bátarnir frá Ólafs-
vík og Sandi komu fram í gær-
morgun, en Akranesbáturinn
ekki. Hþnn heitir „Kveldúlfur".
Sást það seinast til hans í fyrra-
kvöld úti á miðum, að hann var
að draga línuna, en hún slitnaði,
og fór báturinn þá að leita að
liinni uppistöðunni. í gærdag fekk
Slysavarnafjelagið togarann ,Kóp‘
til þess að leita að bátnum.
Ennfremur er saknað vjelbáts
að austan, sem Valur heitir. Lagði
liann á stað frá Fáskrúðsfirði 19.
janúar og ætlaði til Vestmanna-
evja. Á lionum eru fjórir menn.
Varðskipið „Þór“ var fengið til
þess að leita að bátnum í gær.
8 T
S9b
Kfint$rl ð göngulör.
Þessi sjerkennilega teikning er
frá frumsýningu leiksins í Kgl.
leikhúsinu í Kaupmannahöfn fjrrir
langa löngu.
Þetta atriði er úr fyrsta þætti.
Til hægri er Skrifta-Hans, þá leik-
inn af hinum fræga leikara Ludvig
Phister. Stúdentarnir í baltsýn eru
þeir Fritz Hultmann og Miehaei
Wiehe. Síðan hefir leilturinn verift
sýndur mörg liundruð sinnum í
þessu leikhúsi.
Býr doktor f lœkolsfrœði.
Halldór Hansen læknir gaf í
fyrra vít bók um sjíikdóma, sem
líkjast magasári (Pseudouleus
ventriculi) og sendi ritið jafn-
framt læknadeild háskólans með
beiðni um að mega verja það fyrir
doktorsnafnbót. Hefir deildin talið
ritið fullgilt og fer vörnin fram
næstk. laugardag (28. jan.) kl. 1 í
Neðri deildarsal Alþingis. And-
mælendur læknadeildar eru pró-
fessor -Tón Hj. Sigurðsson og Guð-
mundur Thoroddsen. Æski ein-
hverjir aðrir að gagnrýna jútið
(ex. auditorio), skulu þeir til-
lrynna það forseta læknadeildar,
próf. Jóni Hj. Sigurðssyni, í síð-
asta lagi á fimtudag 26. janúar.
Fisktollurinn í Englandi.
Valera og írska þingið.
Berlin, 21. janúar.
írski stjórnarforsetinn de Val-
era hefir nú látið það uppi, að
hann muni beitast fyrir breytingu
á skipulagi írska þingsins á þann
veg, að mjög verði dregið úr valdi
öldungaráðsins, og að tala þing-
manna í beikl sinni verði lækkuð.
(FÚ.).
Uppreisnarmenn í Barcelona
Berlin, 21. jamiar.
Samkvæmt frönskmn fregnum
hafa uppreisriarmehn varpað
sprengjum í borginni Bareelona,
og gert með því mikinn usla. Ekki
liefir þó tekist að fá þessa fregn
staðfesta. (FÚ.).
Þjóðverjar sáttasemjarar í
Asíumálum.
London 21. jan.
United Press. FB.
Fiskimálafundurinn, sem full-
trúar sóttu frá helstu borgum
og útgerðarstöðvnm Bretlands, var
haldinn í gær, og bar á alliniklu
ósamkomulagi á fundinum, en af
honum er erfitt að fá fregmr, því
að sjerstakar ráðstafanir voru
gerðar i, I þ°ss að hatda leyndu
því. sem fram fór á fundinum,
Þó er talið fullvíst, að heildsalar
og smásalar sjeu algerlega mót-
fallnir kröfum Fjelags breskra
botnvörpuskipaeigenda. um að toll
ur á fiski veiddum af erlendum
fiskiskipum verði hækkaður.
Stefnuskrá Fianna Fail.
Dublin 21. jan.
United Press. FB.
De Valera hefir gefið út ávarp
til kjósendanna og segir hann í
því, að stefnuskrá Fianna Fail
flokksins sje nákvæmlega hin
sama í öllum aðalatriðum og við
seinustu kosningar, meðal annars
vilji flokkurinn afnám hollustu
eiðsins, breytingar á sltipun þings
ins o. fl., sem áður hefir verið
getið.
Berlin, 21. janúar.
United Press. FB.
Utanríkismálanefndin hefir til-
kynt. í samráði vfð von Neuratk,
að Þýskaland sje reiðubúið tiL
þess að gera t.ilraun til að miðla
málum i deilunni milli Japana og
Kínverja. Nánari grein hefir ekkr
verið gerð fyrir þessu. en áhersla
lögð á hlutleysi Þýskalands.
Strætisvagnastöðvunin í
London.
London, 21. janúar.
United Press. FB.
Samband fjelaga flutningaverka
manna mun ekki veita starfsmönn
um strætisvagnafjelaganna stuðn-
iug í verkfallinu, að því er segir
í tilkynningu, sem birt var í kvöld.
10.000 menn ta.ka nú þátt í verk-
fallinu. Strætisvagnar, sem ekki
eru í notkun, eru 1891 talsins og
engir strætisvagnar í förum á 180
flul ningaleiðum.
Togararnir Bragi og Karlsefni
eru nýfarnir hjeðan á leið til Eiff-
lands með afla sinn.
Fisktökuskipið Sado, sem hýer
hefir legið pi hríð. lagði á stað-
til Bretlands í gær. ,