Morgunblaðið - 15.02.1933, Blaðsíða 3
s
JftorgtutHaKd
’■ Ötfref.: H.f. Árvakur, Roykjavtk.
■, Rltatjórar: Jðn KJartanason.
Vaitír Stef4n*«on,
j tltatjörn og afgrelösla:
Austurstrœti 8. — Slnai 1#00
•.UKÍJ’sinKastJðrl: E. Hafber*.
4ug-lS’*ingaskrifstofa:
Austurstræti J7. — Slnal S700
Helinaslmar:
Jðn KJartansson nr. 8742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskriftaglald'
Innanlands kr. 2.00 A mAnuQL
Utanlands kr. 2.S0 A mAnuBL
I lausasðlu 10 aura elntaklB.
20 aura meB Lesbðk.
fleykiavlk oq Hriflungar.
* Það kennir ekki lítillar mót-
-sagnai' í afstöðu Hriflunga og-
annara bolsa gagnvart Reykjavik.
í öðru orðinu tala þeir um það
að Reykjavík sje alveg á heljar-
þröm hvað efnahag snertir, hjer
sje alt í niðurníðslu og- kalthi-
koli — vegna þess, bæta þeir
við, að mennirnir sem á fjórum
■árum eyddu 29 miljónum umfram
fjárlög hafa ekki haft hjer nein
yfirráð yfir bæjarmálum.
En í sömu andránni taia þeii'
um vandræði sveitanna og land-
búnaðarins. sem ráða' þurfi fram
TU'.
Og þeir hafa ráðin við liendina.
T?eir ætla að láta Reykjavík borga
brúsann. Af Reykvíkingum á, að
"taka fje það, sem þarf til að
rjetta við efnahag sveitanna. —
Reykjavík sem þeir í öðru orðinu
lýsa sem rústanna bæ, á þó
að geta bætt upþ með enn nýjurn
Og nýjum álögum, það sem aðra,
landshluta vantar.
Síðan bæta þessir fjármálaóvit-
ar því við, að dýrtíðin í Reykja-
vík sje algert, hneykslismál og
liún sje að sliga landið.
En þegar talað er um dýrtíð-
ina í Reykjavík, má ekki gleyma
því, að einn dýrtíðarliðurinn er
það, að ýmsar búnaðarafurðir eru
ihjer seldar fyrir tvöfalt og jafn
vel margfalt verð þeirra erlendis.
Yfirlýsing.
Wegna hinnar harðvítugu árásar
Hjéðins Valdimarssonar alþm., í
Alþýðublaðinu 13. þ. m., á*mig og
Wigfús Einarsson skrifstofustjóra,
út áf kaupum á Reykjahlíð í Mos-
fellssveit f. h. Minningarsjóðs
lijónanna Jóhanns Jóhannessonar
-og Sigurbjargar Guðnadóttur, vil
jeg láta þess getið, að kaup þessi
•eru gerð í samráði við trúnaðar-
mann stofnanda sjóðsins og því
-skilyrði bundin, að- fjárveitinga-
nefndir Alþingis samþykki.
Persónulegum illmælum Iljeðins
1 minn garð hirði jeg' ekki að
gsvara.
Reykjavík, 14. febrúar 1933.
Magnús Guðmundsson.
Sviffluj? yfir Alpa.
London 14. febr. FÚ
Svissneski flugmaðurinn Farner
rjeðist í það í gær að fljiiga yfir
Alpafjöllin í svifflugi. Tlró önnur
flugvjel fyrst svif-flugvjelina upp
í 2500 metra liæð og slepti henni
þar. Farner lenti heilu og höldnu
í Milano.
V: >1 tl. ? o ÍA Tj $) f (}: r
MOKG V N P i A
Frd 5tarfsemi 5ölusambanös
íslenskra fiskframleiðenöa.
Eru misfellur á fiskimatinu?
Samtal uið Richarö Thors.
Svo sem kunnugt er, var „Sölu-
samband íslenskra fiskframleið-
énda“ stofnað í júlímánuði síð-
astliðið ár. Þessi öflugu samtök
urðu upphaflega tii á þann hátt,
að þrjú stærstu útflutningsfirmun
hjer á landi, Kveldúlfur, Fisltsölu-
samlagið og Allianee lögðu niður
sína. útflutningsverslun og mynd-
uðu Sölusambandið. Komst þann-
ig í upphafi megnið af öllum fiski
landsmanna inn undir samtökin.
