Morgunblaðið - 09.02.1933, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Glænýtt fiskfars, nýreyktur
fc«rfi Piskmetisgerðin, Hyerfis-
gðtu 57. Sími 2212.
Kaupum tóm sultntausglös og
Qöííkur. Magnús Th. S. Blöndahl
l.f. Sími 2358,
Barnavagn, lítið notaður, óskast
til kaups. Upplýsingar á Grett-
ihgötu 22 D. (Steinhúsið.)
Fidrfars, hvergi eins gott, ný-
reyktur fiskur ódýrastur. Yerslun-
ín Kjöt og Grænmeti, Bjargarstíg
16, súni 3464,
Höfum fengið alls konar blóma
og matjurtafræ. Flöra, Vesturgötu
17r sími 2039.
Glæ ný ýsa, stútungur og reykt-
nr fískur. Piskbúðin í Kolasundi.
Sími 4610.
Veislur, skemtanir og fundahöld.
Sanngjarnt verð. Café Svanur við
Barónsstíg og Grettisgötu.
Tveggja til þriggja herbergja
ibúð, með öllum þægindum, í eða
núlægt miðbænum óskast 14. maí.
Tilboð merkt „27“, sendist A.S.Í.
falensk málverk, fjölb>-eytt 6r-
val, bæði í olíu og vatnslitum,
sporöskjurammar af mðrgum
stærðum, veggmyndir í stóru úr-
vali. Mynda- og rammaverslunin,
FVeyjugötu 11. Sig. Þorsteinsson.
Simí 2105.
Kjötfars, heimatilbúið 85 aura
kíló og fiskfars 60 aura %
kíló. Fæst daglega á Fríkirkjuvegi
3. Sími 3227.
„Krulling“. Tek að mjer hár-
liðnn í heimahúsum. Pöntunum
vdift móttaka í síma 1945 til kl.
n en 3831 eftir kl. 1.
• Hulda Davíðsson.
Glæ ný ýsa, stútungur. Beinlaus
fiskur. Reyktur fiskur. Sími 4933.
Fisksala Halldórs Sigurðssonar.
SklðafOt fyrir dömur og herra. Uöruhúsia.
Kolasalan s.f. Simi 4514.
1 »eir,
sem kaupa trúIofunarhrin)?s
hjá Sigurþór verð nltaf
ánægðir.
Lilln-eggjadnflið
er búið til úr bestu fáanlegu efn-
um, enda viðurkent af húsmæðr-
um fyrir gæði.
Það besta verður það ódýrasta.
I Hár
við íslenskan búning fáið þið best
og ódýrast unnið úr rothári í
Versl. Goðafossr
Laugaveg 5. Sími 3436.
Útlend blifð, n$komin:
111. Familie-Journal
Vore Damer
Nordisk Mönster-Tidende
Pariser Reeord
Filmjournalen.
Hamburger Illustrierte.
Yms önnur útlend blöð koma m-áð
næstu skipum.
Peuninn.
Pappírs- o g ritfanga verslun.
Ingólfshvoli.
Daqbóh.
Veðrið í gær: Við Færeyjar er
stormsveipur á hreyfingu austur
eftir. Veldur hann hjer á landi
höi'ðum straumi af kuldalofti
norðaustan úr ísliafi, en hinsveg-
ar hlýrri suðvestan átt um Bret-
landseyjar.
Frost er nú 6—8 st. norðan
lands en 3—4 st. víðast sunnan
lands.
Veðurútlit í dag: N-hvassviðri
fyrst, en fer lygnandi: Bjart og
kalt. t
Dánarfregn. Maria Clementia,
ein af systrunum á Landakots-
spítala andaðist 5. þ. m. og verð-
ut jarðsungin frá Landakotskirkju
kl. 10 árdegis á morgun.
Hríðarveður var í fyrradag í
austur hluta Rangárvall asýslu og
Mýrdal. Spiltust vötn mjög, og
tafðist fyrir það pósturinn. sem
var á austurleið.
Síldveiði var allgóð á Seyðis-
firði seinni hluta sl. viku.
