Morgunblaðið - 16.02.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.02.1933, Blaðsíða 3
M O 8 GUN B t A Ð © jÉftorguublaM^ Öt*ef.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. -iltetjórar: Jón KJartanaaon. Valtýr Stefknsaon. ■tJtatJórn og afgreióala: Austurstræti 8. — Simi 1Í00. tUKlýalngastJðrl: E. Hafberg. tUKlýaingaakrifstofa: ; Austurstræti J7. — Slaai 8700 Helaaasimar: | Jón KJartansson nr. 8742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. E. Hafberg nr. 8770. | Áakriftagiald: Innanlanda kr. 2.00 & m&nuSl. Utanlanda kr. 2.60 A mánuBL • t lauaaaðlu 10 aura eintaklB. 20 aura meb Leabók. Þingið. * í gæi' var þingið sett, Þjóðin væntir mikils af þessu 'þing-i, væntir þess fyrst og fremst ■að þingið leiði stjórnarskrármálið í farsæla liöfn, svo fenginn verði grundvöllur fyrir rjettlát kosn- Ingalög. Jafnframt og ekki síður er þess vænst, að þetta þing sýni atorku -og fyrirhyggju til þess að færa rekstur þjóðarbfisins til samræmis við núverandi fjármálaástand og g.ialdþol þjóðarinnar. Er þess nú beðið með eftirvænt- ing, hvort þingið að þessu sinni vex af vandanum, og fær leyst úr verkefnunum, ellegar vandinn reynist því ofvaxinn, hvort nægi- Tega margir þingmenn skilja kröf- ur nútímans á því stjórnarfarslega og fjárhagslega sviði. Fyr á árum voru málefni vor út -á við, lát-in sitja í fyrirrúmi fyrir liinum innri endurreisnarmálum, atvinnumálum. A meðan svo stóð ■á, gætti þéss síður, þó eigi væri íult stjórnarfarslegt jafnrjetti meðal þjóðfjelagsborgaranna. Síðan 1918 hefir, sem lrunnugt ■er, áhrif kjósenda á skipun AI- ‘þingis farið mjög eftir þvi í hvaða flokki þeir eru, þjóðin ýmist á.tt yfir höfði sjer, eða við að búa löghelgað ofríki minnihlutastjórn- ;ar. — Skilyrði til eindrægni og sam- 'starfs um velferðarmál þjóðarinn- ai er, að með öllu verði girt fyrir 'löghelgaðaii órjett við skipun lög- y ja farsa m k omun nar. 'Páist hann afnuminn, er fenginn ■samvinnugrundvöllur undir næsta vandameira og flóknara verkefnið, ,að byggja upp. í landi voru, eftir þeim skilyrðum sem land og sjór ‘hafa að geyma, trygga. og lveilla- TÍka atvinnuvegi, er veita öllum ■þeim sem vinna vilja og bjarga fsjer, örugga og bjarta framtíð. Andstaða Regn skattahækk- unum í Frakklandi. Paris, 15. febrúar. United Press. FB. Miðar með mótmælaályktunum -gegn skattahækkunum þeim, sem fulltrúadeildin samþykti, hafa ver- ið límdir upp í bæjum og borgum Frakklands, um gervalt landið. ‘Skattahækkanir þær sem um er að ræða, nema 3 miljörðum og '239 miljónum franka. Talið er ekki ólíklegt, að öld- ungadeild þingsins felli skatta- hœkkanirnar og verði ríkissjórnin 'því að biðjast lausnar. Þingsetning. Kl. laust fyrir 1 í gær komu þingmenn saman í anddyri þing- hússins og gengu þaðan í lrirkju og Idýddu þar á. guðsþjónustu. Magnús Jónsspn prof. theoi. pi'jedikaði og lagði út af Mattl.e- usarguðspjalli 6. kap. 31.