En síðar bættust við fjöldamargir
fiskframleiðendur víðsvegar um
land, svo að segja má, að Sölusam-
bandið hafi sjeð um sölu á nál.
öllum fiski landsmanna s.l. ár.
Sölusambandið var upphaflega
stofnað með það fyrir augum, að
sjá um sölu fiskframleiðslunnar
árið 1932. Lengra þótti ekki fært
ao fara í byrjun. Yar því ákveðið
að bíða með ákvaraðnir fyrir fram-
tíðina uns nokkur reynsla væri
fengin fyrir því, hvernig samtök
þessi gæfust.
Fyrir jkömmu birtist í blöðun-
um tilkynning frá stjórn Sölu-
sambandsins, þar sem frá því var
skýrt, að nú væri seldur nálega
allur sá fiskur, sem Sölusamband-
inu var falið að sjá um sölu á;
jafnframt óskaði stjórnin eftir
umsögn fiskeigenda um það. hvort.
þeir vildu að Sölusambandið starf
aði áfram þetta ár. Skyldu þeir
segja til um þetta fyrir 15. þ. m.
Samtal við Richard Thors,
Vegna þessa tímamóts í sögu
Sölusambandsins sneri Morgunblað
ið sjer til Riehards Thors, for-
manns sölunefndarinnar og- spui'ði
hann um árangurinn, sem orðið
hefði af samtökunum.
—■ Þegar fisksölunefndin hóf
starfsemi sína, segir Riehard
Thors, vár boðið í fisk hjer syðra
55—60 kr. í stórfisk og 45—48 kr.
i labra. Strax og samtökin voru
fastbundin fóru fyrstu fisksend-
ingar nefndarinnar frá landinu.
Fiskeigendur fengu fyrir fiskinn
sem hjer segir: 75 kr. fyrir stór-
fisk og 57 kr. fyrir labra.
Síðan hefir fisksölunefndin
greitt stöðugt hækkandi verð,
sem þó taiplega mun svara,
geymsluko.stnaði og vaxtatapi. —
Og nú síðast hefir salan verið
80 kr. fyrir stórfisk og 59 kr. fyrir
labra. Þetta verð miðast við Faxa-
flóafisk, en tilsvarandi hærra verð
hefir jafnan fengist fyrir verð-
meiri fisk út um land.
En þó tekist hafi að þoka verð-
inu þetta upp á við, er það sorg-
leg staðreynd að framleiðslan
þarfnast hærra verðs til að geta
borið sig, og þá sjerstaklega tog’-
araútgerðin sem enn s.l. ár hefir
stórtapað. Hinsvegar höfum vjer
ekki sjeð oss fært að fara lít í
neinar öfgar með verðhækkun, þar
sem vjei’ að sjálfsögðu höfum orð-
ið að gæta þess að neytslan hjeld-
ist og kaupendur í neytslulöndun-
um gætu rekið viðskiftin með
hagnaði.
— En hvernig eru horfurnar
•framundan ?
— Allur fyrra árs fiskur er nú
seldur og verður sendur út á næst-
unni, eða svo snemma, að vjer er-
um að vona, að hann verði allur
uppetinn, þegar nýja framleiðslan
verður tilbúin. Neytslumarkaður-
inn ætti því að vera fær um, að
taka strax á móti nýju framleiðsl-
unni. Er þetta ólíkt betri aðstaða
ei' verið hefir síðustu árin.
—- Búist þjer við að fiskverð
hækki enn meir?
— Því er ekki að leyna, segir
Richard Thors, áð ástandið í
neytslulöndunum er þannig, vegna
hinnar almennu viðskiftakreppu,
að sáralitlar eða engar líkur eru
til þess, að fiskverðið hækki nökk-
Uð að ráði úr þessu. Sannleikur-
inn er sá, að fiskurinn er dýr
fæðutegund í neytslulöndunum,
miðað við aðra vöru þar. Þessu
valda einkum hinir gífurlegu toll-
ar, sem eru á fiski þar.
—• Hvernig hefir Sölusamband-
inu verið tekið meðal fiskkaup-
manna í neytslulönduiium ?
— Yfirleitt má seg'ja það. að
því hafi verið vel tekið. Sölusam-
bandið hefir haldið verðinu stöð-
ugu, og það hefir mikla þýðingu
fyrir fiskkaupmennina. Þó að bor-
■ið hafi á nokkurri óánægju meðal
einstakra fiskkaupmanna verður
ekki annað sagt en að menn hafi
látið sjer vel líka þessi samtök.