Báts saknað. Klukkan um sex
í gærkvöldi var símað til Slysa-
varnafjelagsins úr Grindavík og
því skýrt frá, að menn væru
hræddir um opin vjelbát þaðan,
sem farið hefði í róður en ekki
kominn fram. Slysavarnafjelagið
bað þegar loftskeytastöðina, að
gera skipum aðvart; sömuleiðis
var tilkynning send í útvarpinu
kl. 7 í gærkvöldi. Skömmu síðar
kom skeyti frá þýskum togara,
og hafði hann þá fundið bátinn
og var á leið með hann til hafnar.
Vjel bátsins hafði bilað.
Skautasvell hefir verið á Tjörn-
inni undanfarna daga, og hafa
mjög margir notið þess. A hverju
kvöldi hefir verið krökt af fólki
á skautum, og svo mun verða á
meðan skautasvellið helst. Það er
Skautafjelag Reykjavíkur sem
sjer um svellið, og ættu menn að
styðja starfsemi fjelagsins, með'
því að gerast meðlimir þess.
Grímudansleikur Ármanns verð-
ur á laugardaginn kemur í Iðnó.
Útvarpið í dag: 10,00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir. 19,05 Erindi
um ullarvinnu og íslensku vikuna
(Halld. Bjarnadóttir.) 19,30 Veður
fregnir. 19,40 Tilkynningar. Tón-
leikar. 20,00 Klukkusláttur. —
Frjettir. 20,30 Erindi: í klaustri.
(Síra Garðar Þorsteinsson). 21,00
Tónleikar. (IJtvarpskvartettinn).
Grammófón: Einsöngur (Villa-
bella): Boieldieu: Tvö lög úr „la,
Dame blanche.“ Leo Delibes: Syl-
via Ballet (Kgl. operuorkestrið í
London, Maleolm Sargent).
Strandmennirnir af enska tog-
aranum St. Honörius, sem strand-
aði á dögunum við Melrakka-
sljettu eru væntanlegir með Esju.
Þeir hafa til þessa verið einangr-
aðir á Asmundarstöðum vegna in-
flúensu, en eru nú allir orðnir
frískir. Inflúensan breiðist ekkert
út frá Ásmundarstöðum. — St.
Honorius er nú sokkinn í sjó. —
Hinn enski togarinn, Sicyion, sem
einnig strandaði við Melrakka-
sijettu er á grynningum og eigi
talið vonlaust um, að takast megi
að ná honum út. Hefir heyrst að
von sje á ensku björgunarskipi
til þess að reyna að ná togaranum
út.
Vakningasamkomurnar í Hafn-
arfirði byrja í kvöld kl. 8 í Sam-
komusal Hjálpræðishersins. Allir
velkomnir.
Árshátíð Framtíðarinnar, fjelags
lærdómsdeildarnemenda Menta-
skóbms verður haldin í kvökl
kl. 9. Lúðrasveitin „Svangurinn“
leikur nokkur lö'r fvrir framan
skólann kl. 9J4, ef veður leyfir.
Pjetur Sigurðsson flytur fyrir-
lestur í Varðarhúsinu í kvöld
kl. 8i/2 síðd.
Tennisdeild K. R. biður þess
getið að hin forkunnar fagra
skreyting sem var iá dansleiknum
þá er aðaldansleikur K. R. var
haldiniT síðastliðinn laugardag,
verði einnig notuð á grímudansleik
Tennisdeildarinnar, sem haldin
verður á laugardaginn kemur.
Frá höfninni. Kolaskip kom
hingað í gær til Olafs Gíslasonar
og Co. Tveir enskir togarar komu
t.il viðgerðar og Súðin frá Eng-
landi. Hilmir, sem legið hefir á
Kleppsvík, var fluttur hingað í
gær og verður 'farið að búa hann
út á veiðar. Linuveiðarinn Sigríð-
ur kom af veiðum.
Skipafrjettir: Gullfoss fór frá
Reykjavík í gærkvöldi til útlanda.
— Goðafoss lcom til Hamborgar
í gær. — Brúarfoss er á uppleið.
— Dettifoss var á ísafirði í gær,
á norðurleið. — Lagorfoss var í
gær á leið til Djúpavogs. —
Selfoss var í Keflavík í gær.