—33. Versi: Ségið því eklíi áhyggjufullir: Hvað eigum A'jer að eta?, eða: Hvað eigum vjer að drekkaf, eða: Hverju eigum vjer að klæðast? Því að eftir öllu þessu sækjast heiðingjarnir, og yðar himneski faðir veit, að þjer þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis lians og rjettlætis, og- þá mun alt þetta veitast yður að auki. Magnúsi Jónssyni mæltist vel og skörulega að vanda. Kirkjan var troðfull af fólki. Biiið var að tilkynna það, að guðsþjónustunni yrði útvarpað, en laust fyrir kl. 1 varð einhver bilun í útvarps- stöðinni á Vatnsenda og komst útvarpið ekki í lag fyr en M. J. var fyrir nokkru byrjaður á ræðu sinni. Að guðsþjónustu lokinni gengu þingmenn til fundar í neðri deild- arsal Alþingis. Þar las forsætis- ráðherra upp hin venjulegu kon- ungsbrjef, um að Alþingi væri stefnt saman og lýsti því næst yfir, að þingið væri sett. Bað for- sætisráðherra því næst þingheim að minnast ættjarðarinnar og kon ungs með ferföldu húrra, og var það gert. Þá bað forsætisráðherra aldurs- forseta þingsins, Svein Ólafsson 1. þm. Sunnmýlinga, að taka sæti í forsetastól og stýra fundi uns lok- ið væri kosning' forseta. Aldursforseti mintist, fjögurra fyrverandi þingmanna, er látist höfðu síðan Alþingi kom síðast saman. Voru það þeir August Flygenring, Björn Sigfússon frá Kornsá, Einar Jónsson frá Geld- ingalæk og Ólafur Friðrik Davíðs- son. Þingmenn mintust þeirra með því að rísa upp úr sætum sínum. Þessu næst skiftu þingmenn sjer í þrjár kjöi'deildir til þess að at- huga kjörbrjef. Eitt kjörbrjef lá fyrir til athugunar og úrskurðar; var það ltjörbrjef Pjeturs Hall- dórssonar þm. Reykvíkinga. Fyrsta kjördeild fekk kjörbrjef hans til athugunar; hafði hún ekkert við það að athúga og- sam- þykti þingið kosninguna. Er hjer var komið frestaði ald- ursforseti fundi til kl. 5 síðd.; ástæðan til þessarar frestunar var sú, að Framsóknarflokkurinn hafði ekki verið búinn að komá sjer saman um fórsetana. Kosningar í sameinuðu þingi. Er fundur hófst að nýju fóru fram kosningar í sameinuðu þing’i. Tr. Þórliallsson var kjörinn for- seti Sþ. með 23 atkv., Jón Þor- láksson hlaut 14 atkv., en 4 seðl- ar voru auðir. Varaforseti Sþ. var kjörinn Þorleifur Jónsson með 23 atkv. Skrifarar: Jón A. Jónsson ög Tngólfur Bjarnarson. 1 kjörbrjefanefnd voru kosnir: Pjetur Magnússon, Magnús Jóns- son, Sveinn Ólafsson, Guðm. Ólafs- son og Bergúr Jónssön. Kosningar í deildum. Efri deild. Forseti: Guðm. Olafsson með 7 atkv., Halldór Steinsson hlaut 6 atkv. og einn seðill var auður. Varaforseti: Ingvar Pálmason með 7 atkv., 7 seðlai' voru auðir. 2. varaforseti: Páll Hermannsson með 7 atkv., 7 seðlar auðir. Skrifarar: Pjetur Magnússon og Jón .Jónsson. Neðri deild: Forseti: Jörundur Brynjólfsson með 15 atkv., P. Ottesen lilaut 8 atkv., Bernh. Stefánsson 1 og 3 séðlar voru auðir. Varaforseti: Ingólfur Bjarnar- son með 16 atkv., 11 seðlar auðir. 2. varaforseti: Halldór Stefánsson með 15 atkv., 12 seðlar auðir. Skrifarar: Magnús Jónsson og Bernliarð Stefánsson. Frá Norðfirðiv Norðfirði, 15. febr. 1933. Aflafrjettir. Ágætur fiskafli á smábáta inni í firðinum síðustu daga, einnig síld veiði. Línuveiðarinn „Sleipnir", eign Páls Þormar fór lijeðan í gærkvöldi iáleiðis til Reykjavíkur; ætlar að stunda línuveiðar sjTðra á vertíðinni. Bæjarmálin í útvarpinu. Mönnum hjer þótti yfirleitt ljelegar útvarpsumræðurnar um bæjarmál Reykjavíkur. Fólk iit um land hefir yfirleitt