Eru misfellur á fiskimatinu?
Sú óánægja, segir Richard
Thors, sem vart hefir orðið rneðal
fiskkaupmanna í neytslulöndun-
um, hefir sumpart stafað af
vonbrigðum. sem kaupendur liafa
orðið fyrir vegna matsins. Ovana-
lega mikil brögð virðast hafa
verið á misfellum á matinu, en
það er lífsskiljmði fyrir fiskversl-
unina að úr verði bætt. Því sam-
ldiða því sem rnatið virðist fara
l ersnandi hjer á landi, eru keppi-
nautar vorir a'íj bæta mátið hjá
sjer. Er nú svo komið að íslenska
matið nýtur lítils trausts hjá kaup
endunum, en keppinautar vorir og
sjerstaklega Færeyingar hafa kom
ið því í besta lag, enda, ef til vill
liægara viðfangs fyrir þá, sem að
heita má að eingöngu framleiði
handfærafisk.
Ekki má svo fara að íslenska
matið, sem um skeið bar af mati
keppinauta vorra, verði álitið lak-
ast, lieídur ber að keppa að því,
að því verði í heiðri haldið og
]iað hjálpi til að skapa það öryggi
sem nauðsynlegt er í þessum við-
skiftum. Yerða allir, sem hjer
eiga hlut að rnáli að skilja það, að
eins og þessari verslun er fyrir
komið, þar sem kaupandinn greið-
ir vöruna áður en hann sjer hana,
þá er okltur ekki samboðið að
láta fara frá oss lakari vöru en
tilgreind er í sölunni, enda lætur
ekki sami kaupandinn g’lepja sig
oftsinnis, og fara þá misfellur á
matinu að verða útlátasamar fvr-
ir landsmenn.
Það er sem sje ekki nóg’ þótt
einhverjar smábætur komi í stað-
inn. Kaupandinn finnur sig aldrei
öruggan og hættir honum við að
reikna með því versta. Þannig
verða misfellur á matinu háska-
legar fyrir heildarverðið.
— Hefir ekkei’t verið gert til
þess að reyna að fá lagfæringu á
matinu ?
— Jú, vegna þeirra umkvartana
um matið, sem oss hafa borist,
höfum vjer snúið oss til mats-
mannanna og- farið þess á leit, að
ráðstafanir yrðu gerðar til þess
að koma í veg fyrir endurtekn-
ingar á óvönduðu mati. Mun sú
málaleitun vor verða tekin til
greina.
Saltfiskurinn —
BráðabirgSalögin.
— Hvernig hafa bráðabirgða-
lögin frá 5. des verið notuð? spyrj-
um vjer.
— Sölusambandið hefir fylgt
þeirri stefnu að lá.ta hvern og einn
fá útflutningsleyfi til Norðurlanda
og Stóra Bretlands, sem hefir
getað sannað Sölusambandinu að
verðtilboðið' væri aðgengilegt. Hef-
ir því ekki þurft að missa af nein-
um sölum, en hinsvegar verið rek-
inn varnagli fyrir því að boðinn
væri saltfiskur fyrir lægra verð
en vjer höfum samtímis selt tyrir.
Yjer höfum þegar fyrir löngu selt
til útflutnings allmikið af óverk-
uðum saltfiski, en illvirðri hafa
valdið því að útskipun seinkar
fram í næsta mánuð, þó reynt
verði að koma út smásendingum
í þessum mánuði.
Hinsvegar ættu fiskeigendur
ekki síður að treysta Sölusam-
bandinu til að selja saltfiskinn en
verkaða fiskinn, sem þó er aðal-
útflutningsvaran og miklu marg-
brotnara verkefni.
—- Er ekki víst að Sölusam-
bandið starfi áfram á þessu ári?
— Jeg tel miklar líkur fyrir
því, að svo verði, segir Richard
Thors. Margir fiskframleiðendur
hafa þegar gefið sig fram og ósk-
að mjög eindregið eftir því, að
Sölusambandið starfi áfram.
Austfjarðabátarnir komnir
fram.
Vestmannaeyjum, FB. 14. febr.
Austfjarðabátarnir Fylkir og
Gyllir, sem liafa haft útivist frái
því á föstudag, komu liingað í
gærkvöldi. Á þeim voru 15 menn,
þar á meðal sex ára stúlka, dóttir
annars formannsins. — AUir vel
frískir.
Bátar hjer eru flestir tilbúnir til
róðra. Tregur afli seinustu daga.