Frönsku-áhugi. Eins og áður
hefir verið um getið hjer í blað-
inu, dvelur Madame Jollivet, kona
H ð 1 a r a r.
Gætið þess að á hverri dós sem þjer kaupið af málm-
ingu og lökkum, standi nafn
A/S SADOLIN & HOLMBLAD.
Það besta er ætíð ódýrast.
NOTID MIQ
ÉG E.R FL JÓTVI RKUR_ OQ QER i DÚKBNA
HALDGODB M OG HJJ -TPEG I LTAQRa
H. B. b GO.
Kaapmenn I
Mnnið eitir, að 0TA og GYLDEN AX haframjölið,
sem ern heimsþekt iyrir gaði, seljnm við mjð§
ðdýrt.-Reynið það.
I!. Dsnoðikfssfsis & Co.
Sími 1228 (þrjár línur).
rniaiauiiiiia 1 n—iiiwniiiiwniniin ii rniHniiniiirTiiiinr rmunniwiiiiiiwmiii ii i"» imi iiii miii . .. n i i
liins nafnkunna prófessors í nor-
rænum fræðum við Parísarháskóla,
hjer um stundarsakir og kennir
fr-önsku. Það er til marks um
vaxandi áhuga á frönskunámi hjer
í bænum, að frúin liefir um 80
nemendur, enda fer mikið orð
af því, hve kensla hennar sje
góð. Frúin mun hafa í hyggju
að flytja nokkra fyrirlestra á há-
skólanum, um franskar - bók-
mentir.
K. F. U. M. A-D fundur í kvöld
kl 81/Ó. Y.D. annast fundarefnið.
Allir karlmenn velkomnir.
Verslunarmannafjelag Reykja-
víkur. Bókaútlán og spilakvöld
í dag.
Blindravinafjelag íslands hefir,
aúk þess sem um var getið í gær,
fengið góðar gjafir frá ýmsum
styrktarmönnum. Má t. d. nefna
220 kr. frá Jóhanni F. Egilsson,
Nýlendugötu 7, 300 kr. dánargjöf
frá Ólafi Ólafssyni, Grettisgötu
55 og 200 kr. frá Thorvaldseus-
fjelaginu. Ennfremur hafa margir
fjelagar greitt allríflegar upphæð-
ir til fjelagsins og þar með gerst
æfifjelagar.
Ferðafjelag íslands hiður þá
sem tilkynt, hafa þátttöku í
Ijósmyndakepninni að afhenda:
myndirnar á skrifstofu fjelagsins
í Edinborg, fyrsta gangi nr. i,
á föstudag nlc. kl. 9—-10 síðd.
Næsti háskólafyrirlestur Matt-
hlasar Þórðarsonar þjóðminjavarð
ar um búnað kirkna og prestæ
á fyrri öldiim er í dag kl. 6 í
þjóðminjasafninu.
Stjórn Ármanns biður drengi er
æft bafa glímu lijá fjelaginu í
vetur að mæta í fimleikasal Menta-
skólans í kvöld kl. 9—10.
Danska varðskipið Hvidbjörnen
kom hingað i fyrradag og var sett
í sóttkví.
Kolsýru-eitrun. Litlu munaði að
kolsýru-eitrun yrði þrepi mönn-
um að bana á Akureyri aðfara-
nótt miðvikudags sl. Var þrent
I heimili, tvær konur og karl-
maður. Kolaofh var í herberginu
og var lokað fyrir ofninn og kol'
sett á eldinn áður en háttað var
á þriðjudagskvöld. Gekk fólkið
því næst til svefns. Næsia morg-
un voru báðar konurnar meðvit-
unarlausar I rúminu; en karlmað-
urinn gat við illan leik gert lækni'
aðvart'. Hann kom brátt á vett-
vang og gat bjargað fólkinu. —
Hafði myndast gaseitrun frá
ofninum.
Fanginn á Djölfaey. Vegna sí-
feldra fýrirspurna um þessa
merkilegu æfisögu, sem birt var-
bjer I blaðinu, skal þess getið,
að hún er væntanleg sjerprentuð
innan skamms.
Bókasafnið í „British Museum“
hefir um 4 miljónir binda. Hyllu-
lengd bókasafnsins er 88 kílómetr -
ar. —