lítinn á- liuga fyrir þessum málum. Auð- heyrt var að ýmsum fjarstæðum var haldið fram, sem ekki getai staðist gagnrýni. Ðregur til stórtíðinda í Asíu. Peking, 14. febrúar. United Press. FB. Fullyrt er hjer að Japanar und- irbúi tilkynningu til kínversku stjórnarinnar um úrslitakosti og verði tilkynningin afhent ef Kín- verjar fallist ekki á að hætta lið- söfnuði í Jehol og mótspyrnu gegn áformum Japana þar.. Kínverska stjórnin hefir tilkynt, að hún muni undir öllum kringumstæðum hafna úrslitakostum Japana og berjast uns yfir lýkur fyrir Jeliolhjerað sem sje kínverskt hjerað, er Jap- anar eigi ekkert tilkall til ög hafi engar rjettmætar ástæður til þess að senda her manna til. Bankarnir fá greiðslufrest. Detroit, 14. febrúar. United Press. FB. Ríkisstjórnin hefir gripið til þeirra ráðstafana að lýsá yfir a.1- mennu banlta-og lánstofnanafrxi um átta daga skeið frá deginum í dag að telja. Eru bankarnir því í raun og veru undanþegnir öllum greiðsluskyldum þennan tíma. Óll- um bönkum ríkisins hefir verið lokað vegna f járhagserfiðleika pen ingastofnana, sem eru nú orðnir svo erfiðir viðfangs, að óhjákvæmi legt þótti að grípa til fyrnefndra l'áðstafana í bilí Til Strandarkirkju frá Vin 10 kr., S. B. 5 kr., ónefndmn 10 kr. Frð útvarpsumræðunum um bæjarmá! iReykjavíkiu. Eigi mun mörgum blandast hugur um hvernig á þeirri ný- breytni útvarpsins stóð, að halda umræðukvöld um bæjarmál Reykjavíkur, og skifta ræðutíma milli fjögra flokka. Ljklegt var, að umræ;ðurnar liefði borið állmikinn blæ af því, að þar hefði minni hluti bæjar- stjórnar þrefaldan ræðutíma á móti meiri hlutanum, og hafi meiri hluta xitvarpsráðs verið ósárt um. En umræður þessar munu ekki hafa farið að óskum hins þrí- elfda minni hluta m. a. vegna þess að hann var ekki óskiftur, er til kom, en aðallega vegna þess hve ræður Hriflunga, Alþýðu flokksmanna og kommúnista urðu ómerkilegar, fullar af rakalaus- um staðhæfingum, mótsögnum og rembilegri mælgi, Eins og' lesendum blaðsins er kunnugt, flutti Jón Þorláksson borgarstjóri hið fyrra kvöld er- indi um fyrirtæki bæjarins. En hið síðara kvöld tók Jalcob Möller þátt í umræðum, af hendi Sjálf- stæðismanna Hriflungar tveir töluðu, Her- mann lögreglustjóri og' Eysteinn skattstjóri. Þrír bæjarfulltrúar sósíalista St. Jóh. St., Sig. Jón- .asson og Ól. Friðriksson og' kom- múnistarnir Einar Olgeirsson og Guðjón Benediktsson. Hriflungar iáttu í öllum aðal- atriðum samleið með sósíalistum, eins og- vænta mátti, en kommún- istar voru að þessu sinni alveg sjerstæðir. Jakob Möller sýndi fram á verstu mótsagnirnar og hrakti helstu rangfærslurnar, sem þeir andstæðingar hans báru fram, eftir því sem tími vanst til. En liann sagði, sem var, að óþarfi væri að eyða á þá mörgum orðum —■ þar sem ræður þeirra sjálfra bæru með sjer, hvílíkar fjarstæð- ur þeir færu með, eins og t. d. ei Eysteinn skattstjóri hjelt því fram að hallinn á rekstri bæjar- ins hefði undanfarin fimm ár verið kr. 2.650,000, en á sömu árum liefðu skuldir bæjarins auk- ist um U/2 miljón. Ekki reyndi skattstjórinn að afsaka þetta gat sitt í reiknings- íærslunni, enda er hann vanari því að segja og gera vitleysurnar, heldur