Fjárlög Frakka sambvkt.
Parts, 14. febrúar.
United Press. FB.
Fulltrúadeild þjóðþingsins vott-
aði Daladier traust sitt með 359
gegn 235 atkvæðum. Einnig felst
deildin algerlega á fjárlögin, sem
voru rædd án þ,ess hlje yrði á, frá
því snemma á sunnudag.
Svíar reka kommúnista
úr landi.
London 14. febr. FÚ
Ritari enska kommúnistaflokks-
ins var tekinn fastur í Stokkhólmi
í gær. Svenska dagbladet segir
frá því, að hann hafi ætlað að
æsa kommúnista í Svíþjóð til
óeirða og hafi skjöl fundist hjá
honnm, sem sanna þetta. Honum
mun nú verða vísað úr landi.
Hoover talar um geng;ismál.
London 14. febr. FÚ,
Hoover lijelt ræðu í New York
í gærkvöldi, er vakið hefir all-
mikla eftirtekt í Evrópu, og ekki
hvað síst í Englandi. Sagði hann
meðal annars, að þær þjóðirseip
hefðu liorfið frá gullinnlausn, yrðn
að hverfa að henni aftur. Ef þáð
> rði ekki gert, myndi Bandarík-
in neyðast til þess að gera sjálfs-
ai narráðstafanir gegn þeim lörid
um sem hefðu felt gengi sitt. ■—
Haun gaf í skyn, ao Bandaríkin
myndu fús til þess að verja ein-
hverjum hluta af fje þyí ■.epi Ev-
rópuþjóðirnar liafa greitt app í
stí’íðsskuldir 'sínar, til ]">ess að
koma gjaldeyrinum á fastan
grundvöll. Sagði hann það aðal-
atriðið. en ekki endilega hitt, að
gengi það sem lækkað hefir verið,
yrði liækkað. Hann hjelt því fram
að- ef Bandaríkin væru beðin- að
léggja. eitthvað í sölurnar fjárhags
lega til viðreisnar efnahag lieims-
ins, mundu þau krefjast þess, áB'
aðrar þjóðir gerðu hið 'saína.
Skinnauppboð grænlensku
verslunarinnar. Verðhækkun
14. febniar.
Skinnaupphoð dönsku Grænlands-
verslunarinnai’ var haldið i dag
og kom inn rúm liálf miljón
króna. — Á uppboðinu voru 2618
blárefaskinn, 1935 livítrefaskinn
og 92 ísbjarnarslnnii. — 1. fl.
hlárefaskinn ko.must upp í 1100 d.
kr., hvítrefáskifiri Uppfí 300 og tp-
bjarnaskinn upp í 550. — Er þetta
öllu Iiærra. verð en fekkst fyrlr
skinnin í fyrra. (FÚ.).
Hnefaleikari laminn tíl
dauða.
14. felrrúar.
Hnefaleikarinn Shaffe, sáiri
barðist við Carnera á föstndagbin
i New York og var sleginn nt&tn*
í 13. atrennu, andaðist á spttala í
dag. Shaffe fekk heilahlóðfall og
lömun öðru megin eftir hnefalerk-
inn og var undir eins fluttnr 6í
spítala. Lögreglan hefir nú fyrir-
skipað að taka Carnera fastan,
fyrir að hafa orðið Shaffe á:ð
hana. Allir st.arfsmenn við hnefa-
leikinn múnu verða kállaoir fyrir
rjett og lögreglan hefir þegar
rannsakað glófa, ..þá, sem hnefia-
leikamennirnir: notuðu. :— (Fúf).
Fundnar herbúðir Caesars.
London, 14. febrúar.
Frjettst hefir í dag’. að franski
málarinn Naurice Bossnet hafi
fundið leifar fornra herbúða ,sem
Gallar höfðust við þá er •Tuliiv
C'aesar barðist við foringja þei’rra.
Vercingetorix, á.rið 52 f, K. Her-
búðirnar eru í Auvergne hieraði.
og hjetu til forna Gergovia í
viðureign þessari heið Caesar mik
inn ósigur fyrir Göllum. (FXJ.L
Skipafrjettir. Gullfoss kom til
Kaupmannahafnar í gær. — Goðs
foss fór frá Hull í gær. — Brúai
foss fer frá Reykjavík í kvöld
kl. 10 vestur. — Dettifoss kom 15i
Reykjavíkur í nótt. — Tjagarfoss-
og Selfoss eru á útleið.