en að afsalta þær. Heiftin gegn barnaskólanum. Tímasósíalistar og hinir klifuðu hvað eftir annað á því að skuldir bæjarins hefðu á síðustu 5 árum hækkað um helming’. En leng vel hliðruðu þeir sje hjá því að nefna tölur. St. Jóh. Stef. tók það svo nákvæmlega fram, að hækkunin hefði orðið 103%. Og þeir bættu við: Bærinn hef- ir tekið lán sín (lþé miljón) og lagt fjeð í óarðberandi fyrirtæki! Bn hvað er svo þetta „fyrirtæki“ sem bærinn hefir lagt fjeð íf — 5>að vita allir bæjarmenn. Það er Austurbæjarbarnaskólinn, vand- asta og merkilegasta skólabygg- ing, sem hjer hefir verið bygð. Telja Hriflungar skóla ónauðsyn- lega? Bera þeir ekki arð fyrir þjóðina? Ef barnaskólinn nýi hjer í ■Revkjavík hefir ekki hingað til kostur fyrir almenning. komið að tilætluí'n gagni, þá ei- i jett að tala um það við IÞifhi mann, er, þvert ofan 1 viljá skóla- nefndai' tróð inn í skólann’ bráð- ónýtum skólastjóra, enda- gátu Hriflungar ekki bent á anuað mannnum til ágætis, en að huun lijéti Sigurður(!) Gróði fisksalanna. Hermann Jónasson h.jelt því frarn hið fyrra kvöld, að Um % miljón króna á ári rynni xir vasa Reykvíkinga til fisksala bæjarins. Menn spurðu: Hefir lögreglustjór- inn sagt skattstjóranum frá þessu? Sennilega efast bæjarbúar alt. fyrir þetta um miljóna gróða fisk- salanna. En Ólafur Friðriksson mótmælti. því, að um stórgróða væri að ræða, —- en bætti við þeirri „skýr- ingu“ að fisksalar græddu ekki — af því að þeir yrðu að jafnaði að kaupa fiskinn hærra yerði en almenningur(!) Hver skyldi þá njóta hirts al- menna verðs? Þetta er hjer sagt til þess.að- gefa dæmi um það, á hvaða lág- sti'gi þessar bæjarmálaumræðu.r sósíalistanna voru. ,,Þarf ekki saltara“. Er Ólafur Friðriksson ræddi við fornvini sína kommúnista, sagði hann. að engan saltara þyrfti til; þess að keyra í hausinn á hinum kommúnistiska sel, því hann sykki ■ af sjálfu sjer. ítaiir önugir við Frakka. Berlin, 15. febrúar, f ítalska blaðinu Popolo d’Italia, sem er málgagn Mussolinis, birt- ist allharðorð grein í garð franskra blaða, sökum þess að þau hafa ymprað á því, að Þýskaland' og ítalía hafi gert með sjer leyni- legan hernaðarsamning. — Kveð- ur blaðið Fralcka annað hvot blátt áfram ljúga þessu eða. þetta bygg- ist á fölsun. — Til afsökunar fyr- ir hinn gífurlega vígbúnað sinn, sjeu Frakkar nú að reyna að vekja! upp drauga stríðsliættunnar við Rín. (FÚ.). Lloyd Georse viS fjórtánda mann. Berlin, 15. febrúar. f neðri málstofu breska þíngsins hefir verið stofnaður nýr frjáls- lyndur flokkur, og eru í honum 14 manns. — Foringi þessa nýja flokks er hinn gamli formaðui frjálslynda flokksins David Lloýd George, fyrrum forsætisráðhemp Það er talið, að þessi nýi flokknr muni greiða atkvæði með van- traustsyfirlýsingu þeirri, sem verkamannaflokkurinn hefir ffutt gegn stjórninni, þegal' hún kemur til atkvæða. (FÚ.). Lögtaksbann hjá bændum. — Þýska stjórnin hefir gefið út neyð arráðstöfun um lögtaksbann hþ: bændnm og gildir ]xað til 31. októ- ber næstkomandi. — Er samkvæHlt neyðarráðstöfun þessari bonnáf að gera lögtak í lausafje og kvik- fjenaði bænda. — (FÚ.).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.